Morgunblaðið - 01.07.1971, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.07.1971, Blaðsíða 11
MOKGUNBLARLÐ, KIMMTUDAGUR 1. JÖtll 1971 Metár hjá L.R.: 305 SÝNINGAR Á LEIKÁRINU LEIKÁK Leikfélagrs Reyk.javík- ur, sem lauk 20. þ.m., varð metár í flestu tilliti. Sýningar á vegum félagsins urðu samtals 305 og er það einsdæmi í 74 ára tilveru félagsins, en í Iðnó sjálfri samtals 221 og hafa þær aldrei verið fleiri á einu leikári. Tala áhorfenda er líka hærri en nokkru sinni fyrr, eða samtals 77.676, þar af 43.338 i Iðnó og er það tveimur þúsund leikhús- gestum fleira en flest hefur orð- ið áður. Eitt leikrit, Kristnihald undir Jökli, eftir Halldór Lax- ness, var sýnt samtals 95 sinn- um frá upphafi til loka leikárs- ins, og hefur ekkert Ieikrit ver- ið sýnt oftar á einu leikári á Is- landi fyrr. Leikfélagið hafði fjórar frum- sýningar i Iðnó á Kristnihaldinu, Hitabylgju eftir Ted Willis, Her- för Hannibals eftir Robert Sherwood og Máfinum eftir Tsjekhov. Jafnframt voru tekn- ar upp aftur sýningar á Þið munið hann Jörund, eftir Jónas Árnason, en það leikrit hafði ver ið leikið samtals 102 sinnum, þegar sýningum lauk á þvi í vor. 1 samvinnu við Fræðsluráð Reykjavíkur hafði L. R. sýning- ar í leikfimisölum barnaskól- anna á Reykjavíkursvæðinu á barnaleilkriti eftir Guðrúnu Ás- mundsdóttur, Mér er alveg sama þó að einhver sé áð hlæja að mér. Þær sýningar urðu sam- tals 32 og sáu leikinn nál. 3400 börn, flest á aldrinum 7—10 ára. Og í samvinnu við Umferðar- nefnd og lögreglu sýndi Leikfé- lagið annað bamaleikrit, Krakk- ar i klipu eftir Ármann Kr. Ein- arsson. Þær sýningar voru í Austurbæjarbíói og munu flest 6 og 7 ára börn í Reykjavík hafa séð þann leik. Af öðrum nýmælum er og rétt að geta þess, að L.R. hafði á leikárinu -sýningar utan höf- uðborgarinnar, á leikritinu Hita- bylgja, en að undanfömu hafa leikferðir aðeins verið famar á sumrin, þegar leikhúsið er lok- að. Hitabylgja var sýnd 8 sinn- um utan Reykjavíkur, en 45 sinnum í Iðnó, í ráði er að sýna leikinn víðar i haust. Þá hafði Leikfélagið sem kunnugt er nálega í allan vetur miðnætursýningar i Austurbæj- arbíói á Spanskflugunni, til að safna fé í húsbyggingarsjóð Þarna er verið að smíða brú, þar sem engin brú var áður, enda flyzt Vesturlandsvegnr æði mikið til við botn Kollafjarðar við nýju vegarlagninguna, eins og sjá má á myndinnL Ljósm. Sv. Þorm. sinn. Aðsófcn var einstök: alls munu 28.560 manns hafa séð sýninguna og var ekkert lát á eftirspurn. Spanskflugan er nú í leikför á Norður- og Austur- landi, og eru þær sýningar að sjálfsögðu ekki taldar með í tölunum hér að ofan. Þar er heldur ekki talinn með popleik- urinn Óli, sem Litla leikfélagið sýndi í Tjarnarbæ um 20 sinn- um í haust. Rúmlega 40 leikarar tóku þátt í sýningum L.R. í vetur, eða svipað og undanfarin ár. Tvö leikrit hafa verið æfð í vor fyr- ir sýningar í haust, Plógurinn og stjörnurnar eftir O’Casey og Hólpinn eftir Edward Bond, en auk þess verða sýnd að nýju Kristnihaldið og Máfurinn, sem tekin voru út í fullum gangi í vor. Skólastjóra vantar FRÆÐSLUMÁLASTJÓRI hefur auglýst tvær skólastjórastöður lausar til umsóknar, með um- sóknarfresti til 20. júlí. Eru það stöður skóiastjóra við Banna- skólanin í Nedkaupstað og Baima- og unglingaskólanin á Eiðum. HÚN ER ROMIN! ... hljómplatan langþráða béra écgcbPan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.