Morgunblaðið - 19.08.1971, Qupperneq 15
i jMOHGlLNBhAÐl-h), 1:'I.MMTIB)AGUR, 1‘). ÁGVST(1971
15
Gengið á vit
náttúrunnar
VEÐRIÐ var búið að vera mjög
gott um tima. Af þvi að það var
komið svo nálægt JónKmessunni,
langaði mig að komast upp í
sveit og liggja einhvers staðar
úti Jónsmessunóttina og kynn-
ast náttúrulífinu betur en hægt
var hér í bænum. Ég átti ekkert
íarartæki og ákvað þvi að kom-
ast eiitthvað út fyrir bæinn á
puttanum eins og það er kallað.
Ég hafði með mér bakpoka og
í honum plast[K>ka, sem ég gat
komizt í, nestisbita og kaffi-
flösku. Myndavél hafði óg og
smáisjá. Ég fór af stað eftir
hádegið. Komst ég upp fyrir
Árbæ með götuvagni og hélt
síðan labbandi austur eftir veg-
inum. Bílar komu og fóru fram-
hjá. Ég gaf merki um að stanza,
en enginn stanzaði. Var óg búinn
að ganga í tæpar 15 mínút-
ur, þegar gamail sendiferðabíll
eitanzaði og bilistjórinn bauð mér
far með sér.
Þegar við komum að Hvera-
gierði fór ég úr bílnum og þakk-
aði ágætan greiða. Hélt ég síðan
út í sveitina og gekik I þrjú
borter. Þá lagðist ég niður sunn-
an undir túnjaðri og teygði úr
öfflum skönkum. Hér var gott að
vera. Á fiötum smásteini sátu
mörg fiðrildi og biðu kvöldsins
til að fljútga um þegar kvöld-
kyrrðin kæmi.
Hér var þó náttúrulif og við
steinjaðarinn bjó köngurlóin til
net til að veiða í. Netið var
mjög laglega gert. Fyrst þrí-
hyrningar og svo ofið á milli
þeirra af miklum hiagleik. Já,
kömgurlær lifa ekki af hunangi
eins og fluigur. Þær veiða smá
sikordýr sér t.il matar eins og
rándýrin gjöra. Endia g'æti hún
flokkazt til þeirra hvað fæðuöfl-
un snertir, þótt i smærri stíl sé.
Köngurlóin fór ekkd langt frá
netinu sínu. Hún beið við eina
landfestina og þegar hún fann
að twgað var og kippt í land-
taugina, kom í hana æðisgangur.
Hún þaut út netdð og athugaði
hvað þessum láitum olli. Tók sdð-
an smáfluguna i bitkrókana og
færði á loft meðan hún renndi
sér fimlega eftir netinu aftur.
Hún hélt áfram með fluguma að
smá siniutoppi sem var þar rétt
hjá. Þar inni í sinudúskinum var
Mtill hvítur silkiiþráðahnoðri og í
homum voru eggin fali.n. Þama
var iheimili henmar í hljóðri ró
í faðmi néittúrunnar sjálfrar.
Nú var þokuislæðingur að siga
fram með fjöllumum. Grasið var
að verða rakt. Sá ég þá nokkra
litfla grasisnigla færa sig upp á
steinröndina. Þar var gamian að
veita þeim eftirtekt. Ef komið
var nærri þeim með puntstrái
kippfust þeir til og breyttu um
stefnu. Skynjun þeirra virtist
aflar næm, þrátt fyrir það að
þe»r sæju ekki. Þama rétt hjá
séeininuim var stór mosaþúfa
Þar lá hrossagaukur og hreyfði
sig ekki þótt ég lægi tíu faðma
frá bönum.
Umifeðmingsgras óx upp með
steindnum á einn veginn. Blómin
voru hér um bil ful'lþroákuð en
biðu sólarinnar. Ég hugsaði með
ámægju til morgunsins, þegar
allir hunangsdýrkendur kæmu
að sækja sé,r hunang.
Nú sá ég var maðUT kom frá
bænum og stiefindi til min. Ég
stóð upp og gekík á móti honum.
