Morgunblaðið - 01.07.1970, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1970
vtMFim
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW SendiferðaöifreK5-VW 5 manna -VW svefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
BÍLfl
LEIGA
wrnmi
MAGNUSAR
skiphoui21 simar21190
e<tir tokun >lml 40381
>■
Okubennslo
GUÐJÖN HANSSON
Simi 34716.
TJÖID
SVIFMPOKAR
VIIVDSÆIVGUR
GASTÆKi
VIIDISTEIVGUR
Miklatorgi
Skeifan 15.
morgfnldar
marknd yðnr
0 Kjörgreinar
kennaranema
Á. Jónsson skrifar:
Velvakandi góður.
Mikið hefur verið raett og ritað
að undanförnu um Kennaraskóla
íslands og það, seirn þar fer fram,
og ekki síður það, sem ekki fer
þar fram. En þó er eitt a.triði,
sem ég minnist ekki að hafa rek-
izt á í blöðum né annars staðar,
en það eru kjörgreinar kennara-
nemanna.
í II. bekik ber nemendum að
velja sér 3 kjörgreinar, sem þeir
leggja stund á í III. og IV. bekk,
að undangenginni ófullnaegjandi
kynningu á væntanlegiu námsefni.
Þrátt fyrir þessa ófullnægjandi
kynningu (og takmarkað val) er
rtær ógjörningur fyrir nemendur
að skipta um grein, eftir að nám
er hafið, enda þótt þeir komist
að raun um að önnur gnein væri
vænlegri.
Þegar svo IV. bekk lýkur,
telst nemandinn ekki hafa stað-
izt kennaraprófið, ef hann nær
ekki lágmarkseinkumninni 5.00 í
hverri þessara greina, enda þótt
þær einkunnir komi ekki fram í
fullnaðareinkunninni á kennara-
prófskírteininu.
Bíll til sölu
Toyota Crown 2300 model 1967 einkabifreið
sjálfskiptur. Ekinn 37000 km.
Allar nánari upplýsingar gefnar í símum:
13354 og 19549.
Gústaf Ólafsson, hrl.
Austurstræti 17.
0 Fróðlegt væri að fá svör
Nú væri fróðlegt að fá svör við
eftirfarandi spurningum:
1. Hver er hinn raunverulegi til
gangur með þessum kjörgreinum?
2. Veita þær einhver frekarirétt
indi í viðlkomandi fögum?
3. Vegna hvers er val kjör-
greinanna svo bindandi sem raun
ber vitni?
4. Hvernig má það vera, að
hægt er að fella nemendur á þess
um greinum, enda þótt þeir hafi
náð tilskilinni fullnaðareinkunn á
kennaraprófi?
Ég hef heyrt að 26 nemendur
í IV. bekk Kennaraskólans hafi
fallið á þessUm greintim núna í
vor, eða rúml. 17%, þannig að
væntanlega munu fleiri en ég
óska svars við þessum spurning
um. Þess vegna væruti ég þess, ef
Velvakandi getur ekki svarað
þessu að skólastjóri Kennaraskól
ans, eða ménntamálaráðherra,
geri það.
Með fyrirfram þökk.
Á. Jónsson.
Velvakandi kemur þessu hér
með á framfæri við rétta aðila.
Aukið ánœgju
sumarferðarinnar
Fáið yður áklœði og mottur í bílinn
Við seljum:
ÁKLÆÐI OG MOTTUR
í alla bíla.
Litla bíla — Stóra bíla
Nýja bíla — Gamla bíla.
Stuttur afgreiðslutími.
Verð við allra hæfi.
nmKOBúflin
FRAKKASTIG 7S1MI 22677
^ Hugleiðingar
á listahátíð
Guðrún Þorsteinsdóttir skrifar:
Menn hrifust af list dönsku
leikkonunnar Clöru Ponitoppidan
í Norræna húsinu hinn 23. júní.
Fegurð þessarar konu hefur
ávaldit minnt mig á perlu, fráþví
ég sá hana fyrst í hlutverki
Höddu Pöddu í kvifcmynd. Perlu
fegurð persónuleika henoar er
hin sama nú og fyrir hálfri öld
síðan, þótt hár leitokonunnar hafi
gránað, bakið bognað og lífið
rist rúnir á fíngert andlitið. Kvik
myndin var þögul, en nú hljóm-
aði rödd listakonunnar og mér
duttu ósjálfrátt í hug ljóðlínur úr
Hróarskeldukvæði Matthíasar:
„Vel og gott, — ef þú heyrir þitt
lifandi lof, gegnum lævirkjans sí
unga munn. — Ég reyni ekki að
skilgreina þetta nánar, en gott
væri ef fleiri leifckonur öguðu
málfar sitt og rödd í líkingu við
Clöru Pontoppidan.
