Morgunblaðið - 10.03.1970, Side 4
4
MOR&UNJ3UAÖIÐ, MUÐJUDA.OUB 10.. MARZ 1970
MAGIVÚSAR
1K1PH31T121 símar211?0
efrirlolcun ílmi 40381
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW Seníife.-Sabifrað-VW 5 maraia -VW svefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
bilaleigan
AKBRA VT
Lækkuð leigugjöld.
r8-23-áT
acndum
Það er svo sem óþarfi að kynna
hin heimsþekktu píanó og flygla
frá
August Förster
Julius Bliithner
Zimmermann
En upplýsingar um hið ótrúlega
lága verð þessara hljóðfæra
fáið þið í
HLJÓÐFÆRAVERKSTÆÐI
BJARNA PALMARSSONAR.
Garðastræti 2,
við hvei ja sé átt með „erfingj-
um“ hölundarins í pessu sam-
bandi, skal tekið fram að erf-
ingjar ug eigendur að höfundar-
rétti að ritverkum Davíðs heitins
Stefánssonar eru bróðurbörn
hans, börn Stefáns heitins bónda
og alþm. i Fagraskógi.
V. St.“
0 Skemmdarverk unnin
á mannlausum húsum
„Bangsi" skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Vitlu vera svo góður að birta
þetta? Það á að vara fólk við
því að hafa hús sín mannlaus.
Þeir eru herskáir fyrir austan
og vestan læk, svona talaði fólk-
ið um og eftir aldamót. En móð-
urinn virðist ekki runninn af þeim
vestan megin og kemur það fram
í lágkúrultgri hermennsku.
Á horni Bræðraborgarstígs og
Vesturgötu stendur gamalt hús
Aðalfundur
Breiðfirðingafélagsins h.f. verður haldinn i Breiðfirðingabúð
þriðjudaginn 7. apríl 1970, klukkan 20,30.
Auk venjuiegra aðalfundarstarfa verður rætt um húsmálið, og
jafnvel tekin ákvörðun um framtíð fasteigna félagsins.
STJÓRNIN.
0 Athugasemd
Velvakanda barst í gær eftir-
farandi athugasemd í tilefni af
greininni „Leiklistarlíf á Akur-
eyri enn“:
„í grein í Velvakanda sl. sunnu
dag ritar S.P. um leiklistarlíf á
Akureyri og í því sambandi ný-
loknar sýningar þar á Gullna
hliðinu, sem hann telur hafa far-
ið aflaga vegna breytinga og úr-
fellinga úr leikritinu. Segist
greinarhöfundur eftirláta erfingj-
um höfundar leikritsins að skera
úr því hvort nauðsyn sé að
stofna til málaferla vegna þess-
ara breytinga og úrfellinga, en
samkvæmt blaðaskrifum séuþeir
nú að hugleiða hvort svo skuli
gert. Með skírskotuninni til blaða
skrifa mun vera átt við forsiðu-
frétt í Vísi nýlega um þetta mál-
efni.
Út af þessu og til að fyrir-
byggja þrálátan misskilning Um
Verzlunaratvinna
Ungur piltur 17—22 ára óskast nú þegar
til lager- og útkeyrslustarfa.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu Kaupmannasamtakanna, Marargötu 2
og þurfa umsóknir að hafa borizt fyrir 13.
þ.m.
KAU PM AN N ASAMTÖK
ÍSLANDS
og sómir sér vel sem slíkt.
Nú er eigandinn farinn til sinna
heima, og hefur húsið þvi verið
mannlaust um tíma. Hafa þeir
herskáru fyrir vestan læk notað
tækifærið og ráðizt á húsið, brot
ið allt gier í gluggum og hurð-
um, efst sem neðst og skemmt
allt, sem hægt var að skemma.
Við Bakarabrekku standa göm
ul hús, sem talin eru dýrgripir.
