Morgunblaðið - 23.05.1970, Blaðsíða 14
14
MORiGUNBLAÐŒÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1070
S j ómannasí ðan
í umsjá Ásgeirs Jakobssonar
F AO-ráðstefna á í slandi
Erindi í fyrsta hluta
FAO -ráðs tefn a n uim fiskileit,
herpinótaveiðar og togveiðar er
tvímælalaust ein merkasta al-
þjóðaráðstefna, sem hér hefur
verið haldin. Á þessa ráðstefnu
safnast saman á þriðja hundrað
manns hvaðanæva úr heiiminum
og deila með sér þekkingu á efni,
sem íslendingum er vitaskuld sér
lega hugstætt.
Ráðstefnan hefst í Háskólabíói
24. maí eða á sunnudaginn kem-
ur kl. 15 og verður þar að loknu
einhverju kveðjusnakki sýnd
kvikmynd.
Umræður hefjast síðan á mánu
dag í Súlnasal Sögu kl. 10. og
standa daglega til föstudags og
er vinnudagurinn allstrangur
hjá þátttakendum eða frá 9—12
og 14—18 daglega. Þeir ætla að
taka sér frí á miðvikudagskvöld
ið og létta sér upp og á laugar-
daginn ætla þeir að ganga um
borgina og líta á, hvernig Geir
hefur sitjórnað og fara einnig
um borð í skip.
Tungumálin, sem töluð verða
á ráðstefnunni eru enska,
franska og spænska og túlkað á
þessi mál.
Athugandi væri fyrir okkur, ef
margir fslendingar sækja ráð-
stefnuna, að hafa þar einnig
túlk.
FAO-ráðstefnan fjallar um
þrjú meginatriði í fiskveiðum.
1) Fiskleit almennt.
2) Herpinótaveiði.
3) Aimed trawling, sem mætti
kannski á íslenzku nefna mark-
tog, þar sem þetta þýðir nánast
það, að ekki er togað í blindni,
heldur að ákveðnu marki eða
fisktorfu framundan veiðarfær-
inu samfara vitneskju um, hvað
er að gerast í sjálfri vörpunni.
Fyrsti erindaflokkurinn, fiski-
leitin, skiptist í marga hluta.
Fyrst verður fjallað um almenna
fiskileit með fiskileitarskipum og
hafa lagt fram erindi um það
tveir Japanir, Hayashi og Inoue,
SMURSTOÐIN
Reykjavíkurvegi 54
Opin frá kl. 8—18:30 alla virka daga. nema
laugardaga til kl. 12, sími 50330.
í ferðamannaverzluninni fæst: tóbak, öl,
sælgæti, rjómaís, dagblöð, vikublöð og fleira.
SMURSTÖÐIN
Reykjavíkurvegi 54, sími 50330.
SJ IAL FBO BAI Ifl A R Á KJÖRDAG
D-listann vantar fólk til margvíslegra sjálfboðastarfa á kjör-
dag. Sérstaklega vantar fólk til starfa, sem fulltrúar listans
í kjördeildum auk margvíslegra annarra starfa.
Þeir sem vilja leggja D-listanum lið með starfskröftum sínum
á kjördag hringi vinsamlegast í síma 25980, Valhöll.
Skráning fer einnig fram á skrifstofum hverfasamtakanna.
ÍD) - LISTINN
BIFREIÐIR KJÖRDAG
D-listann vantar fjölda bifreiða til aksturs frá hinum ýmsu
bifreiðastöðvum D-listans á kjördag.
Frambjóðendur heita á stuðningsmenn listans að bregðast
vel við og leggja listanum lið m.a. með því að skrá sig til
akstur á kjördag.
Vinsamlegast hringið í síma 25980, Valhöll.
Skráning fer einnig fram á skrifstofum hverfasamtakanna.
©-LISTIHN
Gunnar G. Schram
Gunnar hafði forgöngu af
hálfu heimamanna (og utanrík-
isráðuneytisins) um undirbún-
ing ráðstefnunnar.
Jakob Jakobsson og Villanueva
frá Perú.
Að þessum umræðum lo'knum
verður tekið fyrir ástand og
hegðan fisksins með tilliti til á-
stands sjávarins og veðurfarsins
og verða í þeim umræðum lögð
til grundvallar erindi þeirra
Flittners og Laevastu frá Banda
ríkjunum og Seydlitz frá Þýzka-
landi.
