Morgunblaðið - 01.11.1970, Side 11

Morgunblaðið - 01.11.1970, Side 11
MORGUN'BLAÐIÐ, 'SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBBR 1970 35 Landsvirkjun Náttúruverndar- ráði bréf og fór fram á sam- vinnu við ráðið um rannsókn- ir á áhrifum lónsins á varp- stöðvar heiðargæsarinnar og samstöðu við ráðið um vernd- un gæsarinnar, eins og það er orðað í bréfinu. Þessari mála- leitan hefur aldrei verið svar- að, en hins vegar fór ráðið fram á það við rikisstjórnina að Þjórsárverin yrðu friðlýst. Jafnframt fór að berast til ríkisstjórnarinnar fjöldinn all- ur af bréfum frá fuglavernd- unarfélögum, skotfélögum og stórhöfðingjum með áskorunum um að vernda Þjórsárverin. Á sl. ári beitti ríkisstjórnin sér fyrir því að hafnar yrðu við- ræður milli Landsvirkjunar og Náttúruverndarráðs um þessi mál. Orkustofnun var boðin þátftaka í þessum viðræðum, og skipaði hver aðili einn mann í nefnd til að fjalla um málið. 1 nefndinni náðist samstaða um að leggja til við ríkisstjórnina að hafnar yrðu hið fyrsta al- hliða náttúrufræðilegar rann- sóknir á Þjórsárverum. Stíflustæðlð í Þjórsá við Norðlingaöldu. Trukkur að fara yfir ána. við þá leið, sem ákveðið yrði að fara í þessum virkjunarmál- um og skila virkjunaráætlun um það 1972. — Hvað tekur svo við? Hve- nær yrði hægt að byrja að virkja? — Við skulum gera ráð fvrir að árið 1972 liggi fyrir áætlun, sem sýni að þetta verði hag- kvæmasta virkjunin, sem við höfum ráð á. Þá þarf að ræða þessi mái og taka stjómmála- lega afstöðu tíl beirra. Síðan lægi fyrir að útbúa ýtboðs- gögn og útboðslýsingu. Miðað við þetta, þætti mér ótrúlegt að þau gætu verið tiibúin fyrr en 1974, þ.e. ef ákvörðun yrði tekin um að framkvæma bessa virkjun. Nú er líka vitað að mjög mikið verður talað um lónið þarna upp frá og mikil pressa kemur utan lands frá um að setja verin ekki í kaf. Og ekki er að vita hvaða áhrif það kann að hafa á fram- kvæmdahraðann. — Hafa einhverjar rann- sóknir farið fram? — Nokkrar athuganir hafa verið gerðar á lifnaðarháttum gæsarinnar. I maí í vor, þ.e. í byrjun varptímans, var flogið yfir hálendið til að kanna snjóa lög. Þá sáust gæsir um allt há- lendið frá Arnarvatnsheiði að vestan og austur fyrir Snæfell, en mest var um gæs í Þjórsár- verum, þótt hvergi væri eins mikill snjór og þar. Einnig til að bæta lífsskilyrði heiðar- gæsarinnar á öðrum varpstöðv um, t.d. með friðun og upp- græðslu. -— Hefur ekki dr. Sturla Frið riksson gert athuganir á að græða upp nýtt land fyrir gæs- ina? — Jú, hann hefur gert áætl- un um hvað það muni kosta að græða upp ámóta svæði og fer í kaf. Hann er líka með til- ■'S Í Í Í i " At.6* mmsmmíM f 'i / ^ >'/ auuWRtEtt ‘ • yríatwv- ** f' /> :>? . wmm < r t' M««u»e*$Woss .... T(«<5í.tWVÍ»tíJUI Ofarlega á kortinu er lónið sem myndast við virkjun Efri- Þjórsár með stíflu við Norðlingaöidu, og stöðvarhús við Gljúfurleit. Lengst til hægri er hugmyndin um Skaftárveitu teiknuð inn á. var framkvæmd talning á helð- argæsahreiðrum í sumar, bæðl í Þjórsárverum og á nokkru svæði utan þeirra. Skýrsla hef ur ekki borizt um þá talningu, en samkvæmt blaðaskrifum töldu vísindamennimir 1000 hreiður í Þjórsárverum, en 400 utan þeirra. Ot frá þessari taln ingu virðast þeir hafa dregið þá ályktun að 10.000 hreiður væru í verunum en 2000 hrelð ur utan þeirra, en þá er ótal- ið t.d. á öllu svæðinu norðan Vatnajökuls. Auk þess fóru tveir grasafræðingar í sumar inn í Þjórsárver og athuguðu gróður. Komust þeir m.a. að þeirri niðurstöðu að verin væru ofbeitt áf gæs. Þeir sáu aftur á móti fátt fé í verunum. — Ef við lítum örlitið nánar á þessi mál, þá verðum við að hafa í huga nokkrar staðreynd ir, heldur Gunnar Sigurðsson áfram. 