Morgunblaðið - 19.08.1970, Qupperneq 15
MORGUTNTBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1970
15
Kristján Albertsson: í
Steindauður
félagsskapur
AUSTRI Þjóðviljans, sem all-
ir munu vita hver er, segir í
dag þau gleðitíðindi að svo-
kölluð landssamtök „hernáms-
andstæðinga11 séu „steindauð-
ur félagsskapur“. ESkki var
mér kunnugt um þetta, enda
mun sá dauðdagi ekki fyrr
hafa verið auglýstur. Ég hef
Íþvert á móti haldið, og svo
mun um fleiri, að ýmiss konar
læti hafi til síðustu tíma ver-
ið framin á vegum og í nafni
þeirra samtaka. Er nú gott til
þess að vita, að félagsskapur
sem við höfum orðið að blygð
ast okkur fyrir, er úr sögunni
— og vert að þess sé sem
rækilegast getið.
Þrátt fyrir alla þá reynslu
sem fengizt hefur af austræn-
um kommúnisma, og allt sem
við vitum um andlegt og ver-
aldlegt ástand í þeim lönd-
um, verður víst ekki hjá því
komist að menn greini á um
hvort þjóðskipulagið hafi þol-
anlegri annmarka, og sé lík-
legra til farsældar því fólki,
sem við það á að búa. En hins
virðist nú orðið mega vænta,
að jafnvel þeim, sem hafa
meiri eða minnd trú á komm
únisma, sé farið að skiljast, að
ekki er tilvinnandi í von um
sigur þess þjóðskipulagis að
tefla í tvísýnu um frelsi ís-
lands, og eiga á hættu að varn
arlaust verði það traðkað und
1 ir járnhæl erlends stórveldis.
/ Vonandi merkir steindauði
1 „hernámsandstæðinga“ vax-
1 andi skilning á þeirri megin
í staðreynd, að eins og á stend-
/ ur í heiminum verður öryggi
og sjálfstæði íslands ekki með
öðru tryggt en aðild að At-
lantshafsbandalaginu og í
bandarískri hervernd. Við von t
um að einhvern tírna verði svo /
komið, að hvorugt sé framar \
nauðsyn. Því miður bendir \
ekkert til þess, að þau alda-
hvörf muni gerast í náinni
framtíð.
Við íslendingar ættum allir
að geta orðið sammála um, að l
skipast ekki í flokka né heyja /
orrustur um annað en það, \
sem við höfum efni á að vera \
ósammála um. En nú er það i
svo, að stundum verður fleira í
að gera en gott þykir, og að /
stjórnimálabarátta hlítir með- \
al annars þeim lögum, að fyr-
ir kemur að flo'kkar þykist
eiga erfitt um vik, að hverfa
frá fyrri skoðunum eða stefnu
málum. Annað mál er, hvað
þeir hirða um að standa við í
framkvæmd.
Við vitum ekki hverjar
valdabreytingar muni verða á
íslandi á komandi áratugum.
Hins verða allir menn, bjart-
sýnir á framtíð þjóðar vorrar,
að vænta, að „hvernig sem
stríðið þá og þá er blandið",
þá verði öllum íslenzkum
valdamönnum ævinlega ljóst,
undir niðri, að ekki má
koma til neinna aðgerða sem
stofni öryggi landsins í voða.
— Það skiptir litlu í þessu
sambandi, að Austri segir í
grein sinni sitthvað um mig
persónulega, sem reist er á
misskilningi.
Reykjavík, 18. ágúst 1970.
Á myndinni sézt er bátar hafa gasið út á Atlantshaf, þar sem Þarna er skipið að fara um
skip það í togi er flutti tauga því var í sæ sökkt í gær. — mynni Cape Fear árinnar.
Taugagasið loksins
komið á hafsbotn
fóru, um það bil tvær klukku-
stundir að ganga úr skugga um
að allt væri í lagi um borð í
taugagasskipinu. Opnuðu þeir
síðan botnlokur þess, og „Le Bar-
on Russel Briggs“ tók að sökkva
hægt. Búizt var við að það
mundi taka 4—6 klst. að sökkva
til botns.
Stjórn Balhama fór þess í dag
á leit við brezku stjórnina, sem
fer með utanríkismál eyjanna,
að hún bæri fram mótmæli við
Bandairíkjastjórn vegna þess að
gasinu hefði .verið sökkt á Kar-
íbahaf. Hefuir brezka stjórnin
þessa beiðni Bahama nú til athug
unar.
Hin sérstaka nefnd Samein-
uðu þjóðanna um friðsamlega
hagnýtingu hafsbotnsins, sem nú
Framhald á bls. 27
COMECON í austri
Á MEÐAN rætt er í Brussel um
stækkun Efnahagsbandalags Evr-
ópu; — 'EBE, er einnig bollalagt í
Austur-Evrópu, hvemig þjóðir
þar geti sem bezt mætt sterkari
efnahagssamvinnu í Vestur-Evr-
ópu.
