Morgunblaðið - 17.03.1971, Síða 6

Morgunblaðið - 17.03.1971, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1971 K 6 HÚSMÆÐUR Stórkostleg lækkun á stykkja þvotti 30 stk. á 300 kr. Þvott ur sem kemur í dag, tiltoúinn á morgun. Þvottahúsið Eimir, Síðumúla 12, sími 31460. NOKKRAR STÚLKUR vantar I frystihús, Upplýs- ingar í síma 34736. PEDIGfíEE BARNAVAGN til sölu. Nýlegur, f góðu ásig- komulagi. Upplýsingar í síma 82980 eftir kl. 6, ÞRIGGJA TIL FJÖGURRA herbergja íbúð óskast til leigu, helzt í Hafnarfirði eða Garðahreppi. Upplýsingar í síma 83763. AUKASTARF Kona óskast til að skrifa er- lend verzlunarbréf. Þarf að vera vön. Vinsamlegast send- ið nafn yðar og símanúmer í box 131, Garðahreppi. KEFLAVlK — NJARÐVÍK Tveggja til þriggja herbergja íbúð óskast til leigu sem fyrsit. Upplýsingar í síma 2639 og 2516. BENZ 190 EÐA 200 Vil kaupa Benz dísilvél 190 eða 200. Upplýsingar í síma 93-7123, Borgarnesi, miíli kl. 7 og 8 næstu kvöld. 4—6 TONNA TRILLA óskast til kaups, má þarfnast viðgerðar. Tilb., sem tilgreini verð og ástand, leggist inn til auglýsingaafgr. Mbl. f. 15. apríl merkt „Trilla 60 - 7316", IBÚÐ ÓSKAST Góð íbúð, 3—4 herbergi, ósk- ast fyrir 1. júní. Upplýsingar í síma 83822. ÓSKA EFTIR að kaupa nýlegan og vel með farinn barnavagn. Upplýsing- ar f síma 51943. FJÖGÚRRA HERBERGJA IBÚÐ á Akranesi til sölu milliliða- laust Útborgun 200 þ. kr. Upplýsingar í síma 81715 eftir kl. 6 síðdegis. RAMBLER AMERICAN árgerð 1967, góður bíli, til söiu. Símar 23060. 84144. HAFNARFJÖRÐUR Ung kona óskar eftir skrif- stofustarfi í byrjun maí. Vél- ritunar- og málakunnátta. Upplýsingar í síma 50735. KEFLAVlK Tveggja til þriggja herbergja ibúð óskast til leigu strax. Upplýsingar í síma 1152 eftir kl. 5. HÚSEIGENOUR Þéttum eftirfarandi: stein- steypt þök, asbest þök, þak- rennur, svalir, sprungur í veggjum. — Verktakafélagið Aðstoð, sími 40258. Hugsið vel um páfagaukinn Munið að hugsa vel um páfa- gaukana ykkar eða hvaða teg- und, sem þið eigið. Munið að sýna þeim ástúð, umhyggju og hreinlæti. Komið búrunum fyrir frem- ur hátt uppi og athugið að þeir séu í hlýju, og jöfnum stofuhita og nægi- legri birtu, þó ekki þannig að sólin skíni mikið á þá. Varizt að láta fuglana vera undir gilugga og varizt allan gegnum- trekk. Hafið ljós hjá þeim þeg- ar dimma tekur. Hafið búrin nægilega stór og gnægð af prikum af misjöfnum sverleika. Hafið einnig rólur og spegla í búrinu. Síðan má gera búrin vistlegri með plasttolóm- um í ýmsu litavali. efnum í botninn á búrinu og haf ið ávallt kalkstein i búrinu. Munið að gefa fuglunum fjöl- breytta fæðu og einnig að gefa þeim fjölbreytni í vítamínum. Munið að þeir þurfa meira en vatn og korn, hafið það hug- fast. Munið að skipta um drykkj- arvatn daglega og hafa alltaf ferskan mat í búrinu. Lotfið fugl unum að fljúga daglega úr búr- inu, því frelsið er okkur öllum svo dýrmætt. Foreldrar, eða aðrir aðilar sem eruð ábyrgir fyrir að hatfa lifandi verur undir hendi. Lát- ið ekki börn ykkar hafa hvorki fugla né önnur dýr i leik, sem væru þau dauð leikföng, hafið það hugfast. Fuglamir hafa lika mikla ánægju af að narta i þau; einn- ig er hlýlegt að hafa pottablóm nálægt búrunum og þannig verð ur umhverfið hlýlegra kringum fuglana. Munið að hafa matarskálar og drykkjarglös við hæfi fuglanna sem um er að ræða og hafa bað ker eða stóra skál, sem fuglam ir geta alltaf haft aðgang að þegar þeir vilja baða sig. Munið að þvo og hreinsa búrin daglega, svo og matarskál ar og drykkjarglös. Setjið síðan nýjan sand með kalki og stein- Munið, að hvort sem um er að ræða fugia eða dýr, hafa þau sál og ríkar og heitar tilfinn- ingar og þau finna fyrir hvern- ig þau em meðhöndluð, þótt þau geti ekki talað. Við ættum að hugsa minna um okkur sjáltf, það era fleiri, sem finna til, og þar á meðal málleysingjamir. Foreldrar, áminnið böm ykk ar um að vera góð við málleys- ingjana, kennið þeim að umgang ast þá með næmleika og bera virðingu fyrir öllu lífi. Fugla- og dýravinur. DAGBÓK Og þér munuð leita mín og finna mig. Þegar þér leitið nún af öllu hjarta, vil ég láta yður finna mig. (Jer. 29,13). 