Morgunblaðið - 18.08.1971, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVlKUDAGUR 18. ÁGÚST 1971
S-afríski hjarta- og
limgnaþeginn látinn
Höfðaborg, 17. ágúst.
NTB-AP.
S-AFRÍSKI hjarta- og lungna
þeginn, Adrian Herbert, lézt
í Groote Schuur-sjúkrahús-
inu í morgun, 23 dögum eftir
að dr. Christian Barnard og
skurðlæknalið hans græddu
líffærin í hann. Hefur enginn
sjúklingur lifað svo lengi eft-
ir slíka aðgerð, en vitað er um
a.m.k. þrjá Bandaríkjamenn
sem hjarta- og lungnaigræðsia
hefur verið reynd á.
Herbert, sem var 49 ára
kynblendingur, tarnntæknir
að menntun, þá líffærin úr
blökkumanni, að nafni Jack-
son Gunya, sem látizt hafði af
höfuðhöggi eftir líkamsárás.
Hafði Herbert legið rúmfaist-
ur í tvö ár með ólæknandi
lungnasjúkdóm, sem veikti
hjarta hana jafnt og þétt.
Hjartað, sem grætt var í
hann, starfaði vel, er ltmgun
ekki eins, — varð að gera á
honum barkaskurð vegna
öndunairþrengisla 26. júlí sl. og
tvívegis eftir það varð að gera
aðgerðir til að stöðva ieka í
lungunum.
Kllsberg;
Réttarhöld
eftir áramót
Los Angeles, 17. ágúst.
NTB-AP.
BANDARÍSKI prófessorinn, Dan
iei Ellsberg, kom í gær fyrir rétt
í Los Angeles, sakaður um að
hafa stolið frá bandariska land-
vamaráðuneytinu hinum um-
deildu leyniskýrslum um Viet-
namstyrjöldina. Neitaði Ellsberg
sakargiftum en viðurkenndi að
hafa komið skjölunum á fram-
færi við „The New York Times“,
enda teldi hann ekki, að hann
hefði framið neitt afbrot með
því.
Búizt er við, að mál Ellsbergs
verði tekið fyrir eftir áramót, —
4. janúar 1972 hefur verið tiltek-
irnn, en lögfræðingur hans segist
ekki gera ráð fyrir, að réttar-
höldin geti hafizt fyrr en í febr-
úar eða marz. Verði Ellsberg sek-
ur fundinn getur hann átt yfir
höfði sér allt að tíu ára fangelsis
dóm.
Ellsberg hélt til Boston í dag,
en hann er nú starfandi við
„Massachusetts Institute of
Technology".
Fyrrum samstarfsmaður Ells-
berg hjá Rand Corporation,
Anthony Russo, sem til þessa hef
ur neitað að bera vitni í máli
þessu, gaf sig loks í gærkvöldi
fram við lögregluina eftir að Will
iam C. Douglas, hæstaréttardóm-
ari i Washington hafði neitað
að standa í vegi fyrir fangelsun
hans. Russo er gefið að sök að
hafa hjálpað Ellsberg við að
koma leyniskjölunum á framfæri
við bandarísku blöðin.
Hann lýsti því yfir við blaða-
menm í gærkvöldi, áður en hann
Tsídey''1
friðuð
i MORGUNBLAÐINU barst i /
gær eftirfarandi frétt frá J
menntamáiaráðuneytinu: 1
Að gefnu tilefni vill ráðu-1
neytið taka fram, að með úr-1
skurði, er birtist i Lögbirtinga 7
blaði 16. maí 1960, ákvað \
Náttúruvemdarráð að frið- (
lýsa Eldey út af Reykjanesi. I
Bannað er án leyfis Nátt- ;
úruverndarráðs að ganga á 1
eyna, svo og að ræna þar eða \
raska nokkrum hlut. t
Þeir, sem brotlegir gerast/
við ákvæði þessa úrskurðar,
skulu sæta ábyrgð samkvæmt
náttúruvemdarlögum nr. 47/
1971, en brot á þeim lögum
varða sektum eða varðhaldi.
Menntamálaráðuneytið,
16. ágúst 1971.
var fangelsaður, að hann væri
hneykinrn af því að standa við
hlið Ellsbergs og bera með hon-
um ábyrgð á því að leyniskýrsl-
urnar komu fyrir augu banda-
rísku þjóðarinnar, svo að hún
fengi sjálf tækifæri til að dæma
um eðli styrjaldarinnar í Viet-
nam.
