Morgunblaðið - 20.05.1971, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.05.1971, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐEÐ, FIMMTUDAGUR 20. MAl 1971 3 * Yfirlýsing frá framkvæmda- nefnd Rannsóknaráðs ríkisins MORGUNBLAÐINU hefui bor izt eftirfarandi yfirlýsing frá framkvæmdanefnd Rannsókna- ráðs ríkisins svo og greinargerð ríkisendurskoðunar tU meunta- málaráðuneytis: AFXRLÍSING FRA FEAMKVÆMDANEFND Vegna greinar dr. Þorsteins Sæmundssonar, stjörnufræðings. í Morgunblaðinu 18. þ.m., undir fyrirsögninni „Ævintýri í rann sóknaráði", vill framkvæmda- neínd Rannsóknaráðs ríkisins taka fram eftirfarandi: Ársreikningur Rannsóknaráðs rikisins fyrir árið 1969 var á sínum tíma sendur til athugun ar hjá ríkisendurskoðun, eins og iög gera ráð fyrir. Vegna athuga semda, sem fram höfðu komið frá dr. Þorsteini Sæmundssyni, óskaði menntamálaráðherra sér staklega eftir gagngerri athugun af hálfu ríkisendurskoðanda. — Akveðið hafði verið að halda íund í Rannsóknaráði um reikn inga ársins 1969 snemma á þessu ári, þegar er úrskurður ríkisend urskoðunar lægi fyrir. Úrskurð- urinn, ásamt greinargerð í bréfi til menntamálaráðherra, barst 17. þ.m. og var lagður fram á fundi Rannsóknaráðs ríkisins, ®em haldinn var 18. þ.m. Á fundinum skýrði mennta- málaráðherra frá því, að úr- ekurði rikisendurskoðanda yrði að sjálfsögðu framfylgt og væri málinu þar með lokið af hálfu menntamálaráðuneytisins. Greinargerð ríkisendurskoð- anda, sem iögð var fram á fundi Rannsöknaráðs, fylgir hér með. F.h. íramkvæmdanefndar Rannsóknaráðs ríkisins, Magnús Magnússon, formaður. Hátíðahöld á Selfossi í tilefni 50 ára afmælis S.Í.B. 1 TILEFNI 50 ára afmædis Sam bands islenzkra barnakennara gengst Kennarafélag Suður- lands fyrir háítðahölduim á f jór- utm stöðum á Suðurlandi, dagana 20.—23. mai: Selfossi, Heliu, Hvolsvelli og Vik i Mýrdal. Hátiðahöldin á Selfossi hefj- ast með samsæti í Selfossbíói kl. 16 á fimmtudag og kl. 18 verður sýning á vinnu nemenda úr skól um Árnessýslu opnuð í barna- skóla Selfoss, fyrir boðsgesti. Sýningin verður síðan opin fyr- ir almenninig á föstudag, laugar dag og sunnudag kl. 13—19. Þá síkiemmta böm úr nokkrum skól- um Árnessýslu, í Selfossbdói limmtudagskvöld M. 21, og á iöstudag kl. 14 og 16 og eru þær sýningar frekar ætlaðar börnum. 1 sambandi við þessi háitíða- höid verður ráðsteína á sunnu- dag um grunnskðlafrumvarpið og hefst hún kl. 14 í gagnfræða- sikóia Selfoss. Frummælendur verða þeir Andri Isaksson, for- stöðumaður skólarannsókna menntamálaráðuneytisijns og öl- ver Karlsson, oddviti. Ráðstefn- an er öllum opin og er áhuga- lólk um sköl'amál hvatt tií að sækjá hana. Þá gefur Kennaraiélagið út af mæOisrit með myndum aí skól- raura á Suðurlandi, kennaratali og stuttri frásögn frá hverjum tkóla. Kennaraféiag Suðurlands vænt ir þees að sem flestir taki þátt 5 hátíðahöldunum, sæki skemmt- amíir, sýningar og ráðstefnu. (Fréttatilkynning). GREXNARGERÐ RIKXSENDURSKOÐUNAR Samkvæmt beiðni i hréfi dags. 10. maá sl. fer hér á eftir samandregin greinargerð um at hugasemdir ríkisendurskoðunar og únskurði á reikningsskilum Rannsóknaráðs ríkisins fyrir ár ið 1969. Þá fylgja hér