Morgunblaðið - 19.08.1970, Side 20
20
MORGUNBLAÐiÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1970
Sextugur í dag;
Sigurður Sveins
Guðmundsson
1 dag á sextugsafmæli Sigurð
ur Sveins Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri i Hnífsdal. Hann
er fæddur i Hnifsdal 19. ágúst
1910, og voru foreldrar hans
Bjamveig Magnúsdóttir frá Sæ-
bóli í Aðalvík og Guðmundur
Einar Einarsson fiskimatsmaður
í Hnífsdal.
Sigurður er alinn upp í Hnífs-
dal, og þar hefur hann ávallt
búið. Hann hefur frá unglings-
aldri stundað öll algeng störf,
verkamarnavinnu, sjómennsku,
verzlunarstörf, jarðræktarstörf
og bifreiðastjóm í nokkur ár. 1
ágústmánuði 1942 urðu snögg
þáttaskil i lífi Sigurðar, því að
þá varð hann fyrir alvarlegu
slysi ásamt tveimur samstarfs-
mönnum sínum í hraðfrystihús-
inu í Hnífsdal af völdum spreng
ingar með þeim afleiðingum, að
hann missti sjónina að öllu. Það
getur hver séð sjálfan sig verða
fyrir slíku áfalli í blóma lífsins.
Á þeirri stundu sýndi hann æðru
leysi og lét góðar gáfur ráða við
horfum sínum til framtíðarinn-
ar, en ekki víl eða vol. Þegar
hann hafði náð sér eftir slysið,
fór hann að huga að atvinnu,
sem honum mundi henta við þess
ar breyttu aðstæður. Árið 1945
stofnaði hann verzlun í kaup-
túni sinu og rak hana í tvo ára-
tugi. Á árinu 1959 stofnaði hann
í félagi við annan, rækjuverk-
smiðju i Hnífsdal, og hana hefur
hann rekið síðan, nú i nokkur
ár sem einkaeigandi ásamt fjöl-
skyldu sinni. Á þessu ári hefur
hann lagt í þá framkvæmd að
kaupa rækjupillunarvél, sem nú
þegar er tilbúin til notkunar og
gerir fyrirtæki hans mögulegt að
auka framleiðslu verksmiðjunn-
ar frá því, sem verið hefur.
Sigurður hefur tekið mikinn
þátt í félagslífi í byggðarlagi
sínu og haft mikinn áhuga á þró
un atvinnulífsins, sem er frum-
skilyrði þess, að byggðarlag
vaxi og dafni.
Hann hefur um langt árabil
verið einn af traustustu og beztu
stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins í Norður-lsafjarðar-
sýslu og verið formaður Sjálf-
stæðisfélags Eyrarhrepps og full
trúi í kjördæmisráði Sjálfstæð-
isflokksins á Vestfjörðum frá
því það var stofnað.
Sigurður er maður fylginn sér
að hverju þvi verkefni, sem hann
tekur sér fyrir hendur og með
lagni og einbeitni kemur hann
fram málum sínum. 1 öllu félags-
lífi og samskiptum við samborg-
ara sína, er hann hjálpsamur og
ráðhollur.
Sigurður kvæntist 21. marz
1935 Aðalheiði Tryggvadóttur
frá Kirkjubóli í Skutulsfirði og
eiga þau sex börn: Guðmund
Tryggva, verkstjóra í Hnífsdal,
Kristján, framkvæmdastjóra,
Eskifirði, Kristjönu Sóley, hús-
frú, ísafirði, Sigurð Hreiðar,
verzlunarstjóra, Isafirði. Magnús
Reyni og Ólaf Gunnar, sem
báðir eru í foreldrahúsum. Aðal-
heiður hefur reynzt manni sín-
um frábærlega og verið honum
mikil stoð, sérstaklega eftir að
hann varð fyrir hinu þunga.
slysi.
Þorvaldur Thoroddsen ferðað
ist um Isafjarðarsýslu árið 1882
og segir í ferðabók sinni, að
Hnífsdalur sé snoturt fiskiþorp,
eitt hið laglegasta á Islandi og
þar búi efnaðir menn og dug-
legir.
Hnífsdalur hefur á þessum
tima tekið miklum breytingum og
finnst mér hann i senn vinaleg-
ur og fallegur, en það, sem skipt
ir mestu máli, að fólkið, sem skipt
an stað hefur byggt og byggir,
er duglegt og gott fólk. Á stund
um gleðinnar eru þeir glaðastir
allra og á stundum sorgar og erf
iðleika eru þeir ein stór fjöl-
skylda með eitt hjarta og eina
sál. Þeir eru hispurslausir í fram
komu og liggja ekki á neinu, ef
þeim þykir, og er þá sama, hver
í hlut á. Sigurður er bam þessa
umhverfis og þar hefur hann
viljað búa og starfa. Þetta um-
hverfi, þetta fólk með sínar venj
ur og siði, er honum að skapi og
með því vill hann deila kjömrn
og blanda geði.
