Morgunblaðið - 05.08.1970, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.08.1970, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIOVIKUDAGUR 5. ÁGÚST ÍÖÍO 11 BLAÐAMENN MORGUNBLADSINS FERÐ > UM < LANDIÐ a' "f' Frá GrundarfirðL Ný íbúðarhús setja svip á staðinn. Grundarf j ör ður: Þar hefur afkoman stórbatnað — og nú hugleiða þeir skuttogarakaup Þegar ekið er frá Stykkis- hólmi áleiðis í Grundarfjörð blasir Kirkjufellið von bráð- ar við augum. Hátt og tignar legt gnæfir það yfir plássinu og setur svip á allt umhverfi. Grundfirðingar mega þakka sínum ssela fyrir að honum skyldi hugkvæmast að setja þetta fallega fjall niður þar. Þó segir mér Björgvin Bjarna som, gamall og gróinn Eyrar- sveitungur, að stundum hefðu þeir viljað láta moka því burtu, Kirkjufellimu, eins og það lagði sig. Sérstaklega í sveitinni aðeins vestan við plássið. Þar koma oft svipti- byljir með fjaLlinu í suðvest- an áttinni. Björgvin fæddist í Bár, systk inin vor* ellefu og níu koim- ust Upp. Afkoma foreldra hans var góð, þau höfðu 60 kindur og fjórar kýr, það þætti ekki stórt bú núna. Seinma keypti faðir hans bát og hugðist stunda útgerð með búskapnum, en varð fyrir því óláni að báturinn var keyrð- ur í kaf skömmu síðar. Þá voru emgar tryggingar kosnn- ar til sögunnar og faðir hans var öreigi eftir og missti nokkru síðar jörðina og systk inahiópurinn tvísltraðist. Björgvin sagði mér að Grundarfj arðarpláss hefði staðið handan fjarðárins áður og væri ásamt Stykkishólmi og liklega Rifd elztu byggðla- kjarnar á Snæfellsnesi. Grundarfjarðarkauptún í sinni núverandi mynd er aftur á móti með yngstu byggðarlögum á Nesinu. í plássinu búa nú um sjö hundr uð manns. Björgvin fór-til sjós sautj- án ára gamall, þá voru fjór- æringar mest notaðir, seinna komu mótorbátar til. Sigling var oft vond með bátana fulla af fiski og lítið borð fyrir bát. En hann vill lítið gera úr því að hafa lent í hrakniingum og segir slíkt sé aldrei í frá- sögu færandi, ef allir komist hólpnir til sama lands. Sjó- menn voru berd'reymnir ekki síður en nú, þá dreymdi fyrir veðri, fiskeríi og óhöppum Þeir voru að ræða um landsins gagn og nauðsynjar. hvers konar og mark var tek ið á draumum þeirra, sem spakir þóttu. Sumir formenn neituðu að ró.a ef þá hatfði dreymt fyrir veðri, þó svo veð urútlit væri gott að morgni. Sjaldan brást segir Björgvm, að það gengi eftir. Síðustu tuttugu ár hefur Björgvin ver ið í landi, stundað fiskverk- un og var við fiskmat árum saman. Honum finnst miklar breyt ingar hafa orðið á öllum svið um síðan hann var að alast upp. Ungliingavandamál voru ekki komin í tízku í hans ung dæmi. Þá var eina vandamál- ið að unglingarnir yrðu nógu fljótt fullorðnir og gætu far- ið að sjá fyrir sér og hjálpa til á heimiiunum. Eins og víðar á Snæfells- nesi, þar sem ég hitti menn að máli barst talið fljótlega að Kristnihaldi Laxness. Björgvin sagði: — Kiljan hef ur lengi verið minn rabbí. Kristinihaldið er einhyer kostulegasta og magnaðasta bók, sem ég hef á ævi minni lesið. Alveg þykir mér stór- kostlegt, að rithöfundúr sem hefur skrifað önnur eins snilldarverk og Kiljan, á lanigri ævi', geti enn bætt við sig. Kristaiiba'ldið er uim sumt erfiðara lestendum en ýmsar fyrri bækur Kiljans. Maður áttar sig