með, í ljósriti, srvör framkvæmdastjóra ráðsins við athugasemdunum, en að venju voru þær sendar ráðu neytinu á sinum tíma. Eins og fram kemur af athuga semdura ríkisendurskoðunar við reikningsskil Rannsóknaráðs rík isins fyrir árið 1969, er ýmislegt í bókhaldi stofmmarinnar á ann an hátt, en vera ætti. Margar athugasemdirnar eiga rót sína að rekja til þess, að ekki hefur verið viðhöfð nægj- anleg vandvirkni í bókhaldsvinn unni, t.d. eru ýmis útgjöld færð á aðra liði en vera ætti. Er hér frekar um að ræða fjölda færslna en um stórar fjárhæðir. Ekki verður séð, að um viljandi „ónákvæmni" sé að ræða til þess að ná fram breytingum á niðurstöðutöium kostnaðarliða. Þá hefur óvandvirkni komið fram i sambandi við Surtseyjar félagið, hafa verið færðar tO gjalda hjá Rannsóknaráði nokkr ar fjárhæðir, sem Surtseyjarfé- lagið á að greiða, samt. krónur 8.190,00. Sama máli gildir um nokkrar færslur þar sem um er að ræða framkvæmdastjóra ráðsins og skrifstofustjóra Skrifstofu rann- sóknastofnana atvinnuveganna. Samtals eru slíkar færslur varð andi framkvæmdastjóra ráðsins að fjárhæð kr. 3.295,00, en sam tals kr. 1.230,00 varðandi skrif- stofustjórann. Þá hafa nokkrir reikningar viðkomandi einkabifreið fram- kvæmdastjóra ráðsins, G-1149, verið færðir til gjaida hjá ráð- inu, samtals að fjárhæð krónur 5.102,10. Er þar um að ræða reikninga fyrir varahiutum að fjárhæð kr. 1.848,00, sem fram kvæmdastjórinn kveður mistök hafa valdið gjaldfærslunni, og kr. 3.254,10 vegna bensíns á bif reiðina, sem framkvæmdastjór- inn kveður haía verið fært til gjalda hjá ráðinu, vegna notk- unar hennar í þágu stofnunar- innar. í sambandi við símakostnað hefur framkvæmdastjóri ráðsins ákveðið að greiða kr. 7.017,00 af þeim símakostnaði, er beðið var skýringar á. Fellst ríkisendur- skoðunin á þá fjárhæð. Nokkrum sinnum hefur fram kvæmdastjóri ráðsins leigt ráð- inu einkabifreið sina og tekið fyrir hana gjald samkvæmt km- taxta ríkisins, utan einu sinni, þar sem reiknað mun vera sama gjald og bílaleigur taka, en dreg inn frá 20% afsláttur. Eftir atvikum hefur ríkisend- urskoðunin failizt á þesea reikn ingagerð, nema þetta eina til- vik, þegar reiknað er bilaleigu gjald. Þar hefur rikisendurskoðunin reiknað út km-gjald og úrskurð ar endurgreiðsiu kr. 7.880,00. Ríkisendurskoðunin hefur því úrskurðað eftirtaldar endur- greiðsiur úr hendi framkvæmda stjóra ráðsins: Vegna misfærsina í bókhaldi kr. 3.295,00 Vegna bifreiðarinnar G-1149 — 5.102,10 Vegna símakostnaðar — 7.017,00 Vegna ieigu einkabifreiðar — 7.880,00 Samtals kr. 23.294,10 Framkvæmdanefnd rannsókna ráðs og/eða framkvæmdastjóra þess virðist ekki hafa verið ljóst að heimild viðkomandi ráðu- neytis þaTf til ferðalaga til út- landa á kostnað ríkisins. Slíkra heimilda var því ekki aflað vegna ferðalaga greiddra af ráðinu. Framkvæmdastjóri ráðsins heí' ur gert grein fyrir hverju ein- stöku ferðaiagi og verður við svo húið látið standa að þessu sinni. Þá hefur á skort að aflað hafi vérið heimildar ráðuneytis til greiðsiu launa • sjóefnanefndar og/eða þóknana, en samkvæmt skýringum framkvæmdastjóra ráðsins unnu nefndarmenn ýmis sérfræðistörf auk venjulegra nefndarstarfa, en