Morgunblaðið - 31.07.1971, Side 18
J
18
teÖRGtJNBLAÐÍÐ, LAUGARDAGUR 3Í.' JÚU 1971
Fishing News um 50 mílurnar:
Uggur og gremja í Grimsby
og Hull en raunsæi boðað
FISHING News slær upp á
forsíðu frétt um að opinber
tilkynning frá islenzku ríkis-
stjórninni um 50 milna land-
helgina sé væntanleg, skýrir
frá viöbrögðum fulltrúa sjó-
manna og togaraeigenda í
Hull og Grimsby og segir frá
heimsókn þingmanns Hulls,
James Johnsons, í islenzka
sendiráðið í London og brezka
utanríkisráðuneytið.
1 Sslenzika sendiráðinu var
Johnson þingmanni sýnt, að
sögn blaðsins, bréf, sem sent
yrði brezka utanríkisráðu-
neytinu um 50 mílurnar, og
um heimsóknina i utanríkis-
ráðuneytið hafði hann þetta
að segja: „Ríkisstjórn okkar
vill forðast að hiti komist í
málið, því að við verðum að
geta rætt mállð af sanngirni
og kynnzt sjónarmiðum
hver annars.“
Blaðið segir, að almennur
uggur sé ríkjandi í brezkum
fiskiðnaði þar sem Bretar geti
misst fiskimið þar sem þeir
hafi fengið allt að fjórðungi
þess afla, sem landað hafi
verið í Bretlandi. Jonathan
Watson Hall, formaður sam-
bands fiskiskipaeigenda í Hull
segir, að færi Islendingar
landhelgina út í 50 mílur og
íari aðrar þjóðir að dæmi
þeirra, sé úti um veiðar
Breta á fjarlægum miðum,
því að öðrum miðum sé ekki
til að dreifa. „Við yrðum að
rífa gömlu skipin og kannski
yrðum við að selja nýju sikip-
in íslendingum. Það yrði stór-
kostlegt að fylgjast með þvi
að skip okkar sigldu frá Is-
landi með íslenzkum áhöfn-
um kannski til að landa aflan-
um hér í Hull,“ sagði Hall í
viðtali við blaðið.
Jack Allison, formaður
sambands fiskkaupmanna í
Hull, segir, að 50 mílurnar
hljóti að hafa gifurleg áhrif
á fisksölu í Hull og öllu Bret-
landi, þar sem suma mánuði
ársins séu helztu hafnarborg-
ir landsins háðar fiski frá Is-
landsmiðum.
Tom Neilson skipstjóri, rit-
ari félags yfirmanna á togur-
um i Hull, lætur í ljós von um
að brezka stjómin láti ekki
undan Islendingum eins og
fyrri ríkisstjómir, og segir:
„Þótt veiðarnar á Ishafi og
við Bjarnarey hafi verið held-
ur tregar, hefur fengizt góð-
ur afli við Island, og mörg
brezk skip geta stærðar
vegna ekki sótt á fjarlægari
mið. Bann við veiðum á þess-
um miðum hlýtur að hrekja
þau á nálægari mið, og fiski-
menn, sem nú stunda veiðar á
þeim slóðum, eiga fullt í
fangi með að framfleyta sér.
Færi Islendingar út fiskveiði-
takmörkin, hljóta fiskbirgðir
okkar að minnka stórkost-
lega, og líklegt er að verð
hækki svo mikið að fáir muni
hafa efni á að kaupa fisk.“
Bill Letten, formaður sam-
bands fískiskipaeigenda í
Grimsby, sagði, að knúið yrði
eins fast og frekast væri
kostur á brezku stjórnina um
að verja hagsmuni brezks
fiskiðnaðar. J. Nunn skip-
stjóri, ritari togaraeigenda-
félagsins í Grimsby tók í
sama streng, lagði áherzlu á 1
að samstöðu allra, sem hags- |
muna ættu að gæta og kvaðst .
vona að heilbrigð skynsemi
mundi sigra og að umræður I
um málið yrðu alþjóðlegar.
Fishing News vitnar að
lokum í enn einn fulltrúa tog-
araeigenda, Nigel Marsden,
og segir að margir muni lík-
lega telja að athugasemd
hans lýsi mestu raunsæi:
„Ég veit fyrir satt, að brezka
togarasambandið hefur sam-
ráð við ríkisstjórnina í þessu
máli. En tilgangslaust er að
sitja með hendur í skauti og
berja stríðsbumbur eða segja: 1
„þeir geta ekki gert okkur |J
þetta.“ Heimurinn hefur
breytzt. Við verðum að beita
hugviti okkar og byrja að
hugsa.“
Satarí skór
margar gerðir. — Póstsendum.
Strigaskór nýkomnir, allar stærðir.
Skóverzlun Péturs Andréssonar, sími 17345, 23795.
Vandlótir ökumenn
vnndn valið og
nota aðeins
HJOLBAROA
Yokohama nylon hjólbarffar veita y5ur
aukiS öryggi í akstri.
Njótið akstursins
á Yokohama hjólbörðum,
Þeir eru mjúkir og endingargóðir.
Samband íst. samuínnufélaga
Véladeild
Ármúla 3, Bvík. simi 38 900
— Varðberg
10 ára
Framhald af bls. 5.
í aukana innan bandalagsins og
þar hefur nú verið lögð mikil
áiherzla á tæknileg vandamál og
viðfangsefni eins og mengunar-
rannsóknir.