í fyrstu ekki hvað hann er að fara, ég var sífellt að velta sögunni fyrir mér, milli þess sem ég las hana. Svo opnast skyndilega fyrir manni nýr heimur, og sá heimur er engum líkur. Björgvin er kominn á átt- ræðiisaldur og tekur lífinu ró lega. Hann hefur hænsni og selur egg og grípur í ýmsa vininu. Hann býr einsamall í litlu húsi og segist aldrei hafa fest sér kvenmann um dag- ana. — Ég tók þetta svona í mig á yngri árum að það væri víst bezt að vera eiinn. Varla fer ég að breyta því héðan af. Gistihús er rekið í Grund- arfirði og stjórnar því Ragn- ar Breiðfjörð. Þangað er ágætt að koma, veitingar all- ar upp á það bezta, svo og þjónusta og er þó ekki dýrt. Ragnar sagði að ferðamanna- straumur hefði verið drjúgur um Grundarfjörð í sumar. Þar hafa verið á ferð inn- lendir og erlendir ferðamenn og sömuleiðis vísindamenn í rannsóknarleiðöngrum. smíðastöðvar með það fyrir augum að semja síðar um skut togarasmíði. Framkvæmdir eru meðal aninars þær, að ákveðið hefur verið að girða þorpið af, vegna ágangs búfjár. Sömu- leiðis er á lokastigi bygging skólastjórabústaðar og ákveð ið hefur verið að hefj ast handa um stækkun bama og unglingaskólans. Samgöngur eru ágætar. Samskipti hafa aukizt með Snæfellingum með tilkomu vegarins fyrir ólafsvíkurenni og talsverðar hafnarbæt- ur hafa verið gerðar þar sem annars staðar á síðustu árum og geta stærstu skip lagzt þar að bryggju. — Þótt margt hafi færzt til betri vegax, afkoma batnað Harpa 11 ára og Soffía 7 ára. Þær sögðust hafa fengið að vi dálitið í rækjunni í sumar. dálitið Júlíus Gestsson er eigandi rækjuverksmiðjunnar. Þar vinna 20 mamns, aðallega hús mæður og börn. Júlíus gerir út einn bát og er farið á sjó þegar gefur. Rækjan hefur reynzt vel og þótt rækjumið virðist vera víða um Breiða- fjörð, sagði hann þó miðin eng an veginn fullkönmuð enn. Emil Magnússon, kaupmað- ur er jafnframt fréttaritari Mbl. á staðnum. Ég kom á heimili hans og Ágústu konu hans og þá þar góðan beina. Emil sagði mér undan og ofan af því sem helzt væri í pláss- inu. — Sex bátar hafa verið á togveiðum, fjórir á rækju og þó nokkrir á handfærum. Afl inn í vor var sæmilega góð- ur, en rækjan stopulli. Fisk- urinn er a'liur unminm hér í frystihúsinu, en eigendur eins stærsta bátsins eru að selja hann og hafa hug á að eignast skuttogara og eru hafnar athuganir á því. Hef- ur það fengið jákvæðar und- irtektir. Afla togarans yrði síðan skipt milli Stykkishólms og Grundarfjarðar, þar eð hugsanlegir eigendur yrðu úr báðum byggðarlögunum. Þó að ekki hafi endanleg ákvörðun verið tekin, skilst mér að skriður sé að komast á málið og menn héðan að vest an hafa farið á fund ráða- manna við erlendar skipa- stórlega og fjárfesting verið skynsamleg, búum við enn við þann mikla ókost að þurfa að senda börn til fram haldsnáms annars staðar. Verulegur hluti fer til Stykk- ishólms en takmarkað er hvað skólinn þar tekur. Á þessu hyggjumst við ráða nokkra bót með stækkun barna- og unglingaskólans. Þá vantar hér aðstöðu til fþrótta- kennslu, en hreyfing er fyrir því að koma á fót sundlaug, þar sem fólk geriir sér æ ljós ar gildi íþróttaiðkunar. Æsku lýðsstarfsemi er þó nokkur. Framhald á bls. 17 Júlíus Gestsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.