Gotft kvöld, við sáum eirhverja
hreyfingu héma í grasinu og
viQidum vita hvað þetta væri,
eagði maðurinn um leið og hann
rétti mér höndina. Já, ég var
lengi búinn að þrá að liggja úti
i sveit þessa nótt og fylgjast
með náttúrul'ífinu, i kyrrð og
einvéru, svaraði ég. Já, það er
Jónsmesisunótit núna, sagði bónd-
inn. Annans er þér vel'komið að
liggja inni á dívan í stofunni
minni í nótt. Þalkka yður fyrir.
ég er ákveðinn í að dveilja hérna
í nótt. Svo kvaddi hann og sagði
iwn leáð: Þú keimur í fyrraimáJið
og færð þér kaffísopa áður en
>ú ferð. Þakka yður fyrir.
Ég fór í plastpokann, sem náði
mér upp undir höku, og lagðíst
niður hjá steininum aftur. Allt
var að verða svo hljótt og himn-
esk ró hvildi yfir öllu umhverf-
inu. Ég starði á alilar hreyfingar
sem óg sá. Nú leið mér ágætlega
pókanum og hafði ég bakpok-
ann undir höfðinu. Ég hafði legið
noklkra stund, þegar ég sá hvar
eitthvert stærðarferliki, svart,
nálgaðist mig. Ég sá það ekki
ganga, ekki skreið það heldur.
Það leið ósköp rólega yfir gras-
inu. All.taf nálgaðist það. Ég
hugsaði strax að þetta myndi
vera eitthvað af undrum Jóns-
messunæturinnar. Það kom í
mig óró og kvíði. Átti ég að
mæta þessu einsamall. Það var
ekki langt þangað til það kæmi í
kallfæri við mig. Kviðinn óx. Nú
opnaði óg augun. Ég hafði sofn-
að. Þessi svarta þúst var ekkert
annað en fyrsti sólargeislinn,
sem kom á móana.
Ég hresvsti mig á kaffinu og
beið svo eftir að sólin skini á
umfeðmingsgrasið. Það var ekki
nema smástund. Strax og fyrstu
geisiarnir skinu á blómið opnað-
ist eitt blómanna. Strax voru
komin nokkur fiðriikli og sveim-
uðu yfir. Svo settist eitt fiðrildið
mjög gætilega og stakk sogpíp-
unni niður i sarpinn. Dagstarfið
var hafið. Hver vann eftiir sinni
þörf. Allt var það dýrunum í
sjáiLfs þarfir og um leið tii að
viðhalda jurtinni. Frjóið settist
á bakið á fiðrildiniu og svo ner-
ist það við frjóblöð næsta blóms
og þá var lífimu borgið.
T. A.
Norska-húsið, elzta húsið í Stykkishólmi,
Stykkishólmur:
Norska-húsið gert
að byggðasafni
Stykkishóimi 15. ágúst.
ELZTA húsið í Stykkishólmi,
Norska-húsið, verður nú gert að
byggðasafni og mun vermdað.
Hefur sýslunefnd Snsefellsness-
og Hnappadalssýslu o. fl. keypt
húsið af Kaupfélagd Stykkis-
hólms og hyggst korna þama upp
minja- og byggðasafni og yfirleitt
nota það fyrir allt sem geymir
sögulegar minjar sýslurmar. Er
alltaf untnið að söfnwn fágætra
og gamalla muna. Hús þetta
byggði á sínum tíma Ámi Thorla-
eius, kaupmaður. Fluttd viðimn
tilhöggvinn frá Noregi. Er húsið
enn þann dag í dag eins og hann
gekk frá því, en þá þótti þetta
höll og var viða rómað. Þama
hafa margir átt heima um dag-
ana, oft verið tví- og þribýli;
þarna hefir verið hótel, sauma-
stofa, pakkhús og um lanigt skeið
var þetta aðalleikhús kauptúns-
ins. Voru stænstu stofumar not-
aðar til þess. Var þetta um og eft
ir aldamót. Er saga hússins því
hin merkasta. Þá má ekki gleyma
því að Árni Thorlacius mun
hafa verið fyrsti maður, siem dag
lega ritaði niður veðurfregnir
og hélt þvi óslit'ið áfram meðan
hann lifði og þá tóku aðrir yið.
Er sá þáttur í sögu hússims ekki
ómerkur. Mörg munnimæli og
sögur varðveitast enn í minni
manna um húsið og fbúa þess, og
væru vel þess virði að þeim væri
safnað saman á einn stað.
