Morgunblaðið - 19.08.1970, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 19.08.1970, Qupperneq 5
MOBGtnSTBLAÐOÐ, M3ÐVTKUDAGUR 19. ÁGÚST 1970 5 íslenzkur segulkompás stenzt erlendar prófanir ÞEIR, sem leið eiga um Skúla götu og höfnina, taka oft eftir bátum og skipum á ytri höfn- inni sem sigla um fram og aft ur eins og áttavilltir fuglar. En þeir sem til þekkja vita, að þarna er verið að leiðrétta segulkompás viðkomandi skips og í flestum tilvikum er það Konráð Gislason, eða Guð mundur sonur hans, sem eru að leiðrétta kompásinn. Kon- ráð hefur starfað við kompás- leiðréttingar og kompásvið- gerðir síðan 1928, eða í hart- nær 42 ár, og á þessum tíma leiðrétt margan kompásinn og gert margar tilraunir með kompása. Hann hefur gert módel af kompás sem smiðað hefur verið eftir í Englandi og hefur hann staðizt allar próf anir hjá Englendingum, Þjóð verjum og Dönum. — Fyrir nokkru sendi einn erlendur stórframleiðandi tvo sérfræð- inga til Konráðs Gíslasonar til athugunar á islenzkum aðstæð um og reynslu hans í áttavita gerð. Konráð Gíslason fór ungur til sjós og lauk prófi frá fiski- mannadeild Stýrimannaskól- ans 1927. Árið 1928 fór hann til Englands til að læra komp ásleiðréttingar og kompássmíð ar hjá John Lilley & Gillie, sem höfðu aðsetur í North Shields. Þar dvaldist hann í 7 mánuði. Þegar Konráð kom heim aftur byrjaði hann svo til strax á kompásleiðréttingum og við'geröum, en áður hafði Páll heitinn Halldórsison, skóla stjóri Stýrimannaskólans, ver ið með það i hjáverkum. Á fyrstu árunum komu allir bátar frá verstöðvum á Suður Feðgamir Guðmundur Konráðsson og Konráð Gislason, leið- rétta segulkompás. (Ljósm.: H. Hall.) nesjum og við Faxaflóa til Reykjavikur til að fá leiðrétta kompásana. Fyrdr síldarvertíðar var allt af mikið að gera. Eitt sinn voru leiðréttir kompásar i 24 skipum án hvíldar, en reikna má með að það taki 1%—2 tíma að leiðrétta hvern komp ás. Á stríðsárunum var mikið að gera. Þá var ytri höfnin allt af full af skipum, svo taka varð þau skip, sem leiðrétta þurfti hjá, út fyrir Gróttu. Konráð var einn við kompás leiðréttingar fram til ársins 1939, .en þá kom Gunnar bróð- ir hans, sem nú er látinn, til starfa með honum, og unnu þeir saman í 14 ár og svo ýms ir aðrir, þar til Guðmundur sonur hans, sem tekið hefur farmannapróf, kom í leiðrétt- ingajjnar með honum fyrir 2 árum. Konráð byrjaði snemrna í starfi sínu að gera tilraunir með kompása. Hafðd hann þar að leiðarljósi margar góðar ráðleggingar hinna öldnu kempna, sem fylgdust með segulkompási sínum af stakri alúð. Það hafa mörg kvöldin og helgarnar farið í þessiar til raunir. En Konráð þekkir hin íslenzku höf og veit, að það þurfa að vera sterkir kompás- ar sem sjómaðurinn hefur um borð í skipi sínu ti'l þess að kornast stytztu og öruggustu leið, Fyrir nokkru tók hann upp kompás, sem hann smíð- aði árið 1946 og reyndist ástand hans gott. Eins og áður hefur verið get ið hefur kompás sá, sem smíð- aður hefur verið eftir módeli hans, staðizt allar prófanir er lendis. Mun það næsta sjald gæft með aðrar tegundir kompása, enn sem komið er, og er ástæðan meðal annars sú, að rósin á kompási Kon- ráðs er stöðugri í veltingi, enda er það fyrst og fremst nauðsynlegt með kompása sem tengdir eru sj álfstýringu. Það er því ekkert vafamál að með hinu ötula starfi hefur Konráð tekizt að afla sér víð tækrar þekkingar á segul- kompásum. Áður fyrr var notaður hreinn spíiritus á kompásana, eða fram til 1928—29 er ný lög gengu í gildi um, að ekki mætti nota annað en Mentan holum, sem er baneitrað. — Þetta var á bannárunum, bg hafði það oft viljað brenna við, að þyrstir menn drykkju af kompásunum og þá