Morgunblaðið - 28.02.1970, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1970
22-0*22-
RAUOARÁRSTÍG 31
ÍMAGIMÚSAR
4K1PHOITi21 simar21190
eftir tokun linni 40381
VfflWOIR
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW Sencffferðabrfreið-VW 5 manna-VWsvefrrvagn
VW 9 manna - Landrover 7 manna
bilaleiffan
AKBBA VT
Lækkuð leigugjöld.
8-23-47
scndum
TOYOTA CORONA 67 tiJ
sýn'is og sölu í dag. 4ra
dyra, rauð, útv. 4 nagtad.,
4 500131x1., sætaákl, topp-
gr., klukka, soúningshraða-
m. o. fl. o. fl. Komið og
skoðið þennan ágæta bíl
og gerið okkur tilboð, þó
ekki í sima.
flf IA | BÍLASALAN
flV IH
Skúlagötu 40 við Hafnarbíó.
S. 15014 - 19181.
SKIPAÚTGCR0 RÍKISINS
Ms. Hekla
fer vestur um la-nd í hringferð
7. marz. Vörumóttaka mánudag,
þriðjudag, miðvikud. og fimmtu
dag til Patreksfjarðar, Tálkna-
fjarðar, Bildudals, Þkigeyrar,
Flateyrar, Súgandafjarðar, BoJ-
urtgarvfkur, ísafjarðar, Sigfufjarð
ar, Ólafsfjarðar, Akureyrar, Húsa
vikor og Raufarhafnar.
Ms. Herjólfui
fer tH Vestmannaeyja og Horna
fjarðar miðvikudaginn 4. marz.
Vörumóttaka márvudag og þriðju
dag.
Ms. Herðubreið
fer austur um land í hringferð
9. marz. Vörumóttaika mánudag,
þriðjudag, miðvikud. og f'rmmtu
dag til Djúpavogs, Breiðdafsvík-
ur, Stöðvarfjarðar, Fáskrúðs-
fjarðar, Reyðarfjarðar, Eskffjarð-
ar, Norðfjarðar, Mjóafjarðar,
Seyðisfjarðar, Borgarfja rðar,
Voprvafjarðar, Bakkafjarðer, Þórs
hafnar, Kópaskers og Norður-
fjarðar.
0 Allsherjargoðorðið
Skúli Ólafsson, Klapparstíg 10,
skrifar:
„Forsetaembættinu svipar tölu
vert til allsherjargoða-embættis-
ins 984—1240, þó er sá munur á,
að allsherjargoðorðið var arf-
gengt.
Ingólfr var frægastr allra land-
námsmanna. Þorsteinn Ingólfsson
lét setja þing á Kjalarnesi (Kross
þing við Elliðavatn) Hans son
var Þorkell máni lögsögumaðr, er
einn heiðinna manna á íslandi
hefr bezt verit siðaðr.
Heiðnir menn hafa litið óhýru
auga, að lögsögumaðurinn hefir
vikið frá trú þeirra. Allsherjar-
goðaembættið hefir þá verið
stofnað og ófrávíkjanlegar regl-
ur settar um helgun þingsins og
réttur allsherjargoðans til lög-
sögumannsembættis verið afnum-
inn. Skyndileg brottför Herjólfs
tfl Grænlands, ásamt kristnum
mönnum, bendir til að allsh. goð
inn hafi þrengt að trúbræðrum
föður síns til þess að komast hjá
frekara aðhaldi.
Kjalarnesþing var undir hand-
arjaðri Reykvíkinga og annarra
Nesjamanna (Suðurnesjamanna),
en þegar þingið var flutt að Þing
völlum, þyngdist róðurinn fyrir
þá. Samgöngur á Suðurnesjum
hafa allt fram á þessa öld að
mestu farið fram á sjó, eða geng
ið var milli bæja. Hrossaeign
mjög lítil miðað við aðra lands
hluta. Sjósókn og kornrækt voru
aðalatvinnuvegir á Nesjum og
takmörkuð beitflönd þar.
0 Friðsamir athafnamenn
Reykvíkingar og Skarðverjar,
afkomendur Þorsteins Ingólfsson
ar, voru friðsamir athafnamenn,
og komu þess vegna lítið við
sögu Sturlungaaldar (Sturlungar
þar að auki aðal-heimildarmenn).
