Morgunblaðið - 19.08.1971, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.08.1971, Blaðsíða 5
KtöRGUNBLAÐIÐ, KIMMTUDAGUR '19. ACíUK'J’ '19W 5 ALDARAFMÆLI Þjóðvinafélagsins.... Til sölu — Til sölu Einbýlishús í smíðum við SUNNUFLÖT múrhúðað og málað utan, otnar fylgja. Lóð með uppsteyptum sökklum. Teikningar á skrifstofunni. Sýning á ritinn ■Þjóðviiuifólajfsins að Skálholtsstig 7. HIÐ íslenzka þjóðvinafélag var stofnað 19. ágúst 1871, og voru Stöfnendur þess 17 þjóðkjörnir alþingismenn. Félagsstofnunin hafði átt sér nokkurn aðdrag- cinda, fyrst á alþingi 1869 fyrir forgöngu Tryggva Gunnarssonar og síðar á sýslufundi Suður- Þingeyinga 8. júni 1870, þar sem „nokkrir heiðursmenn. . tóku sig saman um að hvetja landsmenn til að sýna í verkinu, að þeir hefðu það þrek og samheldi að vera sjálfstætt þjóðfélag og vinna sér þau réttindi, sem þar til krefðist að halda þeim." Tilgangur félagsims var þannig í upphafi stjórnmálalegur, og fyrsti forseti þess var Jón Sigurðsson. Félagið efndi t. a. m. til þjóðfundar á Þingvöllum 1873, og sumarið 1874 stóð það fyrir þjóðhátíð þeirri, er haldin var í minningu þúsund ára byggðar á íslandi. Félagið sneri sér þó brátt jafn- framt að útgáfu ýmissa rita, og eru þar kunnust Andvari (1874-), er leysti af hólmi Ný félagsrit Jóns Sigurðssonar og félaga hans (1841-’73), og Almanak (1875-). Kjarni þess var íslands- altnanak það, er Kaupmanna- hafnarháskóli hafði gefið út allt frá árinu 1837, en við það var svo aukið ýmsu efni, er verið gœti alþýðu manna til gagns og fróðleiks. Einstök rit, er félagið hefur gefið út, voru framan af lang- flest um hagnýt efni, til þess ætluð að glæða áhuga á atvinnu- og efnahagsmálum og hvers konar framföi’um í þeim efnum. Af þeim mörgu ritum, er Hið islenzka þjóðvinafélag hefur gef- ið út, skulu hér nokkur talin: Mannkynssöguágrip eftir Pál Melsteð, 1. og 2. hefti (1878-1879). Dýravinurinn, alls 16 hefti (1885-1916), Um frelsið eftirjohn Stuart Mill í þýðingu Jóns Ölafs- sonar (1886), Hvers vegna? Vegna þess, eftir Henri de Par- ville, 1.-3. hefti (1891-1893), Rétt- arstaða Islands eftir Einar Arn- órsson (1913), Hið íslenzka þjóð- vinaféiag 1871 - 19. ágúst - 1921, Stutt yfiriit eftir Pál Eggert Óla- son (1921), Mannfræði eftir R. R. Marett i þýðingu Guðmundar Finnbogasonar (1924), Varnar- ræða Sókratesar eftir Platon í þýðingu Steingrims -Thorsteins- sonar (1925), Jón Sigurðsson eftir Pál Eggert Ólason I-V (1929-1933), Býflugur eftir M. Maeterlinck í þýðingu Boga Ól- afssonar (1934), Sjáifstæði ís- lands 1809 eftir Helga P. Briem (1936), Örnefni í Vestmannaeyj- um eftir Þorkel Jóhannesson (1938), Bréf og ritgerðir Step- hans G. Stephanssonar I-IV (1938-1948), Konur á Sturiunga- öld eftir Helga Hjörvar (1967). Tryggvi Gunnarsson (1835- 1917) tók við af Jóni Sigurðs- syni, er lézt 1879, og var for- seti Þjóðvinafélagsins 1880-1911 og aftur 1914-1917. Hann annað- ist í samfellt 30 ár ritstjórn Aimanaksins og aftur þrjú ár síðar. Hefur enginn maður unnið félaginu slíkt gagn sem hann, enda kom mönnum jafnan hann i hug, þegar þeir heyrðu félags- ins getið, þótt hér væri einungis um eitt viðfangsefni þessa þjóð- kunna athafnamanns að ræða. Það er því ekki ófyrirsynju, að póststjórnin gefur i tilefni aldar- afmælis Þjóðvinaféiagsins út frí- merki með mynd Tryggva Gunn- arssonar auk frimerkis með merki félagsins sjálfs. Aðrir forsetar félagsins en þeir Jón og Tryggvi