Morgunblaðið - 28.02.1970, Síða 11
MORGUN’BLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1070
11
Sigling
til móts
við vorið
VORFERÐ M/S GULLFOSS
að takast megi að efla útgerð og
fiskvinnslu og reyna að full-
vinna sem mest af þeim afla sem
hér kemur á land.
Jafnframt verði lagt á það
megináherzla, að efla þann iðn-
að sem er í borginni og koma
upp nýjum iðngreinum og stór-
iðju og skapa með því fjölþætt-
ari atvinnurekstur.
i félagsmálum verður að hafa
það ríkt í huga, eins og gert
hefur verið í vaxandi mæli að
hjálpa þeim sem hjálpar eru
þurfi sökum veikinda, elli eða
fátæktar og tryggja að allir geti
lifað mannsæmandi lífi.
1 menntamálum ber að leggja
áherzlu á að gera skólakerfið
sem fjölbreyttast og að sem flest
ir geti stundað nám við sitt hæfi
og enginn má fara menntunar á
mis vegna efnaskorts og því er
m.a. nauðsynlegt að tryggja
skólaæskunni sumarvinnu.
Reykjavfk hefur á fáum ára-
tugum breytzt úr fiskiþorpi í
fagra borg, sem um margt er til
fyrirmyndar að áliti erlendra
manna.
Þessari alhliða uppbyggingu
ber að halda áfram með samein-
uðu átaki Reykvíkinga til auk-
innar hagsældar fyrir aldna og
óborna.
Gunnar
Magnússon
skipstjóri,
Itvassaleiti 99. 47 ára.
Maki: Guðrún
Gunnarsdóttir.
Hjá mér, sem man atvinnu-
leysisárin fyrir síðustu heim-
styrjöld og það sem fylgdi, að
atvinnufúsar hendur fengu ekki
að starfa, verða atvinnumálin
efst á blaði, því að ég tel, að
aðrar framkvæmdir fari fyrst
og fremst eftir því, að fólkið
hafi nóg að starfa við arðvæn-
lega vinnu, og geti skapað það
fjármagn, sem nauðsynlegt er til
að halda uppi þeirri þjónustu
við fólkið, sem nútímaborgarinn
óskar að búa við.
Sjávarútvegsmálin tel ég að
ekki hafi þróazt sem skyldi, því
að enn erum við það háð fiskin-
um, sem aðalútflutningsverð-
mæti okkar, að þar má ekki
slaka á. Ég tel nauðsyn, að
hraðað sé endurnýjun togara-
flotans og að stutt sé við bak
þeirra manna, sem sýna dugnað
í útgerð, svo að þeir telji sér
ekki bezt borgið með því að
selja skip sín eða leigja úr höf-
uðstaðnum. Samfara öflun hrá-
efnis, er þörf á sem beztri nýt-
íngu þess, sem að landi berst og
þörf er á að vera vakandi yfir
þeim möguleikum, sem bjóðast
hverju sinni, bæði í hagræðingu
og öflun nýrra markaða.
Aukin framleiðni hjá sjávar-
útvegi og öðrum þörfum iðnaði
hlýtur að vera undirstaða þess,
að hægt sé að halda áfram að
skapa borgurunum aukna
menntun, aukna heilbrigðisþjón-
ustu, betri og fallegri borg.
Gunnar
Snorrason
kaupmaður,
Fagrabæ 6. 37 ára.
Maki: Jóna Valdimarsdóttir.
Það sem mér dettur fyrst í
hug, þegar ég er spurður þess-
arar spurningar og er efst í
huga mínum, er vörudreyfing og
Wiðskiptalíf höfuðborgarinnar.
Vil ég í því sambandi tiltaka
tvennt.
I fyrsta lagi núverandi
ástand í lokunartímum sölubúða.
I því máli held ég að engum
dyljist að ríki hin mesta ringul-
reið og er því viðskiptalífinu í
borginni og reyndar öllu land-
inu nauðsynlegt, að til komi
ákveðnar og skírar reglur þar
að lútandi.
I öðru lagi, staðsetning verzl-
ana f höfuðborginni. Þar gefur á
að líta í nokkrum tilfellum í
úthverfum borgarinnar verzlan-
ir, sem hafa sömu vörutegundir
upp á að bjóða, staðsettar hlið
við hlið. Þetta kann ekki góðri
lukku að stýra. Þess vegna
finnst mér nauðsynlegt að borg-
aryfirvöld skipuleggi verzlan-
ir og tegundir verzlana strax í
byrjun og fyrirbyggi að tíma-
bundin fyrirbæri í verzlunar-
rekstri skjóti þar upp kollinum.
