Morgunblaðið - 01.07.1971, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1971
að koma börnunum
burt af malbikinu
Heimsókn til barna
að leik í Saltvík
angra og ýmsa.r heirmsóknir,
svo sem á sveitabæina hér í
kring, fuglabú sem er skammt
héðan, laxeldisstöðina og
marga fleiri staði,
í gærmorgun var bjart
veður og hlýtt og voru börnin
við ýmsa leiki þegar við kom-
um heim að bænum. Nokkrar
stelpur voru að leika sér í
rólum, aðrar voru í „yfir“,
og stór flokkur var í fótbolta.
Við fyrstu sýn virtust það
vera eintómir strákar sem
voru í fótboltanum en þegar
betur var að gáð mátti greina
inn á milli nokkur telpuand-
lit, rjóð af hlaupum og
ánægju. — Hjálmar sagði að
börnin byrjuðu venjulega
dagimn með leikjum eins og
þeim sem þau væru í núna!
— Um hádegi taka þau svo
upp nestið sitt og við borð-
um úti á túni þegar vel viðr-
ar, en amnars borðum við inni
í hlöðunni, sem nú er búið að
breyta í stóran sal. Síðdegis
er síðan farið í aðalnúmer
dagsins, þ.e.a.s. í gönguferðir,
skoðunarferðir eða einhverjar
af þeim heimsóknum, sem ég
nefndi áðan. Þegar rignir
förum við í leiki í hlöðunni,
sýnum kvikmyndir og bíó-
myndir.
Ferðirnar hófust 22. júní
síðastlíðinm og enmþá hef-
ur enginn rigningardagur
komið og hafa börnin því
FJÓRA morgna í viku aka
tvær rútur troðfullar af börn-
um með nestispakka upp í
Saltvík á Kjalarnesi. Börnin
eru á aldrinum 9—14 ára og
dveljast þau daglangt í Salt-
vík við leik og starf. — Dags-
ferðir þessar ern skipulagðar
af Æskulýðsráði Reykjavíkur
og eru sex leiðbeinendiir með
börnunum á daginn.
Alls fara um 150 börn að
jafnaði í ferðirnar og er þeim
skipt niður þannig að 9—11
ára börn fara í Saltvík á
mántidögum og miðvikudög-
um, en 12—14 ára á þriðju-
dögum og fimmtudögum. Er
þetta annað sumarið í röð
sem Æskulýðsráð gengst fyrir
þessum ferðum og 75% þeirra
sem tóku þátt í ferðunum í
fyrra gera það einnig í sumar
og talar þessi prósenttala síiui
máli um hve ferðirnar eru
vinsælar meðal barnanna.
Megintilgangur ferðanna
er sá, að koma börnunum
burt af malbikinu, sagði
Hjáimar Hannesson kennari
og umsjónarmaður er við
heimsóttum Saltvík í gær-
morgun. Þó að Saltvík se ekki
langt frá Reykjavík, þá gefst
börnunum þó tækifæri á að
komast í anertingu við nátt-
úruna og daglegt líf í sveit.
Þau fara í fuglaskoðunar-
ferðir, fjailgöngur, fjöruleið-
(Ljósm. Mbl.: Kr. B.)
Hluti barnahópsins í fjöruleiðangri
getað verið mikið úti og eru
orðin útitekin og hraustleg.
í fyrra var hins vegar mjög
óhagstæð tíð og lítið hægt að
vera úti við, en Hjálmar sagði
að svo virtist sem ótíðin þá
hefði ekki haft nein áhrif á
börnin því þau hefðu verið
alsæl dagana í Saltvík og
viljað koma aftur í ár. — Eins
og áður segir eru leiðbein-
endur á námskeiðinu 6 tals-
ins, en auk þeirra er staðar-
ráðsmaður í Saltvík yfir
sumartímann ásamt konu
sinni. Auk Hjálmars, sem er
kenmari að mennt, eru leið-
beinendurnir þessiir: leikar-
arnir Jón Gunnarsson og
Ketill Larsen, Magnús Magn-
ússon háskólastúdent, Skarp-
héðinn óskarsson kennara-
skólanemi og Þóra Friðieifs-
dóttir nemandi í Leiklistar-
skóla Þjóðleikhússins. Ailt
var þetta fólk sammála um
það að mjög gaman væri að
dveljast með börnunum i Sait
vík og sögðust þau telja að
þau hefðu fullt eins gaman
af leikjunum sem farið væri
I eins og börnin sjálf.
Dagsferðirnar í Saltvík
standa út júlí-mánuð og
kostar hver ferð 35 krónur
fyrir barnið, en í upphafi
námskeiðsins greiðir hvert
barn 100 krónur. Sagði
Hjálmar að dagsferðirnar
væru dýrar í framkvæmd, en
ef mögulegt væri yrði reynt
að fara í nokkrar ferðir í
ágúst ef áhugi væri fyrir
hendi hjá börnunum. Fjöldi
þeirra barna sem fer að
jafnaði í ferðirnar er
mjög svipaður og í fyrra
eða um 150 en hins vegar
geta fleiri börn tekið þátt í
ferðunum ef þau vilja þótt
þau hafi ekki farið í ferðirnar
frá byrjun.
Það er gott að tylla sé niðijr um hádegisbilið og fá sér
snarl úr nestispokanum
Kaldur er hann, en þó er gaman að bregða sér aðeins útí
■.■///.'s
Jón Gunnarsson á heimleið úr klettaskoðunarferð með
strákahóp.
Knattspyrnan nýtur vinsælda í Saltvík, sem annars staðar.