1 fyrsta lagi verpir all- stór hluti gæsastofnsins utan Þjórsárvera, svo gæsinni yrði alls ekki útrýmt þó að verin færu öll í kaf. í öðru lagi eru ekki uppi neimar áætlanir um að hafa lónið það stórt að ðll ver in færu i kaf. Og í þriðja lagi fetti að vera hægt að gera margs konar hliðarráðstafanir raunareiti þama inn frá. Og gæsin hefur a.m.k. notað sér af tilraunareitunum hans, hvað sem hún mundi nú gera, ef hún ætti að lifa á þeim. — Kostnaðaráætlun sagð- irðu. Yrði þetta ekki dýrt? — Jú, það yrðu kostnaðar- samar ráðstafanir. En það yrði ekki há hundraðstala miðað við það að þarna eru 15—20% af orkuvinnslugetu allra ís- lenzkra fallvatna. Það mundi auka virkjunarkostnað um nokkur %, en ekki þó það mörg að það ætti að riða baggamun- inn um ódýra virkjun. Og þá kemur spurningin um hver á að greiða þetta. Hvað er hæfi- legt að við ölum upp stóran gæsastofn á Islandi og hver á að greiða fyrir slíka þjónustu. Þetta þarf að ræða. Gæsin hef- ur, sem kunnugt er, vetursetu á Bretlandseyjum og er mikið skotin þar. Það er því spum- ing hvort Bretar skulda okk- ur ekki stórar fjárhæðir fyrir að hafa alið upp þeirra uppá- halds gæs svo öldum skiptir. Annars er þetta ekki aðeins spurning um þennan gróður- blett í Þjórsárverum, heldur of beit og uppblástur á öllu há- lendinu. Gæsin er um allt há- lendið. Þarna þyrfti að fara fram allsherjarrannsókn. — Svo við snúum okkur aft- úr að virkjunararnnsóknunum. Hvað hafið þið verið að gera við Efri-Þjórsá i sumar? — Við höfum verið að rann- saka stíflustæðið við Norðlinga öldu. Þar hafa farið fram bæði jarðboranir og borróboranir, sem eru gerðar til að kanna þykkt yfirborðsfaga. Við höf- um unnið þarna með tveimur jarðborum og tveimur borró- borum. Þarna á svæðinu voru líka mælingamenn að störf um. Og við gerðum gryfjur með jarðýtum og traktorsskóflum og könnuðum jarðvegsdýpt á skurðstæðinu. Og nú er verið að bora tvær djúpar holur á fyrirhuguðu stöðvarstæði við Gljúfurleit. — Þið hafið lagt bilaslóð þarna inn eftir vegna rann- sóknanna. Var það ekki erfitt verk? — Jú, ekki má gleyma þvi. Við höfum lagt slóð frá Búr- felli að Norðlingaöldu, um 50 km leið. Þetta er erfitt land yf irferðar vegna bleytu. Við höf- um lokað þessari leið fyrir al- mennri umferð, bæði vegna til- mæla frá Náttúruverndarráði til vemdar gæsinni og tiþ mæla frá bændum, sem eiga þarna fé. Það er reyndar líka erfitt fyrir okkur að fá umferð um þessa slóð. — Og hvenær verður þessum rannsóknum lokið? .•— Ég reikna með að skila skýrslu um Norðlingaöldu- stíflu næsta sumar, segir Gunnar. Á næsta ári yrði einn ig gengið frá fyrstu áætlun um virkjun, sem tekur allt fallið i einni virkjun og i annan stað þar sem fallinu yrði skipt og virkjað á fleiri stöðum í ánni. Á næsta ári þyrfti svo að ganga frá rannsókn í samræmi — En þú tókst sem sagt að þér að gera virkjunaráætlanir um þessa virkjun x Efri-Þjórsá og ljúka þeim rannsóknum ár- ið 1972. Ætlaðirðu ekki líka að athuga um veitu Skaftár yfir í Þjórsá? Hvemig gengur það? — Jú, en á þvi hefur lítið verið byrjað, nema rétt athug- aðir staðhættir. En þetta verð- ur áreiðanlega tæknilega mjög erfitt verk og ógerlegt að segja til um það á þessu stigi hvað úr þvi verður. Það mundi út- heimta jarðgöng í ungum mó- bergsmyndunum og þau yrðu að vera nokkra tugi metra und ir jarðvatninu. Þannig lauk viðtalinu við dr. Gunnar Sigurðsson, verkfræð- ing, sem nú er búinn að koma sér fyrir í sinni nýju verk- fræðistofu og er um það bil að taka til við verkefni vetrarins, að vinna úr rannsóknum við Efri-Þjórsá í sumar og gera áætlanir um virkjun þar. — E. Pá. GADBURY1 BAR SiX MILK CHOCOLATE WAFER BAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.