Morgunblaðið - 25.10.1970, Blaðsíða 8
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1970
„Þessi fjandans Nader.“
Maðurinn sem þetta sagði heit
ir Lyndon B. Johnson og var
forseti Bandaríkjanna nú ekki
alls fyrir löngu. Maðurinn sem
hann var að bölva heitir
Ralph Nader og er eins kon-
ar sjálfskipaður forseti banda-
rískra neytenda. Ástæðan fyr
ir unimælum Johnsons var sú,
að hann var á eftirlitsferð
um búgarðinn sinn í Texas í
nýjum bíl. Framrúðan óhreink
aðist og Johnson fór að leita
að rúðusprautunni, en fann
hana ekki. Ástæðan fyrir að
hann fann hana ekki voru
nýjar öryggisreglur, sem Nad
er kom til leiðar og banna
útistandandi stjórntakka í bif
reiðum.
35 MILLJÓNIR í
SKAÐABÆTUR
Ralph er 36 ára að aldri og
lögfræðingur að mennt frá
Harwardháskóla. Hann hefur
helgað sig baráttumálum neyt
enda frá því áð hann lauk
háskólanámi. Hann varð fyrst
frægur í Bandaríkjunum 1965,
er hann gaf út bókina „Un-
safe at Any Speed", þar sem
hann gagnrýnir harkalega bif
reiðaiðnaðinn i Bandaríkjun
um. Bók hans var um langt
skeið efst á sölulista, eftir að
í ijós kom að risafyrirtækið
jp J Oj *
, £f||||* Ám
Ralph Nader með „árásarsveit" sinni.
„þessi fjand... Nader”
Forvígismaður bandarískra
neytenda lifir hálf
gerðu sultarlífi
General Motors hafi ráðið
leynilögreglumenn, til að
njósna um hann og reyna að
finna á honum höggstað. Fyr
irtækið bað hann síðan opin-
berlega afsökunar og nú fyr-
ir skömmu fékk hann 35
milljónir ísl. kr. i skaðabæt-
ur. Eftir að bókin kom út
hrapaði sala á Chevrolet Cor-
vair um 93% og i fyrra var
framleiðslunni hætt. Nader
sannaði að bifreiðin var stór
hættuleg. 1 kjölfar bókarinn-
ar samþykkti Bandaríkjaþing
nýja öryggislöggjöf um út-
búnað bifreiða þar sem bif-
reiðaframleiðendur voru
skuldbundnir til að gera 29
öryggisráðstafanir í útbúnaði
bifreiða. Þetta var aðeins byrj
unin, stöðugt er unnið að
endurskoðun og endurbótum á
löggjöfinni. Þessi löggjöf hef
ur einnig verið tekin til fyrir
myndar í öðrum löndum
heims, sem framleiða bifreið-
ar.
Þegar Nader hafði unnið
sigur í baráttunni gegn bif-
reiðaiðnaðinum snéri hann sér
af fullum krafti að öðrum við
fangsefnum. Þar hefur starf
hans verið jafn árangursríkt
og fjöldi nýrra laga, sem
vemda neytandann hefur ver
ið afgreiddur í þinginu. Þar
má nefna Kjötlögin frá 1967,
öryggislögin um gasleiðslur,
geisiavirkni, fuglakjötslögin,
og námalögin, öll frá 1968.
Nader varð fyrstur til að
ásaka barnamatarframleiðend
ur um að stefna heilsu ung-
barna í hættu með því að
nota efnið monosodium gluta-
mate, sem er bragðbætandi, í
framleiðslu sina, en læknar
hafa sýnt að þetta efni veld
ur krabbameini i heila á ýms
um dýrategundum. Þrir
stærstu framleiðendurnir
hættu þegar notkun þess. Það
voru einnig stöðugar aðvaran
ir Naders, sem leittu til banns
við notkun gervisykursins cy
ciamates i megrunarfæðu.
ÞJÖÐHETJ'V
Nader hefur verið óþreyt-
andi í herferð sinni. Hann
hefur ráðizt gegn sviknum
pylsum, óhreinum fiski, drátt
arvélum, sem velta og drepa
bændur, hættulegri misnotk-
un röntgengeisla á sjúkrahús
um og hann kom þvi til leið
ar að litasjónvarpstæki, sem
gáfu frá sér geislun, voru
kölluð til baka af framleið-
endunum. 1 augum banda-
riskra neytenda er hann
nokkurs konar þjóðhetja og
tákn þess, sem skynsamleg
mótmæli geta komið til leið-
ar. 1 baráttu sinni notar
hann aðeins þau vopn, sem
öllum standa til boða, lög og
almenningsálit. Honum tekst
alltaf að brjótast gegnum
varnarmúrana og ná ár-
angri. Hann er sönnun þess
að litli maðurinn i þjóðfélag-
inu getur náð árangri og
hrist til ríkisbáknið, stórfyrir-
tæki og verkalýðssamtökin.
„ÞETTA ER RALPH“
Nader segir „Hlutverk mitt
er að koma málunum fram í
dagsljósið þannig að ekki sé
hægt að virða þau að vett-
ugi. Við verðum að vita hvað
við erum að gera okkur sjálf
um, það er hægt, og í ra-un
og veru verið að útrýma lífs
skilyrðum. Notkun tækni á
ekki aðeins að vera heimil
nokkrum útvöldum, heldur öll
um.“ í baráttu sinni rekur
Nader stöðugt á eftir þing-
mönnum í báðum deildum
þingsins. Hann leggur fram
drög að nýjum lögum og ef
einhver seinagangur er á af-
greiðslu þeirra í nefndum
I' .
!■....!
GRENSÁSVEGI22 - 24
»30280-32262
::
Jt 1
M
1 pil
!i[
1
]p
LITAVER
[KKIABEINS SIIMT - HELDOR ALLT
sem þarf til að gera íbúðina fallegri og verðmætari, m. ö. o. til að gera fjóra veggi að íbúð, fæst í LITAVERI. Nú í október viljum
við minna á að viðskipti við LITAVER eru yður hagkvæm vegna þ ess að LITAVER leggur áherzlu á MAGNINNKAUP, sem lækkar
vöruverð allverulega. T. d.:
GÓLFTEPPI
VEGGFQÐUR
allir gæðaflokkar — allar breiddir — margar tegundir. Verð frá 298,— til 881,— hver fermetri.
pappír — plast — vinyl — silkidamask. Fjöldi nýrra lita. Verð og gæði við allra hæfi.
— parket- vinyl-gólfdúkur, á lækkuðu verði, að auki fjöldi annarra tegunda.
Hvað um allt hitt? Jú málning, málningarvörur, sparstl, lím, límbönd, jú allt sem með þarf.
LÍTTU VID í LITAVERI
LITAVER ER AÐ GRENSÁSVEGI 22 OG 24.