Morgunblaðið - 18.08.1971, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.08.1971, Blaðsíða 26
MORGUNBI.AIHÐ, .MIÐVJKUDAGUR 18. ÁGÚST 1971 Þingmaðurinn Ellert Scliram gnæfir þarna yfir hópinn, en hann var einn bezti maSur vailarins í þessum leik. Pedro Perez. Heimsmet í þrístökki 19 ára óþekktur Kúbubúi stökk 17,40 metra PEDRO Perez heitir 19 ára gam- •all Kúbubúi, sem vann það ótrú- lega íþróttaafrek fyrir skömmu að stökkva 17,40 metra í þrí- stökki og setja þar með heims- met. Það var á íþróttamóti í Caii í Coiombía, sem Perez setti met eitt, en stökksería hans í keppn- inmi var: 16,92 — 17.40 — 14,92 — 17,04 — 17,12 og 17,19 metr. Gamla heimsmetið átti Vilktor Sanejev frá Rússlandi og var það 17,39 metrar, sett á Olympiu- leikunum í Mexikó 1968. Annar í þristökkskeppninni í Cali varð Prudencio Nelson, Brasiiíu, sem stökk 16,82 metra og þriðji varð John Craft, USA, sem stökk 16,32 metra. Breiðabliksmenn sækja, en Magnús er á réttum stað og gómar boltann (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.). Þórður Jónsson Ellert Schram Sigmundur Sigurðsson Árni Steinsson Sigurður Indriðason Sigþór Sigurjónsson Baldvin Baldvinsson Atli Héðinsson Gunnar Guðmundsson kom inn á fyrir Baldvin. BEZTU MENN KR: 1. Eiiert Schram 2. Magnús Guðmundsson 3. Öiafur Ólafsson. BEZTU MENN BREIÐABLIKS: 1. Óiafur Hákonarson 2. Steinþór Steinþórsson 3. Guðm. Jónsson. Leik'nn dæmdi Þorvarður Björnsson, og var hann senni- lega lélegastur ailra. gk. Lélegur jafnteflisleikur Sigmundur Sigurðsson fékk sina- drátt í fótinn í leiknum, og brá sér þá úr skónum og lék á sokka- leistunum siðustu mínúturnar. við að finna andstæðing til að gefa boltann á. Ekki er hægt að tala um eitt einasta marktæki- færi í hálfleiknum, og maður var feginn þegar dómarinn fiautaði leikinn af. Það verður að segjast að Breiðablik var heppið að ná öðru stiginu út úr þessum leik. Tækifæri KR voru það hættu- leg, að furðulegt má teljast að þeim skyldi ekki takast að skora. Ellert Schram var bezti maður KR í leknum, þó að oft hafi hann leikið betur, og hefði KR sennilega tapað þessum leik hefði hans ekki notið við. Tengi- liðirnir Árni og Sigurður týnd- ust alveg í þessum leik, og það hafði að sjálfsögðu þau áhrif að Breiðabiik átti mun meira í ieiknum. f STUTTU MÁLI: Laugardalsvöilur 15. ágúst. KR : Breiðabiik 0 : 0. Liðin: BREIÐABLIK: Ólafur Hákonarson Magnús Steinþórsson Guðm. Jónsson Bjarni Bjarnason Steinþór Steinþórsson Haraldur Erlendsson Þór Hreiðarsson Ólafur Friðriksson Einar Þórhailsson Hinrik Þórhahsson Guðm. Þórðarson. KR: Magnús Guðmundsson Ólafur Ólafsson Bjöm Ámason botnliðanna Tækifæri KR f ærri en hættulegri KR hefur nú 5 stig og Breiðablik 7 EKKI er útlitið sérlega gott hjá KR-ingum í I. deildinni i knatt- spyrnu þessa dagana. Liðið lék gegn Breiðablik í fyrrakvöld og tékst KR-ingum ekki að ná nema öðru stiginu út úr þeirri viðureign. Breiðablik hefur því 7 stig, eins og Akureyringar, en KR situr enn á botninum með aðeins 5 stig. Og KR á erfiða leiki eftir, m. a. báða leikina við Keflavík. Leikurinn í fyrrakvöld var leikinn við slæm skilyrði, rok og blautur og háll vöUurinn, enda bar leikurinn þess merki frá fyrstu mín. til hinnar síðustu. Breiðablik átti yfirleitt mun meira í leiknum, en tækifæri KR, þegar þau gáfust, voru hættulegri. Og fyrsta hættulega tækifær- ið í leiknum kom á 7. mín. Þá fékk Baldvin Baldvinsson bolt- ann við miðlínu, og stakk síðan aila varnarmenn Breiðabliks af. Ólafur Hákonarsson kom út á móti og varði skot Baldvins, en hélt ekki boltanum sem hrökk út í vitateiginn til Atla Héðins- sonar. Hann skallaði að mark- inu, en þá var Magnús Stein- þórsson þar fyrir og bjargaði á linu. Á 10. min. „prjónuðu" þeir sig í gegnum KR-vömina Þór Hreið- arsson og Guðmundur Þórðar- son. Guðmundur skaut en Magn- ús Guðmundsson varði en missti boltann frá sér til Ólafs Frið- rikssonar sem skaut yfir. 17. min.: Steinþór Steinþórs- son bjargaði á línu skoti frá Atla Héðinssyni, og boltinn fór i hom. Úr homspyrnunni barst boltinn til Sigurðar Indriðasonar sem skaHaði fyrir fætur Ellerts. EUert skaut af stuttu færi, og Ólafur markvörður missti bolt- ann undir sig. En á marklín- unni var Guðm. Jónsson og hon- um tókst að bjarga. Á næstu mín. fékk Atli Héðinsson þrjú góð tækifæri til að skora, en ávallt tókst honum að klúðra. Á 33. min. átti skil- yrðislaust að dæma viti- á KR þegar varnarmaður sló boltann frá með hendinni. En dómarinn, Þorvarður Björnsson, var langt úti á velli og sá ekki hvað gerðist. Siðari hálfleikurinn var mjög lélegur, einhver sá ailra léleg- asti sem tvö íslenzk lið hafa lengi sýnt. Boltinn var að iang- mestu leyti á vallarmiðj unni, en þar sýndu leikmenn mikil tilþrif

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.