í stuttumáli
KÓLERA — MISLINGAR
Fort Lamy, Chad, 17. ágúst. |
AP.
Tilkynnt var á þriðjudag'
af hálfu stjórnar Chad, að(
2011 manns hafi látizt í land-1
inu af völdum kóleru frá því J
veikim kom upp í maí sl. Allsl
hafa 6.486 manns tekið veik- í
ina og virðist hún nú í rén-(
un. í staðinn hafa komið þar i
upp mislingar og 25 marais
látizt af völdum þeirra á síð-\
ustu vikum.
16 PUNDA GIMSTEINN
Colombo, Ceyion, 17. ágúst.
AP.
Fundizt hefuir í húsagarði i
Colombo 16 punda gimsteinn
— á stærð við kókoshentu.
Ekki er vitað hverrar tegund-
ar srteinninn er, en finnandinn |
H. L. Tarnayake að nafni,
kom honum fyrir í bankahólfi
áður en hann tilkynnti yfir- \
völdunum um fundinn.
NM
1 SKÁIv
ÚRSLIT þriðju umferðar i gær-
kvöldi urðu sem hér segir:
Ivarsson (S) vann Björn Þor-
steinsson, Gundersen (N) gerði
jafntefli við Friðrik Ólafsson, en
aðrar skákir fóru í bið. Er Jón
Kristinsson sennilega með unnið
tafl á móti Holm (D), sömuleið-
iis Freysteinn Þorbergsson á
móti Josefsson (S).
Klukkan 10 árdc-gÍ3 verða
tefldar biðskákir og fjórða um-
ferð verður tefld í kvökl.
Þessi mynd var tekin í Vallanesi á Völlum sl. sunnudag er séra Ágúst Sigurðsson messaðl þar
eftir að afhjúpaður hafði verið minnisvarði um Stefán Ólafsson skáld. Minnisvarðinn er eir-
skjöldur, sem Ríkarður Jónsson gerði af skáldinu eftir málverki og er hann festur á steinvarða
sem Sveinn Einarsson frá Hrjót hlóð.
Norðurlöndin þinga um
gjaldeyrismálin
„Erfið ákvörðunaratriði fram-
undan‘% segir f jármálaráðherra
SÆNSKI fjármáJaráðherrann
hefur boðað f jármálaráðherra
allra Norðurlanda á sinn fund
í Stokkhólmi kl. 3.30 í dag, þar
sem horfurnar í alþjóðagjald-
eyrismálum verða á dagskrá.
Þessi fundur verður fyrst og
fremst umræðufundur, og eng-
ar ákvarðanir verða teknar á
honum. Jóhannes Nordal Seðla-
bankastjóri mun sitja þennan
fund af íslands hálfu, þar sem
fjármálaráðherra átti ekki heim
angengt með svo skömmum fyr-
irvara. ÖU eru viðhorfin í gjald-
eyrismálunum enn mjög óljós
eftir yfirlýsingu Bandaríkjafor-
seta um efnahagsráðstafanir
Bandaríkjastjómar. I gær höfðu
íslenzku ríkisstjórninni engar
upplýsingar borizt að vestan um
HIN árlega sumarferð Sjálfstæð-
ismanna í Hafnarfirði verður
farin nk. sunnudag. Að þessu
sinni verður ekið um Þingvelli
og Kaldadal að Kalmanstungu
og síðan um Borgarfjarðardali.
Ekið verður niður Hvítársíðu og
farið í Norðtunguskóg í Þver-
árhlíð, þar sem snæddur verður
miðdegisverður og dvalizt um
hríð i fögru umhverfi. Á heim-
leið verður svo farið um Bæjar-
sveit, Skorradal og Svínadal um
Geldingadraga i Hvalfjörð.
í ferðinni komast þátttakendur
í snertingu bæði við auðnir
það, hvort innfluttur fiskur
mundi falla undir ákvæðin um
10% innflutningsskatt.
Þetta kom fram á blaðamanna
fundi með Halidóri E. Sigurðs-
syni, fjármálaráðherra í gær.
Hann sagði, að bersýnilegt væri,
að tilgangur Bandaríkjanna væri
að knýja firam gengisbreytingu
hjá þei’m þjóðum, sem hafa yfir
sterkustu gjaldmiðlumum að
ráða. Ekki væri ljóst, hvort
þetta tækist, en varla bæri
þessi ráðstöfun árangur þegar í
stað, og gæti þá svo farið að við-
skipti hæfust án þess að skrán-
ing hefði farið fram. Ef þetta
yrði ofan á, yrði um svokallað
fljótandi gengi að ræða, oig
kvað fjármálaráðherra það geta
skapað ákveðinn vanda — ís-
og tign öræfanna og einnig hina
gróðursælu og fögru dali Borg-
arfjarðar, sem margir telja feg-
urstu sveitir þessa lands.
