Morgunblaðið - 19.08.1971, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.08.1971, Blaðsíða 3
3 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1971 sök á hendur Vini hans misþyrmt og sumar- bústaður hans grandskoðaður ALEXANDER Solzhenit- syn hefur sakað sovézku öryggislögregluna KGB um að hafa ofsótt sig árum saman og mótmælt við Sovétstjómina athurði, sem gerðist fyrir nokkrum dögum og var með þeim hætti, að útsendarar ör- yggisþjónustunnar réðust á vin hans, þegar hann stóð þá að því að leita ólöglega í sumarbústað hans. Nóbelsskáldið hefur sent yf- irmanni KGB, Yuri Andropov, opið bréf, og hann hefur enn- fremur sent Alexei Kosygin, íorsætisráðherra, afrit af bréf inu og farið fram á rannsókn í málinu. Vinir skáldsins hafa dreift afritum af bréfinu til vestr- ænna fréttamanna og segir þar: „Árum saman hef ég tekið ólöglegum aðgerðum starfs- manna yðar með þögn og þol- inmæði. Ég hef umborið að þeir hafa skoðað öll bréf min, gert helminginn upptækan, leitað í húsum pennavina minna, ég hef umborið opin- berar ofsóknir þeirra, njósnir í kringum hús mitt, eftirlit með ferðum gesta, símahler- anir, ég hef umborið að göt hafa verið boruð I þakið, að upptökutækjum hefur verið komið fyrir í ibúð minni I borginni og í sumarbústað mínum, og ég hef umborið þráláta rógsherferð gegn mér frá ræðupöllum, þegar starfs- mönnum ráðuneytis yðar er boðið að taka til máls. En eftir árásina í gær get ég ekki þagað lengur," segir Solzhenitsyn í bréfinu til Andropovs. Hann kvaðst hafa veikzt í Moskvu og beðið vin sinn, Alexander Gorlov, sem býr sig undir að taka doktorspróf í verkfræði, að fara til sum- arbústaðar síns í þorpinu Rozhdestvo, um 60 km suð- vestur af Moskvu, til þess að KGB ná í varahlut í bifreið sína. Hann heldur áfram: „En í ljós kom, að enginn lás var á bústaðnum og að innan heyrðust raddir. Gorlov gekk inn og krafðist skilrikja af ræningjunum. Húsið er svo lítið, að þar geta þrír eða fjórir menn varla snúið sér við, en þarna voru tíu menn samankomnir, óeinkennis- klæddir. Þeir bundu Gorlov eftir fyr- irmælum yfirmannsins — „út í skóg með hann og þaggið Yuri V. Andropov niðri í honum“ —• börðu hann svo að hann féli kylliflatur og drógu hann út í skóginn og börðu hann illþyrmilega. Meðan þessu fór fram hlupu hinir eftir krókaleiðum gegn- um runnana og burðuðust með böggla, skjöl, og muni (ef til vill líka hluta af útbún- aði þeim, sem þeir höfðu komið með sjálfir). En Gorlov veitti harðvitugt viðnám og hrópaði og kallaði á vitni. Nágrannar úr öðrum sumarbústöðum komu hlaup- andi þegar þeir heyrðu hróp hans og lokuðu leið ræningj- anna að þjóðveginum og heimtuðu af þeim skilriki. Þá Alexander Solzhenitsyn rétti einn ræningjanna fram rautt skilriki, og nágrannarn- ir leyfðu þeim að fara. Þeir leiddu Gorlov að bíln- um. Andlit hans var iila út- leikið eftir misþyrmingarnar, og föt hans voru í tætlum. „Þokkalegar aðferðir, sem þig beitið," sagði hann við þá, sem leiddu hann. „Við erum í leiðangri, og í leiðangri get- um við gert allt sem okkur sýnist.“ Solzhenitsyn sagði, að yfir- maður hópsins, Ivanov höf- uðsmaður, hefði farið með I Goriov á næstu lögreglustöð, þar sem Ivanov hefði verið tekið með lotningu. „Þá krafðist Ivanov þess, að Gorlov skrifaði skýringu á því, sem hafði gerzt. Þótt Gorlov hefði orðið fyrir óþyrmilegum barsmíðum, skrifaði hann á blað um til- gang ferðar sinnar og allar kringumstæður. Að svo búnu krafðist aðalræninginn þess, að Gorlov undirritaði þag- mælskuheit. Gorlov neitaði þvi blákalt. Síðan héldu þeir til Moskvu, og á leiðinni staglaðist aðalræninginn á eftirfarandi