Morgunblaðið - 18.08.1971, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1971
19
— Eskif jörður
Framhald af hls. 10.
þeim geysandi stormur,. svo að
fjöll þakti í sjávaríoki beggja
megin fjarðarins. Urðu þeir þar
frá að hverfa við svo búið. —
Aðrir segja, að þeim hafi þótt
svo að sjá inn til fjarðarins sem
•þar brynni bæði land og lögur.
1 austurtúniniu á Hólmum getur
að líta nokkra ljósleita steina,
er standa þar upp úr þúíunum.
Segja menn, að það sjeu leg-
steinar barna þeirra sömu völu
er grafin er á hálsinum. Var það
trú manna, að með þvi að slá
á þá mætti láta koma niður úr
hverri átt er vildi.“
Er þetta ein af fjölmörgum
sögum sem skráðar hafa verið
um Eskifjörð og Einar Bragi
hefur safnað saman á einn stað
í fyrsta bindi af Eskju. I sam-
bandi við frásögn þessa bætti
Einar við að Eskíirðingar tryðu
enn á verndarmátt vöivunnar
og kynnu fleiri sögur því til
sönmunar. En hins vegar væru
Eskfirðingar hættir að fara
fram hjá völuleiðuim er þeir fara
til messu, þar sem presturinn
býr nú orðið inni i kaupstaðn-
um, en ekki á Hólmum.
SÍLDARÆVINTÝRIN
Um 1880 hefjast síldveiðar
Norðmanna við Austurland.
Höfðu þær i för með sér vax-
andi atvinnu sem aftur hleypti
vexti í kauptúnin á Austfjörð-
um. Er síldveiðar þessar hefjast
eru íbúar Eskif jarðar innan við
100, en árið 1906 er Eskifjörður
verður sérstaikur hreppur eru
ílbúarnir hvorki meira né minna
en þrisvar sinnum flieiri. — Á
síldarárunum um 1880 fluttust
ýmsar norskar fjölskyldur til
Esikifjarðar og settust þar að og
búa afkomendur þeirra enn
þann dag I dag á staðnum. Má
þar t.d. nefna Friðrik Klausen,
síldveiðimann og afkoimendur
hans sem mjög hafa komið við
sögu staðarins, að sögn Einars
Braga. Og er sonarsonur Friðr-
iiks Jóhann Klausen t.d. núver-
andi sveitarstjóri á Eskifirði. —
Sildarævintýrið um 1880 entist
ekki lengi frekar en önnur síld-
arævintýri síðar og sveifliur
miklar voru i atvinniuliiifiinu a
Eskifirði fyrri hluta þessarar
aldar. En þrátt fyrir það hélt
kauptúnið áfram að stækka
stöðugt og eflast og nýjar at-
vinnugreinar voru teknar upp,
auik verzlunarinnar og síldveið-
anna. Má þar m.a. nefna bátaút-
gerðina, sem i dag er aðalat-
vinnuvegur Eskfirðinga, og heí
ur treyst afkomu heimafólksins
mikið. Er nú svo komið að íbúar
Eskifjarðar eru orðnir 930 tals-
ins og hafa aldrei verið fleiri
og nýbyggingar, bæði íbúðar
hús og önnur mannvirki spretta
þar upp, enda afkoma manna
þar eystra yfirleitt góð.
HÉT Afi SKRIFA BÓK UM
Atthagana
1 eftirmála fyrsta heftis Eskju
segir Einar Bragi að hann hafi í
ofdirfsku æskudaga heitið því
eiitt sinn, að þegar honum hefði
vaxið fiskur um hrygg skyldi
hann meðal annarra smámuna
rita eina bók um átthagana,
aðra um ættjörðina og þriðju
um heiminn. — Ég taldi mig,
sagði Einar Bragi, löngu leyst-
an undan hugmyndinni, sem
hverjum öðrum barnaskap, en
én.gu að síður hófst ég handa
árið 1965. Tildrögin voru þau að
ég komst að því að Hilmar
Bjarna.son mágur minn hafði
mikinn áhuga á að saga staðar-
ins yrði skráð. Ég fór því i kyrr
þey að safna upplýsingum hér
syðra sem erfitt var að ná fyrir
austan. Nokkru síðar var skip-
uð sór.stök byggðarsögunefnd á
Eskifirði og endirinn varð sá að
ákveðið var að ég ritaði sögu
staðarins. í>á var ég kominn með
miikið efni og það fór að spyrj-
ast eystra og það varð síðan að
samíkomulagi að ég sæi um að
koma þessu verki af stað. Hef
ég tekið að mér fyrsta og annað
bindi, era þessa öld ætla ég ei.n-
hverjum öðrum, sagði Einar
Bragi Sigurðsson að lokum.
