Morgunblaðið - 13.08.1971, Page 3
3
MÖRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1971
--- 11 ................... 1 .......... -------- -------- ■" ” ........... ^ *
STAKSTEIMR
Rödd
Isvestíu
Nci, það er sannarlega grát-
broslegt að fylgjast með skríf-
nm Þjóðviljans þessa dagana.
Þaí að þrátt fyrir yfirklórið,
brýzt alltaf hið rétta eðli fram
stöku sinnum og; þægðin við
Moskvuvaldið. Og aldrei bregð-
ast þeir Þjóðviljamenn glaðari
við, en þegar rödd heyrist að
austan um íslenzk innanríkis-
eða utanríkismál. Þannig var í
gaer skýrt frá því undir heldur
en ekki hróðugri fyrirsögn, að
málgagn sovézku stjórnarinnar,
Ísvestía, sé einkar ánægt með
stefnumörk vinstri stjórnarinn-
ar, en að sania skapi furðu lost-
ið yfir þeim ugg, sem gætt hef-
ur í blöðum frændþjóða okkar.
Og nú er spurningin: Hverk
vegna?
HÚSMÆÐRAFRÆÐSLAN í
landinu hefur verið aðalmál-
ið á þingi Kvenfélagasam-
bands fslands, sem staðið hef-
ux að Hallveigarstöðum í
Reykjavík síðustu tvo daga
og lýkur í dag. I*ar hafa Sig-
ríður Haraldsdóttir, forstöðu-
kona Leiðbeiningastöðvar
húsmæðra og Steinunn Ingi-
mundardóttir, skólastjóri,
haldið erindi um málið, rætt
um húsmæðrafræðsluna eins
og hún er í dag og hugsanleg-
ar leiðir tii að tengja hana
betur við sem flesta skóla.
— Það er okkur ánægju-
efni að memntamálaxáðutnieyt-
ið er að Skipa nefnd til að
endurskoða lögin um hús-
Frá þingi Kvenfélagasambands fslands.
Þær ræða um húsmæðrafræðslu
— fyrir hönd 18 þúsund íslenzkra kvenna
Nefnd
endurskoðar
lög um
húsmæðra-
skólana
mæðras'kólana og húsmæðra-
kenmaraskól ana og höfum vdð
tiinefnt eina konu í þá nefnd,
sagði Helga Magnúsdóttir á
Klikas'töðum, formaður Kven-
félagasambands íslands, i við
tali við Mbl. — Við þessa end-
urskoðun á m.a. að athuga
hvort húsmæðraskólarnir geti
ekki í framtíðinni veitt ein-
hver starfgréttindi í verkleg-
um greinum, en það gera þeir
ekki nú.
Húsmæðrafræðsflian, eða
öliu heldur skortur á hvens
konar fræðslu fyrir stúlkur,
var einmitt tilefnið til að
fyrstu íslenzku kvenfélögin
voru stofnuð fyrir rúmum 100
árum.
— Þá voru engir kvemna-
eða húsmæðraskólar og stúlk-
ur áttu ekki kost á amnarri
menintun en þeirri er þæ-r
fengu heima eða á heimilum,
eem þær réðu sig til í vinnu,
sagði Helga. Fyrstu kvenfélög
in voru því stofmuð í þeim til-
gamgi að' reisa skóla til að
mennta ungar stúlkur. Skól-
airmiir risu og félögum fjölgaði
og árið 1930 var Kvenfélaga-
samband íslands etofinað. í
því eru mú 20 héraðssiambönd
með 233 kvenfélög og félags-
konur eru allis um 18 þúsumd.
Það er óhætt að segja að við
látum okkur allt varða er til
heilla má verða fyrir heimilin
og þjóðina, og í Kvenfé'laga-
sambandinu vinnum við sam-
an í sátt og samlyndi og
stjórmmálaskoðainir koma þar
hvergi nærri, þótt kvenfélög
stjórmmálaflokkanma séu að-
ilar að sambandimu.
— Hvp; eru aðal verkefni
Kvenfélagasambamdsins?
— Við höldum þing í
Reykjavík amnað hvert ár, oig
þar mæta um 60 fulltrúar. Að-
alástæðan til þess að við
höldum þingiin alltaf í Reykja
vík er sú, að á Hallveigarstöð-
um höfum við okkar skrif-
stofu og öll okkar skjöl, sem
oft þarf að grípa til meðan á
þingiinu stendur Á þinguinum
mörkum við stefnu næstu
tveggja ára, og nú er aðalmál
okkar sem fyrr segir, hús-
mæðraf ræðslan: Á Hallveigar-
stöðum rekum við Leiðhein-
ingarstöð húsmæðra, sem Sig-
ríður Haraldsdóttir veitir for-
stöðu og þar er hægt að fá
hvars konar upplýsimgar —
gegnum síma, bréf eða með
því að fara þangað Þar eir t.d.
hægt að fá upplýsimgar í sam-
bandi við heimilisvélaikaup,
hvaða vélarstærð hemtar bezt
í hverju tilviki o.s.frv. — og
er mjög mauðsynilegt að hafa
hlutlausa uppiýsingamiðstöð
í þeim efnum.
