Morgunblaðið - 31.07.1971, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.07.1971, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1971 Fa ItÍLi LKUi i v lAit: 220-22- IRAUÐARÁRSTÍG 31l . ^±4444 Wfiim BILALEIGA HVERFISGÖTU 103 VW SeodifírWjifreií-VW 5 mnma-VW iveímn|« VW 9 m«nna - Landrovar 7manni HTIfl BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13 Sími 14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. BILALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 BÍLALEICA Keflavík, sími 92-2210 Reykjavik — Lúkasþjónustan Suðurlandsbraut 10, s. 83330. LEIGUFLUG FLUGKENNSLA Bilaleigan SEÚLATÚNI 4SÍMI15808 (10937) SENDUM bilaleigan AKBMAVT car rcntal service r 8-23-47 MUÍum 0 Hvaða álit hafa „Le Monde“ og „Der Spiegel" á ríkis- stjóminni? „Víðlesinn" skrifar: „Kæri Velvakandi! Það er eftirtektarvert, hve stjórnarblöðin kveinka sér mik- ið undan því, sem sagt er í er- lendum blöðum um stjómina og athafnir hennar (aðallega yfirlýsingar hennar að vísu enn). Morgunblaðinu hefur ver- ið álasað fyrir það ábyrgðar- leysi að birta þýðingar á þessu, eins og þjóðin megi ekki fá að sjá þetta, og í Tímanum 28. júlí er gengið svo langt að full- yrða, að ekkert sé birt annað í Mbl. en „úr grimmustu íhalds- blöðunum“ (á Norðurlöndum). Eru þá blöð jafnaðarmanna á Norðurlöndum t.d. „ihalds- blöð“? En hvað segja stjórnarsínnar um álit heimsþekkts blaðs á borð við hið virta, franska dagblað „Le Monde“? Fer það með róg og nið um ríkisstjórn- ina? Það segir fullum fetum, að kommúnistar séu í meiri- hluta í islenzku ríkisstjórninhi, af sjö ráðherrum séu tveir rétt- trúnaðar-kommúnistar, en aðr- ir tveir sértrúar-kommúnistar. Hvernig svo sem við lítum á þetta, mat, þá er það staðreynd, að þetta blað lesa allir stjórn- málamenn og fréttaskýrendur um viða veröld. Sagt hefur ver- ið um „Le Monde“, að það sé fyrsta verk flestra ráðherra í heiminum á morgnana að lesa það. Og á þessu blaði er tekið mark. Og hvað segir „Der Spiegel", sem tæplega verður kallað grimmt íhaldsblað? Þar segir í fyrirsögn 26. júU: „Islands neuer Premier koaUert in einer Volksfront mit den Kommun- isten.“ Það er einmitt þetta, sem vekur alls staðar athygU og spillir stórlega fyrir áliti stjórnarinnar erlendis: Að kommúnistar sitja að völdum á Islandi." 0 Hornhús eða ekki „Bréf til Velvakanda, 23. júlí 1971. Þakkir til Sveins Zoéga og systkina. Kæri Velvakandi! Ég er einn af þeim, sem velt hafa fyrir sér „Nýja horninu", sem hornið við Skólavörðustíg og Bankastræti nefnist nú með- al manna. Ég hefi nú gengið fyrir þetta horn svo oft í meira en hálfa öld, að ég gæti ekki greint frá neinni tölu í því sam- bandi. Skólavörðustígurinn hef- ur frá barnæsku minni verið minn uppáhaldsstígur, en oft hefi ég hugsað hve skemmti- legt það væri er hornhúsið eða helzt bæði húsin, sem eru þarna megin Bankastrætis nið- ur að Ingólfsstræti, væru horf- in. Oft um árin hefi ég stað- ið við hornið, sem verzl. Mál- arinn er nú, og hugsað mér hvernig Skólavörðustigurinn myndi líta út ef svo væri og síðan hús Zoéga hvarf hefi ég ennþá oftar staldrað við á nefndum stað og dáðst að þess- ari fallegu götu, og þótt að Skólavarðan sé horfin, sem mér í barnæsku þótti mjög vænt um, þá finnst mér að Hallgrímskirkja muni fullkom- Ýtumaður Ýtumann vantar á B.T.D. 20. Þórishamar hf., Jón E. Hjartarson, Læk, Ölfusi, sími um Hveragerði. Byggingalóðir Tvær lóðir til sölu á Seltjarnarnesi. Væntanlegir kaupendur leggi nöfn sín á af- greiðslu blaðsins fyrir þ. 4. ágúst nk., merkt: „Lóðir — 7091“. 