— Minning
Lúðvík
Framhald af bls. 11.
ÞEGAR dauðinn ber að dyrum
hljóðnia raddir okkar allra, er við
erum staddir. Þó ©r þetta hvers-
dagalegur atburður. Hvert augna
blik er einhver að deyja. En
dauða-stundin er stór, áhrifai’ik
sorgar- og alvörustund. Við horf-
um votum augum til þess óræða
Þegar öldungurinn, er lokið
hefur ströngu ævistarfi, er kvadd
ur í hinzta slnm, er kveðjan ljúf-
sár, og minningarnar í brjóstum
ástvinanna hugljúfar, vitandi, að
þessa skuld verða allir að gjalda.
En þegar sendiboðinn með sigð-
ina heggur að rótum hlyni, er
enn bera fullt laufskrúð og rós-
rauða rekla, íimnst okkur, er
skynjum skammt, órétt grisjað.
Þá er mikill harmur kveðinn að
ástvinum þess fallna vinar. Og
aðrir vandamenn og vinir drúpa
í auðmýkt. Við spyrjum: Hvers
vegn,a var hanm, á bezta aidri,
tendraður góðum áformum, burtu
kallaður af jörðinni. Svarið bíð-
ur síns tíma. Þegar sortinn virð-
ist byrgja sorgarranninm, þá er
trúin ein megnug, að rjúfa hel-
fjötra myrkursims, með geislum
eilífðarljóssins, og trúin traustið
á alskyggnan föður lífsims veit
ir syrgjendum sálarró og styrk.
Ég veit að ástvinir Lúðvíks Jó-
hannessonar, er í dag drúpa við
gröí hans, eiga þá trú, og traust
á alföður lífsins. Hamn eimn er
fær að leiða jarðarinniair börn að
lokamarkmu. Við, er stöndum
aðeins fjær, skiljum vel harm-
sollin tár háaldraðrar móður, eig
inkomu og barna. Við getum að
ein® tekið þátt i sorginni, og eig
um hlutdeild í henmi, en felum í
bæn vorum algóða föður að þerra
tárin og lækna sárin. Við vitum,
að hann, er frá okkur var tekinn,
er kominn á æðra svið lífsins.
„Meira að starfa guðs um geim.“
Lúðvík Ástvaldur Jóhanmesson
var fæddur í Reykjavík 19. des-
ember 1914. Foreldrar Lúðvíks
voru Jóhannes Kr. Jóhannesson,
Þorgrímssonar frá Sveinseyri við
Tálknaíjörð og Elísabet Davíðs
dóttir Jóniatainssonar frá Marða
núpi i Vatnsdal. Jóhamnes e;r lát
inn fyrir nokkrum árum. Hanm
var dáður húsa- og húsgagnasmið
ur. Elísabet hefur búið um ára-
bil í húsi síms látna sonar, Lúð-
víks, og konu harns.
Lúðvík ólst upp í foreldriahús-
um og dvaldist þar að mestu til
fullorðimsára. Smemma bar á af
burða hagleik hans, og starfsvilja.
Þegar á unglingsárum vann haxm
að smíðum sem fullgildur maður
væri. Þegar Lúðvík var full-
þroska að aldri, gekk hamn í Iðm
skóla íslands og lauk þaðan prófi
með ágætis vitnisburði. Seinraa
tók Lúðvík meistarapróf í yfir-
byggingu bifreiða, og var það
haras aðal'Starfsgrein æ síðan. Lúð
vík starfaði um skeið hjá Strætis
vagnafélagi Reykjavíkur. Sýndi
hamn þar leikni í starfi. Undi
hamn því ekki, að íslendingar
þyrftu að flytja inn fullyfir-
byggða bíla, þá smíði væri sjálf
sagt að framkvæma hér heima,,
og' skyldi gert.