Þessar ættir, ásamt afkomendum
Hafliða Mássonar, voru svo rót-
grónar og a>lkuimar, að þeirra
var ekki getið, nema ef stór-
breytingar yrðu á högum þeirra.
Það er fráleitt, að allsherjargoð-
orðið hafi runnið úr höndum af-
komenda Ingólfs án þess að þess
væri getið og jafnframt er úti-
lokað, að ókunn ætt hafi hreppt
það.
Þorgeirr föðurafi Guðmundar
Griss hefur að öllum likindum
verið sonur Þormóðs skeiðagoða
sonar Guðmundar Hamalssonar,
og viðurnefnið skeiðagoði stafað
af búi hans að Skeiðum (nú Sand
skeið). Búið að Skeiðum hefir
greitt mjög fyrir þingreið Nesja
manna, sem hafði úrslitaþýð-
ingu fyrir afgreiðslu mála á Al-
þingi. Leiðin um Dýraveg (not-
aður allt tfl 1906) um Nesja-
(manna)veili og á ferðum frá
Nesjum til Þingvalla var tfltæk-
ust. Þá að hlýviðrisskeið hafi
verið á norðurhveli til 1200, hefir
örtröð brátt rýrt búið að Skeið-
um og hefir allsherjargoðinn þá
flutt að Þingvöllum.
Upphaf að deilum Sturlunga og
allsherjargoðans Magnúss Guð-
mundarsonar gríss er mjög tákn
ræn. Allsh.goðinn haíði ráðið út-
lendan sérfræðing í ölgerð, en
Snorri sérfræðing í vopnaburði.
Váru hvárirtveggja mjög fjöl-
mennir, en þó Sæmundr miklu
aflmestr — En þær urðu mála-
lyktir at Sæmundr skyldi gera fé,
svá mikit, sem honum likaði. Um
mæli Sæmundar „Bræðr þessir
draga sik svá fram, að nær engir
menn halda sik til fulls við þá“
sýndi hvert stefndi, enda lét
Snorri dæma allsherjargoðann
sekan skógarmann og mætti á Al-
þingi með sex hundruð manna og
átta tugir Austmanna í flokki
hans alskjaldaðir. Eftir sættir gift
ir Snorri Hallberu dóttur sína
Árna óreiðu frænda Magnúss alls
h.goða. Sonur þeirra var Magn-
ús í Saurbæ.
Magnús allsherjargoði varð
biskupsefni og er ekki að efa að
Snorri hefði haldið Magnúsi dótt
ur syni sínum fram, sem eftir-
manni hans, þar sem hann var
rétt borinn tfl að verða allsherjar
goði. En Noregskonungur lét erki
biskup vígja norska menn til
Hóla og Skálholts. Magnús allsherj
argoði drukknaði 1240, og ári
seinna lét Gizurr systursonur
Magnúss drepa Snorra. Gizurr
gat ekki orðið állsherjargoði, en
hann varð að lokum jarl sona-
laus.
Það sem aðeins voru 15 ár frá
dauða Þorkels mána til kristni-
töku 999 þá hafa heiðin áhrif ver
ið lítil hjá afkomendum hans.
Sonarsonur Guðmundar gríss,
Árni biskup eldri d. 1298 (er ein-
hverr hefir mestr merkismaðr ver
it á íslandi) og systursonur hans
Árni biskup yngri d. 1320 (þat
er allra manna mál, at engin bisk
up hefir meiri sæmdarferð farit
tfl Noregs en hann, síðan ísland
varð kristit) gerðu Garðínn fræg
an eins og Þorkell máni.
Skúli Ólafsson, Klapparstíg 10“.
0 Hlutabréf og
happdrættisvinningar
Henry A. Háifdansson skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Góðfúslega leyfið mér að
leggja orð í belg um þetta efni.
