Morgunblaðið - 04.03.1970, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.03.1970, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MAKZ 1»70 — Læknadeild Framhald af bls. 14 verkefni kkafi orðið þeim að fóta- kefli og orsök þess að „útkom- an varð sú, að aðeins 9 nemend- ur hlutu tilskildar einkunnir eða 37.5%.“ Ég tel 40.9% réttari tölu, því af þeim 24 nemendum, sem komu til prófs veiktist einn í byrjun þess og annar gekk fljótlega út án þess að skila úr- lausn, þannig að þeir voru að- eins 22, sem einkunnir hlutu. Niðurstaða prófsins varð annars sem hér segir: Úr fyrra verkefn- inu höfðu 7 tilskilið lágmark, 5 leystu verkefnið afar illa og 10 voru þar á milli. Tveir leystu það ágætlega og þremur varð það til bjargar. Úr siðara verk- efninu eru tilsvarandi tölur 10,2 og 10, einn leysti það ágætlega og tveimur varð það til bjarg- ar. Útkoman úr prófinu gefur þannig engan vegin tilefni til þess að kalla annað verkefnið „með fádæmum" en hafa ekkert við hitt að athuga. Um niðurstöðu prófsins farast prófmönnum meðal annars svo orð: „Rétt er að geta þess, að 8 af þessum 24 nemendum höfðu náð vefjafraeðiprófinu í fyrra. Nú féllu 5 þeirra á sama próf- inu og þeir höfðu náð árinu áð- ur. Ef þetta er raunhæf útkoma, sýnir hún glögglega, að ekkert mark er takandi á upphafspróf- um almennt og að einskær til- viljun og heppni virðist ráða því, hverjir ná og hverjir ekki.“ Slíka rökleysu hefði ég að óreyndu talið óhugsandi að 22 háskólaborgarar gætu náð sam- stöðu um. Er það kannske líka markleysa, að af þeim 14 sem féllu á prófinu 1969, náðu 6 því núna? Nei, allt er þetta raun- hæft og margföld réynsla fyrir slíku. Nemendum er gefinn kost ur á að endurtaka próf í von um að þeir bæti þekkingu sína. Sumum tekst það öðrum ekki, og að nemandi, sem eitt sinn hefur skriðið upp á prófi, sé svo stál- sleginn, að hann þurfi ekki að halda vöku sinni við endurtekn- ingu þess, kemur víst engum til hugar. Það er mér svo fullljóst, að próf er manna verk og því háð takmörkunum þeirra, og að ætíð er einhver heppni með í taflinu, en frá þessum annmörk- um í algera markleysu er lang- ur vegur. Af rökgnótt próf- manna er þá aðeins eitt atriði eftir, en á það virðast þeir líka leggja mikla áherzlu, nefnilega það hve fáir stóðust prófið (40,9%). Þetta atriði er erfitt að dæma um vegna þess að sam- bærilega viðmiðun skortir. Að- eins einu sinni áður vorið 1969 hafa nemendur þurft að stand- ast allar greinir upphafsprófsins í sama skiptið til þess að ná því, og aldrei fyrr hafa nemendur endurtekið það eftir aðeins eitt misseri. Reglan er tvö misseri. Vorið 1969 þreyttu 104 próf í alm. líffærafræði. 75 í fyrsta sinn og stóðust 40 þeirra prófið eða 53.3%. 29 voru að endur- taka það, af þeim stóðust 15 prófið eða 51.7%. Af þessum 29 höfðu 4 náð prófinu áður, 2 þeirra féllu, þeir höfðu báðir fengið 7 í fyrra sinnið. Mismun- urinn á þeim sem endurtóku próf 1969 og 1970 (51.7% og 40.9%) er ekki það mikill að upp úr honum sé leggjandi þegar haft er í huga, að það fyrra var endurtekið eftir 2 misseri, en það síðara eftir eitt. Þegar öllu er á botninn hvolft þá er nán- ast enginn grundvöllur fyrir því sem prófmenn láta sér sæma að dylgja um viðvíkjandi prófinu í alm. líffærafræði (vefjafræði). Það er lítilmannlegt af þeim að bregðast þannig við aðsteðjandi vandamálum sínum, í stað þess að segja umbúðalaust það sem þeim býr í huga, sem er, að hætt verði að takmarka aðgang að læknadeild. Þetta er kjami málsins, en í kringum hann hringsóla prófmenn líkt og kett ir í kringum heitan graut. Þeir skýra frá þeim reglum, sem