Morgunblaðið - 20.02.1970, Qupperneq 4
4
MORG UNB.LAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1070
%
>
M jl BtléA I ElfíA X
Æ'AIAIir
MACMUSAR
skipholt»21 símar2U90
efrír loWun ilmi 40381
-=-35555
■ * 14444
\mflDIR
BILALEIGA
HVEUFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna -VW svefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
Mlaleújan
AKBUATJT
■ /t^i ifc-ti— ii ~ifi i nnfi%
«6Ö©tCií-’£l ippp
Lækkuð leigugjöld.
r
* 8-23-4?
xendmn
■ ■
Okukennsln
GUÐJÓN HANSSON
Simi 34716.
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar,
púströr og fleiri varahlutir.
f margar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. - Sími 24180.
<
iall; /° / / h
\MJLSR£li> i
Vélopakkningar
Bedford 4-6 cyl. d:sil 57, 64.
Buick V 6 cyl.
Chevrolet 6-8, '54—'68.
Dodge '46—'59, 6 cyl.
Dodge Dart '60—'68.
Fiat flestar gerðir.
Ford Cortino '63—'68.
Ford D-800 '65—'67.
Ford 6—8 cyl. '52—'68.
G.M.C.
Gaz '69.
Hillman Imp. '64—'65.
Moskwitch 407—408.
Opel '55—'66.
Rambler '56—'68.
Renault flestar gerðir
Rover, bensín, dísil.
Skoda 1000 MB og 1200.
Simca '57—'64.
Singer Commer '64—'68.
Taunus 12 M, 17 M '63—'68.
Trader 4—6 cyl. '57—'65.
Volga.
Vauxhall 4—6 cyl. '63—'65.
Wiilys '46—'68.
Þ. Jonsson & Co.
Skeifan 17.
Simar 84515 og 84516.
0 Tímataisreikningur
enn
Carl J. Eiríksson, verkfræðing-
ur, skrifar:
„Reykjavík, 3. febrúar, 1970.
Kæri Velvakandi!
„Vig." skrifar um tímatal vort
tvö löng bréf, sem birtust í dálk
um þínum þ. 16. og 31. jan. s.l.
Seinna bréfið er svar hams við
bréfi „sig.“ þ. 27. jan. Það virð-
ist vera sameiginlegt einkenni á
bréfum „vigs“ og hans áhang-
enda, að þeir enda skrif sin með
því að draga ályktun, sem er öf-
ug við það sem þeir voru bún-
ir að útskýra á undan, og „vig.“
kryddar sitt bréf 16. jan.) meira
að segja með hinu ágæta Q.e.d.
Eins og ég benti á í stuttu bréfi,
sem birtist í „Velvakanda" þ. 15.
jan. s.l. eru ártölin hugsuð sem
raðtölur, og Kristur því ársgam-
all nálægt lokum fyrsta ársins,
þ.e. ársins 1 e. Kr. Hefði „vig“
aðeins nennt að hugleiða þetta í
eina mínútu, hefði hann kannski
skilið að Kristur væri 1970 ára,
þ.e. 197 heilla áratuga gamall þ.
25. des. árið 1970 e.Kr.
Sé hinum líðandi tíma líkt við
málband, þá verður auðvitað að
merkja upphaf ársins 1970 með
tölunni 1969, en enda þess með
tölunni 1970, alveg eins og við
merkjum upphaf fyrstu tomm-
unnar með núlli en endi henn-
ar með einum. Talnalínumar hjá
„vig“ í Velvakanda þ.e. 16. jan.
eru í samræmi við þetta, þar er
fyrsta krónan sýnd milli 0 og 1
á málbandinu, þ.e. í bilinu þar
sem fyrsta tomman er. Hin talna
línan hjá „vig“ sýnir réttilega að
Knistur muni skv. tímatalinu
vera 7 daga gamall þ. 1. jan. ár-
ið 1 e.Kr. og þar með ársgam-
aU þ. 25. des. sama ár, og þá
auðvitað 1970 ára þ. 25. des. 1970.
