Morgunblaðið - 25.02.1971, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 25.02.1971, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1971 Herranótt 1971: Draumur á Jónsmessunótt Eftir William Shakespeare Þýðandi: Helgi Hálfdanarson Hljómlist: Atli Heimir Sveinsson Leikstjóri: Hilde Helgason UM þetta lieyti árs setur ungt f<Mk venjulega svip sinn á leik- listarHf borgarinnar. Kennara- skólanemai' leika Ionesco eins og ekkert sé sjálfsagðara en fást við þennan töframann absúrd leikritunar og Mennta.skólanem- ar eru með William Shakespeare á dagskrá. Herranótt er fyrir löngu orðin hefð og vekur að vanda mikla athygli. Draumur á Jónsmessunótt er við hæfi ungs fólks, en engu að síður vandasamt verk eins og önnur Shakespearesleikrit. I>etta er ljóðrænn leikur, þar sem mann legar ástir og hvers kyns álfa- gleði renn saman í fagnaðaróð. Höll Þesevs og skógamir um- hverfis Aþenu eru svið leiksins. Léttleiki og glaðværð fara með völdin í Draumi á Jónsmessunótt. Draumur á Jónsmessunótt er ekki með því merkasta, sem William Shakespeare samdi, en hefur þó í sér fólgið líf, sem ætlar að enda.st vel og á erindi við nútima leikhús. Það getur til dæmis verið ómaksins vert að velta fyrir sér vinnubrögðum leikskáldsins, hvernig hinir ólíku heimar koma saman í verkinu, öðlast í því leikræna fyl'lingu. Aðalsfólkið, álfamir og hamd- verksmennirnir mynda þá heild, sem gæðir verkið í senn töfrum draumsins og leggur áiherslu á jarðneskt inntak þess. Æi'inginn Bokki orðar boðskap leiksins á þessa leið: Geðjist ykkur OHa að kynnast álfunur ■ ber þess að mimnasf að um hrið þið hafið sofið höfgum blundi og saman ofið myndir skugga og ljóss í laumi líkt og einatt sést i draumi. Draumur á Jónsmessunótt er skemmtilegur leilkur og sýning Herranætur er þess eðlis að hún á áreiðanlega eftir að verða mörgum til ánægju. Þess ber að geta, að í mikið er ráðist af hinu unga skólafólki, sem leggur á sig ærið erfiði til að ailt fari sóma- samlega. Hvað sem öðru liður kemst gáski verksins og ljóð- ræna furðuvel til skiia. Það hefur verið Menntaskóla- nemum happ að fá til liðs við sig leikstjóra, sem áttar sig á eðli verksins og þekn vanda, sem við er að glíma í uppfærslu þess. Hilde Helgason hefur augljósilega unnið vel og hemni ber einkum að þakka það, sem lofsvert er um Frá sýitingu Herraiiætur. Skrifstofustúlka óskast til að annast vélritun, vélabókhald og almenn skrif- stofustörf. Starfið krefst dugnaðar og ósérhlifni. Aldur 20—30 ára. Starfið hefst strax. Tilboð sendist fyrir 8. marz n.k. til: ISLENZK AMERlSKA Suðurlandsbraut 10. Sfmi 85080. — Pósthólf 129. sýnimgu Herranætur. Aftur á móti má ekki gleyma að hún hefur yfir að ráða áhugasömum leikurum, sem vilja læra og eru ekki háðir neinum fyrirfram gerðum reglum um túlkun og hegðun á leiksviði. Margir efni- legir leikarar hafa komið fram á sýningum Herranætur. Að þessu sinni vekur Amór Egilsson sér- staka athygli fyrir fjörlega túlk- un sina á Bokka, en ýmsir aðrir eiga hrós skilið. Framsögnin er að vomum misjöfn. Sumir tala skýrt og greinilega, aðrir eiga í nokkrum erfiðleikum, en yfir- leitt held ég að megi segja að textinn komist sæmilega til skila. Leikurunum ungu er mikill styrkur að snilldarþýðingu Helga Hálfdanarsonar, sem kom út í bók árið 1956 í fyrsta bindi Leik- rita Shakespeares hjá Máli og menningu. Þetta mun vera i þriðja skipti, sem Draumur á Jónsmessunótt er. leikinm á Is- landi. Hið vandræðalega svið Há- skólabíós-var nýtt eftir föngum. Búningar voru smekklegir, en hljómlisit Atla Heimis Sveinsson- ar áhrifalítil. Skraparotsprédik- un var of löng. Þessi Herranótt verðskuldar eftirtekt. Jóhaim Iljálmarsson. Pörulaust Ali Bacon Við skerum pöruna frá fyrir yður. Það er yðar hagur. Biðjið því kaupmnnn yðar aðeins um ALI BACON. SÍLD & FISKUR Burroughs kynnir nýjar TÖLVUR á íslandi L 2000 L 3000 L 4000 Ef þörf er fyrir ítarlegra og hraðviikara bókhald þá kynnið yður vel kosti L-vélanna. Hentugar fyrir reikningsútskriftir, launabókhald (statistic) og almennt bókhald. Minnis stýring Forskriftirnar eru lesnar inn í rafreiknirinn af gata- strimlum, eða gatakort- um og geymdar á segul- disk. Að því loknu þarf raf- reiknirinn engin utanað- komandi hjálpartæki. Forskriftirnar framkvæma: □ Hverskonar reikning □ Ákvarðanir □ Allar hreyfingar á pappír og prentkúlu Stjórnun á hjálpar- tækjum svo sem les- urum, göturum og segulböndum. Mögulegt er að hafa tvö pappírsform i einu i vél- inni sem hægt er að hreyfa sjálfvirkt, sam- hliða eða sitt í hvoru lagi. * -JjÞ y ai;ýom- Háþróaðar rafeindarásir L-vélarnar eru byggðar með nýjustu rafeinda tækni (Mono it- hic Integrated Circuls) til oð fá hraða, vinnslu sveigjanleika, og öryggi. Áður var slíkt aðeins fá- anlegt á mjög stórum og dýr- um rafreiknum. SEGULDISKUR sem minni L-vélarnar nota 40 rása segul- disk sem geymir: □ allar forskriftir □ alla ..constanta" eða fastar upplýsingar □ öll gögn sem verða til við vinnslu vélarínnar og síðan eru hotuð til skýrslugerðar. □ Aðgerðarforit til stýringar á foritum. ON-LINE möguleikar Hægt er að fá Burroughs L-vélar með innbyggðum möguleikum til tengingar stærri rafreiknum, eða tengingar innbyrðis (L til L). Með því mætir vélin tækniþró- un komandi ára. Rafmagns lyklaborð ritvélaborð ásamt 12 lykla reiknivélaborði gera mögulegan hverskonar gagnainnslátt. Bæði borðin hafa sérstaka geymslu, þannig að unnt er að slá inn meðan vélin er að vinna úr eða prenta aðrar upplýsing- ar. © Leitið upplýsingum um hvernig L-vélarnar geta leyst yðar reikningsuppskriftir og bókhald á hagkvæmarí hátt. Burroughs H. BENEDIKTSSON, H F. Suðurlandsbraut 4 — Sími 38300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.