Morgunblaðið - 13.08.1971, Side 21
MQRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR ,13. ÁGÚST 1971
niiTi'fiiiiiiBin'ii
í KVIKMYNDA
HÚSUNUM
★★★*■ Frábær, ★★★ rnjög góð, ★★ góð,
★ sæmileg, O léleg,
immiiin
Björn
Sigurpálsson
Erlendur
Sveinsson
fyrir neðan allar hellur,
Sæbjörn
V aldimarsson
Háskólabíó:
RÓMEO OG JULIA
Hefðbundin kvikmyndadtgáfa
á leikriti Shakespeare um Astir
þessara sögufræga ungmenna
mitt í blóðugu stríöi ætta þeirra
í Verónu, og hvernig ást þeirra
og átakanlegur dauöadagi varö
ættunum sú refsing, er fékk lægt
öldur hatursins. 1 titilhlutverk-
um Olivia Hussey og Leonard
Whiting, kvikmyndataka di
Santis, leikstjórn Franeo Zeffir-
elli.
A A Trúverðug kvikmynda-
útgáfa og laus við væmni
(nema helzt tónlistin). Aðall
myndariinmar er þó kvik-
myndataka Di Santis, og frá-
bær leikur Ann Heywood í
hlutverki fóstrunnar.
★ ★ í eðli sínu á kvikmyndin
erfitt með að ráða við bundið
mál leikhússins, formin eru
óskyld Leikhústextinn firrir
verkið. Upplifunin yrði bein-
líns óþægileg ef ekki kæmi til
góður leikur, myndræn og
frískleg kvi'kmyndun undir
öryggri stjórn Zeffirellis.
★★ Zeffirelli hefur tekizt að
gera dágóða mynd um hinar
ungu og óhamingjusömu per-
sónur Shakespears. Þó ekki
svo mikið af eigin getu, né
aðalleikaranna, heldur vegna
sláandi fegurðar myndatöku
De Santis, (Oscar 69), og raun
veruleik búninga, sviðsetn-
inga og leiktjalda.
Laugarásbíó:
Jim Schuyler (Kirk Douglas),
einn af harðhentustu lögreglu-
mönnum New York, verður að
segja starfi sínu lausu af þeim
sökum. Skömmu síðar er hann
ráðinn lífvörður Renu Westa-
brook, sem grunuð er um morð
ásamt glaumgosanum Johnatan
Fleming, á auöugum manni
hennar. Réttarhöldin í málinu
hefjast og Jim ákveöur að kom-
ast að hinu sanna. Hann er viss
um sakleysi Renu og telur að
Fleming hafi framið morðið. En
þetta reynist ekki auðvelt. Hann
heldur áfram að leita sönnunar-
gagna og liggur þá leið hans til
nágrannans Finchley, og kem«t
hann þá á snoðir um, að sá sé
dauður, en bófi tekið hlutverlc
hans til þess að komast yfir auð
æfi Finchleys. En nú vill bófinn
Renu feiga, því hún getur reynzt
honum hættuleg, og hefst þá
keppni um llf og dauða. Aðrir
leikarar eru Eli Wallach og Sylva
Koscina.
★ ★ Allgóð sakamálamynd af
gamla skólarmm — auga fyr-
ir auga og tönn fyrir tönn.
Spenna helzt út alla myndiina,
þrátt fyrir að efnisþráðurinn
sé nokkuð óskýr. Eli Wallach
og Kirk Douglas eru ágætir,
en Koscina virðist aðeins hafa
fegurðina til að bera.
Tónabíó:
MAZURKI A RUM-
STOKKNUM
Skólastjóraskipti standa fyrir
dyrum í heimavistarskólanum.
Um tvo kennara er að ræða
sem eftirmenn, þá Max M. CO!e
Sdltoft) og Herbert Holst, en
Max er í uppáhaldi hjá nem-
endunum og fráfarandi skóla-
stjóri er einnig hlynntur hon-
um. Þar er þó einn galli á, því
að svo kveöur á um í reglum
skólans, að skólast; órinn skuli
„vera kvæntur maður". Max hef
ur hins vegar aldrei verið við
kvenmann kenndur, og aðeins
mánuður til stefnu. Nemendurn-
ir grípa til sinna ráða og senda
honum fatafellu, en Max flýr
undan ágengni hennar. Fráfar-
andi skólastjórafrú kemur Max
óvænt til hjálpar, en einnig
koma tvær dætur eins skðla-
formannsins mjög náið við sögu.
