Morgunblaðið - 03.10.1970, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÖKTÓBER 1970
Það er einkennilegri tilviljun
undirorpið hvenær nýjar kyn-
slóðir komast til áhrifa og valda
á vettvangi stjórnmálanna. 1 40
ár hefur Sjálfstæðisflokknum
raunverulega verið stjórnað af
mönnum, sem komust til vits og
ára fyrir heimsstyrjöldina síðari.
Jóhann Hafstein, formaður
Sjálfstæðisflokksins og forsætis
ráðherra, kom fram á sjónarsvið
ið á stríðsárunum og að honum
fór að kveða að marki skömmu
eftir stríðslok er hann tók sæti
í borgarstjórn Reykjavíkur
og á Alþingi en áður
hafði hann verið þróttmik-
Árni Ragnar
Friðrik
ill forystumaður ungra Sjálf-
stæðismanna um nokkurt skeið.
Hann tengir nú saman
tímabil Ólaís Thors og
Bjarna Benediktssonar í íslenzk
um stjórnmálum og þeirra, sem
yngri eru að árum, handhafi
þeirrar miklu pólitísku arfleifð-
ar, sem þessir menn skildu eftir
sig.
Um 1950 koma fram á sjónar-
sviðið tveir ungir menn, þeir
Magnús Jónsson frá Mel og
Jónas Rafnar og nokkrum ár-
um síðar. Geir Hallgrímsson.
Ragnhildur Helgadóttir var kjör
in á þing 1956 aðeins 26 ára að
aidri, þá nemandi við Há-
skóla Islands. 1 lok
sjöitta áratugsins er Matthí-
as Á. Mathiesen kjörinn á þing,
þá 27 ára gamall, en hann er
nú yngstur þingmanna 39 ára að
aldri og Pétur Sigurðsson, sem
var 31 árs er hann
var fyrst kjörinn á þing. En á
sjöunda áratugnum varð lítil
ynging í þingmannaliðinu.
Fyrir u.þ.b. tveimur árum
birtist grein hér í Morgunblað-
inu um Lýðveldiskynslóðina, sem
svo var nefnd. sem sum-
ir vildu raunar kalla Lýð-
veldisbörnin, en þá var fjall-
að um aldursflokkinn, sem
nú er á aldrinum 40—50 ára eða
svo. Augljóst er, að á næstu ár-
um mun þessi kynslóð smátt og
smátt taka við stjórn Sjálfstæð-
isflokksins og forystuhlutverki í
landsmálum og engum þarf að
koma á óvart, þótt þessi kyn-
slóð ríki næstu tvo áratugina
enda er þar mikið mann-
val á ferðinnir- Fyrirsjáan-
legt er, að þessari kynslóð bæt-
ast þrir nýir fulltrúar
í þingliði Sjálfstæðisflokksins á
næsta kjörtímabili, en það eru
Geir Hallgrimsson, sem mun taka
sæti á Alfþingi, sem aðaimaður
þegar í vetur og Ragnhildur
Helgadóttir og Sverrir Her-
mannsson, sem bæði hafa náð
þeim árangri i prófkjöri að þau
munu setjast á þing í upphafi
næsta kjörtímabils.
Á vettvangi stjórnmálanna og
Sjálfstæðisflokksins er árið 1970
þó ekki merkisár fyr-
ir það eitt, að þessi kynslóð, sem
hér hefur verið gerð að umtals-
efni, lætur að sér kveða að
marki. Hitt er ekki síður eftir-
tektarvert, að á þessu ári hefur
komið fram á sjónarsviðið veru-
legur hópur ungra manna, sem
eru á aldursskeiðinu um og yfir
þrítugt og um þá mun þessi
grein fyrst og fremst fjalla —
árganginn 1970.
MIÐST.TÓRNARKJÖR OG
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR
Fyrsta vísbendingin um það,
að fulltrúar yngstu kynslóðar-
Halldór
flokksins á landsfundi flokksins
sl. haust. Nú er mjög langt um
liðið síðan svo ungur maður hef-
ur náð kjöri í miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins, en Friðrik
Sophusson er 26 ára gamall.
