Morgunblaðið - 20.05.1971, Side 21

Morgunblaðið - 20.05.1971, Side 21
MORGUNBLAÐEÐ, FIMMTUDAGUR 20. MAI 1971 21 miiiii I KVIKMYNDA HÚSUNUM ★★★★ Frábær, ★★★ mjög góð, ★★ góð, ★ sæmileg, léleg. UUUJ Sig. Sverrir Pálsson Björn Vignir Sigurpálsson Sæbjörn V aldimarsson Nýja bíó Kvæntir kvennabósar Viðskiptafrömuður eínn hlustar af andagt á kunningja sinn lýsa refilstigum framhjáhaidsins Hann sýnir loks áhuga á því að reyna þessa íþrótt af eigin raun, en áður en svo má verða þarf hann að ganga í gegnum harðan skóla og leysa ýmsar þrautir, sem kunningi hans leggur fyrir hann. Eftir langa mæðu er hann reiðubúinn til framkvæmda en þá gerast ýmsir válegir atburðir, í aöalhlutverkum Walter Matthau og Robert Morse Leikstjóri Gene Kelly. ★ Kvæntir kvennabósar: — Fremur snauð glysmynd, — bæði kvikmyndalega og efn- islega, nema hvað sumar dæmisögurnar eru nokkuð sméllnar. Gene Kelly hefði mátt gera allmiklu betur sem leikstjóri. Hinn væmni endir kippir öllum rökum und an því, sem áður var gengið í myndinni. ★ Ég hafði vænzt meiri til- þrifa af samvinnu Kelly og Matthau. Þeir þræða báðir troðnar slóðir en meðhöndl- un efnisins er fjarska amer- ísk og myndin sjaldan veru- lega skemmtileg. ★ ★ Kennslustundir í frarn- hjáhaldi eru nýstárlegt efni í gamanmynd, og hefur reynzt leikstjóranum ágætlega hand bært. Þá er Walther Matthgu í essinu sínu, en hann er Vafalaust einn bezti gaman- leikari Bandaríkjamanna í dag. Þá koma einnig fram fjölmargir aðrir ágætisleik- arar, og standa sig flestir með prýði. Góð skemmtun. Gamla bíó „Harðskeyttur prédikari4í Þegar Jim Killian kemur í fram tíðar heimahérað sitt verður hengd ur fjárbóndi á vegi hans, sem hann tekur niður og grefur. Þarna geisar styrjöld milli naut- gripabænda og fjárbænda og Kill ian kemst brátt í kast við þá fyrrnefndu sem gruna hann um að vera leigubyssa fjárbændanna. Annað kemur þó á daginn, því að Killian reynist vera útsendari guðs með vafasama fortíð og byssu í belti til að verja kirkju sína. Guðs vegur á þessum slóð- um er þyrnum stráður og á því fær Killian að kenna, þegar hann hyggst koma á sáttum milli fjár- bændanna og nautgripaeigend- anna. í aðalhlutverki er Glen Ford. Leikstjóri Lee H. Katzin. ★ Þarna er að finna öll klass ísk einkenni vestra — lækn- inn, barstúlkuna, byssubóf- ann, góða manninn o.fl., en einhvern veginn verður frek- ari útfæring efnisins aldrei annað en hálfkák með sæmi- legu afþreyingargildi og af- leitum endi. ★ Sæmilegur „vestri“, og ekki sem verst afþreying fyr ir þá mörgu, sem kunna að meta þá gerð mynda. Persón- ur myndarinnar eru all vel mótaðar og leikurinn góður hjá flestum. Laugarásbíó „ÝVETTE“ Lifibrauð sitt fær frú Von Ob- ardi frá viðhaldi sínu, vellauð- ugum lækni, Von Hallstein að nafni. Kominn er sá af léttasta skeiði. Og þar að kemur að frúin gengur fra-m af honum í hvílu- brögðum — að fullu og öllu. Verða þá horfurnar hinar ískyggi- legustu í peningamálum. Sonur Von Hallstein, Peter, kemur þá til hjálpar, og fetar dyggilega í troðna slóð föður síns. Kynnist hann þá dóttur frúarinnar, losta fagurri. Bítast þær mæðgur um bitann um hríð en sú yngri verður drýgri á endasprettinum. Leikstjóri Eberhard Schröder. Þýzk. Álit mitt á þessari mynd er alls ekki prenthæft. Ekki einu sinni klám- mynd. Hafnarbíó Hættulegi aldurinn. Francesco Vincenzini (Vittorio Gassman) er vel metinn forstjóri, vel giftur, 45 ára, og er nýorðinn afi, er myndin hefst. Honum hef- ur aldrei dottið framhjáhald í hug en þegar vinkona sonar hans fer að gefa honum hýrt auga, jafnvel ásækir hann, gerir eðlið vart við sig. Hann fer að halda við hana, vanrækir vinn- una, tekur sér frí, lifir lífinu og gleymir fyrirtækinu En fyrr eða síðar hlýtur að koma að reiknings skilum og ákvörðunin getur þá oft orðið æði erfið (Leikstjóri: Dino Risi). ★ Einstaka augnablik geta kallazt fyndin, en að öðru leyti er myndin öll fremur slök. Enda vart við öðru að búast, þegar ítalskan hefur verið dubbuð á ensku og ís- lenzkum texta síðan bætt undir. Háskólabió Makalaus sambúð Felix Unger, (Jack Lemmon), fyllist svo miklum lífsleiða eftir