Með samvinnu á sviði vísinda
og tækni hafa aðildarlöndin að
efnahagsbandalagi austant j alds-
landanna; — COMECON, náð
verulegum árangri á sviði efna-
hagsmála. Á árunum 1961—68
nær tvöfaldaðist iðnaðarfram-
leiðsla þeirra og framleiða COME
CON-löndin, sem ná yfir 18%
lands á jörðinni og eru byggð af
10% jarðarbúa, nú 31% af allri
iðnaðarframleiðslu í heiminum.
Jafnhliða þvi, sem COMECON-
löndin samræma eigin efnahags-
áætlanir, vinna þau einnig mark
visst að því að auka viðskipta
tengsl sín við önnur lönd, hvaða
þjóðskipulagi sem þau lúta. Þetta
gera COMECON-löndin á grund
velli jafnréttis, hags fyrir báða
aðila og afskiptaleysis af innan-
ríkismálum. Viðskiptin milli
COMECON-landanna og vest-
rænna landa hafa aukizt stórlega
undanfarin ár. 1968 námu þau
tvöfaldri upphæðinni 1960. Um
85% þessarar verzlunar er við
þjóðir í Vestur-Evrópu, og bygg-
ist hún að mestu á samnimgum til
langs tíma og löngum greiðslu-
frestum.
COMECON-löndin eru, eins og
sjá má á meðfylgjandi korti; Sov
étríkin, Pólland, Ungverjaland,
Búlgaría, Rúmenía, Tékkóslóvak
ía, Austur-Þýzkaland og mong-
ólsku alþýðulýðveldin. Þau
flytja út ýmsan varning og iðnað
arneyzluivörur. Frá vastrænruim
löndum flytja þau inn vélar og
efni til margra greina framleiðslu
sinnar, svo sem járn og aðra
málma, plastik, iðnaðarvélar,
sellulósa- og pappírsvörur.
Einn þeirra, sem hvað mest hef
ur stuðlað að auknum verzlunar
viðskiptum austurs og vesturs er
sovézki forsætisráðherrann Alex
ei Kosygin, sem var endurkjörinn
til embættisins fyrir nokkru eftir
að miklar sögusagnir höfðu geng
ið um að hann yrði látinn víkja
vegna samúðar siinnar með stjórn
arháttum Alexanders Dubceks í
Tékkóslóvakíu. Verður forvitni-
legt að sjá, hvaða þýðingu endur
kjör hans kann að hafa fyrir á-
framhaldandi aukin viðskipti
milli austurs og vesturs.
(Frá Nordisk Pressebureau)
Stjórn Bahama biður Breta
að mótmæla við Bandaríkin
London og Genf, 18. ágúst. AP.
HIÐ gamla Liberty-skip „Le
Baron Russel Briggs“, hlaðið 60
smálestum af taugagasi, kom á
ákvörðunarstað sinn í Karíbahafi
uni kl. hálf tvö í dag að ísl. tíma
í sólskini og bezta veðri. Jafn-
skjótt og ákvörðunarstað var náð
fór hópur átta sérfræðinga um
borð í skipið til að undirbúa að
sökkva því með hinum banvæna
farmi á um 5 km dýpi, um 480
km undan ströndum Flórída.
Fylgdarskipið „Hartley“ kom
á staðinn þremur klukkustund-
um á undan taugaskipinu, sem
dregið var af dráttarbát. Sér-
fræðingar uim borð í „Hairtley"
gerðu nákvæma staðarákvörðun
með aðstoð gervitunigls og merktu
staðinn, þar sem „Le Baron
Russel Briggs“ skyldi sökkt.
Síðasti áfangi ferðarinnar með
hið gamla skip gekk ágætlega, en
áður hafði ferðinni miðað lítt
vegna sjógangs og regnskúra.
Það tók menn þá, sem um borð
Helge Rognlien,
ráðherra verkalýðs- og
sveitarstjórnarmála
Ráðherra-
skipti í
Noregi
TVÆR breytingar hafa verið á-
kveðnar á norsku ríkisstjórninni.
Hallvard Eika þingmaður hefur
verið skipaður landbúniaðarráð-
herra og Helge Rognlien ráð-
herra verkalýðs- og sveitastjórn-
armála. Þessum embættum
Hallvard Eika:
nýr landbúnaðarráðherra
gegndu áður Bjarne Lyngstad og
Helge Seip. Nýju ráðherrarnir
taka við embættum sinum á
næstu dögum.
Ráðherraskipti þes9i koma ekki
á óvart að sögn norskra blaða,
þar sem lengi hefur verið við
þeim búizt. Fyrir landsfund
Venstreflokksinis var ljóst að
Helge Seip hafði áhuga á að
hverfa úr ríkisstjórn og taka að
nýju við sem leiðtogi flokksins á
þingi. Ráðherraskipti þessi eru
ekki talin munu hafa í för með
sér neinar breytingar á stefnu
ríkis9t j órnarinnar.
COMECON-löndin