eiga að hindra offjölgun í deildina en láta ósagt hvers vegna þær eru settar. Og það er látið nægja að segja um setningu þeirra, „deildin ákvað“ og „deildin ósk- Pharmaco hf. og Kemikalía hf. hafa flutt sölustarfsemi sína og skrifstofur í SKIPHOLT 27. Simanúmer er óbreytt. PHARMACO H.F. og KEMIKALlA H.F. Gluggo- og dyroþéttingor Þéttum opnanlega glugga, útihurðir og svalahurðir með „SLOTTSLISTEN" varanlegum innfræstum þéttilistum sem gefa nær 100% þéttingu gegn vatni, dragsúg og ryki. ÓLAFUR KR. SIGURÐSSON & CO. Sími 83215. Skrifstofa Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður lokuð eftir hádegi í dag vegna jarðar- farar Egils Guttormssonar, stórkaupmanns. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Skrifstofa F.I.S. er lokuð í dag miðvikudag 4. marz frá kl. 1—3 e.h. vegna jarðarfarar Egils Guttorms- sonar, stórkaupmanns. Félag íslenzkra stórkaupmanna. aði heimildar“, í stað þess að skýra frá því hver vilji hennar hafi verið og hverju yfirboðar- ar hennar léðu máls á. Um tak- markanirnar á inngöngu í læknadeild urðu miklar umræð- ur á opinberum vettvangi síðast liðið ár, en því miður gætti þar meir tilfinningahita en raunsæis svo málefnin skýrðust lítið. Hins vegar tókst nýstúdentum Þeirri umsókn var skotið til úr- skurðar háskólaráðs, er féll á þá lund, að reglugerðin heimil- aði ekki að meina stúdent end- urinnritunar í sömu deild. Þar með var fallin veigamikil stoð undan heilbrigðum rekstri læknadeildar og þegar í kjölfar- ið fylgdi svo ört vaxandi fjöldi þeirra er innrituðust í hana (sjá meðfylgjandi skýrslu) þá fór Skýrsla um læknanema fyrir 1. hluta próf (samkvæmt reglu- gerðum 19 58 og 1969). Ár Fjöldi Próf í alm. liff.fr. Stóðust Fjöldi þeirra sem ] innrit. þátttak. próf prófi og sóttu kru 1958 27 _ 1959 28 14 8 1960 30 23 15 ___ 1961 42 25 16 1962 25 39 30 1963 26 26 15 1964 53 29 25 10 1965 56 39 25 18 1966 69 43 28 30 1967 75 56 31 23 1968 105 81 47 36 1969 76 104 55 36 1970 ? ? 7 42 + ? þá að troða enn einum óviðráð- anlega stórum árgangi í lækna- deild. Það er fyrst og fremst mál þjóðarinnar í heild, hve marga lækna hún vill framleiða á ári, en ekki einkamál læknadeildar né stúdenta. Af þeim sjónarhóli mun ég ræða það mál hér á eft- ir og gera grein fyrir afstöðu minni til þess. í reglugerð H.f. frá 1942 giltu þau tímatakmörk í læknadeild að eigi mátti líða meira en 6 kennslumisseri frá undirbúningsprófi þar til lokið var I. hluta prófi. Ef lengra leið á milli varð undangenginn próf- hluti ógildur. Undirbúningspróf ið var í verklegri og munnlegri efnafræði og gilti meðalstigs- einkunnin, var lágmark hennar 5. Engin ákvæði voru um það hve löngu eftir innritun undir- búningsprófinu skyldi lokið. Það mátti heita undantekning, að nokkur félli á undirbúningspróf inu vegna þess að í verklegu efnafræðinni fá menn yfirleitt mjög háa I. einkunn. Þessi reglu- gerð veitti því læknanemum á 1. ári ekkert aðhald og það var ekki fyrr en á I. hlutaprófi, að það fór að reyna á þolrifin í þeim þ.e. eftir 3—4 ár. Og tókst nemanum ekki að ná því prófi áður en 3 ár voru liðin frá und- irbúningsprófi gátu þeir endur- tekið það og byrjað á nýjanleik að glíma við I. hluta prófið. Þannig voru því í raun engin takmörk sett, hve lengi nemandi gat verið að dunda við nám í deildinni, og bæði kennurum og nemendum var ljóst að hér var breytinga þörf. Þær komu með reglugerð fyrir H.f. 1958, sem kvað svo á, að eigi mátti líða lengra frá innritun til loka I. hlutar prófs en 7 kennslumiss- eri og nú var upphafsprófið tek- ið upp í lok 2. kennslumisseris. Heimilt var að