Að heimili Sigurðar og Aðal-
heiðar á Árbakka í Hnífsdal,
verður án efa mannmargt i dag
í tilefni þessara tímamóta í ævi
húsbóndans.
Ég og fjölskylda min þökkum
honum góð kynni, trygga og
langa vináttu, sem aldrei hefur
borið skugga á, um leið og við
sendum honum og fjölskyldu
hans hugheilar hamingjuóskir
með daginn og óskum þeim allra
heilla og blessunar í lífi og
starfi.
Matthías Bjarnason.
— Á slóðum F.f.
Framhald af bls. 10
mér, þvi að þessa leið hafa þeir
borið hann, Öxndælir. Ég þykist
heyra fótatak þeirra undir
þungri byrði. En þyngra varð
höggið, sem heimilinu á Steins-
stöðum var greitt þennan ágúst-
dag árið 1816, og sár sveinsins
greri aldrei til fulls.
Árin liða. Jóreyk ber um Öxna
dal, langferðafólk er komið sunn
an yfir fjöll. Sr. Gunnar Gunn-
arsson er að koma frá Reykja-
vík til að taka við brauði í Lauf
ási vorið 1828. Með honum er
Þóra, dóttir hans, og Jónas hefir
orðið þeim samferða á heimleið
úr Bessastaðaskóla. Við túngarð
á Steinsstöðum er numið staðar
og kvaðzt. Sá skilnaður er hinzt
ur samfundur Jónasar og Þóru,
en ástir þeirra, sem tókust á
þessu ferðalagi, entust báðum
ævilangt. Þóra hélt förinni
áfram að Laufási, en Jónas
teymdi hest sinn heim Steinsstaða
túnið. Saga Jónasar og Þóru er
fegursta ástarsaga á Islandi, en
um leið einhver sú átakanlegasta.
Kvæðið Ferðalok kann eða þekk
ir hvert mannsbam síðan, en
Hraundrangi, sem nú rís okkur
á vinstri hönd, að nokkru sveip
aður skuggum siðdegisins, er
sýnilegur og ekki óveglegur
minnisvarði þessarar fögru ást
arsögu, sem í vitund fólks er orð
in helgisaga. Hann minnir á
kirkjuna, sem átti að aðskilja
Tristran og ísold hina björtu,
því að „þeim var ekki skapað
nema að skilja."
„Ausin voru þau moldunni
fljótt og ótt.
Sín megin kirkjunnar
lá þá hvort.
Runnu upp af leiðum þeirra
lundar tveir.
Upp af miðri kirkjunni
mættust þeir,“
„því að anda, sem unnast,
fær aldregi
eilifð að skilja."
Enn utar sér til Bægisár, en
þar sat skáldpresturinn sr. Jón
Þorláksson í elli, þegar Jónas
var bam. Það var hann, sem
sagði þessi spádómsorð við Rann
veigu, konu aðstoðarprests síns
og móður Jónasar, eftir að hafa
hjalað við 5 ára drenginn í
Steinsstaðabaðstofu: „Nú skal ég
segja yður nokkuð, maddama
góð. Hérna eigið þér nú efni i
ágætt skáld."
1 fjarska má greina staðarleg
húsin á Möðruvöllum í Hörgár-
dal. Hugurinn reikar til skáld-
bróður Jónasar og vinar, Bjama
amtmanns, sem þar sat og kvaddi
loks óvænt og skyndilega þenn-
an heim. En 20 árum eftir lát
Bjarna fæddist þar skáldið
Hannes Hafstein, sonur Kristj-
önu Gunnarsdóttur í Laufási, sá
er orti Öxnadal og skáldið, sem
kveða kunni kvæðin ljúfu, þýðu.
Einnig fæddist á Möðruvöllum
pater Jón Sveinsson, sem víða
bar hróður íslands og átti sama
afmælisdag og Jónas Hallgríms-
son.
Áður en við stöndum upp og
höldum áfram, renni ég augunum
út á djúpbláann Eyjafjörðinn.
Ég bregð upp sjónaukanum til
að ganga úr skugga um að hafa
séð rétt. Það reyndist rétt. Ýg sé
Laufás undir skógarbrekkunni,
handan Eyjafjarðar. Bærinn
hennar Þóru er þá í sjónmáli
héðan. Einhvern tíma hefir hún
rennt hingað augum úr fjarskan
um, ef til vill glýjuðum trega-
tárum. Mér finnst ég eiga að
skila frá henni kveðju niður í
dalinn, heim að Hrauni og heim
að Steinsstöðum.
Nú er aðeins snertispölur upp
í skarðið, og síðustu brekkurn-
ar standa ekki lengi fyrir okkur.
