Morgunblaðið - 10.08.1971, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 197Í
Breiðablik sigraði
NEÐSTA liðiö í 1. deild, Breiða-1 gærtovöldi. Leíknum lauik með
blik, sigraði það efsta, Fram, þeg tveimur mörkum gegn einu. Nán
ar liðin léku siðari leik sinn í I ar á morgum.
Methækkun
á gulli —
Lægsta skráning dollarans í 22 ár
London, Frankfurt, 9. ágúst.
— AP-NTB. —
MIKIÐ gjaldeyrisbrask var á
gull- og peningamarkaði í Evr-
ópu í dag og urðu afleiðingarn-
ar þær, að dollarinn lækkaði í
verði meira en nokkru sinni
fyrr sl. 22 ár, en eftirspurn eft-
ir gulli jókst geysilega og verð-
Tóíkíó, 9. ágúst, NTB.
HINN 4. september nk. verður
eigendum afhent stærsta olíu-
skip heims, sem verið hefur í
smíðum í Japan. Er það 372 400
lestir og fór sína fyrstu reynslu-
ferð í dag.
Ósló, 9. ágúst, NTB.
BREZKA flugfélagið BEA —
British European Airways —
flutti í júlímánuði rúmlega
milljón farþega og er það mesti
farþegafjöldi, sem félagið hefur
flutt á einum mánuði frá stofn-
un þess fyrir aldarfjórðungi.
ið á þvi hækkaði að sama skapi.
Á frjálsum gidlmarkaði í Lond-
on komst gullið í 44.10 dollara
pr. únsu og sló það metið frá
1939, þegar það fór í 43.825
dollara pr. únsu.
1 Frankfurt var dollarinn
skráður á 3.44 vestur-þýzk
mörk en hin opinbera gengis-
skráning er 3.60 vestur-þýzk
mörk. í Sviss lækkaði skráning-
in svo, að svissneski ríkisbank-
inn greip til mótaðgerða til þess
að draga úr flóðinu; meðal slíkra
ráðstafana er, að braskarar
verða að bíða í tiu daga frá þvi
þeir leggja dollara sína í banka
eftir þvi að fá svissneska
franka greidda í staðinn.
Orsök þessara hreyfinga er
rakin til skýrslu, sem birt hef-
ur verið af hálfu bandarískrar
þingnefndar um alþjóðleg gjald-
eyrismál. Sagði þar, að dollar-
inn væri of hátt skráður miðað
við gjaldmiðla ýmissa Evrópu-
rikja.
elliðaAr
Samkvæmt upplýsingum,
sem þátturinn fékk hjá Jóni
Ásgeirs'eyni, stöðvarstjóra,
eru nú komnir 655 laxar á
land úr EHiðaánutm, 268
hængar og 397 hrygnur. Með-
alþyngd þeirra er um 7 pund,
en sá stærsti var 13 pund, og
veiddist hann strax í fyrstu
vikunni. Annars sagði Jón, að
veiði hefði verið fremur lítil
að undanfömu, enda gengi
nú iitið í ána, stundum
gengju ekki nema tveir til
fjórir á sólarhring, en búast
mætti við, að ganga myndi
aukast nú samfara stór-
sitreymi. Ails munu nú komn-
ir eittihvað yfir 3000 laxar
upp fyrir teljarann.
BREIÐDALSÁ
Að sögn Heimis Þ. Gísla-
sonar hefur laxveiði verið
mjög dræm I Breiðdalsá það
sem af er sumri, alls væru
kornnir eittihvað um 15 laxar
á land. Hins vegar sagði
Heimir, að bleikjuveiði væri
góð, þá helzt á ósasvæðinu,
t. d. hefðu tveir menn fengið
samtals 50 bleikjur þar á
sunnudag, ennfremur væri
hún smá. „Hins vegar er mik-
itl lax í ánni, sem er nú mjög
tær, enda hefur ekki rignt
hér svo heitiið geti í nærfetlt
tvo mánuði. Þess er þó að
geta, að veiði í fyrra hófst
ekki svo neinu næmi fyrr en
um þetta leyti.“
LAXINN VAR 37,3 PUND
Ingvi Hrafn Jónsson kom
að máli við þáttinn í gær og
bað um að fréttin um stóra
laxinn, sem hann missti í
Laxá í Aðaldal yrði leiðrétt. ®
Sagði Ingvi Hrafn að laxinn ■
hefðí vegið 37,3 pund — °g ^
að hann hefði fengið hann og
misst þar sem hann lá og ®
svaf á bökkurn Laxár. ■
ÞVERÁ "
Pétur Kjartansson, Guðna- ■
bakka, veitti þættinum þær B
upplýsingar í gær, að á land
væru komnir 1380—1390 Iax-
ar, og væri það mjög svipuð ■
veiði og var á sama tiíma í B
fyrra. Sagði hann, að veiði
hefði verið mjög jöfn i allt
sumar, og mest væri um ■
8—15 punda laxa, en þeir ■
þyngstu hefðu verið um 20 —
pund.