Næsti hluti í þessum fiskileit-
arerindaflofcki ráðistefnunnar er
á heldur þrengra sviði og fjallar
um aðferðir til að staðsetja ná-
kvæmlega, þann fisk, sem finnst
á gefnu hafsvæði, og er þá fyrst
um að ræða þann fisk, sem sést
ofansjávar frá skipi eða úr flug
vél, og hafa þar lagt fram erindi
þeir Bulles og Benigno frá
Bandaríkjunum, Sims frá Chile
og Seidel frá Bandaríkjunum, en
hans erindi fjallar um efni, sem
hefur sérstakt gildi fyrir fslend
inga, þar sem það er um aðferðir
til að á'kveða magn af hörpu-
diski á tilteknu svæðii, en til
þess nota þeir orðið sjónvarp.
Næst á eftir þessum erinda-
kafla verður fjallað um notkun
hljóðsins eða hljómburðar (acou
stic) í fiskileitinni og við stað-
setningu fisks í hafdjúpinu. Um
þetta hafa verið lögð fram fjöl-
mörg erindi. Freytag frá Þýzka-
landi fjallar um, hvernig hlusta
eigi eftir fiski, en við notkun
ekkós og sónars er góð heyrn og
hlustun ekki minna atriði en
sjónin. Craig frá Englandi er
með erindi um hljóðendurvarps-
tækin almennt og hvernig þau
eru nú.
Hashimoto og Haniva frá Japan
leggja fram erindi um svonefnda
fjölstílaritun, sem byggist á því
að stílunum, sem rita niður end-
urvörpin er fjölgað til að gera
ritunina nákvæmari, þar sem
margir stílar rita örar á pappír
inn en einn stíll. Þessir sömu
menn ásamt landa sínum Kato
eru einnig með erindi um hljóð-
endurvarpstæki neðansjávar,
sem stýrt er eða eru tengd raf-
bylgjiultiælkjiuim uim borð ('tieleso-
unders).
Hearn frá Englandi fjallar um
fiskteljara eða fiskreikni við at-
vinnufiskveiðar.
Miyajima, Japani, tekur fyrir
stöðugleika geislans frá hljóðend
urvarpstækjunum, en velta skips
og aðrar breytingar á afstöð-
unni valda vitaskuld truflunum
í endurvarpinu.
Mross frá Þýzkalandi rekur á-
hrif tæknifræðinnar á þau fiski
leitartæki sem helzt eru notuð
við djúpsævar togveiiðar.
Tveir Bretar, Philpot og Pear-
ce koma með erindi um hljóðend
urvörp, þar sem geislinn er
þrengdur og stilitur með raf-
bylgjum og einnig um svonefnd
an botniás, en það er aðferð til
að greinia botninn frá fiski við
botn.
Raitt, Losse, Schmitt og Hoff,
allt FAO-menn, eru með erindi
um fiskmagnsmælingar með
hljómburði við Suður-Afríku-
strönd. Japanirnir Shibata, Nis-
himura, Aoyama og Yamanaka
rekja þá þróun, sem orðið hefur
í Japan í notkun ekkó-teljara
eða reiknis við að ákveða stærð
fiskstofna við Japansstrendur.
Shibata flytur einnig erindi um
endurvarpshæfni fisksins og
Bandaríkjamaðurinn Suomale
kemur með erindi, sem mjög er
nú á baugi, sem framtíðarverk-
efni, en það er að tengja tölvu
(computer) við fiskleitartækin
til að vinna úr upplýsingum
þeirra. Tanaka Japan rekur þró
un fjölstílsinis, sem áður hefur
verið fjallað um.
Þá kemur svo í þessum erinda
flokki Sovétmaðurinn Kudrya-
vtsev mieð erindli uim aið-
ferðir almennt til að finna og
meta fisktorfur eða fiskhnappa
með ekkói.
Næsti hluti þessa erindaflokks
um fiskileitina og aðferðir til að
finna fisk, er um sónarinn (ast-
ikkið), sem hér hefur verið nefnd
ur fiskriti, en er nú orðið ónot-
hæft orð á það tæki eitt, vegna
þess að dýptarmælirinn (ekkóið)
er ekki síður fiskriti nú orðið.
