Morgunblaðið - 14.05.1971, Side 22

Morgunblaðið - 14.05.1971, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAl 1971 Eiður Brynjar Sig- tryggsson — Minning „Betra hjarta hreinni sál heldur þína er vandi að íinna fögur áttu eftirmál inn-st í brjóstum vina þinna.“ G.G. Haustiitur var kominn yfir allt. Sá timi kemur líka fyrr eða síðar að mannssálin á sitt haust, eins og grasið á haustdegi. Sem betur fer vitum við svo fátt fyrir, að það myndi valda sárri hryggð, ef við vissum meira. Siðari hluta s.l. októbermán- aðar, þá barst mér sorgarfregn, að mágur minn hefði ungur að árum fallið frá Það er mikil eftirsjá að ung- um mönnum sem deyja frá óloknum ætlunum og miklu starfi. En það varð hlutskipti Eiðs Brynjars að deyja á ungum aldri, þrjátiu og fjögur ár eru ekki löng ævi. Eiður var hár maður vexti, þrekinn, vasklegur í framgöngu. Dulur og heldur fálátur fyrsta sprettinn. Ef til vill hafa þeir haldið sem þekktu hann lítið, að hann væri fremur kaldgeðja. Nei, síður en svo, hann var hinn viðmótsþýðasti við hvern sem var og hvemig sem á stóð. Fram koma hans var jafnan ijúfmann- leg. En ekkert opnaði þó eins ástríkisiindir hjarta hans og börnin, í augum hans voru þau heilög. Eitt af aðalsmerkjum hans var skilvtsi og einstök orðheldni. Verkhagur og hafði mikið vinnu þrek, en var jafnframt mikil- virkur. Eiður var Skagfirðingur að ætt og uppruna, f. 19. des. 1935, d. 22. okt. 1970, kominn af merku bændafólki. Foreldrar hans voru þau hjón in, frú Ágústa Jónasdóttir og Sig tryggur heitinn Einarsson frá Héraðsdai í Tungusveit Jónsson ar bónda þar. 1 systkinahópi ólst Eiður upp og var yngstur, naut barna- og unglingafræðslu á Sauðárkróki. Að þvi loknu hélt hann út í heim, leið hans lá til Finnlands, þar fór hann í skóla og var við störf um tíma. En hugur hans stefndi á lengra nám, og fór hann, er hann kom til Islands aftur, í iðnskóla og hlaut þar sveins- og meistararéttindi í vélsmíði. Hér i Reykjavík starf- aði hann hjá ýmsum aðilum, en lengst starfaði hann hjá Ratfha í Hafnarfirði, eða þar til hann flutti aftur norður í átthagana, sem jafnan áttu rík ítök í hon- um. En auk starfs síns hjá öðr- um, þá átti hann sitt eigið véi- smiðafyrirtæki. Um afa hans Einar bónda í Héraðsdal, er sagt í „Skagfirzk- um æviskrám" bls. 57 „manna hagastur í höndunum einkum á jám, og mátti víst heita höfuð- smiður sinnar sveitar í þeirri grein langa stund." Eiga þessi orð mjög vel við um sonarson hans, sem hér er minnzt fátæklegum orðum- Sú breyting varð á högum Eiðs hér í Reykjavik, að hann stofnaði sitt heimili, er hann kvongaðist, Ingibjörgu Vigfús- dóttur. Lifðu þau hjón saman í ást og eindrægni fyrir hvort öðru. Inn fyrir þröskuld heimilis þeirra var ávallt ánægjulegt að koma og var þar skjól og skjöld ur gestrisninnar. Eins og að framan greinir voru bamgæði Eiðs frábær, svo ekki gat betri föður börnum sín um en hann. Bömin eru þessi, talin I ald- ursröð. Ásta Málfriður, nemi í t Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir MATTHfAS SVEINSSON, kaupmaður, Silfurtorgi 1, Isafirði, verður jarðsungínn frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 15. maí og hefst athöfnin með bæn á heimili hans kl. 2 eftir hádegi. Bergþóra Árnadóttir. Guðríður Matthíasdóttir, Jóhann