endurtaka hvert próf einu sinni. Ef nemandi hafði reynt tvisvar við upphafs- próf án árangurs þ.e. eftir 2 ár var hann endanlega fallinn úr læknadeild og átti þangað ekki afturkvæmt að áliti prófessora hennar. Þannig var reglugerðin framkvæmd fyrstu árin og gafst það mjög vel — það létti af deildinni stórum hópi aðgerðar- lítilla nemenda og kom í veg fyrir að þeir sóuðu mörgum ár- um ævi sinnar í árangurslaust starf. Á meðan aðsóknin að deildinni var skapleg nægðu þessar reglur til þess að halda tölu þeirra nema er áfram héldu í henni, innan þeirra marka er viðráðanleg voru og koma í veg fyrir að mikil vinna og fjár- munir færu í súginn. En þess- ari dýrð lauk bráðlega. Nokkr- ir löglærðir menn drógu í efa, að ósk læknadeildar að meina endurinnritun í hana, hafi ver- ið uppfyllt með reglugerðinni frá 1958 og að óheimilt mundi vera að framkvæma hana þann- ig. Á þetta reyndi 1964, þegar stúdent sótti um heimild til þess að endurinnritast í læknadeild. hún fram á, að eftirfarandi efn- isatriði yrðu heimiluð með reglugerð. 1: að sá er eitt sinn hefði fallið út úr læknadeild ætti ekki afturkvæmt í hana. 2: að af þeim sem staðist hefðu upphafsprófið gæti aðeins ákveð inn fjöldi haldið áfram námi í deildinni, nefnilega sá fjöldi, sem unnt er að veita sómasam- lega kennslu í öllum deildarhlut um við ríkjandi aðstæður. Það mun svara til um 24 útskrifaðra lækna á ári. Einkunn á upp- hafsprófi skæri úr um það hverj ir héldu áfram námi. Þegar yf- irboðarar deildarinnar höfnuðu þessum tilmælum, fór hún fram á að mega takmarka fjölda þeirra stúdenta, sem innritaðist í hana við tölu, sem ætla mætti að skilaði kringum 24 læknum á ári. Stúdentsprófseinkunn réði þá vali í deildina. Þessi tilmæli náðu heldur ekki fram að ganga, en nú var Ijáð máls á því að takmarka aðgang að deildinni með því að gera ákveðna lág- markseinkunn á stúdentsprófi, að skilyrði fyrir innritun í hana. Meirihluti deildarmanna féllst á að taka þessu boði, það væri betra en að láta allt reka á reið- anum. Þær reglur um takmark- anir á aðgangi í læknadeild, sem nú eru í gildi byggjast á þess- ari heimild og til þess að sporna við frekari offyllingu í síðari hluta deildarinnar var hert á ákvæðunum um upphafsprófið, þannig að nú skyldu báðar skrif- legu greinar þess teknar í sama sinnið. Þessar reglur veita raun verulega litla tryggingu gegn of fjölgun vegna þess að lágmarks- einkunn, sem eitt ár veitir hæfi- legum fjölda inngöngu í deildina getur gersamlega brugðist næsta ár. Ef slík lausn ætti að bera til- ætlaðan árangur yrði að hringla með lágmarkseinkunnina frá ári til árs, en þann hringlandadans veit ég engan kennara er vill stíga. En hver nauðsyn ber til þess, að fjöldi læknanema fari ekki fram úr ákveðnu hámarki? læknanámið er að verulegu leyti verklegt, hvað margir nem- ar komast að í hverjum lækna- skóla fer því eftir fjölda vinnu plássa með tilheyrandi tækja- búnaði og mannafla til að sinna honum og nemendunum og síðast en ekki sízt af þeim sjúklinga- fjölda er til fellur á skólaum- dæminu. Það er því svo með þær kennslustofnanir í læknis- fræði er ég þekki til, að þær taka ekki yfir ákveðinn fjölda nemenda á ári og á það yfir- leitt við um allar kennslugrein- ar, sem eru að verulegu leyti verklegar. Þannig getur t.d. H.