Morgunblaðið - 06.11.1970, Síða 4
4
MOftCrííNtiLAi>í£>, ÍÖSXUDAGUR 6. NOVEMBER 1970
mmm
BILALEIGA
HVEjRPISGÖTU 103
VW Sendrferðabifretf-VW 5 marma-VW wefrwag,a
VW 9maona-Landrover 7manra
22*0-22*
RAUÐARÁRSTIG 31
bilaleigan
AKBHA VT
car rental service
/* 8-23-17
h senilum
Fjaðrir. fjaðrablöð, hljóðkútar,
pústrðr og fleíri varahlutir
f margar gerðér bifreiða
Bibvörubóðin FJÖÐRHM
Laugavegi 168 - Simi 24180
Sköfnm útihurðir
og utanhússklæðninga.
HURÐIR & PÓSTAR
Sími 23347.
MORNY
kynnir
nýjar baðvörur
FÆST UM
LAND ALLT
Snyrtivörusamstæða, vandlega
valin af Morny, og uppfytlír
allar óskir yðar um
baðsnyrtivörur.
Sápa, baðolía, lotion,
deodorant og eau de cologne.
Vandlega valið af Momy til að
vernda húð yðar. Notið Morny
og gerið yður þannig dagamun
daglega.
Ó. JOHNSON
& KAABER E
^ Hvað kostar þessi
skattheimta?
Þórður Jónsson, litriim,
skrifar:
„Heiðraði Velvakandi!
f*að var í þínum frægu þátt-
um 17.10.—’70, að ég las neyðar
kall frá gamalli móður, 77 ára,
sem var sent út, að þvi ér virt
ist, af þvi að konan er orðin
heilsulaus og þrotin að kröft-
um, til að sinna þvi mikla álagi,
sem það er fyrir móður, er
elskar bamið sitt, að eiga
drykkjumann fyrir son, hafa
hann á heimili sinu, vaka eftir
honum, yfir honum, gæta hans.
Móðurást hennar, kvöl henn
ar, og bæn hennar til þjóðar-
innar, koma fram í þessum
fögru og sönnu orðum hennar:
„Engin móðir reknr vesaling
sinn út á hjarnið“. (Letur-
breyting min).
Nú lofaðir þú, Velvakandi
góður, aðeins þvi, að gæti ein-
hver gefið konunni ráð, þá
fengi það rúm í dálkum þínum.
Nú kann ég ekkert ráð,
heldur en þú, sem konan hefir
ekki þegar reynt, og svo mun
flestum fara, eins og ástandið
er í þessum málum nú. En svo
gæti farið, að orð mín, eða
annarra, mundu vekja ein-
hverja velhugsandi menn eða
konur með bein í nefinu til
dáða, sem hæfust þegar handa,
svo að þjóð okkar gæti sinnt
slikum neyðarköllum, eða það,
sem betra væri, komið í veg
fyrir, að þörf væri á að senda
þau út, og þá væri vel farið,
en i þeirri von bið ég þig að ljá
þessum línum rúm.
Áfengið er í einhverri mynd
tilefni allflestra neyðarkalla,
eða að minnsta kosti alltof
margra þeirra. Á háttvirtu Al-
þingi eiga sæti 5 tylftir okkar
mætustu borgara; það er með
samþykki meirihluta þeirra,
sem sagt löggjafans, að áfeng-
inu, þessum slysa- og bölvaldi,
eftir þvi sem á er haldið, er
dreift út á milli þjóðarinnar til
fjáröflunar í ríkissjóð, og til
að verða við óskum og kröfum
f jöldans.
Hundruð miUjóna safnast ár
Iega í rikissjóð, fjáröflunin
lukkast. En hvað kostar hún,
þessi skattheimta, í tárum
kvenna, barna og manna, hvað
kostar hún i mannslífum, hvað
kostar hún i glæpum, hvað
kostar hún í niðurfelldum
vinnustundum, hvaö kostar
hún i eyðilögðum verðmætum,
hvað kostar hún í aukinni lög-
reglu, fangelsum, sjúkrahúsum
og hælum, sem eru þó mjög
af skornum skammti, hvað kost
ar hún í andlega og líkam-
lega eyðilögðum ungmennum,
hvað kostar hún marga lífs-
hamingjuna? Þannig mætti
lengi telja.