Guðmundsson. t Eiginkona mín HELGA HARALDSDÓTTIR Vesturgötu 32 B, Akranesi, sem andaðist 11. maí, verður jarðsett frá Akraneskirkju laugar- daginn 15. maí kl. 2 e.h. Brottfarartimi Akraborgar verður kl. 12 á laugardag frá Reykjavík. Fyrir mína hönd og sona okkar. Hallgrímur Björnsson. t Þökkum innilega fyrir auð- sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar og afa, Guðmundar Sumarliðasonar, húsasmíðameistara, Vallargerði 12, Kópavogi. Sérstakar þakkir viljum við færa söngstjórum og söng- fólki I Samkór Kópavogs. Fyrir mína hönd, dætra og annara vandamanna, Jakohína Oddsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, Ingibjargar Jóhannsdóttur, Selvogsgrimni 11. Anna Kjartansdóttir, Sigríður Kjartansdóttir, Ásdís Kjartansdóttir, Matthías Kjartansson, Jóhanna Eina Guðnadóttir, Jóhann M. Kjartansson, Soffía Bjarnadóttir og barnabörn. Unglingaskóla Sauðárkróks, Jóhannes, Jenný, Ágúst Brjmj- ar, sem er yngstur. Síðustu mánuðina sem Eiður var hér meðal okkar var heim- ili þeirra hjóna, norður á Sauðárkróki, eins og fyrr segir. Þegar kedlið kom vann hann, samhliða að veita forstöðu Vél- smíðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga, að byggingu húss fyrir f jölskylduna. En þess skal getið hér, og náttúrlega lýsir það mæta- vel fórnar og kærleikslund fólksins, að Skagfirðingar og Sauðárkróksbúar sýndu hinum látna virðingu Sína, er afhent var ekkjunni, álitleg fjárupp- hæð. Allir sakna hans sem kynnt- ust honum og allir þvi meir, sem þeir þekktu hann betur. Bið, ég, honum blessunar, í þeim heim- kynnum sem hann er í, og getur eins og aðrir vinir sem á undan eru farnir, vitjað sinna svo að segja daglega, og eru oftar hjá okkur en okkur grunar. Helgi Vigfússon. Guðrún Vernharðs- dóttir - „Fríð í sjón og horsk í hjarta, höfðingslund af enni skein. Svipur, athöfn, — allt nam skarta af því sálin var svo hrein.“ Þessar Ijóðlínur áttu vel við Guðrúnu Vernharðsdóttur, svo vel, að þær hefðu getað verið ortar um hana. Betri manneskja en hún var vandfundin. Engm furða, þó að þeim, sem áttu hana að vini og athvarf hjá henni um áratuga skeið, þyki nú skarð fyrir skildi. Hún andaðist í Reykjavík að kvöldi 5. maí s.l. og hafði beðið eftir hvíldinni undanfarna mánuði. Fædd var hún að Setbergi á Skógarströnd 26. okt. 1888, komin af breið- firzku hæfileikafólki. Ung fór hún til Reykjavikur og lærði sauma og stundaði þá iðn, mátti segja, til hins síðasta. Dvaldi að eins fjóra síðustu mánuðina á Elliheimilinu Grund, þrotin að kröftum, enda aldrei kunnað að hlífa sjálfri sér eða slá slöku við verk sín. Hún var frábær hagleikskona í iðn sinni, lagin og vandvirk svo að af bar við hvað, sem hún tók sér fyrir hend ur. Handbragð hennar var jafn failiegt og vandað til hins síðasta. í Reykjavík átti hún heima sín beztu ár. Var i kaupavinnu á sumrin, m.a. úti í Viðey, einnig í mörg sumur austur í Biskups- tungum. Saumaði svo á veturna í Reykjavík, fyrst á heimilum, en mörg síðustu árin hjá sama fyrirtækinu. 