Morgunblaðið - 31.03.1971, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1971
3
Nýtt stúdenta-
mötuneyti
Stúdentaheimilið nýja
kostar um 40 milljónir króna
NÝTT mötuneyti Háskóla-
stúdenta var ts&ið í notkun
í nýja Stúdentaheimilinu
við Hringbraut í gær. í
þessu nýja mötuneyti geta
um 200 manns snætt í einu.
Á næstunni opnar bóksala
stúdenta í Stúdentaheimilinu
og einnig verða þar skrif-
stofur Félagsstofnunar stúd-
enta, Stúdentaráðs, Stúdenta
féiagsins og félagsherbergi
deildarfélaga. Ætlunin er að
fullgera bygginguna á þessu
ári, en það sem á vantar nú,
er fyrst og fremst innrétt-
ingar skrifstofuherbergja.
Áætlaður byggingarkostnað-
ur er um 40 milljónir króna.
Forráðamenn Stúdenta-
heimilisins buðu til hádegis-
verðar í nýja mötuneytinu í
gær. Meðal gesta voru Gylfi
Þ. Gíslason, menntamálaráð-
herra, Magnús Jónsson, fjár-
málaráðherra, Geir Hall-
Úr matsalnum í nýja Stúdentaheimilinu. (Ljósm Kr. Ben.).
frímsson, borgairstjóri og
rmann Snævarr, fyrrum
Háskólarektor.
Þorvaldur Búason, for-
maður stjórnar Féiagsstofn-
Þorvaldur Búason, formaður stjórnar Félagsstofnunar stúdenta, býður gesti velkomna í
nýja stúdentamötuneytið í gær. Við endaborðið sjást auk hans: Magnús Már Lárusson,
rektor, ráðherrarnir Gylfi Þ. Gíslason og Magnús Jónsson, Geir Hallgrimsson, borgarstjóri
©g dr. Ragnar Ingimarsson, formaður byggingarnefndar Stúdentaheimilisins.
unar stúdenta bauð gesti
velkomna. Menntamálaráð-
herra flutti stúdentum árn-
aðaróskir rikisstjórnarinnar.
Hann kvað þörfiha íyrir
byggingu sem Stúdentaheim-
iiið löngu brýna og gat þess,
að svo virtist sem . fram-
kvæmdir allar hefðu tekizt
hið bezta. Kvaðst hann
vona, að mörg góð samkom-
an og margur ágætur máls-
verðurinn ætti eftir að
verða í þessari nýju bygg-
ingu. Fór hann svo nokkrum
orðum um nauðsyn þess, að
stúdentum gæfizt sem bezt
tóm til að sameina „að læra
og að lifa“ og þá væri ekki
síður mikilvægt, að menn
„lærðu að lifa“. Kvaðst hann
vona, að nýja Stúdentaheim-
ilið yrði stúdentalífinu öfl-
ug lyftistöng.
Þorvarður ÖrnólfSson, fram
kvæmdastjóri, sagði, að inn-
an skamms myndu stúdent-
ar opna kaffistofu í Árna-
Framhald á bls. 21
Flugfélagið býður
tíðustu og fijótustu ferðirnar
með þotuflugi til
Evrópulanda og nú fara í
hönd hin vinsælu
vorfargjöld Flugfélagsins,
Við bjóðum yður um 30% afslátt af
venjulegum fargjöldum til helztu
borga Evrópu í vor me<5 fullkomnasta
farkosti nútímans. Það borgar sig að
fljúga með Flugfélaginu.
Hvergi ódýrari fargjöld.
FLVCFELAGISLANDS
ÞJÓNUSTA - HRAÐI - ÞÆGINDl
s
STAKSTtlNAR
Ljótur leikur
Alþýðublaðið birti í fyrradag
forystugrein um landhelgismálið
undir ofangreindri fyrirsögn og
sagði þar m.a.:
„llm langa hríð hefur ísland
átt í harðri haráttu á alþjóðleg-
um vettvangi fyrir málstað sin-
um í landhelgismálimi. Og ís-
lendingum hefur vissulega orðið
mikið ágengt í þeirri baráttu.
Þeir hafa afiað sér fylgis og ríkr-
ar samúðar margra þjóða og Is-
land nýtur sérstaks álits á þingi
SÞ fyrir mikla þekkingu á land-
grunns og hafsbotnsmálum ein-
arðleika í málflutningi, festu og
framsýni. Er það t. d. almennt
viðurkennt, að ísland á drjúgan
þátt í því að ákveðið var að kalla
saman alþjóðaráðstefnu um mál-
efni hafsbotnsins árið 1973 og
svo mikils álits hafa íslendingar
aflað sér að sjálfsagt þótti að
ísland fcngi sæti I nefnd þeinri,
sem alþjóðaráðstefnuna á að
undirbúa, þótt mörg önnur ríki
hafi keppt að því að hljóta þar
sæti, en ekki fengið.
Það hefur hingað til verið
meginstyrkur fulltrúa Íslands er-
lendis, sem sótt hafa rnálið fyrir
fslands hönd, að geta haldið þvi
staðfastlega fram, að öll íslenzka
þjóðin stæði einhuga um stefn-
una í landhelgismálunuin. And-
stæðingar íslands í þcssu máli
fylgjast vei með því, sem sagt er
og gert í Iandhelgismálunum hér
uppi á íslandi og þeir hafa enn
ekki getað fundið nein merki
þess, að þjóðin stæði ekki saman
sem einn maður. Hefði það ella
verið óspart notað gegn málstað
fslands í þeirri baráttu, sem fram
hefur farið um þetta mái á al-
þjóðasamkomum.“
I> j óðareining
rofin
Síðan sagði Alþýðublaðið:
„S.l. haust virtist hins vegar,
sem ýmsar blikur væri að draga
á loft hér á landi í þessu mikla
hagsmunamáli þjóðarinnar. Þá
fóru ýmsir að óttast, að stjómar-
audstaðan, sem komin var í mik-
inn kosningahug, ætlaði hér að
íremja þau stórkostlegu alvar-
Icgu mistök að rjúfa þjóðarein-
inguna í landhelgismálinu í þeirrí
röngu trú, að hún kynni að gefa
bagnazt á sliku í kosningum.
Til þess að reyna að koma í
veg fyrir svo afdrifarík mistök
var ákveðið að koma á fót nefnd,
sem ættu í sæti fulltrúar allra
þingflokka, og átti í þeirri nefnd
að reyna að ná pólitískri sam-
stöðu um málið. Var það reynt
í marga mánuði. En allar tilraun-
ir til samkomulags strönduðu á
stjórnarandstæðingum.
Nú fyrir nokkrum dögum kluiu
þeir nefndina og neituðu endan-
iega allri samstöðu. Þar tók
stjórnarandstaðan frumkvæði að
því að fá andstæðingum okkar í
hendur það beittasta vopn, sem
þeir geta beitt, — að segja, að
áralöng samstaða íslenzku þjóð-
arinnar í landhelgismálinu sé nú
rofin. Alþýðublaðið lýsir fullri
ábyrgð á hendur stjórnarand-
stæðingum fyrir þetta hrapallega
glapræði gegn hagsmunum ís-
lenzku þjóðarinnar. Sá leikur, er
stjórnarandstaðan hefur hér
leikíð, er Ijótur leikur.“
MORGUNBLAÐSHÚSINU