Hér hefur því verið horfið að
því ráði, að nota með íslenzkum
beygingarendingum orðin —
ekkó og sónar — . „Astikk", er
að vísu meira notað hér en són-
ar, en það er ekki eins íslenzku-
legt orð, og rétt að það víki fyrir
sónar.
Um sónarinn hafa margir lagt
fram erindi, Margetts frá Eng-
Hilmar Kristjónsson
Á Hilmari mæðir þetta ráð-
stefnuhald mest og vonandi
heppnast hún vel, svo að hann
þurfi ekki að iðrast þess að
hafa farið 'framhjá stórum þjóð-
löndum og alla leið hingað út
til sins litla föðurlainds.
landi um rafmagnssónar til leit-
ar yfir tiltekinn geira (Electron
ic sector scanning sonar).
Tucker, einnig Englendingur
fj allar um f ramtíðarmöguleika
sónarsins og þá stefnu sem lík-
legt er að sónartælknin taki.
Y'estnes frá Nonegi er með yfir-
litserindi um núverandi sónar-
tækni og notkun sónarins.
Þá er næst á ráðstefnunni fjall
að um val fiskileitartækja, sem
byggjast á hljómburði (acoustic)
með tillliti til áistands otg hegðun
ar fisksins, og um það efni er
lagt fram erindi frá norsku
firma, Simonsens Radio, Rúsa-
inn Kudryatev h’efur tekið sam
an erindi um gerð og notkun
þeirra bljómburðartækja, sem
nú eru notuð til að finna með
fisk og eins um tæki á veiðar-
færunum sjálfum, sem stjórna
laiflam/algnliniu, aeffn í þialu ganlgur.
Síðasti hluti þessa erinda-
flokks um fiskileit og aðferðir til
að finna fisk fjallar um aðferðir
til að kenna á fiskileitartækin
og um það efni leggur R. Bennett
frá Englandi fram erindi, en
hann er forstöðumaður IDU(Ind
uistrial Development Unit) í Húll,
sem er nýleg stofnun, sem hefur
mjög gefið sig að þjiáílfun fisiki-
skipstjóra, Simonsens Radio er
einnig með erindi um svipað efni.
KOSNINGASKRIFSTOFUR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
UTAN REYKJAVÍKUR
AKRANES:
Kirkjubraut 4. Opin 10—22, sími (93)-2245.
BORGARNES:
Borgarbraut 1. Opin 17—19 og 20—22, sími 93-7351.
PATREKSFJÖRÐUR:
SjálfstæffiShúsið Skjaldborg, opin 17—19 og 20—22, sími 1189.
tSAFJÖRÐUR:
Sjálfstæffishúsiff, Hafnarstræti 12. Opin 13—18, sími (94)-3232.
SAUÐARKRÓKUR:
Aðalgata 8 (Sæborg). Opin 16—19 og 20—22, sími (95)-5310.
SIGLUFJÖRÐUR:
Sjálfstæffishúsið, Grundargötu 11. Opin 14—22, sími (96)-71154.
AKUREYRI:
Skipagata 12. Opin allan daginn, sími (96)-21504.
NESKAUPSTAÐUR:
Hafnarbraut 24 (Texas). Opin 17—19 og 20—22, sími 249.
VESTMANNAE YJAF:
Sjálfstæffishöllin, Vestmannabraut 19. Opin 14—22,
símar (98)-1070 og 2233.
SELFOSS:
Austuryegur 1. Opin 17—22, sími (99)-1690.
KEFLAVÍK:
Sjálfstæffishúsið, Hafnargötu 46. Opin 14—18 og 20—22, sími
(92)-2021.
NJARÐVÍK:
Hólagata 19. Opin 20—22, sími (92)-2795.
HAFNARFJÖRÐUR:
Sjálfstæffishúsiff, Strandgötu 29. Opið allan daginn, simi 50228.
GARÐAHREPPUR:
Stórás 4—6. Opin 16—18 og 20—22, sími 51833.
KÓPAVOGUR:
Sjálfstæðishúsið, Borgarlioltsbraut 6. Opin allan daginn,
simi 40708 — 40310,
SELTJARNARNES:
Skólabraut 15. Opin 17—19 og 20—22, sími 26588.
D-listinn er listi Sjálfstæðisflokksins