öll launin eru færð sem nefndarlaun. Nú hefur verið aflað umbeð- inna heimilda ráðuneytisins fyr ir þessum greiðslum svo og fyr ir greiðslum til framkvæmda- stjóra ráðsins fyrir sérstök störf. Af franiansögðu má ljóst vera, að bókhald Rannsóknaráðs verð ur að vinnast af meiri ná- kvæmni en verið hefur og verð ur að ætla að athugasemdir og úrskurður rikisendurskoðunar verði hvati í þá átt. Ríkisendurskoðunin leggur ekki til að gerðar verði breyt- ingar á fyrirkomulagi bókhalds og fjárvörzlu Rannsóknaráðs, a.m.k. ekki á meðan þessi sam eiginlega skrifstofuþjónusta, Skrifstofa rannsóknastofnana at vinnuveganna, er fyrir hendi i núverandi mynd. í því sambandi vaknar eú spurning hver staða Skrifstofu FLATEYRI, 17. maí. Nýtt skip kom hinigað til heimahaínar s3. laugardagskvöld í fögru veðri. Var það vélskipið Torfi HaSl- dórsson ÍS 19, sem er smaðaðiur 1 sikipasmíðastöð Marselíusar Bemlharðisisonar á Isafirði. Skip- ið er 115 smálesitir brúttó og mesta lengd 26,40 metrar, breidd 7,70 m og og dýpt 3,35 m. Aðal- vél skipsins er Vicmamm 660 ha og reyndist ganghraði í reynslu- ferð 12,5 sjómiliur. Hjálparvélar eru tvær af gerð- inmi Mercedes-Benz, hvor um sig 50 ha og framleiða þær 220 vatta riðstraum, samitalls 50 kilóvött. 16 tonma togvinda er í skipimu framlleidd hjá Sigurði Svein- bjömssyni hf., Reykjavik. Skip- ið er smíðað eftir strömgustu kröfum um gerð isllenzikra fiski- sfldpa af þessari stærð og er búið rannsóknastofnana atvinnuveg- anna sé gagnvart Rannsókna- ráði, hvort þar eigi aðeins að fara fram bókhaid og fjárvarzia, gagnrýnislaust, eða hvort t.d. skrifstofustj.óri skrifstofunnar eigi að neita að láta færa og/ eða greiða þá reikninga, er að hans -áliti falli ekki undir þær reglur, er fara beri eftir, eða ekki þannig úr garði gerðir að fullnægjandi sé eða hvort hann eigi að iáta sér nægja, að fram kvæmdastjóri ráðsins riti sam þykki sitt á þá. Þess skal getið, að þetta sama vandamál gildir einnig gagn- vart öðrum þeim stofnunum, er skrifstofan hefurr bókhald og fjárreiður fyrir. Eins og fram kemur í úr- skurði, þá iítur ríkisendurskoð- unin svo á, að Rannsóknaráðið eða framkvæmdanefndin fyrir þes® hönd, íyigist það með fjár reiðum ráðsins, að allar stærri fjárráðstafanir hljóti þar form lega afgreiðslu svo og að lagð ar séú í stórum dráttum þær iínur i fjármálum, sem fram kvæmdastjóri ráðsins vinni eftir. Að sjálfsögðu getur fram- kvæmdastjóri ekki borið ein- stakar minni háttar greiðslur undir samþykki ráðs eða nefnd ar, þær verður hann að ákveða að eigin mati og í samræmi við þær reglur, sem á hverjum tíma gilda, um ráðstöfun opinbers fjár. F. h. r. öllum fisiMieitar- og siglinga- tækjum af nýjustu gerð. Skipið er nú fullbúið tifl veiða og rpun hefja veiðar næstu daga. Skip- Btjóri verður Jón Marteinn Guðröðarson á Isafirði, stýrimað- ur Einar Hálfdánarson, Bolung- arvik og 1. véistjóri Gisii Valtýs- son, Fiateyri. Eigandi sfldpsins er Benedikt Vagn Gunnarsson út- gerðarmaður, Flateyri, en hann á einnig m/b Áslkeil Torfaison 70 tonna sfldp. Margt manna sasfnaðisit á baínarbakkann tií þess að fagna hinu nýja sfltípi, raeðu flutti Odd- ur Einar Kristjánsson f. h. hreppsmefndar og þakkaði hann Benedikt Gunnarssyni fyrir íramtak hans í atvinnumálum staðarins, og bauð skip og skips höín veflkoonna. — Kristján. STAKS f FIWIÍ Efnalegt sjálfstæði Eitt af brýnustu verkefnwm nútimaþjóðfélags er að tryggja efnahagsiegt sjálfstæði borgaff- anna allra. Það er varasöm þró- un, ef yfirráðin yfir fjármagr,- inu safnast.