— Fréttarifari.
5300 skoðaðir hjá Hjartavernd
Hjartavernd, landssaantök
hjarta- og æðavemdarfélaga á
Islandi, héldu aðalfund sinn 27.
maí sl. i húsakynnum samtak-
anna að Lágmúla 9, Reykjaví'k.
Prófessor Sigurður Saimúels-
som, fonmaður satmtakanna setti
fundinn og minntist í upphaifi
tveggja stjómarmainna, sem lét
ust á árinu, þeirra Óskars Jóns-
sonair, framkvæmdastjóra, Hafn
arfirði, og Sigtryggs Klemenz-
sonar, bankastjóra, en þeir
vom báðir meðal stofnenda sam
takanna og áttu sæti í stjóm
þeirra frá upphafi. Fundar-
menn vottuóu hinum látnu virð
ingu sína með því að rísa úr
sætum.
Formaður flutti skýrslu
stjómarinnar, en í henni kom
m.a. fram, að á síðasta starfsári
voru skoðaðir 5300 þátttakend-
ur á rannsóknarstöð samtak
anna að Lágmúla 9.
1 febrúar sd. hófst rannsókn á
Akureyri á vegum Hjarta- og
æðaverndarfélagsins þar, en
rannsókn þesisi er rekin í sam-
vinnu við Hjartavemd. Einstak!
inigar, stofnanir og félög á Akur
eyri lögðu fram um 2 milijónir
til þeirrar rannsóknar.
Þá gat fonmaður um gjafir,
sem samtökunum hafa borizt
nýlega þ.e. 100 þúsund króna
gjöf frá Styrktarsjóði Dagsbrún
ar og frá líknarsjóðd stúkunnar
nr. 7, Þorkels Mána, I.O.O.F.
hjartalínuritstælki af gerðinni
MINGOGRAF 34, að verðgildi
um kr. 250 þúsund. Formaður
þakkaði þessar gjafir og sagði i
því sambandi, að það væri mik-
il uppörvun fyrir forráðamenn
og starfsfólk samtakanna að
verða slíks trausts aðnjótandi.
Sagði formaður að sl. vetur
hefði verið 'lögð áherzla á að
benda á skaðsemi sígarettu-
reykinga og hefði sígarettusala
minnkað í Tóbakverzlun ríkisdns
á eftir.
F'ramtíðarverkeifini samtak-
anna sagði formaður að væri að
ná til sem flestra landsmanna
og sagðist vona að undirbúning
ur að rannsókn á fólki frá Suð-
urlandsundiriendinu gæti hafizt
i náinni framtíð.
Þá tók dr. Guðrún P. Helga-
dóttir, formaður Utanfararsjóðs
Hjartaverndar, tii máls, og
skýrði frá þvi, að stjómarkon-
ur hefðu orðið sammála um að
aifhenda stjóm Hjartaverndar
sjóði sína, þair sem sjúklingar
væri nú lögum samkvæmt
styrktir af hinu opinbera, ef
þeir þyrftu að leita sér læknis-
hjálpar erlendis.
Stjórn Utarufararsjóðsins hef-
ur á árunum 1968—1971 veitt
19 styrkveitinigar að upphæð kr.
573.000. — Upphæðin, sem Utan
fararsjóðurinn aflhenti Hjaria-
vemd var alls kr. 1.958.109.21.
Stjómarkonur voru: Guðrún
P. Helgadóttir, Sigurborg Odds
dóttir, Guðríður Elíasdóttir,
Hrafnhilduir Helgadóttir, Sól-
veig Eyjólfsdóttir, Ragna Þorm
ar, Ólöf Möliler, Guðrún Karis-
dóttir, Kristjana Helgadóttir,
Elínborg Stefánsdóttir, Rósa
Jensdóttir, Unnur Sehram, Ingi-
björg Ólafsdóttir, Herdís Krist-
jánsdóttir.
1 framkvæmdastjórn Hjarta-
vemdar voru kosnir: próf. Sig-
urður Samúelsson, próf. Davíð
Daviðsson, Sigurliði Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri Ásgeir
Magnússon, framitovæmdastjóri,
Stefán Júliusson, bókafulltrúi
ríkisins.