Þegar á öndverðum fimmta tug
a.ldarinnar jókst mjög innflutn-
ingur á stórum fólksflutningabif
reiðum, er fluttu fólk landsfjórð
unga mill'i,
Árið 1942 stofmaði Lúðvík, með
aðstoð nokkurra vinnufélaga
sinna Bílasmiðjuna h.f., eina fyr
irtækið í þeirri starfsgrein, sem
vaið í höndum Lúðvíks og þeirra
félaga risastór stofnu-n, á okkar
mælikvarða, enda eftirsótt og vin
sæl stofnun, vegna vandvirkni,
og vandaðrar framkomu stjórn-
endarma í hvivetma. Mestu kreppu
tímabil á þessari öld var nýlega
gengið um garð, þurfti því mikla
bjart-sýni og áræði til, að stofna
slíkt fyrirtæki, sem Bílasmiðjan
var. Lúðvík var djarfur, dugmik
ill og hagsýnm. Og hornsteiniar
stofnunarinnar voru: trúmenrys'ka
og drenglyndi.
Lúðvík Jóhannesson var fram-
gjarn og hugsjónaríkur, og kom
því víða við í atvinnulífi þjóðar
vorrar. Árið 1950 tók hann við
framkvæmdastjórn Norðurleiða
h.f., og rak það fólksflutningafyr
irtæki um fimm ára skeið, með
miklum ágætum. Því fram-
kvæmdastjóra starfi, sagði hamn
lausu, vegnia mikilla anna á öðr
um sviðum, sérstaklega kallaði
Bílasmiðjan eftir mestum starfs-
tíma hans og orku.
Lúðvík var félagslyndur á-
hugamaður, og vildi efla sam-
starf manna til þjóðþrifa á víð-
faðma vettvangi. Hann var einn
stofnenda vátryggingafélagsins
Tryggingar bf. og starfaði í þeim
samtökum, sem stjórnarnefndar-
maður' og endurskoðandi til ævi
loka.
Þegar Ragnar Jóhannesson
framkvæmdaistjóri . stofnsetti
Tékkneska bifreiðaumboðið árið
1946, var Lúðvik þátttakandi,
með bróður sínum, og var í
stjórn fyrirtækisims til endadæg-
urs. Öll störf Lúðvíks einkennd-
ust af dáðríki og drengskap. Stofn
anir þessar bíða mikið tjón við
fráfall slíks manms sem Lúðvík
var.
Lúðvík Jóhannesson kvæntist
29. maí 1939, eftirlifandi konu
sinni: Ingibjörgu Vilhjálmsdóttur
Hákonarsonar, frá Stafnesi í
Höfnum, kommurn af himni þjóð-
kunnu Kirkjubæjarætt. Vilhjálm
ur Hákonarson er látinin, en kona
hans, móðir Ingibjargar, Eydís
Guðmundsdótitir frá Nesjum, Mið
nesi, dvelst hjá dóttur simni, Ingi
björgu.
Ingibjörg Vilhjálmsdóttir er
mikilhæf ágætiskona. Studdi
hún mann sinn í hans marg-
þætta starfi, og því tíðum
ströngu. Mannkostir Ingibjargar
birtust og í uppeldi barma beirra
Lúðvíks. Samhent voru þau hjón
um ástríka umhyggju fyrir börn
unum, sem allt annað í sambúð-
irani.
Börn hins látna vinar okkar og
Ingibjargar Vilhjálmsdóttur eru:
Vilhjálmur, doktor í efna-
fræði, starfar hjá rannsókna-
ráði iðnaðarins, hann er
kvæntur Áslaugu Sverris-
dóttur; Konráð Alexander, er
stúdent í læltnadeild Háskóla ís
lands; Eydís er gift Árna Val
Atlasyni húsasmið hér í borg-
inni, Davíð Þór, fimmtán ára, í
heimahúsum. Fyrr miss'tu þau
hjónin dreng átta ára gamlan, er
Davíð hét. Snemma barði sorgin
að dyrum á því ástrika heimlli.
Lífið er hvarvetma svipult! En
börnin eru öll myndarleg og vel
gefin, enda vel búin undir bar-
áttu lífsins.
