Morgunblaðið - 31.07.1971, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.07.1971, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. JÚLl 1971 „Jón, ég vil i'kki sjá ánamaðkn nieð í ferðina." Grænt ljós alla leið „Jón, farðu ekki svona hratt.“ „Heyrðu, ertu eitthvað las- inn i bensinlöppinni, maður.“ Blessaður reyndu að kynda fram úr honum þessum.“ „Pabbi, hvar lærðir þú að keyra betur en allir hinir bíl- stjórarnir?“ Allar þessar setningar eða aðrar svipaðar heyrast ein- hvers staðar nú um verzlunar- mannahelgina og sýna, hvað fólkið er rr .gt og misjafnt. Allir hafa pó sama takmarkið, að skemmta sér. Og það er ann- ar sameiginlegur þáttur, sem aliir verða þátttakendur í, hvort sem þeim líkar betur eða verr, umferðin. Enginn ökumaður kemst hjá því að sýna, á hvaða stigi ökuhæfni hans er. Farangur, sem tekur ekkert rúm „Jón, ég vil ekki sjá þessa ánamaðka með i ferðina.“ „Hvað er þetta. Við þurf- um ekki að draslast með neitt með okkur nema síga- rettur, kók, og stelpur." „Pabbi, af hverju ræður mamma alltaf í hvaða t'ötum þú ferð?“ Hver og einn miðar útbúnað- inn og farangurinn við sínar þarfir. En þó eru það vissir hlutir, sem allir verða að taka með, því að ef þá skortir, get- ur ferðalagið farið út um þúf- ur. Bíllinn verður að fá sína að- hlynningu, því að allt veltur á að hafa hann góðain. Nauð- synlegustu hlutir eru viftu- reim, kveikjulok, kveikjuham- ar og platinur. Þó er enn ótal- inn sá farangur, sem ekkert rúm tekur, en það er gott skap og ábyrgðartilfinning. Það fer ekkert fyrir þessu, en getur þó orðið til þess að ferðin verði skemmtilegri og allir komist heilir heim. Bezti ökumaðurinn „Jón, ég vil engan kapp- akstur og þú ferð ekki fram úr vegheflinum." „Nú tökum við bremsu- lausa keyrslu og komum með glóandi maskínu á mót- ið.“ „Pabbi, af hverju spenn- ir þú ekki öryggisbeltin eins og karlinn i útvarpinu segir að eigi að gera.“ Þegar öll þessi bílamergð þeys ist áfram, kynni e.t.v. einhver að hugleiða, hvar bezti ökumað- urinn sé í þessari löngu lest. Það er ekki torráðið, því að hann er auðvitað í hverri ein- ustu bifreið. Fiestum finnst þeir aka svo dæmalaust vel og hvaða eiginkona og aðrir far- þegar' hafa ekki þurft að hlusta á langa ræðu og skammarþulu um alla hina ökumennina, öku- fantana. Þeir sem ekið hafa lengi, mynda sér fastar akstursvenjur og reglur, sem þeir síðan reyna að fara eftir. Ef síðan kemur einhver, sem ekur í algjöru ósamræmi við þetta kerfi, hlýt- ur hann að vera hinn mesti ökuþrjótur. Nú er auðvitað ekki hægt eða heppilegt, að allir aki með sama hætti, en vissar lág- markskröfur verður þó að gera. Það eru aðeins örfá atriði, sem sérhver ökumaður þarf að hafa í huga til þess að hann geti hættulegur á mjóum vegum, sér staklega, þegar umferð er mik- il. Bezt er að einbeita sér að akstrinum og gera sér ljóst, að náttúruskoðun og akstur fara ekki saman. Haldið því jöfn- um hraða og ful’lri athygli, því að akstur er starf, sem krefst mikillar hæfni. Hvar eru ljón á vegi? „Jón, þú tekur þær ekki í bilinn þessar puttastelpur." Oft fara menn langt án öryggisbelta og stundum of langt. „Það var gaman að kynnast þér, Bjössi.“ „Blessaður, við þurfum ekki að draslast með neitt með okkur nema sígarettur, kók og stelpur." með góðri vissu sagt, að hann sé góður ökumaður. Gott ráö „Jón, keyrðu hægt og hleyptu engum fram úr þér, svo að við lendum ekki í slysi.“ „Allt i lagi. Nú verður banasigling svo að við höf- -um ekki tíma til að lenda í „krassi“.“ „Pabbi, gáðu hvað bíllinn kemst hratt.