Það hefir verið heilmikið víta-
min í þessu kexi. Eftir röska
göngu gegnum skarðið blasir
Hraunsvatn við, spegilfagurt
með bröttum skriðum og háum
bökkum á alla vegu nema að
sunnan, þar sem dálítið drag
gengur upp frá því inn milli fjall
anna.
Við fleygjum okkur niður í
djúpan skorning milli þúfna í
skjóli fyrir hafgolunni og látum
sólina baka okkur, meðan við
borðum eplin og drekkum gosið.
Alltaf er gott að komast á leið-
arenda og ná settu marki, njóta
sigursins. Við teygjum úr skönk
unum og drögum djúpt andann.
Ekkert rýfur þögnina nema þyt
ur í stráum, niður í lækjum og
kliður fugla.
Bömin una ekki lengi kyrr-
setunum, heldur fara að hlaupa
um og ærslast. Þau láta sprek
sigla á vatninu eins og hafskip,
hnoða snjó úr síðbúnum skafli og
kasta eins langt og þau geta.
Svo koma þau, stinga sér koll-
hnís og fljúga á mömmu og pabba
og stóra bróður. Það loða fjalla-
grös við fötin þeirra. Grasaferð
in! „Systir góð, sérðu það, sem
ég sé?" Ég renni augunum eftir
háum fjallabrúnunum og hrekk
við. En þarna kominn útilegu-
maðurinn úr Grasaferðinni? Ein
kennilegir klettadrangar, sem
minna á menn á gægjum, standa
upp úr skálinni i fjallinu hinum
megin við vatnið. En „fjallið
hérna liggur milli sveita og er
ekki, svo ég viti, áfast við jökl-
ana eða Ódáðahraun," svo að
ekki er neitt að óttasL
Við erum ein með vatninu, f jöll
unum og himninum. Við sjáum
hvergi til byggða, heyrum hvergi
til manna. Dynur og skrölt bens
ínmenningarinnar nær ekki til
okkar. Hér er ósnortið land,
friðarvin. Við værum horfin aft
ur fyrir íslandsbyggð, ef ekki
væri nýrúin tvílemba suður í holt
inu. Við erum stiginn inn í huldu
heima þessarar fjallaskálar, allt
dæguramstur að baki og fjar-
lægt. Hér er gott að hvílast, og
hér er gott að una. Bezti íslenzku
kennari á íslandi, Jónas Hall-
grímsson, unni sögninni að una
og kenndi okkur að nota hana.
Hann á þennan dal, og dalurinn
á hann.
— Minning
Framhald af bls. 18
þeirra og var heimiaigiamgiur hjá
þekn eftir það. Svo náið var
mieð fjölskyldum okkar alð min
böm kölluðu þau Guðmiund og
Jóními afa og ömimiu.
Guðmiundur Þorsteinssioin var
uim mangit óvenjiuleigiur miaður.
Hainin var hrókur alls fagnaðar
þar sem hamin var í félagsskap
og möngium hefur hann koornið
í giott skap með sínum dillaindi
hlátri og léttleika, Hann las
mikið og fyl'gdiisit einstakleiga
vel með því sam var að gerast
innanlands og utam. Hann var
ekki búiinin að tala við miamn
mai-giar miínútuir áður en hanm
kom að eimihverju slíbu um-
ræ'ðuefni úr þjóðimálumium eða
heknismálum. Hamn var eim-
lægiur og einbeittur sósíalisti
og fór ekki dult með skoðamir
símar. Aldrei heyrði ég hamm
tala illia um fólk. Hitt átti
hanin til, ef bonum þótti miður
eitthvað í fari þess siem harnn
átti tal við, að bemda hornum á
það hispurslaiuist, en þó þannig
að það seerði emigian.
Guðmumdur var hugvitssamur
og allt lék í höndum bamis, enidia
átti hamm til smiða að telja.
Aldrei gat hamm géð mieinm smá-
hlut bilaSan á heimili, lás á
hurð eðia þeisis háttar, ám þesis að
rjúka til og fara að gera við
hann. í öllu fari sínu var hann
eimstaklega og óvenijulega huig-
ulsiamur um aðra. í spítalaliegu
mimni sl. vetur brést það varla
að Guðmiumdiuir kærni í heim-
sófcn amin/am hvern diaig, og allt-
af var hresisimig og upplyftimg
í komium hams. Ég gleymi þvi
ekfci þeigar mér var leyft að
skreppa heim um jólim síðuistu,
að þá var Guðmiundur þar kom-
imm og efcki við anmia'ð kiomamdi
en hamm sœd um jólamatimm fyr-
ir miig. Hamm bjó átfnam í húsi
siírnu etftir lát koniu sininar og þar
sá ebki á nieinu, hamn hélt þar
öllu í borfinu mieð smyrti-
miemmisiku sinmii, sem var einn af
eigimteitoum bams sem allir
tóbu etftir.
