Morgunblaðið - 07.06.1970, Síða 11
MÖK&UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUK 7. JÚNÍ 1®70
11
Hellar og gjögur eru fylgsni þúsunda bjargfugla.
Ekki var til dæmis vitaS um
skipsskaða eins togara þar fyrr
en löngu eftir aS hans var sakn
aS. Siigmenn í e-ggjatöfculeiS
angri sáu sjóstakk í einum sjáv-
arhellinum og þótti hann eitt-
hvaS einkennilegur tilsýndar.
Þegar sjóstakkurinn var tek-
inn upp hringluSu mannsbein
innan í honum. Hluti af skipi
fannist gkammt frá. í>arraa voru
ljós sár örlög, svo sár aS menn
veigra sér viS aS leggja tilfinn-
ingar sínar undir þau.
ViS flöktum áfram vestur með
bjarginu og stöðugt gaf í vind-
inn. Suðvestan 6—7 vindstig, en
hann hékk þó þurr.
Klumba húkti á kletti, en
klumba er nafn Hafnamanna á
álkunni, sem að sögn bítur djöf-
ullega og daglegt nafn á fýln-
um er malarmúkkinn. „Það var
ag, í hverri sveilt er siður sisnn,“
sagði konan og lagði sig.
ViS sátum stundarkorn frarrami
undir brún í skjóli og fylgdumst
með fiskibáti undir strönd. Stöð
Þarapollar og urð.
Á mörg hundruð metra leið
með brúnum Hafnabergs er for-
vitnilegt aS stanza og skoða sig
um. Sérkennilegar bjargmyndir,
fuglamergð og nokkrar mílur frá
landi trjónar Eldey með sína tug
þúsund íbúa af súlustofni. Þeir
sem gers-t þykjast vita segja að
súlan í Eldey borði þrisvar sinn
um mei-ra af fislki jnfir áirið en öll
Stór-Reykjavík til samans á
sama tíma. Svo þröngt situr súl-
an í Eldey, þegar ungar eru að
alast upp að stélin standa út af
brúnunum. Og síðustu árin hafa
súlur í fyrs-ta s'kdpti séz-t sitja
uppi í Kallinum, eydrangi sem
er nokkrir tugir metra á hæð.
Kallinn dólar í hafi nokkur
hundruð metra frá ströndinni út
af Reykjanesvita. Eldey hefur
ekki verið klifin í áratugi og
gamla leiðin þangað upp mun
vera hrunin.
Hinrik í Merkinesi sagði okkur
frá því að eitt sinn hafði hann
soðið fullorðna súlu, til þess að
bregða út af þeirri venju að
borða aðeins ungann. Útkoman
var laggóð.
„Ég hét því við skegg spá-
mannsins að borða það kjöt
aldrei aftur,,“ sagði hann, „en
ugglaust þyrfti ekki minna en
viku suðu á fullorðna súlu að-
eins til að losa um kjötið hvað
þá bæta bragðið."
Ekki sáum við neitt súlukast
í hafi, enda veður ekki á þeim
sfcónum, en fátt er tígulegra í
fuglalífi fslands, en sjá súluna
stmga sér með sínium tigraarlega
svip og ákveðni.
ugt teiknaði Baltazar, en
við Áki Gránz rýradum
á bátinn. Ekki var neinn
fisk að sjá, enda rúmgóðar lest-
ar á fleytunni þeirri og hægt að
hafa vænan afla þótt ekki stýfð
ust sporðar yfir borðstokk.
Hinrik trillubóndi hafði sagt
mér frá því þegar hann skaut
ei'tt sinn tvær hámerar og náði
báðum. Hann batt sporðana upp
á vantinn og sigidi til lands eins
og hvalfangari með bráð í bæði
borð. „Þá var nú völlur á kalli,“
sagði Hinrik og tók hressilega í
nefið úr dagsláttubauknum.
Þúsundir sjávarfugla léku sér
við Hafnabergið og þar var rit-
an í miklum meirihluta, en hún
mun vera að sækja æ fastar í
bergið og taka hús hjá svartfugl
inum og fýlnum.
Við vorum nú komnir vestast
á bjargið og svo laragt austur
með sem augað eygði var fugla-
ger á sveimi. Lengst í austur
mátti sjá Reykjanesvita og í
hrauninu þar undir gnæfðu
Stampamir upp úr, en það eru
eldvörpin þarna kölluð, sem hafa
greinile'gar gígamyndanir. í
sumum þeirra enu græraar la-utix
og skjólsælar. f Sandvík austur
af Hafnabergi er upplögð bað-
strandarsandfjara og allt um
kring eru möguleikar á skemmti
legri náttúruskoðun.
Það eru fallegar víkur og tang
ar vestast í Hafnabergi og þar er
hellirinn Dimma með steinbrú
fremst í hvelfingunni. Hægt er
að klifra nokkuð niður í hellis-
munnann, en undir er grjóturð og
brimsúgur. Innar í hellinum
ókleifum búa svartfuglar og rit-
ur.
Það er auðugt fuglalíf í berg-
inu, fagurt landslag og sterk ör-
lög mannlífs eru tengd við það.
Þar leika á streragi brim, vindar
fuglar og bjargbúar, svo dryn-
ur í hvelfingum tröllabyggða.
Það hafa fáir farið þangað, en
leiðin er hæg til þess að kynnast
einum af mörgum náttúrukostum
Iandsins okkar.
