Morgunblaðið - 10.08.1971, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1971
17
Sveinn Kristinsson;
Skákþáttur
NÚ er komið að okkur íslend-
ingum að halda Skákþing Norð-
urlanda þriðja sinni, en eins og
ýmsir munu muna, þá voru slík
þing haldin hér áður, árin 1950
og 1961. — 1 bæði skipti hafa
Islendingar staðið sig með mikl-
um ágætum og hrepptu titilinn
„Skákmeistari Norðurlanda" í
bæði skiptin, Baldur Möller 1950
og Ingi R. Jóhannsson 1961. Árið
1950 urðu íslendingar, auk þess
sigurvegarar í öllum hinum
keppnisflokkunum. Ég hefi að
vísu ekki „document" yfir úr-
slitin í hinum flokkunum 1961,
en mig minnir fastlega, að þá
færi einnig á sömu leið, að við
yrðum sigurvegarar í öllum
flokkum. Þó er eins og mig
minni, að það stæði mjög
glöggt með úrslitin i unglinga-
flokki, þar sem Norðmaðurinn
Zwaig og Bragi Kristjánsson
börðust um efsta sætið. — Gott
ef þeir voru ekki jafnir að vinn-
ingum, en skakkaði einhverju á
atigum.
Áætlað er, að mótið fari fram
14.—28. ágúst nk., svo nú fer
hver að verða siðastur með
rækilega æfingu undir mótið.
Baldur Möller varð fyrstur Is-
lendinga til að vinna titilinn
Skákmeistari Norðurlanda, og
var það í Örebro i Svíþjóð, 1948.
Síðan varði hann titilinn hér i
Reykjavík, 1950, sem áður
greindi, en gaf hann síðan eftir
keppnislaust, með þvi að mæta
ekki á næsta Skákþingi Norður-
landa, 1953, en þá varð bara
annar íslendingur til að hirða
hann, og hét sá Friðrik Ólafsson.
Friðrik hélt svo titlinum til 1956,
er hann tapaði honum fyrir Lar-
sen.
Freysteinu Þorliergsson er svo
fjórði íslendingurinn, sem náð
hefur skákmeistaratitli Norður-
lar.da um s"keið.
Það væri ekki úr vegi, í tilefni
þess, að Skákþing Norðurlanda
er nú senn að hefjast hérlendis,
eins og getið var, að birta eina
af vinningsskákum Baldurs Möll-
ers frá Skákþinginu 1950. — Það
mætti kannski nefna það í leið-
inni, að þrír íslendingar voru i
fjórum efstu sætunum í Lands-
liðsflokki þá, þ. e. Guðjón M.
Sigurðsson var í öðru sæti og
Gitöniundtir Ágústsson í fjórða.
í þriðja sæti var hins vegar
Norðmaðurinn Aage Vestöl. —
Má af þessu marka, hversu gíf-
urlegur sigur þetta var fyrir Is-
lendinga.
Andstæðingur Baldurs i eftir-
farandi skák, frá þessu móti, er
sænski meistarinn Olov Kin-
mark, sem var mjög lengi i röð
þekktustu skákmanna Svia. —
Hann var vel fullorðinn, er hann
kom hingað 1950 og mun nú
látinn. Nokkuð var skákstíll
hans stundum sérkennilegur,
eins og reyndar maðurinn sjálf-
ur: hvass á brún, ekki gizka
smáleitur, en kjamakarl.
Hér kemur skákin:
Hvítt: Baidur Möller
Svart: Olov Kinmark
INDVERSKT TAFL
I. d4, Rf6; 2. R1'3, g6; 3. g3, b6;
(Kóngs- og drottningarindversk-
ar uppbyggingar, með ýmiss
konar tilbrigðum, eru öllu meira
i tízku nú en þegar þessi skák
var tefld. En ég held ég fari rétt
með það, að Baldur Möller hafi
verið einhver sá fyrsti, sem hóf
Bokhald
Vanur bókhaldari getur bætt við sig nokkrum fyrirtækjum.
Bókhald, tollskýrslugerð, verðútreikningar.
Upplýsingar í slma 25864 eftir klukkan 7.00.
STÓR-
hefst í dog
Kjóloefni, tilbúinn fotnoður
fyrir konur, korlo og börn
Selt fyrir ótrnlego lúgt verð
Austurstræti 9.
að tefla kóngsindverska vöm á
íslandi, svo nokkru næmi.)
