Morgunblaðið - 19.08.1970, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.08.1970, Blaðsíða 24
24 MORGUKBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1970 44 Sam kom með spuminguna, sem hann hafði lengi langað til að spyrja. — Heldurðu, að morð inginn hans Mantoli verði á ferli í nótt? — Ég er hér um bil viss um það, svaraði Tibbs. — Þá asttum við kannski að koma við hjá Endicott og athuga hvort allt er í lagi þar? — Ég er viss um, að henni er óhætt, sagði Tibbs. Þú getur náttúrlega farið þangað, en ég held það verði meira handa okk ur að gera hérna niðurfrá. — Viltu ekki segja mér frá því núna? Ég á hvort sem er að taka náungan fastan, segirðu. — Ég vil heldur bíða með það, Sam, Ef ég segði þér það strax, kynnirðu að láta eitthvað uppi í ótíma. Því færri sem vita það núna, því betra. — Getum við ekki gengið að því strax? Tibbs leit út um gluggann. — Án þess að ég vilji móðga þig, en viltu ekki heldur lofa mér að ráða þessu? Ég lofa þér hins vegar, að þú skalt verða nærstaddur, þegar að því kem- ur. Sannast að segja, er ég að koma þvi þannig fyrir, að þú framkvæmir handtökunina. — Allt í lagi, sagði Sam von- svikinn. Aldrei hafði honum fundizt nóttin svona löng. Þeir töluðu um Kalíforníu og hvernig væri þarna við Kyrrahafsströndina, en þar hafði Sam aldrei kom- ið. Þeir ræddu knattleik og hnefa leika. — Það hlýtur að vera erf- ið atvinna, sagði Tibbs. — Ég hef þekkt nokkra hnefaleika- menn og það sem þeir verða að leggja á sig er býsna erfitt. Það er ekki allt búið þegar síðasta bjallan hringir. Þegar fagnaðar látunum linnir — ef þau hafa þá nokkur verið — verða þeir að fara í búningsherbergið þar sem læknirinn bíður þeirra. Og þegar hann svo fer að sauma saman skurðina á þeim, er það fjandans kvalræði. — Heyrðu, Virgil, ég hef oft verið að velta því fyrir mér, að svona margir hnefaleikamenn skuli vera svartir? Eru þeirbein línis sterkari eða liggur þetta eitthvað betur fyrir þeim? — Hvort það liggur betur fyr ir, skal ég ekkert um segja. Ég hef talað við einn, sem var ný- búinn að berjast í Texas. Hann fékk hræðilega útreið, enda þótt hann stæði sig vel, en hann hitti bara sér meiri mann. Að minnsta kosti var það svo, að þegar lækn irinn kom til að tjasla hann sam an og stakk í hann nál, þá öskr- aði hann upp yfir sig. Þá sagð- ist læknirinn ekki hafa búizt við, að hann fyndi neitt til, af því að hann væri negri. Sam datt í hug samtalið, sem hann hafði átt við Ralph, þjón- inn í næturkránni. Honum fundust vera liðnar margar vik- ur síðan, en í rauninni hafði það verið morðnóttina. — En hvað um þessa tvo, sem réðust á þig? sagði hann, eftir nokkra þögn. — Ég hef ekki frétt, hvernig fór fyrir þeim. — Einhver náungi, sem heitir Watkins og er bæjarfulltrúi, fékk þá látna lausa. Hann sagði mér, að ef ég vildi lífi halda, skyldi ég halda mér saman um þetta, annars yrði ég kærður fyr ir að handleggsbrjóta mann. — Heldurðu, að Watkins hafi leigt þá? — Það vona ég, því að ef svo hefur verið, verður hann að borga læknishjálpina fyrir meidda manninn. Og það er sagt, að einhverjir fleiri séu á höttun um eftir mér núna. Tibbs sagði þetta jafn rólega og hann væri að tala um, hvernig veðrið yrði á morgun. — Ég vona bara, að þeir reyni það, þegar ég er einhvers staðar nærri, sagði Sam. — Það vildi ég lika, flýtti Tibbs sér að samþykkja. Þetta verður ekki eins auðvelt næst. Judo er gott, en það hefur samt Reykjaneskjördæmi Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi heldur fund í samkomuhúsinu á Garðaholti á fimmtudagskvöld 20. þ. m. kl. 21. FUNDAREFNI: Tillaga um prófkjör og prófkjörsreglur fyrir alþingiskosningar. Kosning kjörnefndar. Kjörnir fulltrúar er ekki geta mætt á fundinum, tilkynni formönnum félaga eða fulltrúaráða þeirra er þeir eru fulltrúar fyrir um forföll sín. Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi. Tréklossar frá Svíþjóð Litir: hvítt, ljósbrúnt og rautt. — Stærðir: 36 til 41. PÓSTSEN DUM. Skóbúð Austurbœjar Laugavegi 100 og Laugavegi 103 sín takmörk. — En er nokkuð betra? spurði Sam. — Akido er ágætt, einkum þó er við er að eiga herskáa menn, sem verið er að handtaka, en maður vill ekki meiða. Lög- reglan í Los Angeles notar það mikið. En í verulega hörðum bardaga, þegar það gildir líf og dauða, er Karate það bezta. Góð ur Karatemaður er góður liðs- styrkur. — Eru margir til i landinu ? Tibbs hugsaði sig ofurlítið um — Já, ég þekki nokkra. Margt sem maður heyrir um Karate er ekki satt, til dæmis skemmir það ekki hendurnar á manni. En til varnar er Karate það bezta sem til er, ef um óvopnaðan bar daga er að ræða. Æfingarnar eru erfiðar, en tilvinnandi samt. Sam sneri bílnum niður eftir Aðalstræti og lét suðið í vélinni blandast næturkyrrðinni. Hann horfði á stöðumælana fara fram- hjá sér og staðnæmdist svo við Lyfjabúð Símonar. — Er óhætt að stanza hérna í nótt? spurði hann. •— Því býst ég við, svaraði Virgil. Sam beitti hemlunum hægt og lét bílinn renna upp að stéttarbrúninni. Þegar hann stanzaði voru hjólin rétta tvo þumlunga frá stéttinni. Hann tók upp brettið sitt, til að skrifa á skýrsluna. — Við erum hér ekki einir, sagði Virgil. Sam varð hverft við og hann leit upp. Þá sáu þeir hreyfingu í þéttum dökkum skuggunum, sem fylltu dyrnar á lyfjabúð- inni. Einhver kom gangandi út úr skugganum og gekk i áttina til þeirra. Þetta var mjög stór maður og gekk mjög hljóðlega. Andartaki seinna þekkti Sam, að þarna var kominn Bill Gillespie. Lögreglustjórinn hallaði sér inn í bílgluggann. — Hvernig gengur ykkur? spurði hann. Sam fannst tungan fylla munninn á sér, og átti erfitt um svar. — Allt I lagi, enn sem komið er. Ekkert óvenjulegt. Fá ein ljós í húsum, en ekkert uppi stand neins staðár. Gillespie seildist til og opnaði afturdyrnar. — Ég held ég verði að aka með ykkur svolítinn spöl, sagði hann. Siðan brölti hann inn og lokaði á eftir sér. — Það er ekki mikið pláss hér aftur í, sagði hann og rak hnén í fram- sætið. Sam færði ökusætið ofurlítið fram, til þess að rýmka um hann. Auhastari - enskukunnátta 1 boði er aukastarf fyrir mann með enskukunnáttu og nokkuð inngrip ! vélar. Starfið má vinnast heima. Vinsamlegast leggið inn nafn og heimilisfang merkt: „Bíla- umboð — 4312". Til sölu Volvo 144 1967 í góðu standi. Fæst gegn fasteignatryggðu skuldabréfi til 5 ára. BIFREIÐASALAN Borgartúni 1. Sími 18085 og 19615. Stórt innflutningsfyrirtæki óskar að ráða nú þegar vana vél- ritunarstúlku. Viðkomandi þarf að vera góð í vélritun og hafa gott vald á íslenzku og ensku. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf send- ist til skrifstofu Félags íslenzkra stórkaupmanna, Tjarnargötu 14, fyrir 22. ágúst næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.