Morgunblaðið - 28.09.1969, Page 17

Morgunblaðið - 28.09.1969, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SÍBPT. 1960 17 Falleg bók Reykjavík, hin nýja bók Heimskringlu, er óvenjulega fög ua- og vel út gefin. Myndirnar eru aðal uppistaða bókarinnar. Þær ná yfir allt að því tveggja alda tímabil og eru þó langflest- ar nýjar. Við skoðun þeirra fá menn nokkra hugmynd um þró- un bæjarins, og allgóða um út- lit hans og athafnalíf íbúanna nú. Allur frágangur er smekk- legur og er bókin því í senn girnileg til eignar og vel fallin til gjafa. Hún er prentuð í Hol- landi. Ekki er um það að fást frekar um þessa bók en ýmsar aðrar, sem vandað hefur verið til og þó leitast við að halda kostnaði í hófi. En hér sannast enn, að betur má ef duga skal, svo að íslenzk bókagerð verði samkeppnisfær við það, sem bezt gerizt annarsstaðar. Fyrir aðra skiptir það ekki máli, en áhuga- menn um sögu Reykjavíkur mundu vafalaust hafa kosið nán ari skýrinigar á ýmsum myndum, bæði um tímasetningu og nöfn, jafnt á mönnum sem húsum. Slíku hefði auðveldlega mátt koma við án truflunar á megin- máli eða myndasíðum með við- bótarskýringum aftan við, eftir því sem vitneskja var fyrir hendi. Aðalatriðið er þó, að bók in er prýðileg til að sjá og mun verða mörgum til ánægju og fróð leiks. Svo er einnig um inngang bókarinnar, sem Björn Th. Haust í Reykjavík. REYKJAVÍKURBRÉF Björnsson listfræðingur hefur ritað. Inngangurinn er skemmti- lega skrifaður, þó helst til skrúð máll, og gefur um mangt góða hugmynd um þróunarsögu borg- arinnar. Við haran verður samt að gera ýmsar athugasemdir, svo margt sem þar er hæpið eða beinlínis missagt. Úrelt söguskoðun og ónákvæmni Fyrst ber að geta þess, að í bókinni virðist hvarvetna leitast við að gæta hlutleysis í dægur- málum. Því fer fjarri, að hér sé á ferðum kommúnisk áróðurs- bók, þó að bæði Heiimskringla og aðalrithöfundurinn hafi löng um hneigst til þeirrar úreltu kreddu. Þetta ber að lofa, en því athyglisverðara er, að þrátt fyrir gagnstæða viðleitni, þá er hugsunarhátturinn gegnsýrður af marxiskum fjarstæðum. Slíkt lýsir sér jafnt í tilefnislausu tali um stéttaskiptingu og fullyrð- inguir^eins og þessari: „Sagan kveður sér til menn. Þegar mest er í húfi, stækkar hún þá og eflir til átak- anna, sem þeim eru ætluð.“ í þessum orðum á s. 17, sem eru upphaf kaflans um Skúla fógeta Magnússon kemur fram hin mótsagnakennda söguskoð- un Marxismans. Annarsvegar fullyrðing um framþróun með fyrirfram ákveðinni ætlan, þar sem mannskepnan er einungis talin verkfæri eða handbendi þróunarinnar. Hinsvegar afneit- un þess, að til sé nokkur höf- undur þróunarinnar, er sett hafi henni þær reglur, er hún fari eft ir. Nú er það auðvitað rétt, að atburðir móta menn, en hitt er ekki síður rétt, að menn móta atburði. Því fer og fjarri, að það sé niokkur algild regla, að sag- an kveðji sér til menn á þann veg, að þegar mest sé í húfi stækki hún þá og efli til átak- anna, sem þeim séu ætluð. Því miður eru ótöluleg dæmi þess, að menn hafi ekki reynst vaxnir þeim vanda, sem leysa þurfti, eða unnið þau átök, er þeim voru ætluð. Engin almenn, lög- bundin regla hefur enn fundist í þessum efraum. Manngildið hef Laugardagur 27. sept. ur miklu meiri þýðingu en Marx taldi það hafa. Manngildið verð- ur og ekki til fyrir neina óhagg- anlega efraislega þróun, né er það ætíð fyrir