Morgunblaðið - 01.07.1971, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.07.1971, Blaðsíða 19
MORGUNBLA.ÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚLt 1971 19 í KVIKMYNDA HÚSUNUM -k-k-kk Frábær, ★★★ mjög góð, ★★ góð, ★ sæmileg, O léleg, Sig. Sverrir Pálsson Erlendur Sveinsson fyrir neðan allar hellur, Sæbjörn V aldimarsson Háskólabíó: „AFRAM- KVENNAFAR‘ Safarl leiðangur: þátttakendur Inigo Tinkle og aðstoðarmaður hans, Chumley. Lady Evelyn og BiU Boosey, sem lítur lafðina hýru auga. Skammt frá tjaldbúð unum er aðsetur Jungle Boy, sem verður yfir sig hrifinn af þernu lafðinnar og hefur hana loks á brott með sér. Lafðin hafði áður verið í 'brúðkaupsferð á þessum slóðum fyrir tuttugu árum, en þá hurfu bæði sonur hennar og maður og voru taldir af. Umsetin af illvigum mannæt- um og öðrum hætturn frumskóg arins, fer þó rétt að brydda & öðrum staðreyndum. k Með slakari Carry-on myndum. Broddurinn á þeirri tæpitungu, sem þessar mynd ir byggja nær eingöngu á, er mun slævðari hér en t.d. í „Áfram læknir“. Þetta er nítjánda „Áfram“-myndin, og von á fleirum, enda einkunn arorð framleiðendanna: — „Lengi er von á einmi“. ★ Uppstillt og „leikhúsleg" kvikmynd, gerð til þess eins að vera skemmtileg, og tekst það dável. Aðstæðurnar, sem „Carry on“ fólkið lendir nú í, leiða af sér ágætar hug- myndir eina og Tarzan apa- fóstra og skjaldmeyjar, og að sjálfsögðu eru enskir samir við sig, hvar í landi, sem er. k Þessi mynd reynir ekki að vera annað' en skemmti- lega vitiaus, og nær því há- leita marki stöku sinmum með hjálp tvíræðra brandara. Tónabíó: „HART A MÓTI HÖRÐU“ Eftir árslanga útivíst í Kletta- fjöllunum, er loðdýraveiðimaður- Inn Joe Bass aftur á leið tíl byggða. Hann hefur þó ekki langt farið, þegar hópur indíána ræðst 4 hann, tekUT af honum loðskinn in og eftirlætur honum í stað- inn svartan strokuþræl. Á með- an að indíánamir gleðjast yör feng sínum verða þeir fyrtr árás höfuðleðraveiðara, sem feila þá alia, vitandi um þá 25 dollara, sem stjórnin greiðir þeim fyrir hvert kollskinn. í»eir Joe Bass og þrællinn veita höfuðleðraveiðurunum eftirför. en þegar þrællinn er að reyna að ná hestinum mieð loðskinnaklyfjun- um, er hann handsamaður og á- kveður foringi þorparanna að selja hann á þrælamarkaði. Joe Bass þarf nú að beita allri hug- kvæmni sinni við að ná aftur eigum sínum af ofureflinu og verður atburðarásin hin æsileg- asta. kk Kunnáttusamlega gerð, í umhverfi, sem verður sjálift þátttakandi í atburðaréxsinmi. Aðalstyrkur myndarinnar er kímnin, samtölin og samleik ur Lancasters og Davis. Veiði máðurinn og þrællinin verða tákn jafnréttis, því báðir hafa þroskað aðlögunarafl manneðHsins, hvor á ainn hátt. ★★ Góður vestri af gamla skó'lanum. Vondir menn og góðir indíánar. Sidney Poi lack er vaxandi leikstjóri og er myndin á köflum bráð- skemmtileg. Ossie Davis er afbragða gamanleikari og hestarnir sýna furðu mikla leikarahæfileika. Nýja bíó: FORNAR OGNIR Þegar verið er að grafa ný neð anjarðargöng í London, finnast hauskúpur og beinagrindur, sem taldar eru 5 millj. ára gamlar. Auk þess finnast óþekkt fluig- skeyti. Bæði fornleifa- og eld- flaugasérfræðingar eru kvaddir á vettvang, og sitt sýnist hverjum um skýringu á þessu fyrirhrigðí. Samkvæmt ósk varnarmalaráðu- neytisins, er gefin út yfirlýsing um að þetta sé þýzk sprengja, og fréttamönnum boðið að skoða gripinn. En sem þessu vindur fram, kemur í ljós að sögur um mikla reimleika hafa fylgt þess- um stað frá ómunatíð. Virðist þetta furðuferlíki gætt einhverj- um yfirnáttúrlegum krafti, og tryllir flesta þá menn sem nærri því koma . . . ★ Þokkalega gerð tæknilega, en sá vísinda- og hjátrúarfulli hrærigrautur aem er uppi- staða myndarinnar, er harla fjarlægt og einskisvert um- hugsunarefni. Þægileg dægra