Verzlanir verða að búa við
öryggi og trausta starfsaðstöðu
ef þær eiga ekki á hættu að kalla
yfir sig vanskil og vandræði
vegna nauðsynlegrar skuld-
bindingar.
I framhaldi af þessu tel ég
nauðsynlegt að efla og bæta
rekstraraðstöðu einkaframtaks-
ins og alrangt að borgaryfir.
völd komi þar sem keppinautur,
heldur þvert á móti nýti fram-
tak borgarbúa. Ég lít á borgar-
yfirvöld mikið fremur sem þjón-
ustuaðila við borgarbúa, heldur
en keppinaut einkaframtaks.
I skólamálum langar mig að
minnast á tvö atriði sem betur
mættu fara að mínu áliti.
1 fyrsta lagi, tómstunda-
fræðsla í barna- og unglinga-
skólum mætti vera meiri. Ég
held að áhuga unglinga vanti
ekki, heldur sé vöntun á næg-
um möguleikum á þessu sviði.
Síðara atriðið í skólamálum er
varðandi líkamsrækt og útilíf
barna og unglinga. Þar finnst
mér að forráðamenn í skólamál-
um mættu gera meira af en nú,
að örfa unglinga til slíkra hluta.
Þó ég hafi aðeins drepið hér
á fá atriði, beinist áhugi minn
að öllum framfaramálum borgar-
innar og efast ég ekki um að
þau verði farsællega leyst af
hendi ef samhent stjórn er við
stjórnvölinn.
Dr. Gunnlaug-
ur Snædal
læknir,
Hvassaleiti 69. 45 ára.
Maki: Berta J. Snædal.
1 ört vaxandi borg, sem auk
þess er höfuðborg landsins,
blasa verkefnin alls staðar við.
Bygging nútíma samfélags er
svo fjölþætt, að margar stoðir
þarf til styrktar. Það er eins
með þá byggingu og keðjuna, að
hún er ekki sterkari en veik-
asti hlekkurinn.
Það er ánægjulegt, að fylgj-
ast með þeirri þróun, sem átt
hefur sér stað á öllum sviðum
og erfitt að gera upp á milli mál-
efna, sém snerta okkur öll.
Starfs mins vegna, er þó eðli-
legt, að áhuginn beinist helzt að
heilbrigðismálum og málefnum
aátengdum þeim, svo sem félags-
og skipulagsmálum.
Halldór
Runólfsson
verkamaður,
Hverfisgötu 40. 30 ára.
Maki: Björg Stefánsdóttir.
Hvaða þættir borgarmálefna
eru það sem ekki vekja áhuga?
Allir þættir borgarmálefna eiga
að vekja áhuga þeirra er í
borginni búa.
Ekki er nóg að bera aðeins
eigin hag fyrir brjósti.
Ekki er nóg að gefa olnboga-
skot til beggja handa, böðlast
áfram og hugsa aðeins um sig.
Hver þáttur borgarmálefna á að
vera sameinlegt áhugamál íbú-
anna. Það sem ég tel að leggja
beri sérstaka áherzlu á er: að
allar vinnufærar hendur hafi
atvinnu.
Og að endingu það sem ég tel
að ætti að vera númer eitt: að
stjórn borgarinnar sé í höndum
öruggra og framsýnna manna
hér eftir sem hingað til.
Notið fegursta tíma
ársins til að ferðast.
Skoðunar- og skemmti
ferðir í hverri
viðkomuhöfn.
Verð farmiða frá
kr. 15.400,00. Fæði og
þjónustugjald innifalið.
Frá Reykjavík........ 20. mai
Til Osló............. 23. maí
Frá Osló............. 25. maí
Til Kaupmannahafnar. . 26. maí.
Frá Kaupmannahöfn . . 28. maí
Til Hamborgar........ 29. maí
Frá Hamborg ......... 30. ma!
Til Amsterdam........ 31. mai
Frá Amsterdam........ 2.júni
Til Leith ........... 4.júní
Frá Leith ............ 5. júní
Til Reykjavíkur ....... 8. júni
argus auglýsingastofa