0 Tölvan telur ekki tárin
Þetta virðist enginn hagfræð
ingur ríkisins hafa verið lát-
inn reikna út, þrátt fyrir til-
komu tölvunnar, enda mundi
útkoman ekki verða ráðamönn
um þjóðarinnar í hag, eða þjóð
arbúinu í heild hagkvæm.
Það sem löggjafanum hefir
sézt yfir, og þeir gera ekki
kröfu um, sem vilja hafa þetta
svona í sambandi við þessa
fjárCflun og áfengisdreifingu,
er aC gt-ra jafnframt margfalt
fjölþættari og víðtækari ráð-
stafanir til að mæta afleiðing-
unum af þessari vafasömu fjár
öflun og áfengisdreifingu held
ur en nú er gert.
Og hversu lengi getur lög-
gjafinn skotið sér undan því
að gera viðunandi ráðstafanir,
til að geta mætt, þó ekki væri
nema neyðarkalli gamallar móð
ur, sem áfengisbölið er búið að
taka allt frá, nema móðurást-
ina, — fyrir hana lætur mörg
móðir lífið, menn og dýr.
Er honum, Iöggjafanum, fyr-
irmunað að heyra kveinstafi
hrópað um hjálp i áfengisböl-
inu, honum, sem á fyrst og
fremst að fegra lífið, gera okk
ar þjóðfélagsbyggingu, þó lítil
sé, fagra og trausta, „hanná“
hana.
0 Hún hefur kallað fyrir
f jöldann
íslenzku þjóðinni er það eðl
islægt að hlusta eftir neyðar-
kalli, hvar sem er í heiminum,
og reyna að svara þvi, það hef
ir hún oft sannað. Ég held því,
að hún muni hlusta, hvernig
löggjafinn bregzt við neyðar-
kalli þessarar konu, því að það
er hann einn, sem getur gert,
og ber að gera viðeigandi ráð-
stafanir í þessu máli, og von-
andi gerir þær.
Með beztu kveðju til hinnar
þreyttu móður, sem ekki má
gefast upp, hún hefir kallað
fyrir f jöldann.
Og þökk fyrir gefið rúm í
dálkum þínum, Velvakandi
sæll.
Látrum, 28.10, 1970
Þórður Jónsson".
0 Klám og sönn
lífernisfræði
Þorsteinn Guðjónsson
skrifar:
„Heill og sæll, Velvakandi!
Enn verð ég að leita til þin,
og í þetta sinn ekki af einu
tilefni heldur tvennu nl.
klámi og eðiisfræði.
Fyrra tilefnið er grein Krist
jáns Albertssonar: „Noregur
verst, verjum fsland”, sem er
þess eðlis, að hvort sem menn
eru meira eða minna hneigðir
til frjálslyndis á ýmsum svið-
um, getur enginn gengið fram-
hjá þeirri aðvörun, sem í
greininni felst. Kristján vitnar
þarna i dr. Helga Pjeturss, og
er það vel gert og drengilega,
því að ef satt skal segja, þá
hygg ég, að ekki mætti aðeins
verjast, heldur snúa vörn í
sókn, ef stofnað yrði til sannr-
ar lífernisfræði eftir kenningu
dr. Helga. Hafi Kristján þökk
fyrir að vekja máls á þróunar
skilningi hans í þessu sam-
bandi. — Ég vil aðeins skjóta
því inn, að ég held að hann
hafi ekki vitnað þarna alveg
orðrétt í rit Helga: man ég
ekki til þess að hann tali nokk
urs staðar um „helvízka þró-
un,“ heldur um helstefnuþró-
un, sem er mildara orðalag og
jafnframt markvissara.
0 „Þróunaraðsto3“
Ct frá skilningi dr. Helga
mundu menn einnig dæma klám
ið og önnur sýkingareinkermi
menningarinnar á annan hátt
en nú. Menn mundu líta svo á,
að eftirsóknin í slíkt stafaði
fyrst og fremst af „skorti lífs-
nautnar", en undirrót þess
skorts væri skortur á þeim
krafti, sem að lífinu stendur,
þ.e. Iífmagnaninni, sem dr.
Helgi talar um í ritum sinum
og færir rök að, að til muni
vera. Til þess að rétta við
stefnuna, þyrfti að taka upp
aðferðir til að auka lífskraft-
inn hjá hverjum einum, þannig
að enginn yrði afskiptur, og
þyrfti helzt heilt þjóðfélag eða
heil þjóð að verða samtaka um
slikt, á grunni þekkingar. Slikt
væri miklu vænlegra til fram
fara en að taka upp „þróunar
aðstoð" með gamalkunnum að-
ferðum og öllu þvi sukki, sem
þar með fylgir. Heilbrigð þjóð
með sjálfsvirðingu er miklu fær
ari um að hjálpa öðrum til
manns en sú, sem í öllu fylgir
þeim fyrirmyndum, sem fengn-
ar eru að láni, jafnframt þvi
sem henni hnignar inn á við.