18. þ.m„ kom fram 1 þáttum yðar
athyglisverð tillaga frá G.Þ., ein
um af hluthöfum i Úthaf h.f.. Hlut
hafa þessum er sýnilega mikið
áhugamál að bygging togarans
verði framkvæmd eins fljótt og
mögulegt er, en virðist þó von-
lítill að nægilegt fé fáist til þess
með frjálsu útboði á hlutabréf-
um, nema þá á alltof löngum
tíma eins og nú háttar fjárhag
almennings. En G.Þ., bendir á að
sjómannasamtökin geti leyst
þetta mál með einu pennastriki,
ef þau bara vfljL Þetta hefur
hinn kunni togaraskipstjóri,
Tryggvi Ófeigsson útgerðarmað-
ur, líka látið í Ijósi, vill hann
að sjómennirnir og aðrir, sem
skráð hafa sig fyrir hlutum, veð-
setji íbúðir sínar fyrir lánum til
kaupanna, eins og hann og aðrir
útgerðarmenn hafi þurft að gera
á sínum tíma. Þetta er þó ekki
alls kostar sambærilegt, bæði
vegna þess að flestir aí hluthöf-
um Úthafs h.f., eru áreiðanlega
engir jafningjar Tryggva og hans
kollega í glímu við bankastjóra.
Ráð G.Þ., er ólíkt einfaldara og
fyrirhafnarminna og þarf ekki að
koma illa við neinn, og það er
það, að Sjómannadagsráðið í
Reykjavík og Hafnarfirði, sem
skipað er fulltrúum frá þeim fé-
lögum sjómanna, sem standa að
stofnun Úthafs h.f., taki sig nú til
og samþykki á væntanlegum aðal
fundi Sjómannadagsráðs, að ein-
hver lítfll hluti af happdrættis-
vinningum DAS verði greiddur
með hlutabréfum í Úthaf h.f.
• Vill fólk fá hlutabréf
í happdrættisvinninga
G.Þ. heldur því fram, sem auð
vitað er rétt, að hlutabréf í góðu
fyrirtæki séu eða geti verið marg
falt meira virði en aðrir óarð-
bærir vinningar og beina eigi
vinningsfénu jafnt og ágóðanum
af happdrættinu inn á þjóðnýt-
ar brautir. Persónulega er ég al-
veg á sömu skoðun og það var
líka tilgangurinn með Happ-
drætti DAS, þegar það var stofn-
að samanber heitið á vinningun-
um: Bátar og búnaðarvélar etc.
Núverandi formaður Sjómanna
dagsráðs, Pétur Sigurðsson Al-
þingism., svarar þessum tillögum
G.Þ. í dálkum yðar 21. þ.m., og
segir að þetta sama hafi komið
til tals á aðalfundi Sjómanna-
dagsráðs í fyrra, en tillagan þá
verið dregin til baka. Að tillag-
an þá var dregin tfl baka, var
meðal annars vegna þess, að
stjórn Happdrættis DAS, taldi sig
vera búna að ganga frá vinninga
skránni og senda hana til umboðs
EFLUM OKKAR
HEIMABYGGÐ
★
SKIPTUM VIÐ
SPARISJÓÐINN
SAM3ANÐ 'ISL SPARISJÓÐA
manna og féllust fulltrúarnir á
þetta þótt sumir teldu það enga
frágangssök að kalla skrána aft-
ur inn og semja nýja, því hún
væri varla lögleg fyrr en Sjó-
mannadagsráð, sem ábyrgð bæri
á henni, hefði samþykkt hana.
Þar við bættist svo að flestum
fulltrúanna datt ekki annað í hug,
þá fyrir ári síðan er hlutaútboð-
ið var að hefjast, en að borgar-
stjórn Reykjavíkur og eða ríkis-
stjórnin myndi veita Úthafi h:f.
nægan stuðning og fyrirgreiðslu
til að gera byggingu fullkomins
verksmiðjutogara að veruleika,
og sízt að hindruð yrði 10 millj-
ón króna hlutabréfasala erlendis
sem stóð tfl boða.
Hitt, að Sjómannadagsráði sé
ekki heimflt að gera þetta sam-
kvæmt happdrættislögunum, tel
ég fáum hafi komið til hugar,
enda stangast það við anda lag-
anna, eins og áður er sagt, og
skiptir þá ekki máli hvort um
heila báta er að ræða eða part úr
bátum, hlutabréf, er geta gengið
kaupum og sölum. Regkxgerðinni
hefur oft verið breytt hvað vinn-
ingategundir snertir samkvæmt
ósk happdrættisstjórnar. Vinning-
arnir hafa alltaf verið misstórir
og misgóðir. Hlutabréf í arðbæru
þjóðnýtu fyrirtæki leyfi ég mér
að álíta betri vinning en: Ferða-
lag til útlanda, Útvarpsgramma-
fón, píanó eða góðhest meðhnakk
og beizli, eða þess háttar.