Á næstunni eigum við von á að
fá að heyr,a heimsfræga tónlistar
snillinga og er það sannarlega
tilhlökkunarefni, og sannar það
að við erum komin 1 þjóðtoraut
tovað listina snertir. Engu að síð-
ur var það gleðilegt að heyra
til ungra íslenzkra hljóðfæraleik-
ara á hádegistónleikum í N.H. á
föstudag 26. júní. Rut Ingóllsdótt
ir, sem hefur agað fiðluleik sinn
með námi og vinnu, svo unun er
á að hlýða. Hún lék faliega són-
ötu eftir Fjölni Stefánsson og
rómönsu eftir Árna Björnsson,
og trompetleikur Lárusar Sveins
sonar í Sónötu Karls Ó. Runólfs
sonar var ferskur og tær eins og
raddir /orsins. Þessir tónleikar
voru í heild menningarviðburður
og öllum aðilum til sóma, sem
að þeiim stóðu. —■ Ef til vill er
meiri gróska í ísl. tónlistarlífi en
mokkurri annarri listgrein á ís-
landi í dag — þráitt fyrir allt.
Þökk fyrir birtingu.
Guðrún Þorsteinsdóttir,
Drápuhlíð 32.
0 Hrein torg — fögur
borg
Kæri Veivakandi!
,Hrein torg, — fögur borg“.
Þessi orð mátti víða lesa og
heyra í vor og undanfarin ár.
Þetta eru sönn ummæli og jafn-
framt þörf áslkorun til hvers ein
stakiings og siamfélags, sem
Reykjavík byggir. Það var ás.kor
un til almennings, um að hver
gerði hreint fyrir sínum dyrum,
hvar í borginni, sem hann byggi,
áður en sumarið færi í hönd.
Þetta var ásfcorun um að fagna
þannig þeirri árstíð, sem við öll
unnum — sumrinu.
Eftir fréttum að dæima, tók
fóllkið þessari áskorun vel, víð-
ast hvar.
0 Skellótt og skjöldótt
Þetta kom mér í hug, er ég
nýskeð fór í heimsókn til náikom-
ins ættingja, sem þarf að dvelja
í Húðsjúkdómadeild LqRidsspítal
ans. Ég hefi komið þar fyrr, i
sömu erindagerðum og er því
al]A ekki ókunnug á þessum Slóð-
um, en samt brá mér í brún í
þetta skipti, þegar ég leit þetta
gamla hrörlega hús, bak við glæsi
legar byggingar, í grænu um-
hverfi gróðurins.
Þarna stóð það skellótt og
skjöldótt, en þvottahús (?j, spít-
alans, sem staðsett er næst þv£,
virtist mér nýlega málað og
snyrtilegt.
0 Erfið aðstaða
til líknarstarfa
Ég spurði sjáif® mig: hvers
vegna er þessu lágreista húsi
etóki meiri sómi sýndur, fyrst
það er talið nothæft sem sjúíkra-
deild í tengslum vrð Landsspít-
alann?
Þarna dvelja sjúklingar, sem
þurfa á mikilli umönnun að
haMa, þó þeir hafi sumir fóta-
viist. Þarna eru að: starfi færustu
læknar og hjúlkrunarlið tij að lina
og lækna margsfconar kvilla, ex-
em, ofnæmi, fótasár o.s.frv.
Þarna dveljia sjúklingar víðs-
vegar að af landinu, en aðstað-
an til þessara líknarstarfa hlýt-
ur að vera erfið, vegna húsa-
kynnanna.
— Ég er ókunnug því hvað áætl
að er að koma skuli í framtíð-
inni fyrir þessa sjúkradeild og
sem fávís kona spyr ég þvi að-
eins: eru engin efni á að láta
þetta litla hús Mta betur út, með-
an það gegnir jafn mikilivægu
hlutveriki og það nú gerir?
Með fyrirfram þötok, ef birt
verður.
H.K.L.
Sumarbústaður
Til sölu stór, gamall sumarbústaður á góðum stað við
ÞingvaHavatn.
Þeir er áhuga hafa á nánari upplýsingum sendi nöfn sín
til Morgunblaðsins merkt: „4916".
Útsala
hefst í dag. Mikið úrval af allskonar töskum
á góðu verði. Töskubúðin Laugavegi 73.
Námskeið í vélritun
Námskeið í vélritun hefjast 2. júlí fyrir byrjendur og
lengra komna.
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar.
INNRITUN STENDUR YFIR.
VÉLRITUN — FJÖLRITUN S.F.
Þórunn H. Felixdóttir
Grandagarði 7 — Sími 21719.