Öðrum þræði reyndist þetta
mögulegt vegna breyttrar skip
unar á kjöri miðstjómar á lands
fundi en einnig vegna hins, að
vilji var fyrir hendi hjá þeim
sem eldri eru til þess að veita
svo unigum manni stuðning.
Á þessum sama landsfundi
náði ungur bóndi úr Borgarfirði
Kalmann Stefánsson einnig kosn
ingu í miðstjórn og síðan hefur
hann hlotið verulegt fylgi í próf
kjöri Sjálfstæðismanna í Vest-
urlandskjördæmi.
Þegar prófkjörið fór fram í
Reykjavík vegna borgarstjórnar
kosninganna sl. vor vakti árang-
ur tveggja ungra manna mikla
athygli.
Ólafur B. Thors, sem er 32 ára
að aldri, náði glæsilegri kosn-
ingu í prófkjörinu, varð þriðji
í röðinni með bindandi kosn-
ingu. Fram til þess tíma hafði
Ólafur ekki verið ýkja athafna-
samur á vettvangi stjórnmál-
anna. Hann hafði að vísu verið
formaður Heimdallar um tveggja
ára skeið en tókst það trúnaðar-
starf á hendur mjög treglega.
Með kjöri hans í vetur kom
Ólafur B. Thors fram á sjónar-
sviðið, sem einn sterkasti og at-
kvæðamesti fulltrúi ungu kyn-
slóðarinnar i Sjálfstæðisflokkn-
um og maður framtíðarinnar.
Markús Örn Antonsson, sem
er aðeins 27 ára gamall og hafði
til þess tíma nánast engin af-
skipti haft af stjórnmálum, náði
einnig kosningu í eitt af 8 efstu
sætum í prófkjörinu í vetur.
Hann var þá orðinn landsþekkt-
ur maður fyrir fréttastörf í ís-
lenzka sjónvarpinu. Hann vakti
athygli í prófkjörsbaráttunni fyr
ir ferskar baráttuaðferðir og af
honum er mikils að vænta í fram
tíðinni.
Kjör þessara ungu manna í
borgarstjórn Reykjavíkur var
staðfesting á þvi, sem fram kom
í kosningunni á Landsfundi Sjálf
stæðisflokksins sl. haust, að rík-
ari skilningur var fyrir hendi en
áður hjá eldra fólki, að nauðsyn
legt væri að gefa ungu fólki
tækifæri til að spreyta sig á
vettvangi stjórnmálanna. Um
svipað leyti náði ungur maður,
Árni Ragnar Árnason, í Kefla-
vík einnig athyglisverðum ár-
angri í prófkjöri Sjálfstæðis-
manna þar, er hann varð efstur
í þvi prófkjöri og þar með kjör-
inn einn helzti forystumaður
Sjálfstæðisflokksins í bæjarmál-
um Keflavíkur. Árni Ragnar
Árnason á að baki áralangt
starf í röðum ungra Sjálfstæðis-
manna og er nú útibússtjóri
Verzlunarbankans í Keflavík.
Hörður
lega við því að búast fyrirfram,
að sagan mundi endurtaka sig,
þegar kæmi til undirbúnings
næstu Alþingiskosninga. Til
þess lágu margar ástæður. Sam-
kvæmt fenginni reynslu er aug-
Ijóst að hraðari breytingar
verða á skipan sveitarstjóma
en Alþingis. Bæði flokkar og
kjósendur eru tregari til þess
að gefa ungum mönnum tækifæri
á Alþingi en i sveitarstjórnum
og telja, að sveitarstjórnirnar
séu betur til þess fallnar að
verða eins konar tilraunavett-
vangur fyrir unga menn.