Pétur Sigurðsson alþingism. er
einn af hinum skráðu hluthöf-
um i Úthaf h.f., eins og flestir
fulltrúarnir í Sjómannadagsráði,
þeim er því mikill van.di á hönd-
um. Ég þykist líka vita hvað
formanni Sjómannadagsráðs
gangi til, og það er ekki annað
en ótti við að hlutabréfa vinn-
ingar geti dregið úr sölu happ-
drættismiða og þá er auðvitað
verr farið en heima setið. Þetta er
sama áhættan og þegar byrjað
er á happdrætti, hvernig bregðast
kúnnarnir við? Og viðskiptavin-
irnir hafa auðvitað alltaf rétt
fyrir sér, og þeim þarf því að
geðjast það sem gert er. Við er-
um nokkrir meðal fulltrúanna,
sem trúum því að þetta muni
auka sölu happdrættismiða, vegna
þess að boðið verði upp á meira
verðmæti, jafnvel margfalt verð-
mæti, þótt viss áhætta fylgi með.
Það er líka með því hugarfari,
sem menn spila í happdrætti.
Það er líka skoðun okkar, sem
þessu eru fylgjandi, að það sé
mikfll ávinningur í því að dreifa
þannig arðbærum hlutabréfum út
til almennings, svo þau þannig
geti í reynd orðið almennings
hlutabréf. Ef Pétur Sigurðsson er
hræddur um að aðrir komi á eft-
ir, þá er það Sjómannadagsráðs
að velja og hafna eftir því sem
þeir telja að sé happdrætti DAS
fyrir beztu. Hefðu hlutabréf
Áburðarverksmiðjunnar verið
meðal vinninga, býst ég ekkivið
að neinn hafi talið sig tapa á því
að fá slíkan vinning.
Það hefur líka sitt að segja, að
hvaða verkefnum er unnið. Þeg-
ar Happdrætti DAS var stofnað,
var búið að steypa upp og gera
fokheldar stærstu byggingar dval
arheimilis aldraðra sjómanna fyr
ir fé, sem gefið hafði verið vegna
málefnisins og án nokkurra vinn-
ingsvona. Þá var sýnilegt að gjaf
irnar einar dygðu ekki til að
koma heimflinu fljótt upp. Þá
var Happdrætti DAS stofnað. Það
brúaði fljótt alla fjárhagslega erf
iðleika svo ekki var einungis
hægt að halda viðstöðulaust áfram
byggingu heimilisins heldur stór
felldum húsasmíðum um allt
land fyrir vinndngana.
Það er því ekki nema von, að
mönnum komi nú til hugar að
láta happdrættið gera þetta
tvennt: að byggja nýtízku þjóð-
hagsleg atvinnutæki fyrir ungu
sjómennina, um leið og dvalar-
heimili fyrir þá sem eldri eru og
hættir á sjónum. Hér er visöulega
málefni, sem vert er að ræða frá
öllum hliðum.
Virðingarfyllst,
Henry Hálfdansson".
Enskunám í Englandi
Nýr sumarskóli í Dover, hinu fagra umhverfi á suðaustur-
ströndinni. 100 kennslustundir á hverju námskeiði, bæði fyrir
byrjendur og þá, sem lengra eru komnir, auk ferðalaga, íþrótta
og annarra skemmtana.
Skrifið eftir upplýsingum til: Samphire, P.O. Box 2, Dover,
England.
ÚTSÝNARKVÖLD
í SÚLNASAL HÓTEL SÖGU, sunnudaginn 1. marz kl. 21.00.
Forstjóri Útsýnar, Ingólfur Guðbrandsson, kynnir ódýrar utan-
landsferðir ÚTSÝNAR 1970.
STRENDUR SPÁNAR — kvikmynd: — öm Harðarson og
Ingólfur Guðbrandsson.
COSTA DEL SOL I MYNDUM: — Trausti Thorberg.
FERÐAHAPPDRÆTTI — dregið um miðnætti. Vinningur
ÚTSÝNARFERÐ til COSTA DEL SOL.
DANSNN dunar til kl. 1. — Hin vinsæla hljómsveit hússins.
Ókeypis aðgangur, öllum heimill, en tryggið yður borð í tíma
og njótið hinnar glaðværu stemmningar, sem jafnan rfkir
á ÚTSÝNARKVÖLDI.
FERÐASKRIFSTOFAN
ÚTSÝN