Morgunblaðið - 16.05.1971, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 16.05.1971, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIE), SUNNUDAGUR 16. MAl 1971 9 'ljóst fyrir hvoi*t heldur á Græn landi eða í Labrador, og fundu einnig merki um fyrri ferðir Cabots um þessar slóðir. Evrópuþjóðir brugðu hart og titt við að lokinni kömrun Kólumbusar á Amerikuströnd- um og árangurinn var undra- verður. Áður en liðin voru þrjátfu ár þekktu menn nokk- uð gerla alla austurströnd Norður- og Suður-Ameriku. Áður en þriðji áratugurinn hafði runnið skeið sitt, voru sjóferðir eins og þær, s^m Kólumbus hafði farið forðum, hartnær orðnar daglegt brauð. Þeim Spánverjum, er fylgdu ANNAR HLUTI í kjölfar Kólumbusar, var það efst og fremst í huga að finna greiðfæra leið ytfir þetta mikla meginlandflæmi og þaðan svo til hinna langþráðu Austur- landa. Það var stór stund í mannkynssögunni, er Baiboa rataðist yfir Panamaeiðið árið 1513. Upp frá þessu tók áhugi Spánverjar á Austurlöndum að dofna, en áhugi þeirra á hin- um nýfundna meginlandi hins vegar að vaxa að sama skapi. Spænskir könnuðir sýndu af sér stórkostlegt þrek og þol- gæði í könnunarferðum sinum um því nær ótfær landssvæði á þessum slóðum. Því miður héld ust þessir aðdáanlegu eiginleik ar æði oft í hendur við taum- litia grimmd og villimennsku, sem þeir beittu inntfædda í lönd inn þessum. Gott dæmi þessara harðsviruðu landvinninga- manna var Hernando Cortéz, sem lagði undir sig Mexíkó. Árið 1519 lagði Cortéz í haf við tfimmhundraðasta mann og „sextánda hest.“ Hann kom þar að landi, sem nú stendur Vera Cruz. í þessari geysiströngu ferð, sem stóð í tvö ár, lagði hann undir sig Mexikó, að hluta með tilstiHi óánægðra ætt flokka innfæddra, að hluta með hreinni grimmd og ofbeldi, en þó fyrst og fremst harðri stjórn sinni og aga á liðs- mönnum sínum. Það var einu sinni, að hann óttaðist mjög, að menn hans hefðu í hyggju að yfirgefa hann og sigla sjálfir heim á leið. Cortéz sá í hendi sér, að hér dugði engin háif- velgja, svo að hann tók sig til og brenndi allan flota sinn! Cortéz náði á sitt vald hinum stórmerka innfædda keisara Montezúma. Hann jafnaði líka um Narváez, landa sinn, sem Spánarkonungur hafði sent til þess að vikja Cortés frá emb- ætti og koma i hans stað. Loks gerði Cortéz hvort tveggja,. að missa og vinna aftur á sitt vald Méxíkóborg. Ferðir Cortézar bera af öll- um öðrum fyrir biræfni sakir. Hann lét aldrei neina land- fræðilega hindrun hamla för sinni og hinna nokkur hundr- uð hermanna sinna, heldur brauzt ótrauður yfir hvaða tor færu sem var, hvort sem voru eyðimerkur ellegar frum- skógar. Hann komst alla ieið að Kaliforníuflóa i norðvestri og Hondúras í suðaustri. Velgengni Cortézar, svo og auðæfi þau, er hann sendi heim til Spánar, ýttu öðrum til þess að kanna hinn mikla. Mexíkóflóa, sem nú fyrst tók á sig nokkurn veginn rétta lögun á kortum. Einn þessara ævintýramanna var Cabeza de Vaca, sem var í leiðangri nokkrum, er tók land í Flórída árið 1528. De Vaca fór í könnunarferð á land upp og fór svo, að hann missti sjón- ar á skipum sinum og samband við þau. Hann tók það þá til bragðs að halda i vestur, komst yfir Mississippifljót og hafði vet ur«etu á eyju einni und- an Texasströnd. Þar skildi de Vaca við félaga sína og sneri aftur til meginlandsins, þar ?em hann dvaldist næstu fimm árin meðal Indíána. Hann reíkaði frá einum ættbálknum t;l annars sem leið lá allt þar til hann kom að Kalifomíu- flóa. Þaðan hélt hann til Mexíkóborgar og árið 1537 sneri hann svo aftur heim til Spánar eftir níu . ára flakk og ævintýri. Hann hafði lagt að baki sér meginlandið . frá Florida að Kaliforníuflóa, eða rm fjögur þúsund og átta lumdruð kílómetra. Þegar de Vaca kom heim og "r^indi frá ferðum sínum voru aðrir leiðangrar þegar sendir í slóð hans til Ameriku. Einn þeirra var undir stjórn Hern- andos de Soto, sem verið hafði með Pizarro í Perú; sá leið- angur taldi sex hundruð fót- gönguliða og eitt hundrað og fimmtíu riddara og tók hann land á vesturströnd Flórída árið 1539. De Soto fór þar yfir, sem nú eru fylkin Georgia, Alabama, Mississippi og Arkansas, en gullle:t hans bar engan árangur. De Soto lézt einhvers staðar i grennd við Memphis við Mississippi og stóðu menn hans þá uppi vega lausir. Þeim tókst að lokum eftir mikið harðræði að klambra saman nokkrum bát- um, og létu þeir sig síðan reka niður fljótið og niður I Mexíkó flóa. I augum þeirra tíma manna hafði leiðangur þessi gersamlega misheppnazt, en Framh. á bls. 11 Allt á sama stað w Laugavegi 118 - Sími 22240 EGILL VILHJALMSSON HE ÖRYGGI í UMFERÐ er krafan — og Chrysler United Kingdom byggir Sunbeam bílinn. Hann er byggður fyrir fimm manns. Fólkið situr í þægindum de luxe innréttingar í miðjum bíl. Umhverfi þess er styrkt sérstaklega, en báðir end- ar bílsins „mýktir" tii að draga úr höggi. Skagi eitthvað út úr sjálfri innréttingunni er það bólstrað. Hurðahandföng inngreypt. Rúðusnerlar brotna af við högg. Hrökkvi- lás á hurðalæsingum auk barnalæsinga. Þér gerið örugg kaup í Sunbeam. DISKAHEMLAR á framhjólum. Öryggisfelgur á öllum hjól- um. Sjálfvirk bakkljós, stórar afturlugtir. Fjölhraða rúðuþurrkur og öflugur rúðu- blástur ásamt miklu Ijósmagni tryggja út- sýni fram á veginn. Eitt snöggt tillit nægir til álesturs á mælaborð. STJÓRNSVÖRUN Sunbeam bílsins er létt og mjúk og hliðar- leiðni í lágmarki. Snúningsradíusinn er 9,68 m og gírskipting al-samhæfð. Steðji að hætta, sem hægt er að drífa sig frá, hjálpar viðbragðið: 0—100 km/klst. á 14,5 sek. Góð viðhaldsþjónusta er mikið ör- yggisatriði og tryggir auk þess hátt endur- söluverð. Nýr kostar hann kr. 276.500,00. Þér gerjð örugg kaup í Sunbeam. Sunbeam DeLuxe.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.