hendi, þegar mest þarf á því að halda, heldur sprettur það af orsökum, sem menn kunna enn ekki að skýra. Réttur skilningur á þessu sker úr um það, að allar áætlunar- gerðir langt fram í tíma um mannleg samskipti eru á sandi byggðar, og að talið um blinda þróun þjóðfélagsaflarana fær elkíki sltafðizít „Lyngheiðar Jótlands” Skrif Bjöms Th. Björnssonar er ekki einungis mótað af rangri og úreltri söguskoðun, heldur og mishermi og ónákvæmni t.d. um tímaröð. Dæmi um ranga eða ruglaða tímaröð, skulu aðeins nefnd fá. f framhaldi þeirra setninga, sem hér var vitnað til úr kafl- anum um Skúla fógeta segir á s. 17: „Undir miðja 18. öld hafði allt lagst á eitt um að ganga svo af landinu, óstjóm og einokun verzlunar, en síðar eitrað ösku- fall og bráðar drepsóttir, að tal- aið vatr tuim „Isíiamdis toitalle inuiiin“, og það helzt fundið til bjargar í konunglegum ráðuneytum, að flytja landslýðiran suður á lyng- heiðar Jótlands, líkt og fénað úr örbitnum haga.“ Hér er gefið í skyn, ef ekki berlega sagt, og verður ekki öðru vísi skilið af samhengi, að hugmyndin um flutning íslendinga suður á Jót- landsheiðar, hafi komið fram áð- ur en áhrifa Sltúla fógeta fór að gæta í landsstjórn. En hafi hug- myndin fram komið var það þó óraeitanlega ekki fyrr en eftir móðuharðindin, þ.e. eftir að Skúli hatfði að mestu unnið lífs- starf sitt. Hitt skiftir þó miklu meira máli, að Þorkell Jóhannes son sannaði þegar í Andvara- grein 1945, sem endurprentuð er í „Lýðir og landshagir" I s. 114-—137 og áréttaði í VII. bindi Sögu íslendinga s. 282—285, að allt of mikið hefur verið gert úr þessum ráðagerðum um flutn- ing íslendinga. í ljósi þeirra gagna, sem Þorkell vitnar til, er fjarstæða að halda því fram, að isŒikiir filultiraiiragair hiafi hielzlt ver- ið fundnir til bjargar í „kon- unglegum ráðuneytum". Slík sagnfræði þvert ofan í heimild- iir diugar éklki, iþó að Ihiiins veigiEir sé ekki næg ástæða til að neita að hugmyndinni hafi verið hreyft. „Þungur draumur” Þá segir Björn Th. Björrasson á s. 20, að með veitingu kaup- staðarréttinda hirin 18. ágúst 1786, hafi saga Reykjavíkur tek- ið snöggan fjörkipp. Fyrst telur hann hinar efnislegu framfarir, sem af þessu hafi leitt, en síðar segir hann: „Og andlega lífið dregst að þessari veraldlegu grósku. Lat- ínuskólinn í Skálholti er flutt- ur til Reykjavíkur, og byggt yf- ir hann---------. Kirkjan gamla, við Ingólfstraðir, er komira að ofanlotum, og þegar nú ráðist er í að byggja nýja, er henni valinn staður austast á Austur- velli, efnd af höggnu grjóti, og það ákveðið að hún sikuli verða dómkirkja landsins. Þegar svo er komið, er að sjálfsögðu ekki langt að bíða eftir því að bisk- upinn dragi sig nær musteri sínu.“ Sannleikurinn er sá, að vegna móðuharðindanna var ákveðið strax með konungsúrskurði 15. apríl 1785, þ.e.a.s. meira en ári áðlur ©n kaupstaðarréttindini voru veitt, og enn lengra áður en áhrifa þeirra fór að gæta, að flytja biskupssetrið í Skálholti, skólann og dómkirkjuna til Reykjavíkur, og byggja þar hús undir þau, þar sem haganlegast og bezt þætti. Þá segir Björn á síðu 30. „Heimskreppunni slotaði í Reykjavík hinn 10. maí 1940, kl 7 að morgni. Þótt þungar drun- ur styrjaldarinnar hefðu ekki borist til landsiras, höfðu Reyk- víkingar fengið að sjá menjar heranar: íslenzk fiskiskip sigldu hvert eftir annað inn á höfnina með