Morgunblaðið - 31.07.1971, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.07.1971, Blaðsíða 5
MORGÚNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1971 5 Auka þarf fræðslu og umræð- ur um utaníkismál Rætt við formann og varaformenn Varðbergs í tilefni af 10 ára afmæli félagsins VARÐBERG, félag ungra áhugamanna um vestræna samvinnu í Reykjavík, er 10 ára um þessar mundir. Af þessu tilefni sneri Morgun- blaðið sér til formanns Varð- bergs, Jóns E. Ragnarssonar, og varaformanna félagsins, Ólafs Ingólfssonar og Sig- þórs Jóliannssonar, og lagði fyrir þá spurningar um störf Varðbergs og afstöðu þeirra til Atlantshafsbandalagsins. — Jón, hver var aðdragand- inn að stofnun Varðbergs? — Aðdragandinn var sá, að áhugamenn um vestræna sam vinnu í lýðræðisflokkunum þremur, Alþýðuflokknum, Fram sóknarflokknum og Sjálfstæðis- flokknum, komu saman og ákváðu að stofna félag í þessu skyni. Þátttaka í félaginu er þó ekki bundin við félaga í þess- um þremur stjórnmálaflokkum; hún er öllum áhugamönnum um þessi efni heimil. En sú venja myndaðist í upphafi, að stjórn félagsins skipa þrír menn frá hverju þessara stjórnmálafé- laga, og fulltrúar þeirra skipt- ast árlega á að hafa for- mennsku á hendi í féiaginu. Varðberg var foi’mlega stofnað 19. júlí 1961. — Hvert er svo hlutverk fé- lags, þar sem saman ltoma ung- ir menn úr þremur óiíkum st jórnmála flokkum ? — Lög félagsins segja til um það, heldur Jón áfram, en þar segir m.a., að tilgangur félags- ins sé að efla skiining meðal ungs fólks á Islandi á gildi lýð- ræðislegra stjórnarhátta og mik ilvægi samstarfs lýðræðisþjóð anna til verndar friði. Það er tilgangur félagsins að vinna gegn öfgastefnum og öfgaöflum og ennfremur að mennta og þjálfa unga áhugamenn í stjórn málasitarfsemi með þvi að aifla glöggra upplýsinga um markmið og starf Atlantshafsbandalags- ins og með því að aðstoða í þess um efnum samtök og stjórnmála félög ungs fólks, er starfa á grundvelli lýðræðisreglna. Auk þessara hugsjóna er samvinna þessara þriggja flokka, sem stað ið hefur frá því, að Island mðt- aði sína ulanríkissteínu, ákaf- lega þýðingarmiki'l. Þótt sam- vinnan hafi stundum verið nán- ari, verður umfraín allt annað að varðveita samstöðu lýðræðis- sinna í utanríkis- og öryggismál um. — Hvað hefur Varðberg gert á liðnum tiu árum til þess að þjóna þessu hlutverki, Sigþór? — Málstaður Varðbergs hef- ur fyrst og fremst verið kynnt- ur með því að fá bæði innlenda og erlenda fyrirlesara á fundi hjá félaginu. Sú venja komst fljótt á að halda hádegisverðar- fundi, þar sem fyrirlestrar þess ir eru haldnir, og sú venja helzt enn. Auk fyrirlestranna hefur Varðberg gengizt fyrir ráðstefnum hér í Reykjavík og úti á landi um viðfangsefni fé- lagsins. Varðberg hefur einnig skipulagt kynnisferðir til höf- uðstöðva Atlantshafsbandalags- ins í París og síðar í Briissel og raunar víðar um Evrópu og til Bandaríkjanna. Þá hefur fé- iagið einnig gefið út tímaritið Viðhorf, • þar sem innlendir og erlendir aðilar hafa ritað grein- ar um vestræna samvinnu. -f- Hvaða starfsemi er á döf- inni um þessar mundir, Ólafur? Við höfum ákveðið að halda námskeið úti á landi í september. Þetta verður upprifj unarnámskeið fyrir forvigis- menn félagasamtaka um helztu þætti og foi’sendur i utanríkis- málastefnu íslands. Síðan höf- um við i hyggju að haida ann- að námskeið í október, þar sem æskilegt hefði veiið. Kynnisferð irnar hafa legið niðri að únd- anförnu vegna mikils ferða- kostnaðar, sem við höfum ekki ráðið við. ,— Á undanförnum árum hef- ur mjög lítið farið fyrir almenn anlegan hljómgrunn. Ástæðan er eflaust sú, að Islendingar hafa ekki svo ýkja mikinn áhuga og skilning á þessum mál efnum, nema í skyndilegum og oft nokkuð öfgafullum hviðum. Þetta hefur að minum dómi orð- ið til þess að umræður og skoð- anaskipti um þessi efni hafa ekki verið viðhlítandi hér á landi. — Sigþór, nú hefur ný rikis- stjórn boðað breytta stefnu gagnvai’t vai’narliðinu i Kefla- vik. Hvaða afstöðu hefur Varð- Sigþór -Jóliannsson, Jón E. Ragnarsson og ölafnr Ingólfsson. kennd verða fundai'sköp og regl ur, sem gilda á alþjóðlegum ráð- stefnum. Þetta er gei’t til þess að auðvelda félögum virka þátt töku á slíkum ráðstefnum. Þá gerum við einnig ráð fyrir að haida þrjá fundi