1 Reykjavík bjó hún mörg ár Kristín Jóhanna Jónas- dóttir - Minning I DAG fer fram frá Ingjaldshóls kirkju á Hellissandi útför Kristín ar Jóhönnu Jónasdóttur frá Önd verðarnesi I Breiðavíkurhreppi á Snæfellsnesi. Hún Kristín okkar er farin frá þessu jarðneska lífi til hins, sem leiðir okkar allra Uggja til að iok um. Fátækleg orð megna ekki að lýsa þvi, sem þú átt skilið, en aldrei gleymist sólskinsbrosið konu gleymist aldrei. Börnum þínum, tengdabörnum, bamabörn um, systur og öðrum vinum og vandamönnum votta ég innilega hluttekningu. G.G. þitt og hlýjan, sem frá þér stal- aði. Persónulega þakka ég þér, Kristin min, allt það góða, sem þú sendir mér og mínuim, allt þitt starf og umhyggja í gleði og sorg. Aðrir geta örugglega sagt hið sama um sig og sína. Minning um mikilhæfa og góða Þökkum auðsýnda samúð við fráfall þeirra, Víðis Sigurðssonar og Jóns Níelsar Jónassonar. Vandamenn. með manninum, sem hún unm af heilum huga, og var heimili þeirra framúrskarandi aðlað andi. Þangað var alltaf jafn gott að koma. Víða er gott að koma, þegar allt leikur í lyndi, fyrir manni, en ekki verður flúið til hverra sem er með ósigra sína og von- brigði. Til Lárusar og Guðrúnar var óhætt að leita, þó að ekki blési alltaf byrlega. Þó að Guðrún Vernharðsdótt- ir færi engan veginn varhlutá af erfiðleikum og vonbrigðum í lífi sínu, var hún sú manngerð, sem jafnan leit fremur á hinar bjartari hliðar hfsins. Hún hafði yndi af blómum eins og allri fegurð og dýravinur var hún mikill. Þeir, sem minni máttar voru, áttu öruggan málsvara, þar sem hún var. Giaðvær og prúðmannleg framkoma hennar aflaði henni alls staðar vina og trygglyndi hennar brást aldreL Fátækleg orð mín eru tilraun til að láta i Ijós þakklæti fyrir tryggðarvináttu við mig og mina um áratugi. Á þá vináttu hefur aldrei borið skugga, og svo mun öðrum vinum hennar einnig hafa reynzt. Þess vegna söknum við hennar og blessum minningu hennar, sem verður okkur hug- stæð, jafnlengi og við lifum. Þ.E. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM HVERS konar ákvörðun er það, sem þér og aðrir prédik- arar eigið við, þegar þér talið um, að menn eigi að taka ákvörðun? Allir taka margar ákvarðanir á degi hverjum. JÁ, við tökum marg&r mirmi háttar ákvarðanir á hverj- um degi. En við höfum, sérhvert okkar, getu til að taka þessa einu, eiiífu ákvörðun, ákvörðunina um að gefa okkur Kristi á vaid. Þetta vald til að velja, greinir manninn frá dauðum hlutum og dýrum. Vatnið á ekkert hrós skilið fyrir að vera vott né hveitið fyrir að vera hvítt. Aðeins þeir, sem taka ákvarðanir, hafa vald yfir örlögum sínum. Ef við eigum að lifa æðra lífi í Kristi, verðum við að taka ákvörðun um að lifa ekki óæðra lífi. Ef við kjós- um að lifa óæðra lífi, verðum við að hafnia æðra lífi. Jesús sagði: „Enginn getur þjónað tveimur herrum.“ Við vildum helzt mörg okkar lifa bæði æðra og lægra lífi, bragða á því bezta í tveimur heimum. En Biblían segir, að það sé ókleift. „Sjá, ég hef í dag lagt fyrir þig líf og heill, dauða og óheill. Ef þú hlýðir skipunum Drottinis, Guðs þíns, þeim er ég iegg fyrir þig í dag, að elska Drottinn, Guð þinn, ganga á hanis vegum og varðveita skipanir hans, lög og ákvæði, þá mumt þú lifa . . . En ef hjarta þitt gjörist fráhverft og þú verð- ur óhlýðinm . . . þá boða ég yður í dag, að þér munuð gjörsamlega farast." (5. Mós. 30,15—18). Við glímum daglega við þessa „ákvörðun“, og eng- inn getur tekið harna mema við sjálf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.