^ „Núllárið“
Furðulegt er að deila um „núll
árið“ í þessu sambandi. Það skipt
ir auðvitað engu máli hér, því
að Kristur er ársgamall 25. des.
árið 1 e.Kr. hvort sem árið áð-
ur er kaJlað „núll“ eða 1 f. Kr.
Hann er því allavega 1970 ára
25. des. árið 1970. Allir virðast
vera sammála um að það sé ald
ur Krists sem ræður tímatalinu,
þ.e. sá aldur hans, sem höfund-
ur tímatalsins gerði ráð fyrir.
„Vig“ gerir gys að tölfræði
„sig“. En „vig“ hefur örugglega
verið eitthvað ruglaður, er hann
hugsaði þessi mál, því að „sig“
setur enga tvo kilómetrasteina
merkta með tölunni einum með
eins kílómeters millibili eins og
„vig“ segir og hæðist að. Þar eru
tveir kílómetrar á milli, eins og
allir sjá, því að hvor steinninn
er 1 km frá núllsteininum, í mót-
setta átt (fyrsta mynd ,,sig“).
önnur myndin hjá „sig“ sýnir
alls enga kílómetrasteina, og er
það útskýrt í textanum hjá „sig“,
heldur sýnir myndin kilómetra-
spottana tölumerkta sem raðtöl-
ur, alveg eins og peningarnir á
talnalínunni hjá „vig“. „Sig“
segir nefnilega í texta sínum, rétt
hjá myndinni: „ . . . tölurnar
merkja vegarspotta,
þannig að 1 merki fyrsta kíló-
metrann frá núlli o.s.frv. . . . “
Hræddur er ég nú um, að „vig"
ætti erfitt með að byggja sér
spilaborg, hvað þá stærra mann-
virki, ef hann les ekki betur úr
teikningum en þetta.
0 Nýtt fingrarím
„Vig“ birtir vísu eina um verk
fræðing, sem hann segir vera eft-
ir norðlenzkan vísnasmið. Ég hef
nú heyrt að hún væri kennd við
áætlunarbílstjóra einn hér sunn-
anlands, sem er þekktur fyrir að
vilja ekki hleypa bílum fram fyr-
ir sig, enda fékk hann iengi vel
ökuleyfið aðeins framlengt um
eítt ár í senn. 'En það fimnst mér
heldur lágkúrulegt hjá „vig",
þótt það sé e.t.v. mannlegt, að
„vig“ sleppir tveimur visum, því
að þær eru þrjár alls. Þær eru
svona:
„Uppi á lærdóms efsta tindi,
utan í sína tíu fingur,
sjáirðu mann á móti vindi
míga, það er verkfræðingur.
í roki ætíð undan vindi
eg hef þurra níu fingur.
Ef ég lýk mér af í skyndi,
úðinn lítt mín augu stingur.
Hef ég síðar hugsað betur,
hvert hann meig, sá
verkfræðingur:
Á hlið i vindinn, verið getur,
var með þurra tíu fingur".
Mig grunar, að það geti orðið
snúin tölfræði fyrir „vig“ og
vísnasmiðinn, eftir að þeim yrði
brátt í roki, einkum ef þá vant-
aði nú þann fingur sem þeir
nota fyrir núl'lið, þvi að síðasti
fingurinn heitir auðvitað niu hjá
þeim.
„Vig“ segir í seinni grein sinni
og er hinn hróðuigasti: „Við get-
um því litið á málbandið okkar,
skeiðklukkuna og velt því fyrir
okkur hvort nokkur sé eins árs,
þegar hann fæðist!" Mikið hefur
vesalings „vig“ verið syfjaður
þegar hann skrifaði þetta, þvi
varla hefur hann viljandi farið
að draga dár að sjálfum sér. Það
er nefnilega „vig“ sjálfur sem
vill hafa fyrir satt að Kristur sé
orðinn fullra 1970 ára í ársbyrj-
nn árið 1970, og eftir því hlyti
Kristur að vera orðinn eins árs í
ársbyrjun árið 1 e. Kr., þegar
hann samkvæmt línuritinu hjá
„vig“ sjálfum var aðeins um
vikugamall!!!