Málsókn
New York, 17. ágúst. AP.
Bandarísk kona, hefur haf-
ið málsókn á hendur flugfélag
inu Svissair vegna líkams-
meiðsla, ótta og óþæginda,
sem hún varð fyrir, þegar
flugvél félagsins, sem hún var
í, var neydd til að lenda á
eyðimerkurflugvelli í Jórdan-
íu fyrir tæpu ári. Krefst kon-
an 75.000 dollara skaðabóta af
flugfélaginu.
Bridge
EINS og áður hefur verið skýrt.
frá hér i blaðinu, er ákveðið að
Evrópumeistaramótið í bridge
fyrir árið 1971 fari fram í Grikk-
landi í nóvember nk. Að undan-
förnu hefur staðið yfir úrtöku-
mót á vegum landsliðsnefndar
Bridgesambands íslands og er
að eftir er einvígi mi'lli tveggja
keppnin nú á lokastigi, þannig
sveita um landsliðssætin. Sveit-
irnar, sem keppa í þessu einvigi,
eru þaniniig skipaðar: Sveit A:
Símon Símon'arson, Þorgeir Sig-
urðsson, Stefán J. Guðjohnsen
og Þórir Sigurðsson. Sveit B:
Ásmundur Pálsson, Hjalti Elias-
son, Einar Þorfinnsson og Jakob
Ármannsson.
Bkki hefur enn verið ákveðið
hvenær keppni þessi fer fram.
ítalska bridgesambandið hef-
ur álkveðið hverjir skipa 'muni
sveit þá, er keppa mun á Evr-
ópumótinu. Er sveitin þannig
skipuð: Belladonna, Garozzo,
Bianchi, Messina, Meyer og
Mondolfo.
Brezka sveitin verður þannig
skipuð: Priday, Rodrigue, Flint,
Cansino, Dixan og Sheenan.
Tveir síðasttöldu eru nýliðar í
brezka landsliðinu.
Nýlega var haldinn aðalfundur
hjá Bridgefélagi Reýkjavíkur,
en félagið verður 30 ára hinn 18.
maí 1972. Eftirtaldir voru ko'Snir
í stjóm félagsins:
Ragnar Halldórsson, fonmaður;
Jakob R. Möiler, varaformaður;
Stefán J. Guðjohnsen, gjaldkeri;
Þorgeir Sigurðsson, ritari; Guð-
iauguT R. Jóhannsson, íjármála-
ritari.
fréttir
i stuttu máli
RÆÐISMAÐUR RÆKTAÐI
„POT“
Miami, Florida, 17. ágúst.
AP.
Aðalræðismaður Haiti, Eg-
uene Maximilien, var hand-
tekinm á flugvellinum í Miami
á þriðjudagsmorgun, sakaður
um að geyma marijuana á
heimili sínu. Lögreglan hafði
verið kvödd þangað til að
rannsaka innbrot og kom þái
í ljós að hann ræktaði marij-
uana í garði sínum. Ráðsmað-
ur ræðismannsins tilkynnti
innbrotið meðan Maximilien
var á Haiti. Haran var látinn
laus gegn tryggingu.
SKOURAS LÁTINN 1
Rye, New York, 17. ágúst.*
AP. (
'
Spyros P. Skouras, einn af
síðustu Hollywood-kóngun-
um, lézt á mánudagskvöld af
hjartaslagi, 78 ára að aldri.
Skouras kom til Bandaríkj-
anna árið 1910 ásamt bræðr-
um sínum en þeir voru fædd-
ir í Skourahorian í Grikk-
'landi. Þar var Skouras smali
á bernskuárum. Hann ætlaði
að læra til prests en hætti við
og fluttist vestur um haf.
Skouras tók við Fox
Metropolitan kvikmyndahús-
unum í New York árið 1932.
Tíu árum síðar varð hann for-
maður 20th Century Fox og\
gegndi því stairfi í 20 ár. Han-n
var sérstaklega hreykinn af
því að hafa framleitt fyrstu
Cinemaseope kvikmyndina
„The Robe“, sem gerð var
1952. Skouras neyddist til að
láta af formannsstarf mu eft-
ir deilurna>r innan fyrirtækis-
ins, sem urðu eftir gerð kvik-
myndarinnar Kleopötru.