sundurskotna brú ogstund um lík margra skipverja á dekki. Engum duldist að ísland dróst æ nær viðburðum veraldar, þótt fæsta grunaði með hvaða hætti eða afleiðingum. Unz þennan morgun, að höfnin var skyndi- lega krökk af brezkum vígdrek- um---------“ Engum öðrum en Birni Th. Bjömssyni er kunnugt um slíkt manntjón á íslendingum af völd um styrjaldarinnar fyrir 10. maí 1940. Af hverju gleymir hann Karla? Björn Th. Björnsson véfengir ekki söguna af öndvegissúlum Ingólfs Amarsonar og þýðingu þeirra fyrir landnám Ingólfs í Reiyikjiaivilk. Elr m. a. s. að sjá sem Björn vilji í öðm orðinu taka undir, að þarna hafi æðri guðleg forsjón verið að verki. f hinu gerir hann aftur á móti mikið úr áhrifum strauma og landkosta á Seltjaæraarnesi á upp haf ísl'andsbygigðar. Hann segir á s. 5: „Þegar sæfari kemur að suðurströnd íslands, er þar hafnleysa ,en straumar liggja vestur með landi. Fylgi hann þeim, er hvergi lendandi höfn, fyrtr en kemur í Faxaflóa, og fyrsti staðurinn þar sem býður honum bæði höfn og grösugt undirlendi, það er Reykjavík." Ekki þarf langt að fara til að saranfærast um, að þessi fullyrð- ing stenzt ekki. Næsta nes fyr- ir sunnan Seltjarnarnes er Álfta nes. Þar er ólíkt meira af álit- legu grösugu undirlendi en á Seltjarnarnesi og miðað við þeirra tíma farkost, litlu lakari höfn en í Reykjavík. Því fer og fjarri, að aldrei hafi verið „um þaið viilllzlt", aið vtilð Reyikijiaivílk „haldist í hendur gæði hafs og lands“, eins og Björn kemst að orði. Eran kamnast margir við, að lanigi vtar niaiulmiast svio mliininzit á Reykjavík í tali utanbæjarmanna, að þeir hefðu ekki á orði, að fyrir utan húskumbalda væri þar ekki annað að sjá en holt og grjót. Þessi skoðun var eng- in nýjung, því að Landnáma hef ur eftir Karla, þræli Ingólfs, það, sem frægt er orðið: „Til ilRs Æómu vér um igóið Ihénuð, er vér ekulum byggja útnes þetta.“ Vafalaust halda sumir spek- ingar því nú fram, að þessi orð séu skáldskapurinn einber. Sé svo, sem raunar er engin ástæða til að ætla, þá eru þau þeim mun merkilegri. Því að þá eiga þau að vera vitnisburður út- breiddrar Skoðunlar í upphafi fs- landsbyggðair. Skoðunar þeirra, sem hvorki fóru eifltir leiðbein,i-ng um goðanna né álkvörðuin höfð- iragj ans, Inigólfs. Er mierlkillegt að maður, sem geriir svo mikið úr stéttamun sem Bjöm Th. Björns son skuli gleyma þessum marg- tilvitnuðu orðúm. „Nafnlausir staðir hljóta nafn” „Dæmi um ónákvæmni eru fleiri en tölu verði á komið í fljótu bragði. Sagt er á s. 5, að Ingólfur hafi verið „sonur Arn- ar á Fjölum í Sogni“. Rétt er það að Fjalir eru nú í því fylki í Noregi, sem kennt er við „Sogn og Firði“, enda munu ýms dæmi þess, að Fjalir hafi verið taldar í Sogni. Engu að síðutr er slíkt villandi, því að ferðamönnum skilst, að þeiir séu konmiir úr Sogni og norður í „Firðina", þeg ar þeir koma að Fjölum. Höf- undur Landnámu hefur einnig litið svo á, því að hann segir þá frændur, Ingólf og næstu for- feður hans, hafa átt heima „í Dalsfirði á Fjölum", og er ljóst af samhengi, að hann telur það byggðarlag hafa verið í Firða- fylki. Þetta er að vísu í næsta nágrenni við Sogn. En af hverju ekki að hafa það, sem réttara eir? Nokkru síðar á s. 6 segir Björn um landnám Ingólfs: „Nafnlausir staðir hljóta nafn. Sum eru heiman úr áttlhögun- um, en gróðiursett hér á ný, Við- ey, Keiili-r; önmur em af náittúm fari kennd, Esja, Grótta, Örfir- isey og enn em þau sem af mönraum em dregin eða skipum, Vífilsfell og Elliðaár. Þaranig nemur maðurinn landið, ekki einasta með verkum handanna, heldur og með frjóum huga sín- um.