0 Magnús Finnbogason
og Kristur dregnir
inn í deiluna
Ég tel mjög ómaklegt að „vig“
skuli vera með hnútukast í garð
jafn ágæts manns og Magnús-
ar Finnbogasonar, þvi að fáa
menn hef ég þekkt gleggri né
nákvæmari í útskýringum, en
Magnús. Magnús gerir sér grein
fyrir því, sem er ofvaxið skiln-
ingi „vigs“, að Kristur va.rð eins
árs nálægt lokum ársins 1 e. Kr.
alveg eins og ein tomma mælist
við lok fyrstu tommunnar, en
ekki við upphaf hennar, því hún
hefst við núllið. Ekki vildi ég
biðja um einn metra af neinu í
álnavörubúðinni hjá „vig“, þá
fengi ég núll, því við núllið byrj-
ar fyrsti metrinn. (Sjá niðurlag
seinni greinar ,,vigs“.)
í fyrri grein sinni segir „vig“
að í almanaki Þjóðvinafél.
standi: „Á þessu ári teljast lið-
in vera frá fæðingu Krists . . . “,
og segir, að síðan komi ártal al-
manaksins, t.d. 1970. Hann segir
að orðalagið ætti að vera: „Með
þessu ári . . . “, ef 1970 ár væru
fyrst liðin við árslok. En „vig“
segir í sömu grein sinir.i, og sýn-
ir líka á linuriti, að fæðingin sé
þ. 25. des. sem er auðvitað
skömmu fyrir árslok. Á árinu
1970, nánar tiiltekið þ. 25. des.
1970, þ.e. fyrir áramót, eru því
1970 ár liðin (og þar með 197 ára
tugir) frá fæðingu Krists, og orða
lagið er því hárrétt í aknanak-
inu.
0 Piazzi í Palermó
í almanaki Þjóðvinafél. 1897,
1898 og 1899, í öllum þremur heft
um, segir (orðrétt), á fjórðu
blaðsíðu: „Árið 1897 (1898, 1899)
er hið 97. (98., 99.) ár hinnar 19.
aldar, sem endar 31. December
árið 1900.“ (Aths. í svigum mini-
ar.) Árið 1900 segir orðrétt í al-
manakinu, einnig á bls. 4: „Árið
1900 er hið síðasta ár hinnar 19.
aldar, sem endar 31. December
árið 1900.“ í sama heftinu (þ.e.
árið 1900) segir orðrétt, sjö blað-
síðum fyrir afta-n dagatalið: „Ár-
ið 1900 er síðasta ár 20. aldar-
innar. Hún byrjaði 1. Janúar
1801 og endar nú 31. December
1900. Árið 1900 er ekki hlaupár."
í Encyclopedia Brittannica, seg-
ir svo, í kaflanum „calendar":
„Sérhvert ár, sem er deilanlegt
með 4, er hlaupár, nema síðasta
ár hverrar aldar (lbr. mín) sem
er þvi aðeins hlaupár, að aldar-
talan sé deilanleg með 4, en
4,000, og margfeldi af því, 8,000,
12,000, 16,000, o.s.frv. eru venju-
leg ár.“ Af þessu leiðlr, að árið
1900, sem sagt síðasta ár 19. ald-
ar, var ekki hlaupár, því talan 19
er ekki deilanleg með 4. í alman
aki Þjóðvinafél. 1901 segir orð-
rétt á bls. 4: „Árið 1901 er hið
fyrsta ár hinnar 20. aldar.“ í því
hefti segir einnig orðrétt, þrem
blaðsíðum fyrir aftan dagatalið:
„Hinin 1. jan.úar 1901, fyrsta dag-
inn á 20. öldinni (lbr. min) geta
smápláneturnar haldið 100 ára af
mæli sitt. Það var sem sé 1. jan-
úar 1801, að munkurinn og
stjörnufræðingurinn Piazzi í Pal-
ermo uppgötvaði hina fyrstu
þeirra." Sex blaðsíðum aftar, og
jafnframt á kápusíðu almanaks-
ins (þetta er árið 1901 en ekki
1900) er aldamótamynd eftir
danska málarann H. Schjþdte.