★ ★ Kynlífskímni er að verða
sérgrein Dana, og þessi mynd
er dæmi um það, er þeim
tekst hvað bezt upp, auk
þess sem hún er fagmartnlega
unnin að ytri gerð.
★ ★ Blandað hinni kunnu
dönsku kímni verður hið
djarfa ekki klæmið, heldur
einungis góðlátleg skemmt-
un þeim, sem ekki hafa
áhyggjur af framtíð siðmenn
ingarinnar. Tæknilega vel
únnin. Klippingar eru fram-
úrskarandi og tónlistin einkar
skemmtileg.
★ Flestar danskar gaman-
myndir þjóna aðeins einum
tilgangi — að fá kvikmynda-
húsgesti til að hlæja. Þá
tekst þeim oft manna bezt að
gera góðlátlegt grin að bless-
uðu kiáminu. f þessari mynd
heppnast hvort tveggja svona
all bæiilega.
Nýja bíó:
ÆVINTÝRIO
1 ÞANGHAFINU
Myndin gerist um borO i skipi,
sem flytur hættulegan farm af
sprengiefni, og mislitan hóp
auönuleysingja, sem þurfa aö
komast til S-Ameríku í felur und
an réttvísinni. Skipið hreppir á
leiöinni fellibyl, og allir farþegar
veröa aö yflrgefa skipið. Þegar
fellibylurinn gengur yfir um síö-
ir rekst fólkið í björgunarbátun-
um aftur á skip sitt, sem nú er
þakið einkennilegu þangi. FólkiÖ
kemst brátt að raun um að það
er komið i framandi veröld, sem
engan óraöi fyrir að til væri.
Brátt fara aö gerast ókenntleg-
ir atburðir. AÖalhlutverk Erik
Porter. Hildegard Knef. Leik-
stjóri Michael Carreras.
★ Atburðunum er hagað þann
ig að allt passi til að hægt sé
að leiða nokkuð hugmyndarík
an efnisþráð til lykta, án þess
þó að áhorfendur verði
nokkru nær um fyrirætlanit
persónanna. Myndin er ekki
svo illa gerð að það örli ekki
fyrir spennu (gæðamerki),
enda leikur þokkalegur.
O Næstum stórkostlegt sam-
sull ólýsanlegrar vitleysu.
Austurbæ jarbíó:
LÖGREGLU-
STJÓRINN
Dönsk háðmynd um ameríska
vestra. Gull finnst í landareign
bónda eins, og þegar nágranni
hans kemst aö því, lætur hann
koma gullbóndanum fyrir katt-
arnef, lætur líta svo út sem Indí-
ánar hafi verið þar að verki, og
eignast sjálfur jörðina. Litlu
siðar er lögreglustjóri héraðsins
myrtur, en þá kemur Biggi (Dirch
Passer) til sögunnar. Hann er kú
reki og slagsmálahundur, sem á
langa fangelsissetu yfir höfði
sér, nema hann taki að sér vara-
lögreglustjóraembættið. — Það
er betra en fangelsið, hugsar
hann með sér, og þegar hann er
kominn í embættið, byrjar hann
að hreinsa hraustlega til. Leik-
stjóri Carl Ottoson.
O Það verður þeim mun sorg-
legra að sjá hve höfundunum
hefur misheppnazt, þegar svo
augljóst er hver tilgangurinn
hefui' verið. Uppbygging
handrits, leikur, tónlist er í
sMkum handaskolum að
myndin er öll líkust lélegum
inngangi einhvers, sem aldrei
varð.
I.S.I.
Landsleikurinn
K.S.Í
ISLAND
JAPAN
fer fram á Laugardalsvellinum 1 kvöld f östudaginn 13. ágúst, klukkan 20.00.
Dómari: T. MARSHALL frá Skotlandi.
Línuverðir: Guðmundur Harald sson og Valur Benediktsson.
Aðgöngumiðar er useldir úr sölutjaldi við Útvegs
bankann og við leikvanginn eftir klukkan 18.00.
Komið og sjáið hina frábæru japönsku
knattspyrnusnillinga leika.
Knattspyrnusamband íslands.