Væru þau mannlaus uim tíma,
myndu hinir herskáru fyrir aust
an læk reggja þau í rúst?
Mér er sagt, að enginn mannleg
ur máttur gæti við það ráðið, og
eitt víst, að tjón fæst ekki bætt.
Bangsi‘‘.
0 Rakkar og krakkar
Jón Vígfússon, Borgarholts-
braut SO, Kópavogi, skrifar:
„Hundafjendur"! (Sjá Morgun
blaðið 10. febrúar, bls. 4. 1970).
Ég hefi nú í nær 80 ár um-
genlgizt hunda og aldrei orð-ið
fyrir árás af þeim eða séð hund
ráðast , á barn eða fullorðinn.
Skyldu ekki þessi börn, sem
verða fyrir því, hafa sjálf átt
upptökin? Það hefi ég séð, og ég
hefi séð börn henda steinum I
fugla. Nei, „maður, líttu þér
nær, liggur í götunni steinn".
Væri ekki nær fyrir þá fullorðnu
að kenna börnum að umgangast
hunda og önnur dýr og sýna
þeim, að það þarf ekki að óttast
dýr, sem við höfum í kringum
okkur, ekki einu sinni tuddas ef
þau eru ekki hrekkt eða þeim
stritt.
Væri ekki gott, ef „hundafjend
ur“ og dýravinir tækju höndum
saman og kenndu börnum að um
gangast dýr með vináttu í stað-
inn fy.ir að fjandskapast við
þau?
Það væri fróðlegt fyrir „hunda
fjendur" að kynna sér svolítið,
hve mörgum mannslífum hundar
hafa bjargað frá dauða, það gæti
kannski bælt niður hatrið, sem
þessir vesalings „hundafjendur"
ganga með í maganum.
Jón Vigfússon“.
0 Áskorun til síðhærðra
og höfuðfatslausra
J.V. skrifar:
„Kæru loðhausar!
Þegar ég var ungur maður,
var það ekki „til siðs“ að gánga
berhausaður og óklipptur um göt
urnar í höfuðborginni. Þá þótti
það jafn sjálfsagt að vera vel
klipptur og að ganga uppréttur á
tveimur fótum. Þá þótti ungu
Stúlkunum ,það sjálfsagt, að pilt-
arnir væru prúðmannlegir, bæði í
framkomu og útliti. Kannski ungu
stúlkurnar núna líti öðrum aug-
úm á útlit ykkar og framkomu
en þegar ég var ungur, en þá eíg
ið þið að kenna þeim að horfa
frekar á prú&mannlegt útlit en
ógreitt hái og berhausaða lúsa-
blesa. Ég skal viðurkenna það, að
þið eruð ekki einir um að ganga
berhöfðaðir, en til allrar lukku
eru þó fleiri sem ekki ganga með
lúsaræktun á höfðinu. Um klæðn
að ykkar ætla ég ekki að tala, en
fyrir alla muni látið þið klipþa
ykkur, þið hljótið að eiga fyrir
því, annars bara leita samskota
eða happdrættis. Jæja, piltar min
ir, þið athugið nú þetta og lítið
svo í spegilinn, þegar þið kom-
ið heim frá hárskeranum.
J.V.“.
Til sölu
Til sölu er Ripcid 535 snittvél sem ný (ónotuð). Henni fylgir
tveir bakkahaldarar og rörsnitti i—2" ásamt bútahaldara.
Tilboð sendist blaðinu merkt: „Ripcid — 535 — 8164 fyrir
næstkomandi iaugardag.
íbúð í vesturborginni
Til sölu 5 herb. íbúð á 1. hæð við Báru-
götu 140 ferm.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
SKIP OG FASTEIGNIR
Skúlagötu 63, sími 21735,
eftir lokun 36329.
Hlustnvernd —
heymnrskjól
STURLAUGURJONSSON & CO.
Vesturgö*u 16, Reykjavík.
Símar 13280 og 14680.