Morgunblaðið - 01.07.1971, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÖAGlál 1. JÚLÍ 1971
Barrow, 29. júní — AP
SHEILA S«otl lenti nogvél
sinni ■ Barrow í Alaska í gær-
kvöldi og var hún orðin rúmum
þremur klukkustundum á eftir
áætlun í einflugi sínu yfir norð
urpólinn. Sheila Scott, scm á 88
met í flugi víðs vegar um heim,
stefnir að því að bæta cnn efnu
við með því að verða fyrst til
þess að fljúga frá miðbaug til
miðbaugs. llún lagði upp frá
Nairobi i Afríku 1. júní sl.
— Þetta er stærsti dagurinn i
lífi minu, sagði þessi hávaxna,
granna og Ijóshærða kona, eftir
að hún var lent heil á húfi. Hún
Baug tvisvar sinnum yfir flug
vöilinn, áður en lendingarhjól
ið vinstra megin kom loksins
Sheila Scott á Keykjavíkurflugvelli í maí 1969. Hún <*r
þarna að fylgjast með því, <>r eldsneyti er s<‘tt á flugvél
hen nar
Stærsti dagurinn í lífi mínu —
Sagöi Sheila Scott, er hún
lenti í Alaska
niður, en nefhjól og hægra iend
ingarhjól vélarinnar höfðu að
líkindum haldlzt niði'i allan tím
ann, frá því að frú Scott lagði
upp frá Grænlandi.
Þegar flugkonan varð fyrst
vör við þennan galla i tækjabún
aöi fl'Uigvélarimnar, voru uppi
áform urn að láta hana lenda á
Barter Island, en þar er þæki
stöð Bandaríkjamanna á norð-
austurströndinni. Síðan var hætt
við þá ráðagerð sökum slæms
skyggnis og snjókomu.
Sheila Scott átti upprunalega
að lenda í Barrow um kl. 9,00
(staðartimi), en það var ekki
fyrr en eftir miðnætti, sem
henni tókst að lenda. -— Ég
átti mjög iítið eldsneyti eftir,
sagði hún eftir lendinguna, —
ef til vill 10—12 litra.
En hún er samt alveg óbuguð
og hyggst halda áfram ferð
sinni og koma m.a. við á Honu
lulu og Ástralíu.
Danmörk og
Kanada deila
um litla eyju
DANIK og Kanadamcnn deila
nii hart um eignarrétt yfir
lítilli «‘yja í Naressundi, norð-
ur af Thule sem heitir Hans-Ö.
Eru aliar líkur til að málinti
verði xísað til alþjóðadóm-
stólsins i Haag, því hvorugur
aðilinn virðist líklegur til að
gefa sig. Bitbeinið er ekki
merkilogt að sjá. Hans-Ö er
um einn kilómetri á lcngd og
nokkur hundruð metrar á
breidd og þar býr ekki nokk-
ur lit'andi maður.
Ástæðan fyrir þvi að báð-
um þjóðunum er svo annt um
hólmann er sú að á þessum
slóðum verður gerð mikil
olíuleit á næstu árum, og það
land sem á hann fær mun
stærri hluta af landgrurnninu.
Danir segja að þeirra kort
sýni að Hans-Ö sé daniskt
land. Danii- segja að eyjan
liggi mun nær Grænlandi en
Kanada, en Kanadamenn
svara því til að þeir hafi rekið
þar vísindastöð.
Eftir því sem bezt er vitað
mun eyjan heita eftir eskimóa
frá Thule, sem hét Hans.
Hanm tók árið 1870 þátt í leið-
angri Charles Francis Hall,
sem lézt mjög snögglega í
þeirri ferð. Er talið að skips-
Krossinn sýnir hvar Hans-Ö
liggur í Nares-sundi.
læknirinn hafi ráðið honurn
bana. Amnað er ekki vitað um
eyna, nema hvað eskimóar
frá Thule hafa farið þangað
í veiðiferðir án þess að nokk-
ur amaðist við þvi, enda eng-
inn haft sérstaka ágimd á
eynni hingað til.
Ef þetta fer áfram til Haag,
verður það annað land-
grunnsmálið sem alþjóðadóm-
stóllinn fjallar um. Danir og
Hollendingar töpuðu slíku
máli gegn Vestur-Þýzkalandi,
og urðu að láta af hendi tölú-
vert landgrunnssvæði í Nörð-
ui-sjó.
Til blaðamennsku-
náms í Noregi
FYRIR nokkru barst Blaða-1
mannafélagi íslands boð frá
Norsk Journalistskole í Osló um
að senda þangað einn íslenzkan
nemanda til tveggja ára náms
í blaðamennsku. Norræna húsið
í Reykjavík hefur haft forgöngu
um þetta mál, og hefur fram-
kvæmdastjóri þess, Ivar Eske-
land, aflað margvíslegra styrkja
í samvimnu við stjórn Blaða-
mannafélagsins. Á nemandiiin að
geta síundað námið sér að
kostnaðar’ausu.