4. Bg2, Bb7; 5. a4, (Þessum leik
er ætlað að skapa veikingu á
drottningararmi svarts.) 5. —
Bg7; 6. a5, c5; (Naumast er þessi
lelkur timabær, með tiMiti til
þess, hve langt hvíta a-peðið er
komið fram, og fær svartur nú
brátt peðaveikleika á b6 við að
stríða.) 7. 0-0, 0-0; 8. c3, Ra6;
(Hér var 8. — d6 og svo — Rb-d7
trúlega betra, því riddarinn á a6
verður lengi vei áhrifalítill mað-
ur.) 9. Ra.3, Hb8; 10. axb6, axb6;
II. Re5, Bxg2; 12. Kxg2, cxdi;
13. cxdl, Dc8; 14. Da4, Db7t;
15. Kgl, d6; 16. Rf3, Ha8; (Segja
má, að em. sé stöðumunur ekki
mikiM, þó er svarta b-peðið áber-
andi veikara en b-peð hvíts, og
riddarinn á a3 á fleiri reita völ
en „collega" hans á a6.) 17. Db8,
De4; 18. Bd2, (18. Dxb6 mundi
auðvitað stranda á Hf-b8. — Enn
banvænna væri nú fyrir svartan
að drepa á e2 vegna Hel.)
18. — Rc7; (Nú yrði Dxb6 ^var-
að með — Rc-d5, og svartur ynni
peðið aftur og hefði prýðilega
stöðu.) 19. Ha-el, Re6; 20. Rb5,
Dg4; 21. Kg2, Re4; 22. Be3, Ha5;
23. h3, Dh5; 24. Rc3, Re4-g5;
25. Rxg5, Rxg5; 26. Bxg5, Dxg5;
27. e3, (Línurnar hafa nú skýrzt
allmikið. Vonir þær, sem svartur
kann að hafa gert sér um kóngs-
sókn, hafa fjarað út, vegna und-
anfarinna uppskipta á mönnum,
og á hann nokkru lakara tafl
og — ennþá vegna örðugleika á
að veita b-peði sínu fullnægjandi
völdun.) 27. — Ha5-a8; (B-peð
svarts sýnist alla vega dæmt til
tortímingar. Ef, til dæmis,
27. — b5; 28. Hal, Hf-a8; 29. Hxa5
Hxa5; 30. Db4, Ha8; 31. Hbl,
(Ekki 31. Dxb5?, Dxb5; 32. Rxb5,
Hb8, og vinnur peðið aftur.)
Hb8; 32. H-al-a5, og vinnur peð-
ið.)28. Hal, Ha-1>8; 29. H-a6, b5;
30. Ha5, h5; 31. Hbl, lil; 32. g4,
e6; 33. Hxb5, (Eftir þetta er auð-
vitað einungis timaspursmál,
hvenær Baldur innbyrðir vinn-
inginn.) 33. — Hxb5; 34. Dxb5,
e5; 35. Dd5!, (Lei'kur þessi er
einkennandi fyrir Baldur: ein-
faldur en sterkur. Hann gerir
allt í senn, valdar d-peðið sitt,
hótar d-peði svarts, leppar f7-
peðið og rýmir fyrir riddarar.um
til b5.) 35. — De7; 36. Rb5, Hb8;
37. Hci, (Auðvitað ekki 37.
Rxd6?, Hd8; 38. dxe5, Bxe5 og
vinnur riddarann. Sama yrði
upp á teningnum, eftir 37. Dxd6?,
Db7t; o. s. frv.) 37. — exdl;
38. Hc7, Ðf6; 39. Rxd6, Hxb2;
40., Re4, De6; 41. Da8t, Bf8;
42. Hc8, De7; 43. He8, Db4;
44. exd4, Kg7; 45. Dd8, Db7;
46. d5, He2; 47. Df6t, Kg8; 48. d6!
Og Kinmark gafst upp, því að
hann er varnarlaus gegn hótun-
inni Hxf8 og síðan Dh8 mát.
Við skerum pöruna frá
fyrir yður.
Það er yðar hagur.
Bíðjið því kaupmann yðar
aðeins um ALI BACON.
SlLD é FISKUR
Vanan gröfumann
vantar á John Deere skurðgröfu. Ennfremur vantar
tvo verkamenn.
Upplýsingar í síma 85261 milli kl. 19—20 í kvöld og á morgun.
Framtíðarstarf
Viljum ráða karlmann vanan skrifstofustörfum til að annast
tollskýrslugerð, verðreikninga og fleira.
Til greina kemur að vinnaa hluta úr degi til að byrja með
Nánari upplýsingar I skrifstofunni.
EGILL VILHJÁLMSSON HF..
Laugavegi 118.
f.W,
FRÁBÆR UTANHÚSSMÁLNING
FRAMLEIDD FYRIR ÍSLENZKT VEÐURFAR
2800 TÖNALITIR
BYLTING í MÁLNINGARÞJÓNUSTU