1 dag er miðvikudagur 17. marz og er það 76. dagur ársins 1971. Eftir lifa 289 dagar. Geirþrúðardagur. Ardegishátflæði kl. 8.S8. (Úr íslands almanakinu). Ráðgjafaþjönusta Geðverndarfélagsins þriðjudaga kl. 4—6 síðdegis að Veltusundi 3, sími 12139. Þjón- ustan er ókeypís og öllum heim- U. Mænusóttarbólusetning fyrir fullorðna fer fram I Heilsuvemd arstöð Reykjavíkur á mánudög- um frá kl. 5—6. (Inngangur frá Barónsstíg yfir brúna). AA-samtökin Viðtalstimi er i Tjarnargötu 3c frá kl. 6—7 e.h. Simi 16373. Ásgrimssafn, Bergstaðastræti 75, er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá ki. 1.30—4. Aðgangur ókeypis. Blöð og tímarit ÆSKAN, 2. tbl. febrúar 1971 er komin út, f jöibreytt að vanda, með feiknunum öllum af mynd- um, og má nefna þetta efni: Lit- il aðstoð til foreldra. Hjálp i við lögum. Þóra M. Stefánsdótt- ir þýddi. Dregið í verðlaunaget- raun Trölla. Ungmenni á upp- leið. Viðtal mánaðarins við Jens Rúnar Ingólfsson. Frá Rauða krossi Islands. Sjóræningjagull. Britta og Maja. Kadadao o g bræður. Afmælisböm Æskunn- ar í marz 1971. Orrustan við Wat- erloo. Áhrif áfengis. Hvað viltu verða? Verzlunarmaður. Villi ferðalangur og fillinn hans. Sól- skinsdagar í London eftir Svein Sæmundsson. Tumi þumall. Íþróttir. Tarzan. Tal og tónar. Snjókarlavísur eftir Ingi- björgu Þorbergs. Skroppið til Færeyja eftir Höskuld Skag- fjörð. Andrés önd kaupir gull- fisk. Börnin í Fögruhlíð. Heim- sókn til Rínarlanda, verðlauna- getraunin. Svör berist fyrir 1. april. Fyrstu Ólympíuleikamir. Gamlar myndir. Heimur barns- ins. Kort frá Möðruvöllum og sjóskrímslið. Laufabrauð á borð um. Skátaopnan. Flugþáttur. Eitt og annað um ljósmyndun. Heimilisbók Æskunnar. Frí- merkjaþáttur. Enskuþáttur. Fopheimurinn. Islenzk skip. Handavinna. Kvikmyndir. Skák. Þáttur um stofufugla. Bréfa- skipti. Spumingar og svör. Fjöl margar myndasögur. Ritstjóri Æskunnar er sem fyrr Grimur Engilberts. Prentsmiðjan Oddi prentaði. Sjómannablaðið Víkingur 2. tbl. er komið út og hefur verið sent blaðinu. Efni þess er meðal ann ars: Guðmundur Jensson: Nolkk- ur atriði um sjávarútvegsmál. Böðvar Steinþórsson bryti: Hugleiðingar um fræðslu- og skólamál sjómanna. Helgi Hall- varðsson skipherra: Rætt við Egil Þorgilsson fyrrv. skip- stjóra. Mikhail Kostikov: „Pinro" og starfsemi hennar. Guðmundur Péfcursson: Gunnari Bjarnasyni ámað heilla. Frá Siglingamálastofnuninni. Dr. Sigfús A. Schopka fiskifræðing ur: Um hrognkelsi. Ingólfur Stefánsson: Félagsmálaopnan. Hallgrímur Jónsson: Ævintýra- maðurinn Edward Moseby, þýtt. Rannsóíknastööin 1 Lyngby. Framhaldssagan Mary Deare, Frivaktin o.fl. Blaðið er mjög myndskreytt. Ritstjórar eru Guðmundur Jensson og Örn Steinsson. FRÉTTIIL Kvenstúdentafélag Islands Fundur verður haldinn í Þjóð- leikhúskjallaranum miðvikudág- inn 17. marz kl. 8.30. Fundar- efni: Fólk og fjölmiðlar. Þor- björn Broddason lektor. Brautarholtskirkja Föstumessa kl. 9 í kvöld. Sr. Bjarni Sigurðsson. Laugarneskirkja Föstumessa í kvöld kl. 8.30. Séra Garðar Svavarsson. Fríkirkjan í Reykjavík Föstumessa í kvöld kl. 8.30. Séra Þorsteinn Björnsson. . . . að megra sig, ef hann vill hafa hana granna.. Múmínálfarnir eignast herragarð----------Eftir Lars Janson Múmínpabbinn: Hvað eig- um við nú að fá til mið- degisverðar, elskan mín? Múminmamman: Hann er ekki tilbúinn ennþá. Ég hef verið að telja lökin. Múmínpabbinn: Telja lök- in? Múmínmamman: Já, Elín hefðarfrú hefur verið anzi erfið mér. Elín hefðarfrú: Frú Mú- mín, það er ryk á páfa- gauk Aðalsteins lávarðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.