stytting fyrir ímyndunarrlka áhorfendur. O Mjög langsótt og lítið upp byggilegt hugmyndaflug býr að baki efninu. Útfærslaþess með tæknibrellum og óvenju legum sviðsmyndum svo af káraleg og vitlaus, að ótrú- legt hlýtur að teljast, að full þroska fólk skuli fást við svona iðju. Austurbæjarbíó: „BULLITT4 Johnny Ross, mikilvægt vitni fyrir Chalmer, framgjaraan stjórn málamann, þarfnast verndar og er Bullit, (Steve McQueen) ásamt mönnum sínum Degletti og Shant on skipaður í starfið. Þeim vinnst illa í fyrstu, þvi bæði Ross og Shanton er skotnir í hótelher- bergi Ross. Þeir eru fluttir á sjúkrahús, og er Ross deyr, smygl ar Bullit líkinu út, svo hann geti unnið áfram að málinu, því ekki virðist allt hafa verið með felldu milli Chalmers og Ross. Bullit fylgir slóð málsins, þar til hann uppgötvar, að Chalmer hafði lát- ið gæta rangs manns, hinn rétti Ross, öðru nafni Renick hefur rétt í því myrt konu sína og er í þann veginn að sleppa úr greip um þeirra með flugvél til Lond- on. Bullit og Degletti hefjast nú handa . . . Leikstj. Peter Yates. ★★★ Yates tekst að magna upp góða spennu, með hjálp frábærrar töku W. Frakers, klippingu Kellers, (Oscars- verðlaun) og músík Lalo Schifrin, sem er algjör sér- kafli. Hins vegar er efnið oft loðið og inngangurinn undir titlunum nær óskilj anlegur. Kappaksturssenan á sér eng an líka í snilldarlegri út- færslu. ★★ Fyrst og fremst ætlað að vera spennandi og tekst það svo um munar. Tækni- lega vel gerð og stundum frá bærlega, eins og í eltinga- leik Bullitts og morðingjanna. Músik Lalo Schifrins fellur vel að. Sýningareintakið er forráðamönnum hússins til skammar og það ekki í fyrsta sinn. ■k-kk Kappaksturinn á stræt um San Fransisco er ein magnaðasta kvikmyndasena sem ég hef augum litið. Leikstjórnin er mjög góð, eins kvikmyndatakan, klipp- ingin og tónlist Schifrina. Hafnarbíó: KONUNGSDRAUMUR Þegar Grikkinn Matsoukas, sem býr með fjölskyldu sinni í Chl- cago, heyrir úrskurð læknis um að sonur hans eigi í mesta lagi eitt ár eftir ólifað, segir hann: „Sonur minn mun ekki deyja.“ Matsoukas trúir ' á hinn gríska ættarstofn, og að sól og mold Grikklands geti læknað son hans, en hann vantar peninga fyrir far- inu. Eftir skírnarveizlu nokkra með freyðandi vínum og grísk- um dansi býðst Cicero vinur Matsoukas til að lána honum fyr- ir farinu, því að eiga sllkan vin, geri lífið þess virði að lifa því. En það reynist of gott til að geta verið satt Matsoukas grípur þá til örþrifaráða, sem varpa um leið ljósi á mannkosti hans. Leik- stjóri Daniel Mann. Með aðalhlut- verk fara Anthony Quinn og Irene Papas. ★★★ Zorba hefur aldrei stig ið mörg skref frá Anthony Quinn og hér fylgir hann hon um í hverju fótmáli. Lífs- þrótturinn er allsráðandi, uppgjöf er óhugsandi, jafnvel fyrir dauðanum. Andleg heilsubót í gráum hversdags- leikanum. Látlaus mynd í allri gerð, en áherzlan lögð á hið mannlega. ★ ★ ★ ★ Þetta eir kvikmynd um mannlífið, sem grípur á- horfandann hugfanginn vegna lifsþróttar aíns, en ekki vegna þess hvernig hún er gerð. Kvikmynd, sem sannar, að formið þarf hvorki að vera fagurt né frumlegt, heldur aðeins þjóna tilgangi sínum. ★ ★ Hér væri á ferðinni nokkuð hversdagsleg mynd, ef aðalhlutverkið væri ekki „klæðskerasniðið" fyrir Ant hony Quinn. Og hann fylliir það manngæzku og karl- mennsku og bregzt hvergi bogalistin í glímu sinni við Thalíu. J^.andsntátaféáa^id TJatdut Sumarferð VARÐAR Borgarfjarðarferð um Kaldadal sunnudagirtn 4. júh 1971 Farseðlar verða seWir í ValhöII við Suðurgötu 39 (s. 15411) og kosta kr. 650.00. Innifalið í verðinu er hádegisverður og kvöldverður. Lagt verður af stað frá Austurvelli klukkan 8 árdegis, stundvíslega. Farseðlar seldir til klukkan 10 í kvöld STJÓRN VARÐAR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.