í dag fylgir systir mín sínu
fjórða bami til grafar. Tvö þeirra
missti hún, meðan þau vot’u enn
í bernsku: Sigríði og Ólaf. Dótt-
ir hennar Aðalheiður lézt fyrir
mörgum árum, þá gift Guðmundi
Jerassynd loftskeytamararai. Eftir
lifa nú tveir synir Elísabetar:
Ragnar framkvstj. Tékkraeska
bifreiðaumboðsins og Konráð
Davíð framkvæmdastjóri. Ragn-
ar er kvæntur bandaris'kri,
konu, Stasia Jóhamnesson, fæddri
Gogotz, en Konráð er kvæntur
Páldísi Eyjólfsdóttur.
Mig brestur orð, en bið í hljóði
Guð, að gefa systur minni styrk,
sem og öllum syrgjendum Lúð-
víks frænda míns. Það er óbein
huggun syrgjenda, að hinn látni
var göfugur maður, sem ekki að
eims urani sinum nánustu, heldur
og þjóð sinni og lamdi. Lúðvík
var hugljúfi allra er honum kynnt
ust. Óvin átti hann engan. Hann
var trúr sjálfstæðisstefnunni, og
hefur starfað um árabil í full-
trúaráði Sj álfstæðisflokksins.
Allir vandamenn og vinir hins
látna og syrgjendur hans samein
ast í bæninni.
Seint á baraalegurani, var Lúð-
vík spurður um hvernig honum
liði, hann svaraðk „Mér líður
vel. Ég er að fara heim.“ Þessi
orð hans eru iærdómsrík. Geym
um þau í góðu minni.
Stgr. DavíÖsson.
í DAG verður Lúðvík Á. Jóhann-
esson forstjóri til moldar borinn.
Útförin fer fram frá Háteigs-
kirkju. Lúðvik var fæddur í
Reykjavík 19„ des. 1915. Hann
andaðist J0. ágúst sl. á Landa-
kotsspítala. Foreldrar haras voru
Jóhannes Kr. Jóhannesson bygg
ingameistari, Þorgrímssonar £rá
Sveinseyri og Elísabet Davíðs-
dóttir, Jónatanssonar frá Marð
arnúpi í Vatrasdal.
Hann ólst upp hér í Reykjavík
hjá foreldrum sínum og nam tré
smíðar hjá föður sínum og gekk
i iðnskóla.
1939 kvæntisit Lúðvík, eítiriif
andi konu sinni Ingibjörgu Vil-
hjálmsdóttur, Hákonarsonar frá
Stafnesi. Börn þeirra eru: Vu-
hjálmur’ efnaverkfræðingur, f.
1940, Davíð, sem þau misstu 1951,
Konráð Alexander f. 1948, Eydís
f. 1950 og Davíð Þór f. 1956.
Ég kynntist Lúðvík 1937. Vor
um við þá báðir starfsmenin hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur h.f.
og unnutn þar við yfirbyggingar
á strætisvögnum.
örlögin hafa hagað því þannig
að leiðir oltkar hafa legið saman
lengst af síðan, þannig, að við
höfum unnið í sama fyrirtæki í
um 30 ára skeið.
Árið 1942 stofnaði Lúðvík
ásamt okkur fjórum öðrum fyrir
tækið Hf. Bílasmiðjam. Ári seinma
bættist einn við svo að við urðum
sex eigendur. Við vorum þá all-
ir á bezta aldri og bjai'tsýnir á
framtíðina, en þó var Lúðvík
bjartsýmastur okkar allra og var
það lengst af, þótt á ýmsu gengi.
Honum var fljótlega falin for
staða fyrirtækisins og gegndi
hann þvi starfi til æviloka.
Útilífsmaður var Lúðvík mikill,
þó ekki klifi hann fjöll, fór á skíð
um og skautum á yngri árum, og
lax- og silungsveiðar stundaði
hann mikið og voram við oft sam
an við veiðar. Eru það minar eftir
minniliégustu stundir með honum.
Þar var hann frjálsastur og narat
sín bezt. Þar var hann hrókur
alls fagnaðar, hjólpfús leiðbein
andi og góður veiðimaður og fé
lagi.
Hanra var áhugamaður um skóg
rækt og plantaði miklum fjölda
trjáa við sumai’bústað sinn við
Hafi’.avatn. Þar undi haran bezt í
frístundum sLnum, með fjölskytd
unni. Heimilið var honum rnikils
virði og haran mat konu sína og
börn mikils og naut þess að eiga
gott heimili.
