Morgunblaðið - 11.10.1970, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR. 11. OKTÓBER 1970
47
fjallar um ævi fyrstu Chur-
chillanna Johns Churchill her-
toga af Marlborough og Söru
konu hans, en fyrstu Churchill-
arnir komu fram á 17. öld.
Fyrsti þátturinn fjallar um
það, þegar John og Sara Jenn-
ings hittast í fyrsta sinn í hirð-
veizlu hjá Karli 2. Bretákon-
ungi. í kringum 1700 var John
Churchill einhver mesti hers-
höfðingi, sem þá var uppi, og
þau hjón í raun og veru valda-
mestu persónur í Bretaveldi.
Hann var kallaður ósigrandi
hershöfðinginn, en kona hans
var mjög áhrifamikil við hirð-
ina og helzti ráðgjafi Önnu
drottningar, dóttur Karls 2.
Margir sömu leikarar koma
fram t þessum þáttum og léku
í sögu Forsyte-ættarinnar.
A dogum þeirra hjóna voru
5 þjóðhöfðingjar' við völd í
Bretlandi og allan þann tíma
voru þau i miðpunkti atburða-
rásar þjóðfélagsins.
Fyrir sigra sína í orrustutn
fékk John Churchill Blenheim-
höllina, en síðan hefur hún
ávallt verið í eigu Churchill-
œttarinnar.
Þess má geta að nafnið Blen-
heim valdi hann á höllina
vegna þess, að hann hafði unn-
ið sinn stærsta sigur við þýzka
þorpið Blindheim.
21,50 Á ferS meS Kalla
Bandarísk mynd, byggð á sam-
nefndri bök eftir Nóbelskáldið
John Steinbeck.
Lýsir hún ferðalagi, sem hann fór
í hjöthýs! árið 1ÖGO um þyer og
endilöng Bandárikin ásamt loð-
hundinum Kalla.
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
Þulur: Markús örn Antonsson.
22,40 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
13. október
20,00 Fréttir
20,25 Veður og auglýsingar
20,30 Finnst yður góðar ostrur?
(Ka’ de li‘ östers?)
Sakamálaleikrit í sex þáttum eftir
Leif Panduro, gert af danska sjón-
varpinu.
3. þáttur.
Leikstjóri Ebbe Langberg.
Aðalhlutverk: Povel Kern, Erik
Paaske, Björn Watt Boolsen og
Birgitte Price. — Þýðandi Dóra
H afsteinsd óttir.
Efni 2. þáttar:
Lögreglan kemst að því að bíll
Knudsens forstjóra sást hjá morð-
staðnum um líkt leyti og morðið
var framið. Einnig var bíll Brydes-
ens bókara þar umirætt kvöld.
Knudsen laumast út að kvöldlagi
til fundar við óþekktan mann.
(Nordvision — Danska sjónvarpið).
21,25 Setið fyrir svörum
Umsjónarmaður Eiður Guðnason
21,50 l»ýtur í rjáfri og runna ....
Söngkonan Helgena Elda syngur
létt lög.
(Nordvision — Finnska sjónvarpið).
22.10 Róið á réttan stað
Rætt er við norska bátaskipstjóra,
og lýst notkun nýtízkulegra sigl-
ingatækja til staðarákvörðunar.
Þýðandi og þulur Jón O. Edwald.
(Nordvision — Norska sjónvarpið)
22,40 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
14. október
18,00 Ævintýri á árbakkanum
Hammy heldur útsölu.
Þýðandi Silja Aðalsteinsdóttir.
Þulur Kristin Ólafsdóttir.
18,10 Abbott og Costello
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
18,20 Sumardvöl í sveit
Brezkur framhaldsmyndaflokkur 1
sex þáttum, byggður á sögu eftir
Noel Streatfield.
Þýðandi Sigurlaug Sigurðardóttir.
6. þáttur — Á heimleið.
Efni 5. þáttar:
Bömin finna Stefán í helli við
sti-öndina, en hann er sagnafár. Þau
fara til Ónu, nágrannakonu sinnar,
og hún kannast við Stefán. Hann er
kvikmyndaleikari, sem var sendur
á heimavistarskóla, en strauk það-
an.
18,50 Skólasjónvarp
Eðlisfræði fyrir 11 ára börn.
1. þáttur — Mælingar.
