Morgunblaðið - 13.08.1971, Side 30
30
MORGUiNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGtíST 1971
Keppt í sex greinum
Japanska landsliðið kom til landsins í gær, og hér sést það á Laii gardalsvellinum, sem liðið skoð-
aði og reyndi í gær.
Japanir eru vaxandi
knattspy r nuþ j óð
Landsleikurinn í kvöld
A EVRÓPUMEISTARAMÓTINU
í dag er keppt til úrslita í eex
greinum: 200 m hlanpi karia og
kvenna, 100 m grindahlanpi
kvenna, stangarstökki, 400 rn
hlanpi, kúhivarpi karla og spjót-
kasti kvenna.
200 M HLAUP
Borzov keppir lika í 200 metr-
unum og eftir yfirburði sina í
100 m á miðvikudag, hlýtur hann
að teljast liklegur til sigurs. V-
Þjóðverjinn Hofmeister og Frakk
inn Fenouil eru skæðustu keppi-
nautaur hans, hinn fyrrnefndi
náði beztum tíma í undanrásun-
um í gær, hljóp á 20.9 sek., sem
er mjög góður timi. Borzov
hljóp á 21.2 sek. og hafði yfir-
burði í sínum riðli, en Fenouil
hljóp á 21.1 sek.
Stecher ætti líka að vera ör-
ugg um sigur i 200 m hlaupinu,
heizt er það pólski olympiumeist
arinn Szewinska, sem gæti veitt
henni einhverja keppni.
400 M HLAUP
Heimsmetið í þessari grein á
Evans frá Bandarikjunum, 43,8
sek, en Evrópumetið eiga V-Þjóð
verjarnir Kaufmann og Jelling-
haus 44,9 sek. Evrópumeistara-
mótsmetið er hins vegar 45.7 sek,
sem Wemer frá Póllandi setti á
siðasta móti í Aþenu. Beztan
tima í ár á þessar vegalengdir
á Marcello Fiasconari, ítali, sem
hefur aðsetur í S-Afríku, og hóf
keppni fyrst á þessu ári, en hef
ur tekið undraskjótum framför-
um, og gæti sett punkt á þetta
keppnistímabil sitt með sigri á
Evrópumeistaramótinu. En varla
verður það auðvelt verk að sigra
þá Kohler frá V-Þýzkalandi og
Jan gamla Werner, núvercindi
Evrópumeistara. Werner og Fias-
conaro hlupu saman í 1. riðli
undankeppninnar í fyrradag, og
þá hafði Werner betur, hljóp á
46,4 — 1/10 á undan ítalanum.
Þá gæti Bretinn David Jenkins
einnig sett strik í reikninginn.
100 M GRIND KVENNA
1 þessari grein er Evrópumeist
arinn frá þvi i Aþenu, K. Baizer
írá A-Þýzkalandi næsta öruggur
sigurvegari, en hún á bæði heims
metið og þar með einnig Evrópu-
metið í þessari grein — 12,7 sek.,
sett í fyrra en hún hefur jafnað
það í ár. Meistaramótsmet henn-
ar er 13,3 sek.
STANGARSTÖKK
Stangarstökkið er að verða
þjóðargrein Svia, því að þeir
eiga nú um fjóra menn, sem
stökkva að staðaldri yfir 5 metra.
Það er fræðilegur möguleiki, að
þeir geti hlotið þrenn verðlaun
í þessari grein, þvi að þrir Svi-
ar hafa tryggt sér rétt til keppni
i úrsiitum, stukku allir fimm
metra i fyrradag. Sterkastur
Svianna er Kjell Isaksson og því
h'kiegastur til gullverðlauna.
Hann á bezta árangurinn í ár —
5,42 m. Helzti keppinautur hans
verður fyrrum heimsmethafi og
Evrópumeistarinn frá þvi í
Aþenu, Nordwig frá A-Þýzkal.
Heimsmetið á hins vegar Papan
ikouaou frá Grikklandi, en hann
varð fyrstur manna til að ná 18
feta markinu eða 5,49 m, sett i
íyrra. Því var það einn drama-
tlskasti atburður þessa Evrópu-
móts, er Papanikolaou mistókst
þrisvar í undankeppninni í fyrra-
dag að fara yfir 4,80 m, sem var
byrjunarhæð.
kUluvarp
Heimsmet í þessari grein á
Matson Bandarikjunum, 21,78 m.
