Morgunblaðið - 17.08.1969, Blaðsíða 4
4
MOB'GUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1909
1-44-44
Rvérfiscötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
ÍVIAGrMÚSAR
I5K1PH31TI21 SIMAR21190
eftir lokun ílmi 40381
BILALEIGANFALURHF
car rentalservíce ©
fH* 22-0-22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
Bókhaldsvinna
Opirvbert fyrirtaeki vil'l ráða strax
mann trl bákhalds- og gja'ld-
kerastarfa. Góð bókhaldskunm-
átta og sta-rfsreynsla rtauðsyn-
teg. Ti'lboð, merkt „Trúnaðarstarf
3539", með upplýsingLHn um
aikfur og fyrri störf, senórst afgr.
sem fyrst eða fynir 26/8.
Enn sem fyrr
Mallorka
London
ódýrustu og beztu
utanlandsferðirnar
Leiguflug beint til
Spánar Dvöl i
London á heimleið
ferðaskriistofa bankastræti 7
símar 16400 12070
UppseFt í a-H-ar ferðir í ágúst
og september nema ef losnar
vegna forfa'IHa. — Nokkur
saeti teos 1. og 15. október.
Yndistegur tími t»l sumar-
auka. Sól og hiti um 30 stig.
0 Varhugavert fyrir ís-
lenzka flugmenn að
storka stjóminni
í Lagos
Virtur borgari ,sem kýs að
skrifa undir atvinnuheiti sínu,
segir:
„Heiðraði Velvakandi!
Frétt £ Morgunblaðinu í dag,
13. ágúst, um það ,að íslenzkir
flugmenn hafi í hyggju að ráða
sig til starfa hjá stjórn Biafra,
varð til þess, að ég rita þessar
línur.
Hafi íslenzkir flugmenn, trú-
lega nýskriðnir úr skóla ,hug á
að fara til Biafra, ættu þeir ekki
að básúna það út í blöðunum,
a.m.k. ekki fyrr en þeir þá kæmu
aftur, og að stríðinu þar af-
stöðnu.
Von Rosen og þátttaka hans í
her Biafra varð til þess , að
sænsk áhöfn var tekin fyrir og
flugvél hennar skotin niður með
þeim afleiðingum, sem allir
kannast við.
Nú starfa margir íslenzkir flug
liðar við hjálparstörf ,bæði fyrir
kirkjusamböndin og Rauða kross
inn. >að er vitað mál, að sam-
bandsstjórnin í. Nígeríu hefir lát
ið þetta liggja svona nokkurn
veginn milli hluta, þótt til mála-
mynda hafi verið gerðar árásir
öðru hverju. Það er einnig vitað,
að ef sambandsstjórnin í Lagos
ætlaði sér að tortíma þeim áhöfn
um, sem vinna þessi störf, þá
væri það auðvelt verk .Nú er ver
ið að setja saman I Lagos flug-
vélar af nýrri gerð, sem bera
radarstýrðar rakettur. Verður þá
hreinn bamaleikur fyrir sam-
bandsstjórnina að skjóta niður
hverja þá flugvél ,sem þeim sýn-
ist ,yfir Biafra og nágrenni. Það
væri hörmulegt, ef einhverjir
strákgosar færu að blanda ís-
lenzkum flugmönnum beint í
hernaðaraðgerðir í þessu ógæfu-
sama landi, sem svo gæti haft
þær afleiðingar, að sambands-
stjórnin sýndi íslendingum það í
verki ,að þeim væri fyrir beztu
að skipta sér ekki af hernaðin-
um, og skyti niður íslenzka flug
vél með íslenzkri áhöfn.
Það er til sóma íslendingum,
hversu vel hefir tekizt til með
hj álparstörfin, og ber þar hæst
nafn Þorsteins Jónssonar, sem
með dugnaði og hugprýði hefir
unnið fórnfúsara starf en marg-
an grunar. Það má ekki með
gleiðgosaskap búa honum og öðr
um flugáhöfnum þama suður frá
meiri hættu en núer og hefur ver
ið.
FlugmaSur".