Lýsing á öllum
akfærum vegum
Ný útgáfa Ferðahandbókarinnar
FERÐAHANDBÓKIN, áttunda
útgáfa, ar nýkomin á bókamark
að og fylgir hflmni nýtt vegakort
frá Feirðafélagi íslands. Þeissi
nýja útgáfa Farðahzmdbókarinn-
ar eir mikið aukin og endurbætt.
Bókin nr 344 blaðsiður og kost-
ar 195.00 krónur með söluskatti.
Kápa bókarinnar er helguð land
græðslu og náttúruveFnd.
Mieginefni Ferðahandbókarinn
ar er ailgjörlega ný og yfirgrips-
mikil lýsing Gísla Guðmunds-
sonar, leiðBÖgumarans, á öllum
akfæruim vegium á íslandi. Mun
það vera í fyrsta skipti, sem
slík hei'ldarlýsirag kemur fyrir al
menningssjónir. Naumast er
öðru s'leppt en heimrerðluim til
einstakra bæja.
Efni leiðalýsiraganna er rað-
að niðiur á annan veg en í fyrri
útgáifum. Fyrst er lýst þjóðleið-
inni fná Reykjavík tii Skafta-
fells í Öræfum og frá Reykjavík
tii Lómagnúps. Síðan er efninu
raðað eftir héruðium. Hverri
leið er skipt í martga áf araga með
tiUiti til þeiirrar reynslu sem
fiengin er á fierðalögium hérlend
is.
Sérstök leiðaskrá er fremst í
bókinni. Þar er tilvísun um hvar
í bókinni er að finna hverja ein-
staka heildarleið og viðkomandi
áfanga innan hennar. Leiðasfcrá
in gerir fólki kleift að finna á
augabnagði þær öbuteiðir, sem
það óskar að fræðast um að
hverju sinnL
Aranair stærsti kafli bókarinn-
ar er hin svonefnda kauptúna-
og kaupstaðaskrá. Þar er að
finna allar þær upplýsingar, sem
ferðafótLk þarfnast vegna hvers
konar þjónustu og fyrirgreiðlslu.
Efniis til þessa kafla er aflað hjá
viðíkomandi sveitastjórnuim pg
birt í samrá&i við þær.
Sigurður Björnsson á Kví-
skerjum á grein í bókinni um
göraguteiðir um Skaftafell. Grein
inni fylgir sérstakur uppdráttur
sem sýn iir viðlkamandi leiðir.
Mikiar breytingar eiga sér sí-
fellt stað á bifreiðasilóðum mið-
hátendisins. Þar er Sigurjón
Rist manna kunnugastur. Hann
heflur ætíð annazt um þann þátt
Ferðahandbókarinnar. Nú hefur
Siguirjón endurskoðað fjrrri Iýs-
ingu sína og lætur fýl-gja henni
nýtt kort af bifneiðaslóðum á
miðhá'lendinu.
Auk þes's, sem á undan er tal-
ið, er að finna í Ferðahandbók-
inni grein eftix Þór Guðjóns-
son, veiðiirraállastjóra, um lax-
og silungsveiði, þar er ma. ný
skrá yfir veiðiáir, ve iðifélög og
leigutaka. Þór Magnússon, þjóð-
minfjavörður leiggiur til lista yfir
gömul hús, minja- ag byggða-
söfn í umsjá Þjóðminjasafnsms
utan Reykjavíkur, skrá er yfir
öll sæluhús á landinu, islenzka
fiugla og friðún þeánra auk
margs konar annars efnis.
Ferðahandbókin er prentuð í
preratsmiðjunmi Eddu. Káputeikn,
ingu, sem er prentuð í fjórum
liitum, gerði Auglýsingateikni-
stofa Gísla B. Björnssonar.
Verzlunarstarf
Ungur áhugasamur maður óskast til starfa.
Upplýsingar í síma 10511 kl. 10—11 f.h. mánudag
og þriðjudag.
ANDERSEN OG LAUTH H/F.
Ai séistökum ústæðum
er til sölu útungunarvél (Primula) 20 stk., geitfénaður o. fl.
ÓLAFUR AMUNDASON
Neðri-Dal — Sími 81538.
Ibúðir
Til sölu tvær íbúðir 130 og 135 ferm. í húsi sem hafin er
bygging á f Hafnarfirði. Seljast fokheldar ásamt bílskúrs-
réttindum.
Upplýsingar í sima 50471 á sunnudag frá kl. 10—7 eða
tilboð sendist Mbl. fyrir 16. 6. merkt: „Rólegur staður —
5148".
Til sölu
Til sýnis og sölu mjög glæsileg 2ja herb. íbúð á Álfaskeiðinu
í Hafnarfirði
Sími 33432 f.h. og til kl. 2.00 e.h.
Sími 52547 kl. 2—6 e.h.
Langvíu- og ritubæli.
KDR KDR KDR KDR KDR KDR KDR KDR KDR KDR KDR
Knattspyrnumenn
Námskeið fyrir nýja knattspyrnudómara hefst þriðjudag-
inn 9. júní kl. 8 e.h Eldri og yngri knattspymumenn eru hvatt-
ir til að taka dómarapróf. Þátttaka tilkynnist mánudag og
þriðjudag kl. 18,30—19.30 í síma 84590.
Knattspymudómarafélag Reykjavíkur.