í þessari grein eru annars A-
Þjóðverjarnir i essinu stnu, og
hafa orðið að skilja eftir heima
nokkra kastara, sem vel hefðu
getað skipað sér í sex fyrstu
sætin, því að hámarksþátttaka
frá einni þjóð í hverri grein eru
þrir menn. Sterkastur A-Þjóð-
verjanna er Briesenik frá A-
Þýzkalandi, en hann hefur ein-
mitt sett Evrópumet í sumar —
kastað 21 m. Eini kastarinn, sem
virðist geta komið í veg fyrir
a-þýzkan sigur i kúluvarpinu er
Komar firá Póllandi, en hann
kastaði lengst í undankeppninni
í gær, eða 19,65 m. Þá varð
Briesenik þriðji með 19.55, en
þeir hafa varla tekið á honum
stóra sinum i undankeppninni
þessir karlar. Alls komust 15
kastarar áfram í úrslitakeppn-
ina.
SPJÖTKAST KVENNA
Gorchakova frá Sovétrikjunum
sem kastað hefur 64,40 m á
heimsmetið í þessari grein, en
sigurstranglegastar í þessari
grein núna eru pólsku stúlkum-
ar Gryziecka og Jawocska, en
hin fyrmefnda hefur kastað
62,10 m. Evrópumeistaramótsmet
ið á ungverska stúlkan Nemeth,
59,29 m, sett í Aþenu.
HAFNFIRÐINGAR hafa verið
sigursælir á fslandsmótinu í
handknattleik iitanhúss, og í
fyrrakvöld sigruðu liðin þaðan
báða leiki sína.
HAUKAR—GRÓTTA 25:20
Markatalan gefur ekki alveg
rétta mynd af leiknum, því að
yfirburðir Haukanna voru meiri
en hún segir til um. Sigur
þeirra var aldrei I hættu, en oft
einkenndi kæruleysi leik þeirra
og oft var teflt í tvísýnu, sér-
staklega undir lokin. Bar leikur
Haukanna það með sér, að þeir
báru litla virðingu fyrir and-
stæðingnum, og mátti ekki miklu
muna að það kæmi þeim í koll.
Hins vegar sýndu Gróttupiltam-
ir einn bezta leik sinn til þessa,
og má mikið vera, ef þeir eiga
ekki eftir að láta verulega að
Etns og áður hefur verið
skýrt frá hér í blaðinu leika fs-
lendingar landsleik í knatt-
spymu við Japani í kvöld kl.
20.00, en koma japanska liðsins
hingað til lands er þáttur í
undirbúningi þeirra fyrir næstu
Olympíuleika. Dómari í leiknum
verður T. Marshall frá Skot-
landi, en línuverðir eru Guð-
sér kveða í II. deildinni áður en
langt um líður.
Viðar var markhæstur Hauk-
anna, en Stefán Jónsson var
einnig drjúgur. Hjá Gróttu var
Þór Ottesen drýgstur við að
skora, og virtust Haukamir eiga
erfitt með að sjá við honum.
FH—VfKINGUR 28:19
FH-ingar unnu þama léttan
sigur, og var aldrei nein spenna
í leiknum. Einna athyglisverðast
við leikinn var að þarna kom
fram ungur handknattleiksmað-
ur, Gunnar Einarsson (bróðir
Ólafs) og vinstri handar lang-
skot hans léku Víkingsvömina
oft grátt. FH-ingar náðu strax
góðri forustu í fyrri háifleik, og
endataflið var því auðvelt, enda
tóku þeir lifinu með ró í síðari
hálfleik. Héldu Víkingamir þá
að mestu í við Hafnfirðingana.
mundiir Haraldsson og Valur
Benediktsson.
Hérlendis eru menn næsta fá-
fróðir um japanska knatt-
spyrnu, vita það eitt um þessa
knattspyrnuþjóð, að hún kom
mjög á óvart á Olympíuleikun-
um í Mexikó, en þar varð Jap-
an í þriðja sæti. Skal hér stikl-
að á nokkrum fróðleiksmolum
um japanska knattspymu. Jap-
anir kynntust fyrst knattspyrnu
árið 1874, er enskur kennari,
Lionel Johns, kynnti þessa
íþróttagrein þarlendis fyrstur
manna. 1921 fór japanskt úrvals
lið i fyrstu utanförina til þátt-
töku í Knattspyrnukeppni A-
Asiu í Shanghai, og sama ár er
knattspyrnusamband Japans
stofnað og meistarakeppni háð
þar í fyrsta sinn. 1929 gekk
Japan í FIFA, og 1936 sendu
Japanir knattspymuQlið til
keppni á Olympíuleikunum i
Berlin. 1946 hegnir FIFA Jap-
an fyrir stríðsglæpi með þvi að
útiloka þá frá keppni við aðild-
arríki sambandsins, en banninu
er aflétt f jórum árum síðar.