LAXÁ I K.TÓS
Um 1450 laxar hafa nú
veiðzt á vatnasvæði Veiði-
félags Kjósarhrepps, tjáði
okkur Guðmundur Gislason,
Eyrarkoti, í gær, en vatna-
svæðið nær yfir Laxá, Bugðu
og Meðalfellsvatn. Er þetta
um 200 löxum meira en á
sama tiima í fyrra. Guðmund-
ur gat þess, að í sumar hefði
verið bætt við einni stöng
í Laxá, en samkvæmt könnun
sem hann hefði gert, væri
þessi veiðiaukning ekki í
beinu sambandi við aukinn
fjölda veiðileyfa. Laxveiði
hefði t. d. aukizt tiJ muna
í Meðalfellsvatni síðan S
fyrra, en þar væru nú komn-
ir á land um 70 laxar. Enn-
fremur sagði Guðmundur að
silungsveiöi í vatninu hefði
verið mjög góð.
Heldur hefur dregið úr lax-
veiði að undanförnu, samfara
minnkandi göngu; „ en búast
má við, sagði Guðmundur, að
Forseti íslands, herra Kristjá n Eldjám og forsetafrú, Halldór a Eldjám, ganga hér í broddi
fylkingar Eskfirðinga til Valhallar. Ungu stúlkumar til hægri á myndinni ásamt fleiri ungl-
ingum tóku á móti forsetahjó niiniim við Valhöll.
Hestamenn í hópreið
— á móti forsetahjónunum
FORSETI Islands, herra Kristján
Eldjám og Halldóra forsetafrú
heimsóttu Neskanpstað á snnnu-
dag og héldu þaðan til Eskifjarð
ar. I gaermorgun héldu þau til
Fáskriiðsfjarðar og þaðan til
Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvík-
ur, þar sem þau gistu í nótt.
Neskaupstað, 9. ágúst.
Bæjarfógeti, bæjarstjóri og for
seti bæjarstjórnar tóku á móti
forsetahjönunum i Oddsskarði
kiuikkan 11 í gærmiongun 1 hlíð-
skaparveðri og 20 stiga hita. Er
ekið var inn í kaupstaðinn tóku
á móti forsetahjónunum félagar
úr hestamannafélaginu Blæ á
reiðskjótum sinum og á götum
bæjarins vax mikill mannfjöldi.
Að loknum hádegisverði hjá
bæjarfiógeta var samkoma í
OSLÓ 9. ágúst — NTB.
Menningarráðsfulltrúi Oslóar
hefur mælt gegn þvi, að Osló-
borg styðji söfnun sem nefnd
nokkur hefur hafið fyrir Hall-
grímskirkju í Reykjavík, með
það fyrir augum að byggingu
kirkjunnar verði lokið fyrir árið
1974, ellefu hundruð ára afmæli
íslandsbyggðar.
Hefur nefndin skorað á norsk
bæjarfélög að kaupa gjafabréf
sem hljóða á 5.000 íslenzkar krón
uir, en meninmgarráðsfullitrúirm
fyrrigreindi hefur ráðdð frá því,
að Oslóborg taki þátt í þesssum
kaupum. Vill hann, að beðið sé
frekari tilmæla um gjafir fyrir
afmæhð. Berist þau — eða boð
til Oslóborgar um að senda gesti
á afmælishátíðina, telur fulltrú-
inn rétt að tiaka málið til athugun
ar.
f tilefni af frétt þessari sneri
Mbl. sér til herra Sigurbjörns
Einarssonar, biskups íslands, og
sagðist hann vita að hreyfing
væri í Nongi, ruinmmn frá íalands
vininum séra Harald Hope, um
fjárstuðning til Hallgríms-
kirkju.
— Ég tel líklegt, sagði biskup,
að einhverjir aðilar hafi síðan
tekið sig saman um að snúa sér
til Oslóborgar og kanna hvort
áhugi væri þar fyrir fjárstuðn-
ingi, og fengið þar þessi skemmti
iegu svör. ísland hefur enigin af-
skipti af þessu máli.
skrúðgarðinum. Þar flutti Bjami
Þórðarson bæjarstjóri ræðu og
forseti ávarpaði hæjarbúa. Síðan
var farið í kynnisför um bæinn
og heimsóttu forsetahjónin m.a.
sjúkrahúsið, hið nýja náttúru-
gripasaín og fiskvinnslustöðina.