í. ekki tekið nema ákveðinn fjölda stúdenta til náms í tannlæknis- fræðum og lyfjafræði lyfsala og hefur það sjónarmið verið viður kennt. Það er því næsta óskilj anlegt hvers læknanámið á að gjalda í þessum efnum. Ef það er talið æskilegt að auka fjölda þeirra lækna, sem árlega út- skrifast úr læknadeild, þá er nauðsynlegt að byrja á því að skapa aðstöðu til þess, að svo megi verða og síðan kemur fjölg un læknanema. Að byrja á því að fjölga læknanemum leiðir að- eins til ófarnaðar, vinnuaðstaða fyrir þá verður ekki hrist út úr erminni, það kostar langan und- irbúning. Afleiðingin verður að hver nemandi hlýtur að því skapi minni verklega þjálfun, sem offjölgunin í deildinni verð ur meiri, eða þá að þeir verða að bíða svo og svo lengi eftir að geta komist að í verklega náminu. Það er þetta sem er að gerast í læknadeildinni nú. Þeg ar litið á skýrsluna þá sézt að frá 1968 hafa árlega 36 og þaðan af fleiri læknanemar lok- ið upphafsprófi og af fyrri reynslu má ætla, að þeir und- antekningalítið verði læknar. Þetta er örugglega mikið stærri hópur en deildin ræður nú við og vara ég alvarlega við afleið- ingum þess. Að óreyndu trúi ég því ekki, að það sé vilji þings né þjóðar að draga úr gæðum læknismenntunar hér á landi. En sé sá vilji ekki fyrir hendi þá kem ég ekki auga á aðra leið út úr ógöngunum en að veita læknadeild þegar þá heimild til takmörkunar er hún upphaflega fór fram á og lýst er hér að framan. Þessi heimild sé í gildi þar til þing og stjórn hafa gert upp við sig hversu marga lækna á ári eigi að kosta upp á að mennta og síðan þar til búið er að veita deildinni aðstöðu til að uppfylla þær óskir. Ég er því mótfallinn að mennta fleiri lækna en kringum 24 á ári, það er örugglega mun fleiri læknar en þörf er fyrir hér á landi á næstunni. En reynist. hinir í meiri hluta með þjóðinni, sem vilja mennta enn fleiri lækna til starfa meðal framandi þjóða en þegar er gert, þá er að taka því og vona að þeir hinir sömu séu ekki búnir að gleyma örlæti sínu þegar að skuldadögum kem ur. Vandamál hinna mörgu stúdenta leysast ekki með því að bjóða þeim inn í yfirfulla læknadeild, með því er engum greiði gerður, hvorki stúdent- um né almenningi. Rétta leiðin er að opna nýjar námsleiðir á sviðum þar sem þjóðin þarfnast starfskrafta eins og raunar nú góðu heilli er verið að vinna að. f því sambandi kemur mér í hug, að eflaust væri nú mun hægara um vik í þeim efnum ef hlustað hefði verið á tillögur Háskólans þegar svonefnd At- vinnudeild Háskólans var stofn uð 1935. Meiri hluti háskóla- kennara barðist fyrir því að hún yrði háskólastofnun, en þing og stjórn höfðu aðra skoð- un á málinu og niðurstaðan varð, að einu tengslin við Há- skólann var nafnið og svo fékk hann að leggja til lóð undir hús- ið, reisa það af happdrættisfé og síðan leggja 20% af tekjum þess til rekstrar stofnuninni, sem var stjórnað af fimm manna nefnd tilnefndri af atvinnumálaráð- herra. Stjórnarvöld landsins höfðu hug á að troða sömu slóð þegar Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum var stofnuð, og tengja hana At- vinnudeildinni. Það náði eigi fram að ganga af þeirri ástæðu, að Rockefeller Foundation gat læknadeild H.f. peningana, sem tilraunastöðin var reist fyrir. Það gætti því mikils misskilnings í því sem fram kom í ræðu á full- veldishátíð stúdenta s.l., sem síð an var birt í dagblaði og sér- prentað, þar segir nefnilega: „Atvinnudeild háskólans var upphaflega tengd skólanum, á svipaðan hátt og hinar nýju raunvísindastofnanir eru nú“ (Vísir 2. des. 1969). Háskólinn hefur eflaust nóg á sinni könnu þó ekki sé verið að eigna hon- um ávirðingar annarra. En til þess eru vítin að varast þau og það er einlæg ósk mín að há- skólans mönnum, stjórnarvöld- um og þingheimi takist að greiða úr vandamálum æðri menntunar þjóðarinnar á raunsæjan hátt. Jón Stcffensen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.