“ Allt er þetta haglega orð- að en ófróður maður um ör- nefni mundi heldur halda, að Keilir væri svo nefndur af lög- un sinnd, heldur en leita hefði þurft fyrirmyndar um þá nafn- gift til Noregs, þótt vel kunni svo að vera. Hins vegar er ís- lenzkuim feriðalöragum , Noregi bent á fjöll nokkm fyrir sunn- an Fjalir og þau sögð heita Esjufjöll eða eitthvað mjög í líkingu við það. Vandséð er og af hvaða „náttúrufari“ hér fjall- ið „Esjia“ sé svo raefnt. Þeiss hefði og mátt geta, að spöl fyrir utan byggðina í Dalsfirði er vík, sem sögð var heita Kleppsvík, eða eitthvað mjög svipað, er minnti mjög á Klepp hér inni í Sundum. Voru Þingvellir í landnámi Ingólfs? Björn Th. Björnsson drepur á s. 6 á stofnun allsherjarþings þ.e. Alþingis, og segir: „Því er valinn staður í landnámi Ing- ólfs, þar sem síðan heita Þing- vellir — — — “ Hér er alltof fortalkáliausit tekið til orða. Ein- stök Landnáimiulhandrit er raunar talið miega lesa svo, að landnám Ingólfs hafi náð að Hrafnagjá, og hefur sá lesháttur þó verið talinn óviss. Hitt hefur fremur verið haft fyrir satt, að Ingólf- ur hafi numið land „milli ölfus ár og Hvalfjarðar, fyri utan Brynjudalsá, milli ok Öxarár, ok öll nes út“, eins og í öðmm handritum stendur. Matthías Þórðarson, sem allra manraa bezt hefur kynnt sér staðhætti á Þingvöllum og sögu þeirra, fær- ir að því ítarleg rök í ritgerð sinni um Þingvöll, er út var gef- in 1945, s. 56—57, að sennilegra sé, að landnám Ingólfs hafi náð að Öxará, eiras og hún ranra áð- ur en henni var veitt ofan í Al- mannagjá, þ.e. meðan hún rann með hlíðunum suður fyrir Kára- staði og út í Þingvallavatn nærri Skálabrekku. En þótt um þetta kurani að mega deila, af Ihverju að fullyrða sannleiks- gildi þess, sem vægast sagt er vafasamt? Andúð á Snorra Sturlusyni Bjöm Th. Björnsson hefur feragið þá flugu, að „veldi Snorra Sturlusonar“ hafi reynst Reykjavík harla „örlagaríkt". Hann færir að því ýms rök á s. 9—10, og er ekki unnt að rekja þau hér nema að litlu, en bersýnilega er honum lítið gefið um þennan mesta rithöfund og sagnfræðing íslendinga fyrr og síðar. Bjam segir hann „hold- tekju þessarar harðleiknu mála- fylgjiualdair", þ.e. 13. aldarimra- ar. Eitt af því, sem Bjöm nefn- ir sem dæmi um áhrif Snorra á örlög Reykjavíkur er, að hann hafi „gert leynilega stefnuför" á hendur „allsherjargoðaraum í Beykjavík, er þá hét Magnús Guðmundsson", og hafi „Reykja- víkurbóndi“ beðið lægra hlut í þessum málaferlum. Hér skal sízt gert lítið úir hlut Magnús- ar Guðmundssonar, sem vafa- laust hefur verið mikill mann- kostamaður. En prófessor Ólaf- ur Lárusson, sem var allra manna kunnugastur byggða- sögu íslands og þá ekki sízt Seltjarnamess, telur sbr. „Byggð og saga“, s. 95—96 og 110—112, ólíklegt að Magnús hafi átt Reykjavík, eða nokkru sirarai verið „Reykjaviikiurbándi“, heldur hafi bústaður hans hér syðra verið að Nesi á Seltjarn- arnesi. Þá vitnar Björn til þess, að vteflldi Sniariria raifli rieymzit Reykjavík enn örlagaríkara, vegna þess að hann hafi: „árið 1226 MJuitazit till uttn (kialup á Viöley til harada auðlugum venzlamanni Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.