Leiðbeinandi Ólafur Guðlmundsson.
Umsjónarmenn örn Helgason og
Guðbjartur Gunnarsson.
Fyrsti þáttur skólasjónvarps-
ins fjallar um mælingar og er
í tengslum við samnefnda
námseiningu, sem kennd er t
11 ára bekkjum. Þátturinn er
sem sagt á sviði eðlisfræðinnar,
en leiðbeinandi er Ólafur Guð-
mundsson, kennari við Gagn-
frœðaskóla Garðahrepps.
Skólasjónvarpsþœttirnir verða
alls 5 fram að áramótum, en
eftir áramót verða þeir viku-
lega, en alls eru þættirnir 10
og verða sýndir tvisvar hver.
Allir þessir þættir eru í nánum
tengslum við hið nýja námsefni
í eðlis- og efnafrœði, sem
kennd verður í 11 og 13 ára
bekkjardeildum flestra skóla í
vetur. Þess má geta, að kenn-
urum þessa námsefnis hafa
verið sendar leiðbeiningar um
efni þáttanna og ætlunin er,
að þeir myndi umrœðugrund-
völl í næstu kennslustundum.
Nú þegar er búið að taka upp
8 af þessum 10 þáttum og þeir
heita: mœlingar, afstœði, og
stefnufjarlœgðir fyrir 11 ára
neuiendur; tími, hreyfing, rúm
mál, eðlismassi og hitaþensla
fyrir 13 ára börn. Eftir er að
taka upp tvo þœtti um efna-
fræði fyrir 11 ára börn.
19,05 Hlé
20,00 Fréttir
20,25 Veður og auglýsingar
20,30 Steinaldarmennirnir
Þýðandi Jón Thor Haraldsson
20,55 Læknirinn kemnr
Norsk mynd um starf héraðslæknis
í strjálbýlu og afskekktu héraði.
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
(Nordvision — Norska sjónvarpið)
21,25 Miðvikudagsmyndin
Exercis
Sjónvarpsleikrit eftir Bengt Bratt,
sem hlaut 1. verðlaun í leikritasam-
keppni Nordvision árið 1070.
Leikstjóri Lars Löfgren.
Aðalhlutver'k: Hans Ðahlin, Lenn-
art Lundh, Sven Wollter og Per
Ragnar. Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
Leikritið gerist í æfingabúðum
sænska hersins og lýsir lífinu þar
og þeim anda, sem þar ríkir.
(Nordvision — Sænska sjónvarpið).
23,20 Dagskrárlok.
Fftstudagur
16. október
20,00 Fréttir
20,25 Veður og auglýsingar
20,30 Zoltán Kodaly
Mynd frá finnska sjónvarpinu um
ungverska tónskáldið Zoltán Ko-
daly, sem auk tónsrrúða safnaði
ungverskum þjóðlögum og gat sér
frægð fyrir brautryðjendastarf í
tónlistarkennslu bama.
Þýðandi Hjalti Kristgeirsson.
(Nordvision — Finnska sjónvarpið).
21,15 Skelegg skötuhjú
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22,05 Erlend málefni
Umsjónarmaður Ásgeir Ingólfsson.
22,35 Dagskrárlok.
Laugardagur
17. október
15,30 Myndin og mannkynið
Sænskur fræðslumyndaflokkur í sjö
þáttum um myndir og notkun
þeirra sem sögulegra heimilda, við
kennslu og fjölmiðlun.
3. þáttur — Nadar og fyrstu loft-
myndirnar.
(Nordvision — Sænska sjónvarpið)
16,00 Endurtekið efni
Að morgni efsta dags
Rústir rómverska bæjari ns Pom-
pei geyma glögga mync? af lífi og
högum bæjarbúa og harmleiknum,
sem gerðist þar árið 79 eftir Krist,
þegar bærinn grófst i ösku frá eld-
gosi í Vesúvíusi.
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
(Nordvision — Danska sjónvarpið).
Áður sýnt 13. september 1970.
16,35 Trúbrot
Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíus-
son, Magnús Kjartansson og Ari
Jónsson syngja og leika.
Áður sýnt 14. september 1970.
Trúbrotsfélagarnir.