— Sigþór: Það er allt sem
bendir til þess, að Atiantshafs-
bandalagið helgi sig þessum við
fangsefnum í stórauknum mæli.
En þess er að gæta um leið, að
þessi þáttur í startfsemi banda-
lagsins hefur verið minnst
kynntur til þessa. Úr því þarf
að bæta á næstunni.
— Jón: Menn verða að tala
varlega um hugarfarsbreytinigar
Sovétrikjanna og varanlegan
frið í Evrópu. Þótt starfsemi
Atlantshafsbandalagsins hafi
stöðvað útþenslu kommúnista
og tryggt frið í Evrópu, er ekki
langt síðan honum var ógnað
með innrás i Ungverjaland og
siðar í Tékkóslóvakíu. Allar
horfur eru nú á því, að hættu-
legt ástand sé að skapast í
Júgóslavíu. Framtíðarstefna
Atlantshafsbandaiagsins hlýt-
ur að mótast atf því að láta ekki
blekkjast af sýndarmennsku í
friðarátt, en á hinn bóginn að
vinna að einörðum samningavið
ræðum við Varsjárbandaiagið
um gagnkvsema afvopnun. Ein-
hliða aðgerðir í þessa átt eru
ekki til þess fallnar að greiða
fyrir slíkum samningum; það á
við um varnarstöðina í Kefla-
vik. Valdajatfnvægið er forsenda
þess, að með friðsamlegum hætti
sé unnt að semja um afvopn-
un.
— Innan Atlantshafsbanda-
iagsins eru nú tvö einræðisríki
og Bandaríkin hafa orðið fyrir
mikilli og vaxandi gagnrýni
vegna styrjaldarinnar í Viet-
nam. Má búast við þvi, að þetta
valdi innbyrðis erfiðleikum í
bandaiædnu á næstu árum,
Sigþór -.
— Ég get ekki séð, að ein-
mitt þessi atriði þurfi að veikja
bandalagið. Hitt er þó Ijóst, að
öií þessi mái geta gert samstartf
einstakra aðildarþjóða stirðara.
— Jón: Það er styrkleika-
merki bandaiagsins, að slikar
deilur skuli vera uppi innan
þess. Menn hafa hikað við að
reka Grikkland úr bandaiaginu
af hernaðartlegum ástæðum, esn
til þess getur þó auðvitað kom-
ið. Það er ofur eðlilegt, að
Evrópurikin gagnrýni Banda-
ríkin íyrir stefnu þeirra í Víet-
nam, en þau geta um ledð átt
samstarf um vamir EXrrópu.
— Hvað um framtíð Varð-
beorigs etfltdr tdiu ára starf ?
— Jón: Atl antshafsband al ag
ið stefnir að frumkvæðd í samn-
ingaviðræðum við Austur-
Evrópuríki um frið og afvopn-
un. Við teljum bæði nauðsynlegt
og tímabært, að Varðberg auki
starfsemi sína til þess að effla
skilning á þessum viðfangsefn-
um.
— Ólafur: Varðberg er íélag
ungra áhugamanna um vest-
ræna samvinnu; þar er öllum
frjálst að skýra sín sjónarmið.
Varðberg hefur enga opinbera
stetfnui. Hiliutverk þess eir að
skapa aukinn skilning og um-
ræðugrundvöld um utanríkismál
efni.
— Sigþór; Aukin fræðsla um
utanríkis- og varnarmál er
nauðsynleg tii þess að umræð-
ur og skoðanaskipti eigi sér
stað. Að þessum þáttum verður
Varðberg að vinna.
— Hafið þið í hyggju að hag-
nýta ykkur á einhvern hátt þær
auknu umræður, sem undanfar-
ið haifia átt sér stað uim utan-
rikismálefni?
— Jón: Við fögnum því sér-
staklega, að áhugi fólks á utan-
ríkismálum hefur aukizt til
muna undanfarnar vikur; það er
vonandi, að þetta verði ekki
skammtímafyrirbæri. Það er ai-
veg ljóst, að það er höfuðnauð-
syn, að opnari umræður hefjist
um þessi málefni; Islendingar
hafa engan veginn íylgzt nægj-
anlega vel með umræðum um ut-
anríkismál. — ÞP.
Barngóð stulka — Genf
íslenzk hjón með 3 börn óska eftir bamgóðri
stúlku á heimili sitt í Sviss.
Upplýsingar í síma 13548 til kl. 3 í dag (laug-
ardag) og eftir helgina.
AKUREYRI
Einstakt tækifæri
Innflytjandi fjölbreyttra byggingavara leitar eftir
samvinnu við dugandi mann á Akureyri um stofn-
setninigu og rekstur sölu- og dreifingarmiðstöðvar
fyrir Norðurland.
UMSÆKJANDI HAFI;
'k Góðam skipulagshæfileika og geti byggt upp
frá grunmi arðvæmilega starfsemi.
Reynsílu í viðskiptum og þá helzt sölu bygg-
imgavara.
Hamdbært nokkurt fjármagn er tryggi að við-
unandi vörubirgðir verði ávallt tiil staðar.
Ekki annað starf með höndum og geti einbeitt
sér að rekstri fyrirtækisins.
UMSÓKN, ER GREINI ALDUR, MENNTUN OG
STARFSFERIL, SENDIST í PÓSTHÓLF 5002,
REYKJAVÍK.