0 Lífsaflið sem heims-
magn
Hitt atriðið, sem kom mér
enn til að snúa mér til þín, er
eðlisfræðin, og stendur hún
raunar nær hinu fyrrtalda, um
skort lífsafls og afleiðingar
hans, en í fyrstu kynni að virð
ast. Því að þegar til kastanna
kemur, er það eðlisfræði, hvort
slíkt lífsafl er til. Viðurkennir
eðlisfræðin tilveru lifsaflsins
sem heimsmagns? Hún hefur
ekki gert það. Framundir þetta
hefur hún borið á móti því, að
nokkur sambönd hraðari en
ljóss og seguls gætu átt sér
stað. En á síðustu árum hafa
verið að brotna skörð í þann
múr, og nú sem stendur bíða
isl. eðlisfræðingar með eftir-
væntingu eftir nýiu hefti af
„Nature", með grein, sem flyt
ur hið gagnstæða, eftir því
sem blaðafréttir herma. Ég hef
engar aðrar fregnir af þessu
haft, en mér þykir líklegt, að
þarna sé um að ræða fyrir-
bæri það, sem nefnt er „puls-
ar“ á erlendu máli og er mönn
um hin mesta ráðgáta. Eru
merki þau, sem berast frá þess
um „púlsörum", svo regluleg, að
mönnum datt í fyrstu ekki ann
að í hug en að þarna væri um
skeytasendingar stjarnbúa að
ræða. Og hefur ekki annað lik
legra komið fram síðan, þótt
margt hafi verið revnt.
Þorsteinn Guðjónsson".
— Velvakanda minnir, að
hann hafi séð eða heyrt þessa
„pulsars” kallaða slagstjörnur.
En hvemig á þá að þýða
„quasars”?
Sendisveinn
óskast til léttra sendistarfa há.fan eða allan daginn.
DAVÍD S. JÓNSSON & CO. H.F.,
heildverzlun
Þingholtsstræti 18 — Sími 24-333.
Sendiferðabílstjóri
Óskum eftir að ráða lipran og áreiðanlegan mann (aldur
20—30 ár) til að aka sendiferðabíl og til aðstoðar á lager.
Þeir sem áhuga hafa á starfi þessu, sendi eiginhandarumsókn
með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf fyrir 15.
þ.m. í pósthólf 519.
SMITH & NORLAND H/F.,
Verkfræðingar — Innflytjendur
Pósthólf 519 — Reykjavík.
2ja herb. jarðhæð við Blönduhlíð.
Sérinngangur sérhiti. Góð íbúð.
2ja herb. jarðhæð við Skeiðarvog.
Sérinngangur. sérhiti.
2ja herb. íbúð við Kleþpsveg. Falleg
íbúð.
3ja herb. sérhæð við Nesveg. íbúðin
er ein stofa. 2 svefnherb. eldhús og
bað. Bílskúrsréttur.
3ja herb. íbúð i Hraunbæ. íbúðin er
1 stofa, 2 svefnherb. eldhús og bað.
Falleg íbúð.
3ja herb. íbúð i jnýlegu húsi í Gamla
bænum. íbúðin er 1 stofa. 2 svefn-
herb. eldhús og bað.
ÍBÚDA-
SALAN
Gegnt Gamla Bíói sími mto
HEEVIASÍMAR
GÍSLI ÓLAFSSON 83974.
AitMAtt SiúlfiÐ&SOM W48.
4ra herb. íbúð á 2. hæð við Ásbraut.
íbúðin er 2 stofur, 2 svefnherbergi,
eldhús og bað. Falleg íbúð.
Sérhæð i Austurborginni. íbúðin er
2 stofur, 3 svefnherb., eldhús og
bað. Sérþvottahús á hæðinni.
Einbýlishús við Reynihvamm.
Einbýlishús við Furuland, Garða-
hreppi. Húsið selst tilbúið undir tré
verk og málningu og pússað utan.
Tvöfaldur bílskúr fylgir. Hagstæð
lán áhvílandi.
Höfum ávallt eignir, sem skipti kem-
ur til greina á.