Fyrsta vísbendingin um, að
einnig á sviði landsmála mundu
verða miklar breytingar, var sú
frétt, sem barst norðan af landi,
að Halldór Blöndal, 32 ára gam
all kennari, hefði verið valinn
í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokks
ins i Norðurlandskjördæmi
eystra. Halldór Blöndal er af
þriðju kynslóð hinnar lands-
þekktu Engeyjarættar og hefur
haft mikil afskipti af stjórnmála-
starfi sl. 10 ár. Hann hefur starf
að mikið í samtökum ungra
Sjálfstæðismanna, verið erind-
reki Sjálfstæðisflokksins á Ak-
ureyri og gegnt margvíslegum
öðrum störfum fyrir flokk sinn.
Val hans á framboðslista Norð-
lendinga í næsta öruggt sæti
kom mönnum skemmtilega á
óvart, en enginn vafi er á því,
að Halldór Blöndal mun með sín
um hætti setja svip á
þingstörfin. Hann á það vafa-
laust til að kasta fram stöku í
ræðustól á Alþingi, en sá siður
hefur lagzt af hin seinni árin
eftir því sem sérstæðum persónu
leikum hefur fækkað í þingsöl-
um en að sama skapi fjölgað
hinni litlausu, háskólaöguðu
stjórnmálastétt, sem hefur gert
Alþingi sviplausara en ætti að
vera.
Sjálfstæðismenn á Norður-
landi eystra gerðu það ekki
endasleppt við val á framboðs-
lista sinn vegna þess, að annar
ungur maður, Lárus Jónsson
var kjörinn í 2. sæti listans og
kemur í stað Jónasar Rafnars,
sem ákveðið hefur að láta af
þingmennsku. Lárus er nokkr-
um árum eldri en þeir, sem að
framan hafa verið taldir, en
hann hefur lengi verið í fremstu
röð ungra Sjálfstæðismanna og
einn helzti forystumaður þeirra
á Norðurlandi. Lárus Jónsson
er viðskiptafræðingur að mennt-
un og hefur á seinni árum lagt
sérstaka áherzlu á að kynna sér
málefni dreifbýlisins og upp-
byggingu þess. Hann hefur átt
drjúgan þátt í gerð Norðurlands
áætlunar og verður tvímælalaust
áhrifamikill talsmaður lands-
byggðarinnar á Alþingi.
Um svipað leyti og þessar
fregnir bárust af Norðurlandi
fór fram prófkjör á Austur-
landi og þar kom fram á sjónar-
sviðið ungur maður að nafni
Jón Guðmundsson, 28 ára gam-
all, sem stundar nám við laga-
deild Háskóla íslands. Hann
vakti raunar fyrst at-
hygli I bæjarstjórnarkosning-
unum á Neskaupstað sl. vor er
hann átti drjúgan þátt í fylgis-
aukningu Sjálfstæðismanna þar,
en við lá, að kommúnistar misstu
meirihluta sinn'. 1 prófkjör-
inu á Austurlandi hlaut hann
umtalsverða traustsyfirlýsingu
og skipar nú þriðja sæti á fram-
boðslista Sjálfstæðismanna á
Austurlandi. Má vænta þess, að
frá honum heyrist með myndar-
legum hætti í framtíðinni austur
þar.
Þá er komið að prófkjörum
Sjálfstæðismanna í Reykjavík
og Reykjaneskjördæmi. Þrátt
fyrir góðan árangur ungra
manna annars staðar á landinú
var þess tæplega að vænta, að
þeir hefðu mikla mögu-
leika í prófkjörinu í Reykjavík
enda var þar mikill „stórvelda-
slagur“ á ferðinni. Það fór þó á
annan veg. Ellert B. Sclirain,
sem er aðeins 30 ára gamall,
vann þar glæsilegan sigur og
Framhald á hls. 18
Kalman
r
Argangurinn
1970
innar í Sjálfstæðisflokknum | PRÓFKJÖR VEGNA
væru að brjótast í gegn, ef svo ÞINGKOSNINGA
má að orði komast, var kosn- Þótt ungir menn hafi náð þess
ing Friðriks Sophussonar, stud. um árangri í prófkjörum vegna
juris. í miðstjórn Sjálfstæðis-1 sveitarstjórnarkosninga var tæp