sérstak lega á gamlárskvöld. Menn geta því rétt ímyndað sér, hversu örugga leið kompásinn hef-ur sýnt á eftir. En ísland er lika eina landið, svo vitað sé, sem sett hefur þessi lög. Hér áður fyrr hugsuðu skip- stjórarnir vel um kompásana sína, létu alltaf leiðrétta þá reglulega og athuga að „oddur og doppa“ væru alltaf í lagi, enda var þá vart um annað siglingatæki að ræða. Nú hafa fjölmörg öryggistæki komið til aðstoðar segulkompáisnum, svo hiann er ekki talinn jafn nauðsynlegur og áður fyrr. Því vill nú brenna við, að skip stjórnarmenn leggi minni alúð við segulkompásinn, en treysti þeim mun meira á gyró-komp ásinn. En svo bregðast kross- tré sem önnur tré, og er þá gott að geta treyst á segul- kompásinn. Skipstjórar ættu því að fylgjast vel með sínum segulkompásum, og láta yfir- fara þá, sérstaklega fyrir vetr armánuðina. Það er bjargföst skoðun Konráðs. í athugun er að búa til Azi múttöflu sem er þægileg til segulskekkjuathugunar á seg ulkompásum þar sem skugga- pinni er fyrir hendj og gegn sær kúpull. — Það er afar nauðsynlegt fyrir alla skip- stjórnarmenn að gera segul- skekkjuathugun á kompásnum öðru hverju, til öryggis skipi og skipshöfn. Bein lína hlýtur alltaf að vera styttri en bog- in. Það hefur orðið mikil breyt ing á segulkompásum síðari Konráð byrjaði fyrir 42 árum, enda miklar tilraunir til úr- bóta verið gerðar á þessum tíma, og Konráð á sinn þátt í þeim umbótum. — H. Hall. Þingeyingar minnast 11 alda byggðar Hátíðahöld á Laugum Húsavík, 17. ágúst. ÞINGEYINGAR mimnast í þess- ari viku á ýmsan hátt elliefu alda byggðar í Þinigeyjaþimgi. Hátíða 'höldin hófust í gær með bænida- (hátíð að Laiugum. Hófst hún með messu, sem séra Öm Frið- rilksson á Skútustöðum flutti. Síðam flutti Hermóður Guð- munidssom, bónidi í Áinnesi ávairp og stjómaði hátíðinmi. Kvenfélagasambamd Suður- Þinigeyjarsýsiu hafði sögu'sýningu og komiu koniuraar fram í þjóð- búninigum liðinma tíma og fram á ökkar daig. Ræðuir fiuttu Bjöm Teitssom frá Brún uim landnám i Þingeyjariþinigi og Baldur Grikkland: Fleiri f öng- um sleppt Aþenu, 17. ágúst NTB—AP HERFORIN G J AST J ÓRNIN i Grikklandi lét í dag lausa 70 pólitíska fanga, sem höfðu setið inni síðan byltingin var gerð í landinu í apríl 1967. Skýrði tals- maður upplýsingamála ráðuneyt isins frá þessu í dag. Fyrir viku voru 150 fangar látnir lausir og verðúr um þrjú hundruð til við- bótar sléppt á næstu vikum. Ófeigsson á Ófeigsstöðum um I fyrsta þimgeyska bóndanm, Nátt- fama. Lúðratsveit Húsavíkur og Karlakórinn Þrym'ur Skemmtu með l'úðrablæstri og sönig umdir stjóm Jaroslav Lauda. Einsömig anmaðist Magnús Jónsson, ópem- söngvari og undirleikari var Ólafur Vignir AlbertsSon. Karl Einairsson skemmti með eftir- iheirmum. Kvenifélaga'sambamd Suður-Þinigeyinga og Búnaðar- sambandið kepptu í knattspymiu. Laulk ledkmum með jiafntefli. 8 mörk voru skoruð. Um fcvöldið var svo damsað. Veður var hið íegursta, logn og sólskim og fjölmemmi mjög mikið. Síðar í vikunmi halda svo hátíðahöldin áfram á Húsavik. — Fréttaritari. ALLT Á SAMA STAÐ: BÍLAVARAHLUTIR 1 ferðalagið: Farangursgrindur Bílamottur Bílalyftur Loftdælur Bensínbrúsar Barnastólar Útvarpsstengur Dráttartóg Vélareimar Kveikjuhlutir Rafgeymar Rafg.sambönd Þurrkublöð Michelin-hjólbarðar Champion-kerti. Til viðgerða: Höggdeyfar Blöndungar Hjóladælur Undirvagnshlutir Vatnsdælur Bensíndælur Þurrkur Hemlaborðar Ljósasamlokur og perur. SENDUM í PÓSTKRÖFU. Egill Vilhjólmsson hf. Laugavegi 118, sími 2-22-40. Lopnpeysur - lopnpeysur Kaupum herralopapeysur samkvæmt stærð- ar- og gæðamati okkar. GEFJUN, Hugmyndabankinn, Austurstræti 10.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.