Næstu tíu árin er unnið mark-
visst að því að efla knattspyrn-
una í Japan, en straumhvörf
verða, er V-Þjóðverjinn Dettm-
ar Cramer var ráðinn til að
undirbúa japanska landsliðið
undir Olympiuleikana í Japan
1964. Rak hann sig brátt á það,
að mörg ljón voru í veginum fyr
ir knattspyrnuiðkunum þarlend
is, sérstaklega hvað mataræði
snerti. Málitíðir Japana eru eklki
rikar að hitaeiningum, og þurfti
Cramer að tvöfalda hitaeining-
amar í mataræði liðsmanna Jap
anska landsliðsins til að þeir
yrðu samkeppnisfærir hvað
þrek snerti. Tókst þetta, og
náði landsliðið dágóðum árangri
á leikunum — sigruðu m.a. Arg
entínu. Fram að 1964 hafði knatt
spyrnan að langmestu leyti ver-
ið skóiaiþrótt, í eldri flokkun-
um léku aðalílega háskólastúd-
entar, og forustumenn knatt-
spyrnusambandsins voru flestir
háskólaprófessorar, sem sinntu
Ekki
sjónvarpað
SAMNINGAR tókust ekki milli
Sjónvarpsins og Sundsambands
íslands um sjónvarp frá Norð-
urlandameistaramótinu i sundi,
sem hér verður haldið um næstu
helgi. Sjónvarpið bauð 15 þús.
kr. fyrir útsendinguna, en Sund-
sambandið taldi það fráleitt boð,
þar sem það samsvaraði aðeins
aðgangseyri 100 manns. Þótti
það ekki svara kostnaði.
bréfaskriftum fyrir saanbandið í
tómstundum sínum.
Nú á dögum er knattspyman
mjög vel skipuiögð þar i landi,
og hefur fastráðinn fram-
kvæmdastjóra. Knattspyrna er
iðkuð i allflestum skólum og
aðalstyrkleiki eldri flokkanna
hefur færzt frá háskólunum yf-
ir til hinna risastóru iðnaðar-
og verzlunarfyrirtækja. Dafnar
knattspyrnan vel um þessar
mundir, og vinnur stöðugt á
kylfuknattílieikinn, sem er þjóðar
íþrótt Japana.
Fyrsta deild vár stofnuð í Jap
an 1965 og er skipuð 8 liðum,
sem öll eru frá stærstu iðnaðar
héruðunum og njóta styrks frá
risafyrirtækjunum. Knatt-
spyrnumennirnir eru starfs-
menn þeirra, en eru þó án und-
antekninga álitnir áhugamenn,
en njóta í flestum tilvikum ein-
hverra hlunninda við vinnu. Fyr
ir fáeinum árum voru áhorfend
ur að knattspyrnuleik í L
deildinni i Japan yfirleitt vart
flieiri en 600 að meðaltali, en nú
fer áhorfendafjöldinn upp i 30
þúsund. Sterkasta knattspyrnu-
félagið er Toyo Kognyo frá
Hirosima, og hefur félag þetta
unnið Japansmeistaratitilinn
fimm sinnum, en alls hefur mót-
ið verið háð sex sinnum. 1 fyrra
vann Mitsubishi frá Tokyo mót-
ið.
Landsliðsþjálfari nú er Shuni
chiro Okano. Hann hefur ekki
lagt mikia áherzlu á heimsmeist
arakeppnina 1970, heldur hefur
hann miðað við að lið hans geti
sett strik í reikninginn á næstu
Olympiuleikum í Munchen
næsta ár.
Hlaupa 400 m
1 leikhléi
1 LEIKHLÉI í landsleiknum við
Japan verður hlaupið 400 m
hlaup, og verða keppendur sex
talsins. Þeir eru: Þorsteinn Þor-
steinsson, KR, Stefán Hallgríms
son, UlA, Borgþór Magnússon,
KR, Vilmundur Vilhjáimsson,
KR, Ágúst Ásgeirsson, IR, og
Sigvaldi Júlíusson, UMSE, ailt
okkar sterkustu hlauparar á þess
ari vegalengd.
Hver er
fljótastur?
I DAG kl. 5 gengst frjálsíþrótta
deild KR fyrir móti fyrir börn á
Melavellinum. Keppt verður i
þremur aldursfloikkum —- 10, 11
og 12 ára, bæði fyrir stráka og
stelpur. Barnablaðið Æskan veit
ir sigurvegaranum í 60 m hlaupi
í hverjum flokki verðlaun.
Frá leik FH og Víkings. Þorvaldur skorar fyrir FH
HAFNFIRÐINGAR
SIGURSÆLIR