0 Fundið að við blaða-
menn og útvarpsmenn
J. Ö. P. skrifar:
„Góði Velvakandi!
Aðeins fáeinar aðfinnslur .Þú
hnýttir nokkrum athugasemdum
aftan í pistil Jóns G. Pálssonar
6. þm.., þar sem hann vegur
hart að afkáraskap í unglinga-
tízku (svo sem fjöldinn allur ger
ir) og spyrð svo sem í tilefni
þess, hvort ekki skuli sekta fólk
fyrir hiksta, æðahnúta á fót-
um eða rauðan háralit. Hér er
mjög skotið fram hjá marki, og
ætla ég, að þú hafir sjálfur verið
í sumarleyfi þessa daga en, etn-
hver lítt fyndinn náungi hafi
hlaupið í skarðið fyrir þig.
Þegar páfimi dó úr hiksta,
gerði hann það ekki til að vekja
á sér eftirtekt, enda þurfti þess
ekki ,þar sem hann var sá eini
sinnar tegundar í heiminum .Æða
hnútar á fótum er sjúkdómur en
ekki tízkufyrirbæri, og sektir
fyrir sjúkdóma hef ég aldrei
heyrt nefndar. Sé rautt hár „ori-
ginalt“ er ekkert við því að segja
fremur en jörpu eða svörtu
öðru máli kann að gegna ef það
er keypt í búð eða framleitt í
snyrtistofu.
Svo var það sama dag ,að
Mbl. skýrir frá, að „einhverjir
gárungar" hafi rifið upp merki-
spjöld við jurtir í grasgarði
Reykvíkinga og dreift þeim eða
fjarlægt. Slikur verknaður heyr-
ir ekki undir gamanleiki eða
gárungaskap, heldur heitir hann
á íslenzku skemmdarverk eða
spelivirki.
Að týna lifi
Þá leiðist mér að heyra sjón-
varp og útvarp tönnlast á því,
að þessi eða hinn hafi „týnt lífi“
(sb. tabt livet), þar sem maður-
inn FÓRST (af slysförum, óeirð
um, hernaði). Er leitt að sjá ekki
meiri árangur af blaðamanna-
skólanum, sem svo myndarlega
var til stofnað nýlega, og mun
m.a. hafa átt að temja frétta-
mönnum málvöndun.
Þreyti þig þá ekki meira .Þú
ræður, hvort þú birtir þetta i
heild .glefsur úr því eða ekkert
af því.
Ætíð marg-blessaður,
J.Ó.P."
Q Vörn höfð uppi í mál-
inu. — Grímur og
Gunnhildur leidd fram
sem vitni
— Velvakandi þakkar bréfið
frá J.Ó.P., sem mun ekki með
öllu ókunnur blaðamennsku. Vel
vakandi getur tekið undir þess-
ar aðfinnslur að flestu leyti
nema þá helzt hina síðustu.
Vera má, að það sé orðinn leið-
ur tízkukækur hjá fréttamönnum
hljóð- og myndvarps að segja
„týna lífi“, án þess þó að Vel-
vakandi hafi tekið sérstaklega
eftir því , en varla mun þetta
orðasamband geta talizt rangt.
Eða hvað segir ekki sjálf
Gunnhildur konungamóðir við
menn sína (í 3ja kap. Njálu),
eftir að þau Hrútur hafa legið
uppi á lofti saman við ölteiti og
annað gaman í hálfan mánuð?
„Þér skuluð engu fyrir týna
nema lífinu, ef þér segið nökk-
urum frá um hagi vára“. Og
fleiri dæmi má sjálfsagt finna í
fornsögunum, þótt þetta komi
eðlilega fyrst fram í hugann,
enda stundum til þess vitnað á
vorum dögum við svipaðar kring
umstæður (á nútíma blaðamanna
máli kallaðar „aðstæður"), — en
á venjulegri nýtízku-íslenzku er
bara sagt: „Ég skal drepa þig,
ef þú heldur ekki kjafti".
Þá endar eitt kvæða Gríms
Thomsens (,,Heift“) á þessum
hendingum:
brugðu hjörvum, týndu fjörvi.