á fárra hendur, hvort heUIur er rikisins eða einstaM- inga. Þess vegna er nú rníhíl- vægf að stuðia að dreifingu fjár- málavaldsins í þeim tilgangi :>ð treysta efnalegt sjálfstæði féXks- ins í landinu. í stjérnmálayfirlýsingu lands- fundar Sjálfstæðisflokksins seg- ir svo: „Endurskoða þarf al- skipti ríkis og stjémmálaflokka af fjármálakerfinu og vinna að þvi að fjármálavaldið sé sen mest í höndum borgaranna sjálfra og samtaka þehnra. Stefna ber að því, að hið cptn- bera hætti sem mest þátttöku f atvinnurekstrl og leggja shal höfuðáherzlu á frjálsan einfea- og félagsrekstur, frjálsa sam- feeppni, þátttöku almennings f atv'innurekstrinum og bag- kvæmari rckstrareiningar. Sjál'f- stæðisflokkurinn telur, að sami- keppni og frjáls verðmyndwn íé hezta tryggimg neytenda fyrir hagstæðum viðskiptakjörum. Til hryggingar eðlilegum verzlunar- háttum verði sett lög um eftirlít með hringamynöun, einokun ©g verðlagi. Breyfa þarf yfirstjórn batika og sparisjóða atvinnuveg- anna með það fyrir augum a® gera kerfið virkara og einfald- ara en nú er. Markmiðið er að gera borgarana efnahagslega sjálfsfæða og stuðla að því, að fjölskyldur búi i eigin íhúð, enda sé þeim ekki iþvngt um of vegna skulda eða fasfeigtia- skafta." Vinnumarkaður Stóraukin þátttaka almennings í atvinnurekstrinuni er samofin þeim hugmyndum, sem nú ena oft ræddar, um aukna htat- deild fólksins í stjórnun atvinnn fyrirtækjanna. í stjómmálayfír lýsingu landsfundar Sjálfstæðis- flokksins segir svo um vinnii- markaðinn: „Efla ber skllning á því með aðilum vinnumark- aðarins, að raunhæfar kjarahæt- ur verði bezt tryggðar með aukinni framleiðslu, framleiðnl og bælfum viðskiptakjörum, jafnframt stöðugu verðlagi. Til þess að jákvæður árangur náist á þessu sviði, er vinnufriðtir grundvallarnauðsyn. Endurskoða ber vinnulöggjöfina í samráðl við samtök launþega og vinnitt- veitenda. Ber við þá endurskoð- un m.a. að hafa í huga mý ákvæði laganna, er tryggi rétt sáttasemjara til frestunar á boð- uðu verkfalli eða verkbanní, ásamt öðrum ákvæðum, er tryggi að til hins ýtrasta verðS reynt að ná samkomulagi, áður en til vinnustöðvunar kemur. Stuðiað verði að því, að að- ilar þessir komi á með siér rammasamningum um samstarfs- nefndir með aukið atvinnulýð- ræði í huga. Áfram verði unnið að vinnurannsóknum, hagræð- ingu og hagkvæmni í rekstrl fyrirtækja, auk hvetjandi launa- kerfa, sem mun ásamt frjálsum amningum þessara aðila stuðla að réttlátri skiptingu þjóðar- tekna.“ Á þessum sviðum er vissulega þörf nýrrar sóknar til þess að efla áhrif einstaklinganna i þjóðfélaginu. i XXalldór V. Sigurðsson. Torfi Halldórsson á reynslusiglingu. Ljósmynd Mbl„ h. k. Mynd- in er tekin frá lóðsbát ísafjarðar, úr stafni. Bátur til Flateyrar - frá skipasmíðastöð Marselíusar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.