1 1 1 1 1 @ Notaðir bílar til söl u < Volkswagen 1200' 63, '64, '65, '67, '68 og '69. Volkswagen 1300 '66, '67, '68, '69, '70 og '71. Volkswagen 1302 S 1971. Volkswagen Fast Back 1967. Volkswagen 1600 L 1968. Volkswagen Variant 1967 og 1969. Land Rover, diesel, 1963 og 1964. Skoda 1000 MB 1968. Mercedes-Benz 200 D 1966. HEKLA hf. Laugavegi 170—172 — Sími 21240. lega bæta það tjón. Ég hefl stundum velt því fyrir mér hvað valdið muni hafa þessu horni upprunalega, og þá hef- ur mér helzt dottið í hug kým- ar úr Eymundsensfjósi. Nú finnst mér að bygginganefnd og skipulagsnefnd Reykjavíkur borgar og borgarráð hafi hlot- ið einstakt tækifæri til að leið- rétta þessa misfellu Skóla- vörðustígs svo að komandi kyn- slóðir mættu daglega gleðjast yfir þessari fallegustu götu gamla bæjarins og horft á hinn glæsilega turn Hallgrímskirkju og heyrt hljómana koma svo bjarta og heillandi niður hæð- ina án þess að brotna á þessu óþægilega horni. Svo vil ég al- veg sérstaklega þakka Sveini Zoéga fyrir skemmtilega grein- argerð í útvarpsþættinum 15. þ.m. og hve vinsamlegur hann var gagnvart slikri breytingu eða leiðréttingu og vissulega eiga borgaryfirvöld að bæta þeim systkinum þann skaða, sem þessi leiðrétting kann að valda þeim, svo vel sem rétt- mætt þykir. Þó að ég hafi ekki látið heyra til min fyrr um þetta mál þá hefi ég brennandi áhuga fyrir þvi, að þessi leið- rétting verði gerð, þannig að hið nýja hús myndi beina linu frá neðsta húsinu þeim megin Skólavörðustígs, þá fyrst finnst mér að leiðréttingin sé fullkomin. Ég hefi rætt við ýmsa um þetta horn og engan hitt ennþá, sem ekki hefir ein- dregið óskað þess að þetta ein- Stæða tækifæri yrði notað til þess að fá þetta horn undir Skólavörðustíginn. Sigurbergur Árnason, Eskihlið 5.“ 0 Þegar Gunnar Pálsson og Stefán íslandi sungu á ms. Goðafossi Pétur Björnsson, skip- stjóri, skrifar: „Sólvallagötu 1, Rvík, 23/7 1971. Kæri Velvakandi! Ég er að enda við að hlusta á samtalið við Gunnar Pálsson, fyrrv. söngvara, í útvarpinu. Eins og kom frain í viðtalinu við Gunnar, var hann hér áður vel þekktur og vel látinn söngv- ari, bæði í útvarpinu og á söng- skemmtunum. Meðan ég var að hlusta á þetta samtal rifj- aðist upp fyrir mér atvik frá löngu liðnum tíma. Persónu- lega var ég hrifinn af Gunnari sem söngvara; hann var ekki einungis gæddur hljómfagurri söngrödd, framkoma hans var öll svo alúðleg og yfirlætislaus. Gunnar ferðaðist oft með skipi því, sem ég var á, og ég segi fyrir mitt leyti: ég hlakk- aði til að hafa hann með á leið- inni, því það var ekki einungis það, að hann var ólatur við að taka fyrir okkur lagið, heldur var hann I alla staði sérstak- lega aðlaðandi maður, sem gam an var að eiga orðræður við. Það er sérstaklega eitt atvik frá þessum tímum, sem ég minnist glögglega, en því mið- ur man ég ekki hvaða ár það var, en hefur líklega verið skömmu fyrir 1940. Það var á ms. Goðafossi (Goðafoss nr. 2) á miðju sumri og ferðinni var heitið norður á Akureyri sam- kvæmt áætlun skipsins. Einn af farþegunum með skipinu norð- ur var Stefán Islandi. Hann var að fara I söngferð og hélt söng- skemmtanir á þeim stöðum, sem komið var við á á norður- leiðinni. Við komum við á Siglufirði og lögðum af stað þaðan kl. 10 árdegis. Þetta var um háannatímann á Siglufirði og nokkuð margt fólk tók sér far með skipinu til Akureyrar. Þetta var sérstaklega kyrr og bjartur sumardagur, og þegar við vorum búnir að beygja inn I Eyjafjörðinn gekk ég niður I reykskálann, því ég hafði séð mann koma um borð í skipið, sem mig langaði til að hafa tal af. Þegar ég kom niður í reyk- skálann voru þar staddir fyrir þeir Stefán Islandi og Gunnar Pálsson. Þar voru líka fyrir nokkrir menn frá Akureyri, sem þekktu Gunnar frá fornu fari, og þeir fóru að biðja Gunn ar að taka nú lagið fyrir þá. En Gunnar svaraði: „Ég syng ekki þegar Stefán Islandi er viðstaddur, það á ekki við.“ En þegar kunningjar Gunnars héldu áfram að nudda í honum þá stendur Stefán upp og seg- ir: „Syngdu bara fyrir okkur, Gunnar, og svo syng ég með og við syngjum öll!“ Það var hljóðfæri í reykskálanum og kona nokkur bauðst til að spila undir. Og úr þessu varð svo söngur, sem ég gleymi aldrei; þetta var sá skemmti- legasti söngur, sem ég hef heyrt um borð í skipi. Sem sagt: þessi söngur I samein- ingu með hinum hlýja og bjarta sumardegi, hafði svo sterk áhrif á mig, að ég hefi aldrei gleymt því; ég bókstaf- lega sá eftir að þurfa að fara upp í brú, þegar við vorum komnir inn undir Akureyri. Pétur Björnsson." TIL ALLRA ÁTTA NEW YORK Alla daga REYKJAVfK OSLÓ Mánudaga Miövikudaga Laugardaga KAUPMANNAHÖFN Mánudaga Miðvikudaga Laugardaga L0FTLEIDIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.