Jafnvel „að tapa lífi“ er jafm-
góð íslenzka sem danska, sbr.
minnistæCa setningu í Bærings
sögu: „Skal ek svá til haga, at
þér tapit bæði lífi ok sæmd“.
Það er hægt að týna lífi, tapa
lífi og missa llf á íslenzku, sam-
anber vísuna, sem J. Ó. P. kann
ast áreiðanlega við:
Stóð í hjarta stálið bjarta,
stundi undin;
féll af hesti maðurinn mesti,
missti líf og helju gisti.
0 Keflavfkursjónvarpið
„Ágæti Velvakandi!
Mikið hefur verið rætt bæði um
hunda og bjórinn undanfarið og
hafa verið stofnuð samtök um
bæði málin. En hvað um Kefla-
víkursjónvarpið? Eru menn bún
ir að gleyma því? Hvers vegna
hafa ekki verið stofnuð samtök
um það mál? Þarna gefst okkur
kostur á að horfa á úrvals-
skemmtiþætti með heimsfrægum
skemmtikröftum, þætti, sem við
eigum e.t.v. aldrei eftir að sjá í
því íslenzka ,En hvað gerum við?
Jú, við látum einhverja vesæla
60—menninga koma því til leið-
ar, að sjónvarpsstöðin er látin
draga úr styrkleika sínum og
beina útsendingarloftnetum sín-
um frá Reykjavíkursvæðinu. Og
þar við situr.
Ég er anzi hræddur um að, eitt
hvað myndi syngja í nágrönnum
okkar, Dönum, ef koma ætti í
veg fyrir, að þeir sæju sjónvarps
sendingar frá Svíþjóð, Þýzka-
landi og fleiri löndum, sjónvarps
sendingar, sem þeir horfa á dag-
lega.
Látum álit okkar í ljós, stofn-
um samtök, gerum hvað sem er,
en fyrir alla muni fáum aftur
Keflavíkursjónvarpið. Við vilj-
um fá að velja á milli vöruteg-
unda, þegar við förum í verzlun,
af hverju ekki að velja á milli
sjónvarpsstöðva, þegar við horf
um á sjónvarp? Samtaka nú,
Reykvíkingar!
Þ.K.“
Slærnur raddburður
GuSmundur Magnússon , sjó-
maður, Laugarnesvegi 64, skrif-
ar:
„Velvakandi!
Þótt Jón Múli Árnason sé í
alla staði vænsti maður, þá er
ekki heppilegt, að hann lesi frétt
ir útvarpsins, þar kemur til ,að
hann hefur svo dimma og
þvoglulega rödd, og þegar út
fyrir borgarsvæðið kemur, er
varla skiljanlegt orð af þvi, sem
hann er að segja, — og má bæta
þvi við ,að meðal sjómanna hef-
ur hann ekki miklar vinsældir.
Það kann vera, að ekki sé mik-
ið að missa, þar sem oftast er
um sömu þvargmál stórveldanna
að ræða ,hitt má vera öllu óskilj
anlegra, hvers vegna íslending-
ar þurfa að bíða til loka frétta-
tímans eftir að heyra, hvað ger-
ist í þeirra eigin landi, og væri
ekki ofraun að fá fyrst fréttir
af landsmálum. Þetta kann að
vera frekja að bera fram þannig
óskir, en þó varla, þegar huggað
er til margra ára þjónustulausr-
ar fréttamennsku og einokunar
við hlustendur".
ASAHI PEMTAX
ASAHI PENTAX myndavélar nýkomnar. Vinsælasta vandaða
myndavélin um allan heim. — ASAHI PENTX.
Stórgiæsilegt úrval af linsum, filterum og öðrum fylgihlutum
fyrir ASAHI PENTAX myndavélar.
Komið, skrifið eða hringið eftir mynda- og verðlistum.
FÓTÓHÚSIÐ
Bankastræti. — Sími 21556.
Fann hver bana í brosi annars,
No. 16001
Mercedes-Benz 220
Höfum til afhendingar strax
Mercedes-Benz 220.
RÆSIR H.F.
FERDINANT í SUMARFRÍI Á SUÐURLANDI