Klukkan hálf fimm drukku for-
setahjönin kaffi með bæjarbúum
í Egilsbúð og síðan fóru þau inn
að Kirkjubóli, þar sem forsetinn
skoðaði gamlar húisarústir á Ás
mundarstöðum. Að þvi loknu var
forsetahjönunum fylgt upp á
Oddsskarð, þar sem sýslumaður
S-Múlasýslu tók á móti þeim og
fylgdli þeim til Eskifjarðar.
Ásgeir.
Eskifirði, 9. ágúst.
Forsetahjónin komu til Eski-
fjafðar kl. 17-30 i gær og snæddu
Síðan bætti biskupinn við að
honum þætitu viðbrögð menn-
ingarráðsfulltrúa Oslóborgar
mjög athyglisverð og svar hans
„menningarlegt”, ef rétt væri
haft eftir.
FYRIRHUGUÐ Islandsferð
fylkisstjórnarinnar á Þela-
mörk hefnr vakið miklar
deilur, að því er segir í frétt
frá Skien í blaðinu Aften-
posten.
Fylkisstjórnin hafði ráð-
gert að halda til Islands sér
til skemmtunar og fróðleiks
24. ágúst, en vegna harðrar
gagnrýni sem ferðin hefur
sætt bendir allt til þess að
hætt verði við hana og verð-
ur þá að afpanta farmiða og
fieira hið fyrsta.
Hjömevik fylkismaður
sagði, að fylkisstjórnin yrði
kölluð saman til sérstaks
kvöldverð hjá Valtý Guðmunds-
syni sýslumanni. Kl. 20Ö0 var
þeim boðið ásamt Eskfirðingum
til kaflfidrykkju í félagshieimiliniu
Valhölil. Þegar forsetinn gekk til
Vaihallar tóku á móti honumn
prúðbúin börn, sem veifuðu
Lslenzka fánanum. í hófinu flutti
Jóhann Clausen sveitarstjóri á-
varp og einniig töluðu Valtýr Guð
mundsson sýslumaður og Herdfis
Heirmóðsdóttir, sem ávarpaði flor
setafrúna i bunctnu máli. Hilmiar
Bjarnason rakti sögu Eskifjarð-
arstaðar og færði forsetanum að
gjöf í flögru bandi flyrsta bindiL
aJ sögu Eskifjarðar, sem heitir
Eskja. Forseti fllutti síðan ávarp
og þakkaði móttöikurnar. Forseta
hjónin gistu á hótel Öskju i nótt
og héldu í morgun til Fáskrúðs-
fjarðar.
Gunnar.
Fáskrúðsfirði, 9. ágúst.
Forsetahjónin komu til Búðar-
kauptúns á hádegi í dag og
snæddu þegar hádegisverð hjá
Jóni Erlingi Guðmundssyni sveit
arstjóra. Klukkan 14.30 hófst
svo hin opinhera móttaka i Fé-
lagsheimilinu Skrúð, þar sem
hreppsnefndir Búðar- og Fá-
skrúðsfjarðarhrepps tóku á móti
florsetaihjón unum. Síðan var setzt
að kaffídrykkju þar sem Már
Hallgrímsson oddviti Búðar-
hrepps setti samkomuna og bauð
forsetahjónin og fylgdarlið veti-
komin. Síðan söng samkór Fá-
aukafundar mánudaginn 9.
ágúst og þá yrði tekin ákvörð
un í málinu. ,
Fylkismaðurinn kvaðst
telja að ferðin léti lítið yfír
sér í samanburði við allar 1
þær ferðir sem væru famar i
á vegum ríkisstjórnarinnar,
fylkisstjóma og bæja- og
sveitastjórna víða í Noregi. !
Ekki væri með réttu hægt að i
halda því fram að fylkis- .
stjórnin bærist mikið á. Hins
vegar hefði gagnrýnin verið :
svo hávær og jafnvel per-
sónuleg, að eðlilegt væri að
fylkisstjómin hugsaði sig um
tvisvar.
Söfnun til Hallgríms-
kirkju í Noregi
Osloborg neitar að leggja f ram f é
Framh. á bls. 10
íslandsferð
vekur deilur
Hættir fylkisstjórnin á
Þelamörk við að koma