Árni Óla, ritstjóri, verður leið-
sögumaður í þessari ferð, en
hann er þaulkunnugur þeirri
leið, sem farin verður, og ekki
síður sögu margra merkisstaða,
svo sem alkunna er.
Nauðsynlegt er, að þátttakend-
ur láti skrá sig i ferðina sem
allra fyrst hjá einhverjum eftir-
talinna nefndarmanna: Sóloni
Sigurðssyni, sími 52008, Agli
Strange, sími 51150 og Guðriði
Sigurðardóttur, sími 50968.
lenzka ríkisstjórnin yrði að giera
það upp við sig, hvaða gengis-
svæði ísland ætti að fylgja —
dollara, pundiinu eða markinu,
en á síðasttalda svæðinu eru öll
EBE-löndin. Yrði sú raunin á,
gæti það haft í för með sér
erfiðar ákvarðanir fyrir Lslenzk
stjórnvöld, sagði ráðherra.
Niðurstaða af þessum ákvörð-
unum, sem Bandaríkin hafa nú
tekið, gæti og lei'tt til þess að
kerfisbreyting yrði í sarmbandi
við gengisskráningiuna, þanniig
að einhver hluiti gengiisins yrði
fljótandi. Sagði ráðhérra, að bú-
ast mætti við því að þetta kæmi
til ákvörðunar á fundi alþjóða
gjaldieyriissjóðsins nú í haust.
HalMór E. Sigurðssom kvað
allt á huldu um það, hvort fiisk-
ur yrði skattaður, en færi svo
myndi það að sjálfsögðu hafa
erfiðleika í för með sér hér. „Svo
gæti liíka það tímabil áður en
ákvarðanir eru teknar, skapað
vandkvæði, þvi við yrðum þá að
ákveða okkur gagnvart þeim við
skiptahátfum, sem þá ríktu. 1
þri'ðja iagi gæti svo orðið hjá
okkur erfið ákvörðunaratriði,
þegar það verður búið að taka
ákvörðum úti i hinurni stóra
heimi i sambandi við þessi
miklu átök í efnahagsmálum,"
sagði ráðherna.
Sumarferð Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarf irði
Ungverskir kennarar
— hjá fóstrum og
f DAG hefst í Tónlistarsfcólan'um
í Reykjavík 10 daga námskeið
fyrir tónlistarkennara og fóstrur
og eru skráðÍT á námakeiðið 35
tóniistarkennarar og 25 fóstrur.
Söngkennarafélag íslands sér um
framkvæmd námisfceiðsins með
fjárhagslegum stuðningi Fræðslu
málaskrifstof unnar, Reykj avík-
urborgar og Sumargjafar.
Egill R. Friðleifsson, umsjónar-
maður námsikeiðsins, sagði Mbl.
að hirgað til lands væru komnir
tveir ungverskir tónlistarkennar-
ar, Anna Hamvas og Cik Miklos,
sem kynna munu þær aðferðir,
sem Ungverjar hafa notað um
árabil við tónlistaruppeldi á öll-
söngkennurum
m.a. nota íslenzkt efni við
kenmsluna, sem þau hafa verið
að undirbúa frá því á liðnum
vetri.
FLUGFORINGJAR FÓRUST
Nýju Delhi, 17. ágúst. AP.
Átta foringjar úr f'iugher
Indlands og þrír óbreyttir fluig
liðar fórust er flugvél hrap-
aði á mánudagskivöld nærri
Poona, um 130 km suðauatur
af Bombay.
Lýst eftir
manni
LÝST er eftir Brynjólfi Brynj-
ólfssyni, 37 ára að aldri, en hann
fór frá heimili sinu sunnudaginn
15. ágúst sl., og hefur ekkert til
hans spurzt siðan. Brynjólfur er
vel meðalmaður á hæð og þétt-
vaxinn, með skoilitað hár, stutt,-
klipptur. Hann var klæddur i
dökkgrá jakkaföt og brúna skó.
Þeir sem gætu gefið upplýsingar
um ferðir Brynjólfs eftir kl. 16
á sunnudag, vinsamlegast láttð
lögregiuna vita.
Brynjölfur Brynjólfsson.