“ Bezta leiðin til þess að forð- ast umferðarslysin er sú að aka alltaf og án undantekninga, með aðgæzlu, þar sem ökumað- urinn sér eða veit, að hætta getur vei-ið á ferðum. Þá þarf ekki að óttast neinar hættur nema þær óvæntu, t.d. að bif- reiðin bili eða eitthvað annað óviðráðanlegt. Hér er síður en svo átt við að ekið sé með ein- hverjum lúsarhraða og mörg- um bifreiðum haldið fyrir aft- an í langri og leiðinlegri strollu. Ef einhver af sérstökum ástæð- um verður að aka hægar en hinn almenni umferðarhraði er, þá verður hann að víkja til Hliðar, gefa stefnumerki, til þess að þeir fyrir aftan geti hald ið áfram sinni ferð óhindrað. Bæði of hægur og of hraður akstur leiðir af sér sífelldan framúrakstur, sem er mjög „Pabbi, af hverju ræður mamma alliaf í hvaða fötum þú ferð?" „Ókei, fullt gas, grænt ljós alla leið.“ „Pabbi, þarna er bensín- tankurinn, sem þú keyrðir á í fyrra.“ Það eru mörg ljón á veginum, sem islenzkir ökumémn þekkja vel. Sérstaklega verður að fara með gát, þar sem blint er, svo sem á hæðum og beygjum. Einn ig hafa vegræsin reynzt mörg- um skeinuhætt, þar eð þau ganga all oft inm í veginm og þrengja hann tid muna. Þá hef- ur líka margur komið heim brotna framrúðu, sem molazt hefur af steinkasti. Flest verða framrúðubrotin þegar bifreiðar mætast og á þanm hátt, að öku- maður ekur á stein, sem bifreið hefur kastað út frá sér, þegar mætzt var. Öruggasta ráðið er því að draga úr ferðimm og víkja vel til hliðar. Ef bifreiðin bilar, verður að leggja henni út í vegarkantinn eða útskot, ef það er fyrir hendi. Sérstakliega þarf að gæta þess að ekki sé verið að gera við þeim megin við bifreiðina, sem að veginum smýr. Ef t. d. springur ó öðru hvoru vinstra hjólinu, á að leggja bifreiðinni út í vinstri vegarbrún. Börnim geta líka verið í mikilli hættu við þessar aðstæður, ef þeim er leyft að leika sér fast við vag- inn. Ef ekki er hægt að komaist á verkstæði eða gera við af eigin rammleik, má reyna að ná í vegaþjónuistubifreiðir FÍB, amn- að hvort með því að ná í ein- hverja af talstöðvarbifreiðunum eða með því að hringja í Gufu- nesradió í síma 2 23 84. Á grænu ljósi : Eins og sést hér að frainaii eru þær margar setningarn- ar, sem sagðar eru um þessa miklu umferðarhelgi og ferða mátinn af ýmsu tagi. En í raun og veru er það aðeins fátt, sem hver ökumaður þarf að liafa hugfast, til þess að aka heilum vagni heini. ir Áður en lagt er af stað þarf að athuga bifreiðina vel, öryggisútbúnað, loft í hjól- börðum, hvort bifreiðin sé rétt hlaðin o.s.frv. ★ í akstri eiga öryggisbeltin að vera spennt og börnin aS sitja í aftursætinu. ir Á þjóðvegum á að lialda jöfntim hraða í samræmi við umferðina, ekki of hægt og ekki of hratt, og haga akstr- inum alltaf i samræmi við aðstæður. •k Þegar bifreiðum er mætt þarf að vikja vel til hægri til þess að komast hjá því að brjóta rúður hjá öðrum eða sjálfum sér. ir Ef stanzað er einhvers stað- ar, má það aldrei vera á veginum, þannig að hætta geti stafað af. ir Verið i góðu skapi og lítið ekki á umferðina sem kupp- akstur, heldur sem skemmti legt ferðalag. GÓÐA FERÐ. Frá Umferðarráði. Bifreiðin er biluð „Jón, vertu fljótur, Mér leiðist að sitja í bílnum svona uppi á tjakknum." „Blessaður. Þetta „meikar ekki sens“. Við skellum vara dekkinu uudir og leitum að hinu hjóiinu í heimleiðinni.“ „Pabbi, er ekki vont að „Við skellum varadekkinu undir keyra á felgunni svona og leitum að hinu hjólinu i lengi?“ heimleiðinni.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.