í október. Það er ætlunin að koma út vand- aðri útgáfu af Viðhorfum í haust, en fjárhagserfiðleikar hafa valdið því, að útgáfan hef- ur ekki verið eins mikil og um umræðum um utanríkis- mál hér á landi. Hefur Varðberg ekkert aðhafzt til þess að ýta undir almennar um- ræður um þessi efni, Jón? Það má vera, að félagið hafi ekki beitt sér nægjanlega fyrir opnum umræðum um utan- ríkis- og varnarmál. Það hefur þó gert ýmislegt í þessu skyni, án þess að það hafi hlotið nægj- (Ljósm. Mbl. Br. H.) berg tekið til þessara nýju við- horfa ? — Það er x’étt að taka það sérstaklega fi'am, að félagið helgar sig einungis utanrikis- málefnum, en hefur engin af- skipti af innanríkismálum. Þetta atriði hefur enn ekki komið til formlegrar umræðu i félaginu. — Jón: Það er bezt, að það komi skýrt fram, að Varðberg byggist á samvinnu einstakl- inga úr þremur stjórnmálaflokk um og í samræmi við það hefur féiagið lýst því yfir, að það hafi ekki afskipti af innanlandsmál- um. Öryggismál íslands heyra jú í öilum aðalatriðum undir u*t- anríkismál, en það má einnig líta svo á, að málefnasamríingur ríkisstjórnarinnar sé innanríkis- mál. Persónulega hef ég ekkert á móti því, að varnarsamningur ínn verði endurskoðaður; það getur ekki ox-ðið til tjóns. Ég býst þó við, að slík endurskoð- un nú myndi leiða til sama eða svipaðs fyrirkomulags á vörn- um landsins eins og verið hef- ur. —- Atlantshafsbandalagið hef ur megnað að stöðva útþenslu- stefnu Sovétrikjanna og þann- ig hefur friður verið tryggður með valdajafnvægi. Stjórnmáia- ástandið í Evrópu hefur að ýmsu leyti breytzt og spenna þjóða í milli minnkað. Hver eru framtiðarverkefni Atlantshafs- bandalagsins með tilliti til þessa, Ólafur? — Sovézka kenningin um „friðsamlega sambúð“ hefur breytt eðli andstöðunnar gegn vestrænum ríkjum, en ekki grundvallarmálunum. Það má segja, að Atlantshafsbandalagið gegni nú tveimur meginhiutverk um: í fyrsta lagi að viðhalda nægilegum herstyrk og stjórn- málalegri samstöðu til þess að koma í veg fyrir árásir og vernda aðildarríkin. 1 öðru lagi má svo í skjóli þessarar sam- stöðu og herstyrks kanna leiðir til traustari samskipta, er byggja mætti á lausn stjórnmála legra ágreiningsmála. Þannig kanna bandalagsríkin nú leiðir til afvopnunar og möguleika á þvi að dregið verði úr vopna- búnaði, án þess að valdajafn- vægi raskist. Þessar tilraunir verða auknar og bera vott um vilja bandalagsríkjanna til að draga úr spennu gagnvart aust- rænum rikjum. Þá er rétt að geta þess, að visinda- og menn- ingarstarfsemi hefur færzt mjög Framhald á bls. 18 Ferðaúrvalið hjá ÖTSÝN FERÐA-ALMANAK ÚTSÝNAR 1971 Nú þegar eru margar þessar ferðir að seljast upp Agúst: 7. NORÐURLÖND: Kaupmannahöfn með vikudvöl (má frámlengja) Verð frá kr. 16 900.00 — 10 SPÁNN: Costa del Sol, 15-22-29 dagar Verð frá kr. 15 500,00 Örfá sæti laus — 10. SPÁNN: Costa del Sol — aukaferð um London — 14. SPÁNN: Costa Brava — London, 18 dagar Verð kr. 26.800,00 Uppselt 24. SPÁNN: Costa del Sol, 8-15-22 dagar Verð frá kr. 15.500,00 Uppselt — 31. SPÁNN: Costa del Sol, 8—15—22 dagar Verð frá kr. 15500,00 Uppselt Sept: 2. SPÁNN: Costa Brava — London, 18 d. Verð frá kr. 26 800,00 Uppselt —. 4. RÚSSLAND: Leningrad, Moskva, Yalta, Odessa, London, 18 d. Verð kr. 39 800,00 — 7. SPÁNN. Costa del Sol, 8-15-29 dagar Verð frá kr. 15 500.00 Uppselt — 7. SPÁNN: Ibiza — London, 19 dagar Verð kr. 28 800,00 Nokkur sæti la> — 9. GRIKKLAND: Rhodos — London, 18 dagar . . Verð frá kr. 34.200,00 — 14. SPÁNN: Costa del Sol — London, 19 dagar Verð frá kr. 22 900,00 Uppselt — 19 JÚGÓSLAVlA: Budva — London, 17 dagar Verð frá kr. 29 400,00 Örfá sæti laus — 21. SPÁNN: Costa del Sol, 15 dagar Verð frá kr. 15 500,00 Fá sæti laus — 21. SIGLING UM MIÐJARÐARHAF — London, 15 dagar Verð frá kr. 31.000,00 Örfá sæti laus Okt: 5. SPÁNN: Costa del Sol — London, 27 dagar .. Verð frá kr. 23 500,00 Fá sæti laus TIL AÐ ANNA EFTIRSPURN aukaferðir. LONDON—COSTA DEL SOL 8. og 10. ágúst 3—4 vikur. ALLAR ÚTSÝNARFERÐIR MEÐ ÞOTUFLUGI! — SKIPULEGGIÐ FERÐ YÐAR TlMANLEGA! ÚTSYNARFERD: ÓDÝR EN 1. FLOKKS! ÓDÝRAR IT-FERÐIR EINSTAKLINGA. — ALLIR FARSEÐLAR OG HÓTEL A LÆGSTA VERÐI. FERDASKRIFSTOFAN AUSTURSTRÆTI 17 — SÍMAR 20100/23510. IÍTSÝN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.