— Af útgáfustarfsemi Kven
félagasaimibaindsinð má fyrst
nefna Húsfreyjuna, sem kem-
ur út fjórum sinnu.m á ári.
Húin hefur nú verið gefin út
i 20 ár. Eininig höfurn við gef-
ið út bæklinga um ýmsa
þætti, svo sem blettahreimsun,
frystiingu matvæla, sjálfvirk-
ar þvottavélar og fleira. Þá
hefur samlbandið efnt til eins
konar námshringa hér á Hall-
veigamstöðum, þar sem konur
utan af landi hafa komið og
fræðzt um hagræðingu í heim
ilisreikistri, siðvenjur og hátt-
prýði, handavimnu og föndur
og fangið kennslubréf um
þessi mál, sem þær hafa síðan
farið með heim í sín félög og
staðið fyrir leshringum þar. í
fyma höfðurn við hér í sam-
vinrnu við Álafoss námskeið í
Iopapeysuprj óni og þar sem
konum var leiðheimt með að
staðla peysurnar, þannig að
þær hentuðu til útflutnings.
— Hafið þið ekkert hugleitt
Framhald á bls. 19.
Helga Magnúsdóttir
TOKUM UPP I DAG
□
n
□
□
□
Gallabuxur á herra
og dömur úr flaueli
og denim.
Boli og belti.
Dömupeysur.
Sportjakka.
Stakar buxur o. m. fl.
Svörin
vantaði
Frammistaða Ólafs Jóhannes-
sonar, forsætisráðherra, er hann
sat fyrir svörum í sjónvarpimi
sl. þriðjudagskvöld, hefur vak-
ið talsverða athygli. Hvað eft-
ir annað komu hóflegar spurn-
ingar blaðamannanna honum í
opna skjöldu, svo að honum varð
það helzt fyrir að slá fram hald-
lausum og órökstuddum fullyrð-
ingum tii svars. Þannig fór fyr-
ir honum, er hann var spurður
þess, hvort hann teldi, að valda-
jafnvægið í Evrópu numdi rask-
ast, ef varnarliðið hyrfi af landi
brott. Sagði hann einungis, að
það þyrfti ekki að vera, en færði
engin frekari rök fyrir þeirrl
fullyrðingu. j
Og ekki voru sjónvarpshlust-
endur miklu fróðari, er forsætis-
ráðherra var spurður, hver værl
helzti verðbólguvaldurinn. —
Nú vefst mér tunga um tönn,
sagði hann. — Ætli hann sé
ekki sá sami og verið hefur. ; j
Nei, það er sannarlega kom-
inn timi til þess, að Ólafur Jó-
hannesson skUji, að mannl, sem
gegnir sliku embætti, sem emb-
ætti forsætisráðherra, ber skylda
til þess að svara skorinort þeim
spurningum, sem bornar eru
fram fyrir hann í áheyrn al- ,
þjóðar. ^
í»að er
nú svo
Grcinilegt er á viðbrögðum
ÞjóðvUjans þessa dagana, að
honum er fátt verr gert, en að
vitnað sé tU ummæla fyrsta for-
manns Alþýðubandalagsins nm
innræti þeirra manna, sem þar
ráða nú ríkjum. Öll eru þessl
skrif hin furðulegustu og nán-
ast óskiljanleg venjulegu fólki.
Þannig kemst Bæjarpósturinn
að þessari niðurstöðu um skipti
Hannibals við þá Alþýðubanda-
lagsmenn: „Fullyrðingar and-
stæðings um þann, sem fjand-
skapurinn beinist gegn, eru væg
ast sagt hæpin sönntin — þótt
auðvitað sé ekki útilokað að eitt-
hvað sé satt í þeim. Ef við tök-
um hliðstæðu úr daglega lifinu:
ef að Jón hefur hlaupið á brott
með konu Gvendar, þá þættl
víst flestum lítil rökvisi í nd
leita til Gvendar um upplýsing-
ar um innræti Jóns, hvað þá að
trúa þeim upplýsingum.“
Öllu skáldlegri og háfleygari
er lýsing kvenrithöfundar Þjóð-
viljans á viðnreign þeirra Hanni-
hals og Magnúsar Kjartansson-
ar, enda dugir ekki minna en
sjálf 1. Mósebók til að lýsa þeim
atgangi, þegar Hannibal er lát-
inn segja við Magús: „Þú hefur
giímt við guð og menn og feng-
ið sigur.“
Það er nú svo.
- I BUXUM FBA
mKARNABÆR
TÍ f h I t l ii s.r. I X f.VGI FÓLKShXS
TÝSGÖTU1
LAUGAVEGI 66
\
r