Morgunblaðið - 14.05.1971, Page 1
32 SIÐUR
107. tbl. 58. árg.
FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 1971
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Myndin var tekin í gær á ráðherrafundi EFTA í fundarsal Loftleiðahótelsins nýja. Fremst á myndinni til v. stendur George Young,
blaðafulltrúi EFTA. Eins og sjá má situr fundinn fjöldi sérfræðinga og aðstoðarmanna, auk ráðherranna.
„Toppfundur Heaths og Pompi-
dous í góðu andrúmslofti4í
sagði Rippon á ráðherrafundi EFTA
ÞRÍTUGASTI og þriðji ráð-
herrafundur EFTA var settur
á Hótel Loftleiðum í gærmorg
un kl. 10.40. Formaður EFTA-
ráðsins, Ernst Brugger, efna-
hagsmálaráðherra Sviss, setti
fundinn og þakkaði í upphafi
frábæra gestrisni íslendinga.
Fyrsta málið á dagskrá var
viðskiptin í heiminum í dag, en
vegna þess að Geoffrey Rippon,
ráðherra Breta í samningunum
hjá EBE, var ekki kominn, hafði
verið ákveðið að breyta dagskrá
fundarins þannig, að sameining-
armál Evrópu yrðu tekin fyrir á
síðdegisfundinum eftir komu
hans.
Fyrstur tók til máls J. Stari-
bacher, viðskiptaráðherra Aust-
urríkis, og gerði hann grein
fyrir ákvörðun austurrísku
stjórnarinnar um að hækka geng
ið um 5%. Sagði hann að þessi
hækkun hefði verið óhjákvæmi-
leg vegna gengishækkana í V-
Þýzkalandi og Sviss, sem eru ein
stærstu viðskiptálönd Austurrík-
is. Staribacher skýrði síðan frá
GATT-fundin'um, seim haldinn
var fyrir gkömjn'U, og lýsiti yfir
stuðningi við sænsku tillöguna,
sem þar var lögð fram, um að
hafnar yrðu alhliða viðskiptavið-
ræður til að kanna möguleika
þess að taka landbúnaðarafurðir
inn í GATT. Staribacher sagði,
að timinn nú væri að vísu ekki
heppilegur, þar sem öll Evrópa
biði nú eftir þróun Efnahags-
bandalagsins, og einnig að for-
setakosningar eru á næsta leiti
í Bandaríkjunum, en tillagan
væri góð og myndi bíða sins
tíma. Hann lýsti því yfir, að
Austurríki myndi halda áfram
stefnu sinni varðandi frjáls við-
skipti og að innan skamms yrði
aflétt ýmsum viðskiptakvótum
gagnvart A-Evrópu.
Per Kleppe, viðskiptaráðherra
Noregs, tók næstur til máls og
sagði, að öll Evrópa biði nú
átekta eftir framvindu mála hjá
EBE. Hann sagði, að þetta mætti
ekki hafa í för með sér stöðn-
un á sviði viðskipta. Hann lýsti
einnig yfir stuðningi sinum við
sænsku tillöguna hjá GATT og
lagði á það áherzlu, að halda
yrði við góðum viðskiptasam-
böndum milli austur og vesturs.
Mattila, utanríkisviðskiptaráð-
herra Finnlands minntist þess
að 10 ár væru liðin frá því að
Finnland hóf samstarf
við EFTA og sagði, að allar von-
ir, sem bundnar voru við það
hefðu rætzt og þakkaði
EFTA fyrir gott samstarf. Ernst
Brugger sagði þá: „Við óskum
Framhald á bls, 11
Egyptaland;
6 ráð-
herrar
fara
frá
Takmarkanir
á persónuf relsi
afnumdar
Kaínó, 13. maí, NTB, AP.
SEX ráðherrar í egypzku stjóm-
inni, þeirra á meðal Mohammed
Fawsi hermálaráðherra og Shar-
awy Mohamed Gomaa innan-
ríkis- og aðstoðarforsætisráð-
herra, afhentu Anwar Sadat for-
seta lausnarbeiðnir sínar í dag.
Það var útvarpið í Kaíró, sem
skýrði frá þessu. Abdel E1 Nur,
aðalritari Arabíska sambands-
flokksins, sem er eini leyfði
stjórnmálaflokkurinn í landinu,
og Labib Shukeir, forseti þjóð-
þingsins, hafa einnig látið af
störfum.
Sadat forseti hefur tilkynnt,
að hann hafi bannað þegar í
stað allar lögregluaðgerðir, sem
miði að því að takmarka per-
sónufrelsi og mannréttindi og er
þetta túlkað á þann veg, að hér
sé um þýðingarmikið skref að
ræða til aukins stjórnfrelsis I
Egyptalandi.
Hinir ráðherramir, sem sagt
hafa af sér, eru ráðherra sá, sem
farið hefur með mál forsætis-
ráðuneytisins, Sairui Sharaf,
orkumálaráðherrann, Hilmy El
Sayed, húsnæðismálaráðherranm,
Saad Zayed, og upplýsingamála-
ráðherrann, Mohamed Fayek.
í Beirut hefur sá orðrómur
verið á kreilki, að dreift hafi
verið seðlum með vígorðum gegn
Sadat á götum Kaíró og því hef-
ur einmig Jleyigt fyrir, að Sadait
yfirvegi að leysa upp Arabíska
sambandsflókkmn, sem er eimi
st j órmimálaf lökikur Egyptalands,
sem leyfður er. Gomaa, fyrrver-
andi innanríkisráðhenra gegnir
lykilstöðu í flokknum, en sem
innanríkisráðherra hefur hanm
haft yfirstjórn lögreglu og ör-
yggisþjónustu með höndum.
„Listinn yfir óleyst
vandamál er orðinn
mjög stuttur“
sagði Geoffrey Rippon við
komuna til Reykjavíkur í gær
GEOFFREY Rippon, ráð-
herra Breta í samningun-
um við EBE, kom til
Reykjavíkur með einka-
þotu um kl. 11.55 í gær,
beint frá Briissel, en þar
sat hann á samningafundi
með ráðherrum EBE til
kl. hálf sex í gærmorg-
un. Ráðherrann var mjög
þreyttur að sjá, enda ekki
komið dúr á auga í meira
en sólarliring. Þrátt fyrir
það varð Rippon góðfús-
lega við beiðni frétta-
manna um fund og svaraði
þar nokkrum spurningum.
„Það hefur miðað stórlega
í samkomulagsátt og ég er
mjög ánægður með árangur-
inn af viðræðunum undan-
farna tvo daga. Við höfum
komizt að samkomulagi um
mörg mjög mikilvæg atriði í
sambandi við landbúnað og
iðnað og ég spái því, að við
komumst yfir erfiðasta hjall-
ann í samningunum í sumar.
Eitt mikilvægasta atriðið er
líklega samkomulag um inn-
flutning frá þróunarlöndunum Geoffrey Rippon, brezki ráðherrann, við komuna á Reykjavikur-
innan brezka samveldisins, fiUg-völl í gær. Að baki ráðherramun stendur Gylfi Þ. Gislason,
þar á meðal sykur. Við höfum viðskiptaráðherra, sem tók á móti Rippon en Rippon svarar
Framhald á bls, 11 spurningum fréttamanna.
41