Þannig hefur Studentbyen í
Osló útvegað húsnæði og Norr-
æna félagið í Noregi gfeiðir
húsaleiguna. Norræna húsið i
Reykjavík kostar ferðina frá
Reykjavík til Oslóar. Þá hefur
rxmska blaðið Aftenposten veitt
Hrafnistufólk
í skemmtiferð
LAUGARDAGINN 19. júní var
vistfólki á Hrafnistu boðið í
skemmtifcrð til Skálholts. Kiw-
aniskliihbnrinn Hekla stóð fyrir
boðinn ásanit Kiwanisklúbbmun
Kntln, sem la-gði þeini lið.
Ferðarinmar nutu um 130
mamhs, og var farið i bílium Kiw
emiisféliaga og voru auik eigimkon-
inr þeirra sumra til aðstoðar og
fleia'i.
Veðrið var ákjósanlegt og ferð
tn öil ámægjulieg og óhappalaus.
Fyrst var áð i Hveragerði og
síðan farið sem leið lá að Skál-
holti og kiirkjan skoðuð. Staðar
prestur héit helgistund og lýsti
staðnum i stuttu málii. Á eftir
var útbýtt gosdrykkjum tiil við-
staddra, sem vildu. Síðan var ek-
ið yfir Lyngdalisheiði til Þing-
vaiMa og þegið kaffi. Áfram var
hal|dið yfir Mosfellsheiði og
heim. Eiga aliir þeir, sem sáu um
frámkvæmdir ferðarinnar og
lögðu fram lið sitt að einhverju
leyti, miklar og kærar þakkir fyr
ir góöar veitingar og ánægjulega
ferð. Þökk sé ykkur öllum.
ríflegan styrk, svo og Ludvig
Braathen, útgerðarmaður. Þá er
þess að vænta, að unnt verði að
fá einn þeirra fimm heilsárs-
styrkja, sem eru á fjárlögum í
Noregi fyrir íslenzka námsmenn.
Þessir ríkisstyrkir eru í umsjón
Norræna félagsins í Noregi.
Einn íslenzkur nemandi hefur
áður verið í Norsk Journalist-
skole. — Blaðamannaíélagið aug-
lýsti fyrir nokkru boð norska
skólans, og hefur Sigrún Stefáms-
dóttir, blaðamaður við Motgun-
blaðið, hlotið skólavistina.
57 fisk-
tegundir
á ny
í Thames
KANNSÓKNIR á fiski i ánni
Thames, er rennur sem kunnugt
er í gcgnum London, hefur leitt
i ijós, að þar er nú að finna
57 fisktegundir. Er þessu á ann
an veg farið, en þegar síðast
voru gerðar umfangsmiklar rann
sóknir á þessu efni fyrir 13 ár
um, því þá fundust einungis ál
ar i ánni. Þessari miklu breyt
ingu til hins betra valda um-
faugsmiklar ráðstafanir til þcss
að lireinsa vatnið í ánni.
Þannig hefur vatnafiski fjölg
að mjög að nýju i ánni. Nú
eru liðin sex ár, siðan fiskur tók
aftur að ganga upp í þann hluta
árinnar, sem rennur í gegnum
London og hefur fisktegundun-
um þar fjölgað mikið síðan. Við
mynni Thamesárinnar veiðist nú
einnig bæði þorskur, ýsa og
koli.
Af hálfu hafnaryfirvaldanna í
London er fylgzt ítarlega nteð
því, hvernig fiskur er tekin að
f ganga aftur upp í Tharnes.
ferðaskrifstofa
bankastræti 7
símar
16400 12070
Mallorka er land hins eilífa sumars, umvafið hlýjum loft-
straumum sunnan frá miðri Afríku. Vetur, sumar, vor og
haust paradis þeim sem leitar hvildar, náttúrufegurðar, sól-
ar og hvítra stranda við bláan sæ.
Dýrðleg hótel í hundraðatali, jafnan fullsetin.
Þarna er allt sem hugurinn girnist, góð þjónusta og margt
að sjá. Hundruð skemmtistaða og stutt að fara til næstu
stórborga. Valencia. Barcelona, Nizza eða Alsír.
Aöeins nýtízku íbúðir og góð hótel með baði, svölum og
sundlaug.
Eigin skrifstofa Sunnu í Palma með íslenzku starfsfólki
veitir farþegum öryggi og mikiívæga fyrirgreiðslu.
sunna
travel
FLJUGVM ISOLINA
ÁMALLORCA
8-29 dagar
Frá
hr. 11.800.-