Samvizkusiemi hans og hæfni
í starfi var við bruigðið. Við
höfðum talað um að bamm færi
mieð okkur í Galtalæfcjarskóg
um Verzlumiarmiammalhielgina, em
hann hætti við förimia vegna
þasis að hamm átti eftir að vimmia
síðuistu vaktima fyrir sumarfrí-
ið, á lauigardagismionguiniinm.
Önmur ferð var ráðgerð um
næstu hielgi, til Hreðavatns, sú
ferð átti að vera einis koniar
endiurtekmáng á einini beztu ferð
sem ég hef farið um diagana.
Það var 1947 að ég fór með
hocnium og dóttur hamis til Hreða-
vatns um Verzlumarmammaihelgi.
Guðmiunidur hafði veiðileyfi í
vatninu og hafði verið þar að
vei'ðum mieðam unga fólkið
sfcemmti sér. Þegar við feomum
af skemmitiisitaðmum var hamn
korninn með veiðima, og við
fluttum okkur alll'anigt frá
tj'aldistaðnum oig suðum þar glæ-
nýjam aflanrn umdir berum himmi,
en bamm settiist mieð bamjóið sitt
og sönig fyrir okkiur. Veðrið var
umaðglegt og emgum kom svetfm
til hugar. Umgt fólk og svangt
ramin á lyfctimia og allir femigu bita
sem vildu. Svo var farið í bats-
ferð á vatnimu eldismiemma morg-
umis, og Guðmiumdur var enm sem
fyrr óþreytandi og kom öEum í
sólskinsskap.
Ég á bágt miefð að sætta mig
við að ferðin sem vera átti til
minminigar um þessia för verður
aldrei farim.
Guðmumidiur skrapp til Þiing-
valla og var þar í sumarbústað
hjá mági sínium, og við veiðar
úti á vatni. Bn þar veáktist hanm
og vair fluttur til sjúkrahússims
á SeltfOsisi og amdiaðist þar sem
fyrr segir. Hainm verður jarðsett-
ur í daig.
Gu'ðmiundiur átti tíu systkini,
fiimm alsystkini. Þau hatfa fjög-
ur látizt síðam um áramót og
er nú eimiumigis eitt systkimamma
á lífi, Elírn Þorsteinsdóttir, 89
ára að aldri.
Við hjónim þökkum Gufðmiumdi
Þorsteimsisyni inmiitega allt það
'siem hann var okfkiur og börnium-
um ofcfcar. Slífcra mianmia er gott
að minmaist, em fátækari verður
maður 'þegar þeir bveðja.
Lilja Bjarnadóttir.
Kínverjar
mótmæla
Peking, 17. ágúst — NTB
KÍNA gagnrýndi í dag tékknesk
stjórmvöld vegna viðbragða
þeirra við innrás stuðningsmanna
Sihanouks fursta í sendiráð Kam
bódíu í Prag þann 10. ágúst sl. —
Fyrix innrásinni stóð annar rit-
ari sendiráðsins Isoup Ganty og
ýmsir stúdentar frá Katmbódíu.
f mótmælaorðsendingu segir að
tékknesk stjórnvöld hafi beitt
Ganty ómannúðlegum þvingun-
um og segir þar að sendiráðinu
hafi verið lokað sl. laugardag al
gerlega að ástæðulausu. Var þá
settur vörður við bygginguna og
aðgangur í sendiráðið bannaður.
Fengu fulltrúar Kínverja ekki að
ræða við Ganty.
Um helgina sendi Sihanouk
fursti, sem situr í Peking og hef
ur þar á hendi forystu útlaga-
stjórmar, skeyti til Svoboda, for-
seta Tékkóslóvakíu, þar sem
hann fór þess á leit við hann, að
tékkneska stjórnin viðurkenndi
Ganty, sem hinn eina rétt og log
lega fulltrúa landsins í Prag.
Skuldabréf óskast
Hefi kaupendur að skuldabréfum, fasteignatryggðum og ríkis-
tryggðum.
Guðjón Styrkársson, hrl.,
Austurstræti 6.
Sími 18354.
Rafeindafrœði
Maður með trausta þekkingu á rafeindafræði (Electronics)
óskast til að annast viðhald á rafreiknum.
Starfið hefst með námi erlendis.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist af-
greiðslu Morgunblaðsins merkt: „EDP — 4313".
Oskum eftir
einu eða tveimur herbergjum fyrir tvo pilta í nágrenni Verzlun-
arskólans, nú á komandi vetri. Æskilegt væri að fæði fengist á
sama stað að hálfu eða öllu leyti.
Vinsamlegast hringið í síma 92-8025.