Lúðvík var hraustmenrai mikið
alla ævi, svo ég man aldrei eftir
að hann lægi veikur einn einasta
dag þar til núna rúma tvo síöastl.
mánuði. Kem-ur þvi bæði mér
og fleirum á óvart að hann skuli
nú vera horfmn af sjónarsviðirau.
Hann mun þó ekki hafa gengið
heill til skógar síðasta ár, þótt
hvorki hatin né aðrir kunnugir
hafi gert sér þess fulla grein.
Ég þakka þér Lúðvík allar góð
ar samverustundir og það gerum
við ailir félagar þínir í Bílasmiðj
ur.ni og biðjum forsjónina að
styrkja konu þína, börn, tengda-
börn, barnabarn og aldraða móð
ur.
Gunnar Björnsson.
KVEÐ.IA
LÚÐVÍK Á. Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Bí'lasmiðjunnar hf.
er horfinn sjónum okkar — að-
eins hálfsextugur að aldri. —
Svo snöggt var ljánum að þessiu
sinni sveiflað, að engrar undan-
komu var auðið.
Lúðvik á'tti að baki sér merka
sögu huigsjóna- og atihafnamanns
ins. Á unga aldri lauk hann námi
í bifreiðasmíði. Átti það nám eft-
ir að verða honram notadrjúgt
síðar. Fyrir rúmum þremur ára-
tugum stofnsetti hann, ásamit
fimm saimvöldum félögum, Bíla-
smiðjuna hf., landsþekkt fyrir-
tæki í sinni grein. Þeir, sem
fylgzt hafa með þroun í smíði
bifreiðayfirbygginga hér á iandi,
eru á einu máli um, að þar hafi
mörgu Grettistakinu verið lyft.
.Við ý'-msa örðugleika Var oft að
etja, fjárskort og efnahagsvanda
mál aimennt, að ekki sé minnzt
á harða og oft ójafna samkeppn-
isaðstöðu við framleiðenður er-
lendis. Hlutur Lúðvíks í þessum
þætti baráttusögu islenzks iðnað-
ar er og verður skýr og afmark-
aður.
Ábugamál Lúðvíks voru fjöl-
þætt. Gekk hann að þeim ölluim
með sama leiftrandi áihuganum.
Ánægjulegt var að fylgjast með
starfi hans í skógræktarmálum
á landsspildu þeirra hjóna við
Hafravatn — hvemig hann með
nærfærni og natni hlúði að ung-
um, veikburða gróðri og gróður-
setti nýjan. — IJnun er þar nú
yfir að líta. —
Listhneigð var Lúðviiki í blóðp
borin og söngmaður ágætur., —
Hjálpsamur var hann svo að af
bar og ávallt boðinn og búinn til
starfa fyrir góð málefni. Það
þekkja félagar hans í Lions-
klúbbnum Baldri vel.
Við þau vegamót, sem ram sinn
skilja að leiðir okkar, flyt ég
þér, góði vinur, innilegar þakkir
fyrir ágætt samstarf og fyrir
allar ógleymanlegu ánægjustund
irnar.
Við hjónin vottram korau hans,
Ingibjörgu Vilhjálmsdótfur, börn
um og tengdabörnum, svo og
aldraðri móður og tengdamóður
okkar dýpstu samúð og biðjum
Guð að . blessa minningu hins
látna.
Eiríkur Ásgeirsson.
LC9I19
RhmlnJ.___.1
Vtía_________
DDCLECn
t
Eiginkona mín og móðir,
Ásta Möller,
Ægisíðu 92,
verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni á morgun, fimmtu-
daginn 19. ágúst, kl. 10,30 f.h.
Víglundur Möller,
Anna Herskind.
Vegna jarðarlarar
Lúðvíks Á. Jóhannessonar, forstjóra, verða söludeild, vara-
hlutaverzlun og skrifstofur okkar lokaðar i dag, miðvikudag-
inn 18 ágúst, frá kl. 13.00 til 16,30.
Tékkneska bifreiðaumboðið á islandi h.f.
Auðbrekku 44—46, Kópavogi.
LOKAÐ
eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar
Lúðvíks Á. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra.
TRYGGING H.F.