En fyrst „vig“ fór að minmast
á árið „núll“, langar mig til að
benda á eftirfarandi: Árið á und
an árinu 1 e. Kr. virðist vera
talið árið 1 f .Kr., en núllárið ekki
til. Þetta veldur þvi, að vilji
maður finna árafjöldann milli
tveggja atburða sem gerast á
sama árstíma, annar atburður-
inin á ári sem telst f. Kr„ en
hinn á ári sem telst e. Kr., þá
verður að leggja ártölin saman
og dra.ga svo frá töluna 1. Þanmig
segir í Encyclopedia Brittannica,
í kaflamum um Heródes: „Hann
dó eftir 37 ára valdatíma (4 f.
Kr. — 34 e. Kr.).“ Þessar tölur
benda til þess, að „núllárið" sé
ekki til, a.m.k. ef atburðirnir
gerðust á sama árstíma, því 4
plús 34 = 38, en ekki 37. (Hér er
átt við Heródes Filippus, sem var
hálfbróðir Heródesar Antipas,
þess er getur í Biblíunni í Lúk.
13,32 og Mark. 6,14. Báðir þessir
Heródesar voru synir Heródesar
mikla.) Ennfremur segir, í Britt
annica, í kaflanum um tímatal:
„Fyrsta júlíanska árið hófst 1.
jamúar á 45. ári fyrir fæðingu
Krists og á 709. ári frá stofnun
borgarinnar". Hér er átt við borg
ina Róm.) Árið 709 frá stofnun
Rómar, er því sama og árið 45
f.Kr. Þá hlýtur árið 753 frá stofn
un Rómar að vera sama og ár-
ið 1 f.Kr., því það er 44 árum
seinna (709 plús 44 = 753). Skv.
þessu er það alls ekki rétt á
talnalínunni hjá „vig“ í grein
hans 16. jan. s.l. að árið 752
A.U.C. sé árið 1 f.Kr., heldurhlýt
ur árið 1 f ,Kr. að vera 753 A.U.C.
(árið sem Kristur fæddist skv.
timatalinu) og „núllárið" því
ekki til. Kannske veit „vig“ ekki
hvað q.e.d. þýðir.
0 Saxneska vísinda-
akademían
Kristur hefur einnig verið ta.1-
inn fæðast föstudaginn 25. des.
árið 1 e.Kr. (sbr. almanak Phil
ocalusar frá árinu 354, sjá „Ab-
handlungen d. sáchs. Akad. d.
Wissensch. 1850“. 25.des. árið 1 e.
Kr. var nú reyndar sunnudagur).
Skv. þessu yrði Kristur ársgam-
all þ. 25. des. árið 2 e. Kr. og
yrði þá ekki 1970 ára fyrr en
25. des. árið 1971.
Einn smámunasamur.
Vikublaðið FÁLKINN
er ti! sölu 38 árgangar, þar af 14 fyrstu bundnir í skinn.
Einnig Lesbók Morgunblaðsins 43 árgangar.
Upplýsingar í síma 50274 kl. 6—8 e.h.
Til sölu
4ra herbergja hæð endaíbúð á 2. hæð (3 svefnherbergi) við
Safamýri. Til greina kæmi skipti á góðri 6 herbergja hæð,
helz í Vesturbænum.
Upplýsingar í síma 30576.
2 66
Vesturbœr
Til sölu 4ra herb. 116 ferm. íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi
í Vesturbænum. Mjög fallegt útsýni. íbúðin er tvær samliggj-
andi stofur og tvö samliggjandi svefnherb. Stórt eldhús.
Sérhiti. Skipti hugsanleg á góðri 2ja—3ja herb. íbúð.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN
Austurstræti 17 (Silli & Valdi).
Sími 26600.
íbúð við Ægissíðu
Góð, teppalögð kjallaraíbúð (4ra herb.) til sölu.
Upplýsingar í síma 25143 milli kl. 2—6 e.h.
<