hafa verið: Jón Þorkelsson þjóðskjalavörður 1912-1913, Benedikt Sveinsson al- þingismaður 1918-1920, dr. Páli Eggert Ólason 1921-1934, Pálmi Hannesson rektor 1936-1939, Jón- ás Jónsson alþingismaður 1940, pogi Ólafsson yfirkennari 1941- 1956, Þorkell Jóhannesson há- skólarektor 1958-1960, Ármann Snævarr háskólarektor 1962-1967, Finnbogi Guðmundsson lands- bókavörður 1967 og síðan. Auk hans eiga nú sæti í stjórn félagsins þeir Bjarni Vilhjáims- son þjóðskjalavörður varafor- seti, Einar Laxness mennta- skólakennari, Jónas Kristjánsson forstöðumaður Handritastofnun- ar Islands og dr. Þorsteinn Sæ- mundsson, meðstjórnendur, en Þorsteinn hefur verið ritstjóri Almanaksins siðan 1964. Árið 1940 var efnt til sam- vinnu Hins íslenzka þjóðvinafé- lags og Bókadeildar Menningar- sjóðs um bókaútgáfu, og var þá gert ráð fyrir, að félagið gæfi út þrjár bækur á ári, en bókadeild- in í forsjá Menntamálaráðs fjórar. Reyndin hefur þó orðið sú, að bókaútgáfan hefur færzt að miklum mun á hendur forráðamanna Menningarsjóðs, enda hafa þeir haft mestöil fjár- ráðin. Árið 1959 var Andvari gerð- ur að sameiginlegu máigagni Hins islenzka þjóðvinafélags og Menntamálaráðs, breytt um brot og hann gefinn út í þremur heft- um á ári. Ritstjórar skyldu vera tveir, einn frá hvorum aðila. Ár- ið 1968 var Andvara þó breytt að nýju i ársrit. Ritstjórar Andvara eru nú Finnbogi Guðmundsson og Heigi Sæmundsson. Andvari 1971 verður tileinkað- ur aldarafmæli Hins íslenzka þjóðvinafélags. Verður þar rakin saga félagsins síðari 50 árin, 1921-1971, en ennfremur birtar ýmsar greinar um Jón Sigurðs- son. Þá er ákveðið, að út komi á þessu ári á vegum Þjóðvinafé- lagsins fyrsta bindi úrvals bréfa til Stephans G. Stephanssonar. Sýning á ritum Þjóðvinafé- lagsins mun standa næstu daga í húsakýnnum Bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs og Þjóðvinafélagsins að Skálholtsstíg 7, og verður sýningin opin á sömu tímum og verzlun útgáfunnar, mánud. til föstud. kl. 9-12 og 13-18, enn- fremur laugardaginn 21. ágúst kl. 14-19. (Frétt frá stjórn Hins islenzka þjóðvinafélags). Nokkra lughenta menn vantar nú þegar við framleiðslustörf í verksmiðju vorri að Einholti 10. Upplýsingar í síma 21220 á skrifstofutíma. H.F. OFNASMIÐJAN. Forstöðnkonustnðan við leikskólann í Staðarborg er laus til umsóknar. Umsóknir sendist skrifstofu Sumar- gjafar, Fornhaga 8, fyrir 29. þ.m. STJÓRN SUMARGJAFAR. Fasteignamiðstöðin Austurstrœti 12 SÍMAR 20424—14120 — HEIMA 85798—30008. Ungur verkfræðingur nýkominn frá námi óskar eftir að leigja 3ja—4ra herb. íbúð. Upplýsingar í síma 36219 milli kl. 10 og 12. Kæri félagi. Hestamannatélagið FÁKUR Stjórn Fáks hefur ákveðið að innheimta upp í væntanlegan fóðurkostnað kr 5000 á hest hjá þeim félögum sem ætla að hafa hesta á fóðrum hjá félaginu í vetur. Fjárhæð þessa ber að greiða á skrifstofu félagsins fyrir 1. októ- ber n.k. og eiga básréttareigendur forgang til þess tfma, en úr þvi má búast við að básrýmið verði leigt öðrum. Þá mun félagið taka hesta í hagagöngu í haust eins og undan- farin ár. Einnig hefur félagiö til leigu sai til fundarhalda og einkasam- kvæma. — Upplýsingar í síma 30178 STJÓRNIN. POCKETBOOK electron tubes semk*»',ductors integrated circuits components materials 1971 Um 1000 bls. — Verð kr. 100.— Allar uppl. um lampa, transistora, IC, mótstöður, þétta o. fl. Heimilistæki sff. Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.