orðum og lét Gorlov heyra þau aftur og aftur: „Ef Solzhenitsyn kemst að þvi, sem gerðist, er úti um þig. Opinberum ferli þín- um verður lokið (Gorlov hef- ur tekið kandídatspróf í tækni og vísindum, hefur iagt fram doktorsritgerð og starfar í Ríkistilraunastofnun byggingaáætlana og tækni- Framhald á bls. 21 Surnarbústaður Solzhenitsyns þar sem atbiirðiirinn gerðist. Þetta er hvíldorstóilinn sem er jafnt fyrir dömur og herra Útborgun kr. 1000 o>g kr, 1000 á mánuði SENDUM UM LAND ALLT Vöruúrval á þrem hæðam Opið til kl. 10 í kvöld V M Vörumarkaðurinn hf. J ÁRMÚLA 1 A — SÍMI 84800 OG 81680. STAKSTEIMAR í*ögn uni ræðu Sovétmannsins Ekki verður hjá því komizt að vekja enn einu sinni athygli á þeim undarlegu vinnubrögð- um, sem viðhöfð eru á stjórnar- heimilinu, þegar að þvi kemur, hvort skýrt skuli frá því, sem fram kemur erlendis á hinum ýmsu málum, er Island varða, ekki sízt Iandhelgismálinu. Virð- ist í þeim efnum boðorðið að- eins eitt. Að hingað megi ekk- ert vitnast um það, sem stjórn- arherrunum er þóknanlegt í það og það skiptið. Um annað eigi þjóðin og megi ekkert vita. Þannig ríkir nú grafarþögn í Tímaniun og Þjóðviljanum um ræðu fulltrúa Sovétrikjanna,, er hann hélt á fundi hafsbotns- nefndar Sameinuðu þjóðanna f Genf sl. föstudag. Er þetta þvf undarlegra sem ræða þessl snertir svo mjög okkur fslenð- inga og mesta lifshagsmunamál okkar, landhelgismálið. En f þessari ræðu komst fulltrúi Sovétríkjanna m.a. svo að orðl, að Sovétríkin skoruðu & fs- lenzku rikisstjórnina að bverfa frá slíkum aðgerðum sem þeim að færa fiskveiðilögsögima út f 50 sjómílur fyrir 1. september 1972. ~ ( Jafnframt sagði sovézki fuH- trúinn, að Sovétríkin viður- kenndu ekki rétt neins rikis 10 að helga sér sérstaklega vfðarl fiskveiðilögsögu en 12 milur og að Sovétstjórnin harmaði ein- hliða ákvarðanir í þessum efn- iim, meðan verið væri að undir- búa alþjóðlega hafréttarráð- stefnu. Loks reifaði Sovétmaðurinn þá skoðim Rússa, að þeir vildu setja sérstakar reglur til þess að tryggja fiskveiðar smábáta strandríkis fyrir utan 12 mílur. Hélt hann því fram, að stór skip væru aðallega byggð til þess að veiða undan ströndum annarra landa. Þess vegna væri nóg að vernda litlu skipin. „Að lýsa sjálfum sér“ Eins og að ofan greinir er það síður en svo, að það sé við Eng- lendinga og Vestur-Þjóðverja eina að eiga, þegar að því kem- ur, að fiskveiðilögsagan verði færð út, þótt svo kunni að virð- ast, ef menn hefðu ekki annað við að styðjast en upplýsingar Þjóðviljans. En sem betur fer, eru þeir orðnir næsta fáir hér á landi og fer fækkandi, sem þang- að sækja allan sinn fróðleik. Koma þar og til góðar leiðbein- ingar ritstjóranna, en þeir þreyt- ast ekki á að upplýsa lesendur sína um, að með skrifum sintun séu þeir að lýsa sjálfum sér, — og þá væntanlega með þögninni einnig, — svo að engum þarf að dyljast, hverjir þar halda á penna. Hitt er með ölhi óskiljanlegt, að Framsóknarmenn hafi tekið stjórnarsamstarfið við kommún- ista svo alvarlega, að sama rit- skoðunin sé nú upptekin á Tim- anuni sem á Þjóðviljanum, þeg- ar Sovétríkin eru annars vegar. Verður þó í lengstu lög að halda í þá skýringu, að það hafi með einhverjum undarlegum hættl gjörsamlega farið fram hjá þeim Timamönnum, að fulltrúi Sovét- ríkjanna hafi haldið ræðu & fundi hafsbotnsnefndar Saniein- uðu þjóðanna i Genf. Er þess að vænta, að þeim séu hæg heima- tökin að afla sér upplýsinga um, hvað í þeirri ræðu var sagt. Nú, en sé ekki i önnur hús að venda, þá er að fletta upp í Morgun- blaðinu og fá fréttirnar þaðan. v t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.