Þessi fyrsti þáttur Trúbrots
eftir breytingu á skipan hljóm-
sveitarmeðlima í haust verður
endurtekinn, en hann vakti
mikla athygli sjónvarpsáhorf-
enda. Um þessar mundir leikur
hljómsveitin í Kaupmannahöfn,
en þar mun hún leika á þrem-
ur skemmtistöðum fram í byrj-
un næsta mánaðar og einnig er
plötuupptaka á döfinni í þess-
ari utanför Trúbrots.
16,15 Stungið við stafni
Síðasta dagskráin af þremur, sem
Sjónvarpið lét gera síðastliðið 9um-
ar í Breiðafjarðareyjum. Komið er
í margar eyjar, skoðaðir sjávar-
straumar og amarhreifður. Kvik-
myndun Rúnar Gunnarsson. Um-
sjónarmaður Magnús Bjamfreðsson.
Áður sýnt 17. maí 1970.
17,25 Hlé
17,30 Enska knattspyrnan
1. deild: West Bromwich Albion —
Leeds United.
18,15 IþrótUr
Hlé.
20,00 Fréttir
20,25 Veður og auglýsingar
20,30 Smart spæjari
Oft er flagð undir fögru skinni.
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
20,55 Ballettdansmærin
Fylgzt er með einni fremstu ballett-
dansmey Kanada, frá því að hún
hefur undirbúning og æfingu, á
hlutverki sínu í ballettinum ösku-
busku, þar til að sýning fer fram.
Þýðandi og þulur Helga Jónsdóttir.
21,25 Odette
(Odette)
Brezk bíómynd, gerð árið 1950.
Leikstjóri Herbert Wilcox.
Aðalhlutverk: Anna Neagle, Trevor
Howard, Marius Goring og Peter
Usti.iov.
Þýðandi Rannveig Tryggvadóttir.
Myndi'n er byggð á sannsögulegum
viðburðum, sem gerðust 1 heims-
styrjöldinni síðari, þegar Bretar
sendu njósnara til Frakklands.
23,20 Dagskrárlok.
&
A
PERFECT FIT
^RM-0-Jy|ATIC
DRESS FT)RM
1
M
M
Saumagíno
Með FORM-O-MATIC saumagínunni
getið þér séð fyrir fram hve fallegur
kjóllinn, blússan, kápan €íða pilsið
verður á yður. Nú getið þér mátað,
þrætt saman, faldað eða breytt flík-
illfl.pkurn svo miklu auðveldar en áður.
^^^^^lSaumagínan er sterk, hún hvorki
Ispringur, rifnar eða brotnar. Er létt
' og þægileg í meðförum. Hún stendur
á þrífæti. Jersey áklæði sem hylur
hana er mjúkt, og auðvelt er að festa
prjónum í það.
Þetta er saumagínan sem lengi hefur
verið beðið eftir, enda verðið svo hag
kvæmt að það aftrar engum frá því að
kaupa hana.
Meðalstærð — Yfirstærð.
Gínan afgreiðist í 2 stærðum og væri
það algjör undantekning ef þér gætuð
ekki breytt gínuni nákvæmlega eftir
yðar málum.
Látið ekki hjá líða að senda afklipp-
inginn hér að neðan til Heimavals og
munum við senda yður nánari upplýs-
xingar um hæl.
tÓKEYPIS —
Með Jýnunni fáið þér ókeypis 93 blað-
síðna Sníða- og Saumabókina ,,A.B.C.
of Sewing“ svo lengi sem birgðir end-
ast.
Prentstafir
Vinsamlegast, sendið mér nánari upplýsingar um
Form-O-Matic Saumagínuna, mér að kostnaðarlausu og
án skuldbindinga frá minni hálfu.
'j&>.
Nafn:
IS Heimilisf.:
HEIMAVALR8KÖ&Í39I
Uppskrift verður aldrei góð, ef notuð eru léleg
hráefni. Þetta vita aliar reyndar húsmæður. Því hefur
Ljóma Vítamín Smjörlíki verið mest selda smjörlíki
á íslandi í mörg ár.
LJÓMA VÍTAMÍN SMJÖR-
LÍKI GERIR ALLAN MAT
GÓÐAN OG GÓÐAN MAT
BETRI
LJOMA
VÍTAMÍN SM|ÖRLÍK(
Leyndardómur
góðrar
uppskriftar!
• smjörlíki hf.