skilnað við konu sína, að hann hyggst fyrirfara sér Honum snýst þó hugur er á hólminr. er komið og leitar á náðir kunningja síns Oscar Madison (Walther Matthau) sem er nýskilinn. Hefst þá hin „makalausa sambúð“. Felix er kattþrifinn og heima- kær, en Oscar lætur vaða á súð- um. Fara þeir því fljótlega í taugarnar hvor á öðrum Fyrst sýður þó upp úr er Oskar hefur boðið heim tveimur systrum og hyggst deila nærveru þeirra með sambýlismanni sinum. En þær eru ekki fyrr búnar að koma sér fyrir en Felix fer að rekja fyrir þeim raunir sínar. Endar gleðskap urinn með gráti og kveinstöfum. L,eikstjóri Gene Saks. ★ ★ ★ Makalaus sambúð: Samtölin í handriti Neil Sim ons eru suilldarvel gerð og hver setning fær aukinn styrk í meðförum Lemmons og Matthaus. Gerð upp úr leikriti og fremur ómerkileg sem kvikmynd (nema fyvir leikinn), en er jafnframt bráðfyndin afþreying. ★ ★ ★ Kvikmyndir gerðar eftir leikritum Neil Simons eru alltaf trygging fyrir nokkrum notalegum brönd- urum. í þessari mynd er hann jafnvel óvenju gamansamur og ætti engum að leiðast þessi forkostulega sambúð, er myndin lýsir. ★ ★ ★ Meinfyndið leikrit Simons um hjónabandserjur og sambýlisþj ark, kemst mjög vel til skila, þökk sé stórkost legum samleik. þeirra Lemm- ons og Matthau og handriti höfundar. f einu orði sagt bráðskemmtileg. Stjörnubíó Funny Girl „Funny Girl“ fjallar um hluta ævi gamanleikkonunnar frjeigu, Fanny Brice. Alit frá því hún tróð í fyrsta sinn upp, í lítil- fjörlegu leikhúsi í fátækrahverf- inu, sem hún bjó í og þar til hún er orðin aðalstjarna Zieg- field dansflokksins, en lengra var tæpast hægt að ná á þeim ár- um. Inn í myndina fléttast svo misheppnað hjónaband hennar og fjárhættuspilarans Nick Arnstein. Ásamt Barbra Streisand leika þeir Omar Sharif og Walter Pide gon. Leikstjóri er William Wyler. ★ ★ Söngvamyndir falla iðulega á lævísu bragði, væmni. — Leikstjóranum, William Wyl er, tekst þó furðu vel að forð ast hana og Barbra Strei- sand hjálpar mikið til með skemmtilegu látbragði og á- gætum leik. Mörg hópatrið- in á leiksviðinu eru frábær- lega sviðsett og kvikmynda- takan stundum tilþrifamikil. ★ ★ ★ Hér er á ferðinni dansa- og söngvamynd, eins og þær gerast beztar frá draumaverk smiðjunni Hoilywood, Leik- tjöld, og búningar eru meist aralega vel gerð og stúdíó upptaka frábær. Þá eru dans og söngvaatriðin skemmtilega útfærð. Kópavogsbió; „Madigan“ Rannsóknarlögreglumennirnir Madigan og Rocco Bonáro ráöast inn í herbergi afbrotamanns til aö handtaka hann Koma þeir aö honum í rúminu, én þrátt fyrir erfiöar aðstæður tekst honum að ieika á þá félaga og sleppur und an, Madigan og Rocco þyltja hafa farið hina mestu hneisu- för, og hefja teit að afbrotamann inum til að endurheimta sjálfs- virðinguna. Myndin lýsir að öðru ieyti lífi og starfi lögreglunnar — allt frá lögreglustjóra niður i lögguna í lægsta þrepi mietorða- stigans. Aðalhiutverk: Riehard Widmark og Henry Fonda. Hand- rit H. Simoun og A. Polonsky. Leikstjórn Don Siegel. ★★ Madigan markar aftur- komu Abraliams Polonskys, handritahöfúndarins, sem sett ur var á svarta listann í Mc- Carthy-hreinsunum. Handrit- ið er fullt af smáatriðum, sem lífga myndina til muna, en hvergj ber á þeirri snilli Siegels, sem Godard hefur viljað halda á loft. Þokka- leg afþreying. ★★ Siegel er einn æðstu- prestanna í gerð glæpamynda og á marga aðdáendur meðal franskra nýbylgjuleikstjóra. Þessi mynd hefur ýmsa fína drætti en Siegel er þó býsna brokkgengur þarna, er á heildina er litið. Myndin ef þó aldrei leiðinleg. ★ Harðskeytt og spénnandi mynd á köflum. En er það ekki full langt gengið á þol- inmæði áhorfenda að pússa Henry gamla Fonda í hlut- verk kvennaflagara? En á meðan myndavélin beinist að þeim félögunum Guardino og Widmark er hún prýðileg skemmtun. Jarnsmíðavélor - Vélsmiðja Til sölu eru nokkrar notaðar járnsmíðavéiar i góðu ásigkomu- lagi. Einnig gæti fylgt leiga eða sala á húsnæði fyrir rekstur vélsmiðju. Tilboð sendist í pósthólf 121, Kópavogi. DRCIECR Nuddkona óskast Upplýsingar í síma 24077 og 23256.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.