Morgunblaðið - 02.09.1971, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1971
23
Fréttabréf frá. Þórshöfn:
ALDREI MEIRI
ÞORSKAFLI
Þórshöfn, 20. ágúst.
TÍÐARFAR hefur verið mjög
gott í sumar. Þorskaflirm hefur
aldrei áður verið jafn góður, en
hann er frá áramótumtil júlíloka
1985 tonn. Á sama tímabili í
fyrra var aflinn 977 tonn. Af
þessum afla hafa 1610 torin farið
I frystiingu, en 375 verið sölt-
uð. Togskipið Harpa hefur
verið gert út héðan í þrjá mánuði
og aflað um 500 tonn, og hefur
því ödu verið landað hér.
Stærri bátamir hafa flestir
verið með þorskanót í sumar, og
öfluðu þeir mjög vel I júní og
júlí. Aftur á móti var aflinn frem
ur tregari á handfæri þessa mán-
uði. Nú hefur þetta snúizt við.
Handfærabátar afla vel, en nóta
bátar lítið sem ekkert, og eru
þeir því að byrja með snur-
voð og línu. Gæftir hafa verið
góðar fyrripart aumars, en það
aem af er ágúst hefur verið frem
ur vindasamt, og þurrviðri hefur
verið óvenjumikið.
Um mánaðamótin júní-júlí
strandaði m.a. Hagbarður, 16
lesta eikarbátur frá Húsavik,
við Ytra-Áland i Þistilfirði. Dag-
imn eftir var vitaskipið Árvakur
fengið til að ná bátnum út, og var
ætlunin að draga hann himgað til
Þórshafnar. Ekki tókst samt
betur til en svo, að báturinn
sökk skammt frá hafnargarðin-
um á 10 faðma dýpi, en óþægi-
lega nálægt skipalegunni. Ekki
þótti forsvaranlegt að láta bát-
inn liggja þarna, og var varðskip
fengið til að fjarlægja hanm.
Varðskipsmenn festu dráttartaug
í bátinn, drógu hann eftir botn-
inum imn í Lónsfjörð og skildu
hann eftir inni við fjarðarbotn,
þar sem lítil eða engin skipaum-
ferð er. En nú kom 'upp kurr
mikiil hjá snurvoðarkörlum á
Þórshöfn, og töldu þeir sig grátt
ieikna, þar sem bátsflakið hefði
verið sett á beztu kolabreiðurn-
ar í firðinum. Ekkert gátu þeir
þó aðhafzt í málinu. En næst
gerist það, að nokkrir menn frá
Akureyri kaupa flakið á sjávar-
botni og tekst þeim að lyfta því
frá botni með flothylkjum og
draga inn að bryggjunni hér.
Þar tók krani við, og tókst hon-
um að lyfta flakinu upp í sjólok-
in. Var það síðan bundið með
vírum utan í bryggjuna, og þar
hangir það nú. Ekki er ljóst hvað
gerist næst. Framkvæmdum hef-
ur verið hætt a.m.k. í bili, en hitt
er víst, að snurvoðakarlar anda
léttar.
Góð atvinna hefur verið i sum-
ar, og er það að mestu hinum
góða sjávarafla að þakka.
Nú eru þrjú íbúðarhús í srníð-
um hér í þorpinu, og eitt er í
smíðum á bænum Syðri-Reykj-
um í Sauðaneshreppi.
Unnið hefur verið við að raf-
lýsa hafnarsvæðið, setja upp ný
innsiglingamerki og leiða vatn
fram á bryggjurnar. Mikil bót er
af þessu, því fram til þessa hafa
sjómenn orðið að athafna sig í
höfninni í svartamyrkri, og það
er oft erfitt í skammdeginu, bein
línis lífshættulegt. Þá hafa þeir
þurft að aka vatni í tunnum nið-
ur í bátana. í sambandi við þetta
má geta þess, að hafnargjöld eru
hærri en víðast hvar anrnars stað-
ar á landinu, og hafa þau verið
það lengi. — FréttaritarL
Rússar lækka rúbluna
Moskvu, 1. sept., AP, NTB.
SOVÉTSTJÓRNIN brást í dag
við hinu ótrygga ástandi í al-
þjóðagjaldeyrismáliun, með því
að lækka gengi rúblunnar örlítið
gagnvart gjaldmiðlum 15 þjóða.
Dollarinn var undanþeginn þess-
ari lækkun.
Lækkun þessi etr taliin hafa
mjög lítil áhrif, vegna þess að
ekki er verzlað með rúbluna á
frjálsum maTkaði. Heimildir í
Moskvu herma að þetta séu
mestu breytiingar sem Sovét-
stjóm hafi gert á gj aldeyrisskrán
ingu rúblunnar gagnvaxt erlend-
um gjaldmiðlum í 10 ár.
Miklir málverka-
þjófnaðir á Ítalíu
Rómaborg, 1. september — NTB
LÖGREGLAN í Rómaborg hóf í
dag umfangsmikla leit að mál-
verkum, sem stolið hefm- verið
á Ítalíu í þessari viku. Málverk-
in eru metin á 170 milljónir
króna. Þeirra merkast er verk
eftir Tizian frá endurreisnar-
timabilinu, „Heilagt samtal“, og
var því stolið úr kirkju í þorp-
inu Pieve Didadore á Norður-
ftalíu. A málverkinu sést guðs-
móðir með barnlð og dýrlingar
krjúpa við fætur þeirra. Það var
málað í kringum 1560.
Þjófarnir höfðu og á brott með
sér þrettán málverk önnur úr
kirkjunni og telur þorpsprestur-
inn i Pieve Didadore, að þjófam-
ir hafi falið sig á bak við orgel-
ið í kirkjunni, þegar henni var
lokað á mánudagskvöld.
t gær var fjórtán málverkum
til viðbótar stolið frá itölskum
auðkýfingi og eru þau metin á
um það bil fjórtán milljónir
króna. Þau voru flest eftir
ítalska málara, t.d. Piazzetta,
Fadovanio og Cabinava. Þá var
stolið 30 ítölskum nútímamál-
verkum úr ibúð i borgiinni Udina
í gærkvöldi.
Suðurlands-
kjördæmi
AÐALFUNDUR Kjördæmisráða
Sjálfstæðisfélaganna í Suður-
landskjördæmi verður haldinn i
Vík laugardaginn 11. sept. n.k.
og hefst kl. 4 e.h.
Rúta fer frá Selfossi kl. 1 e.h.
með viðkomu á Hellu og Hvols-
velli.
Móðir okkar,
Anna Sigmundsdóttir,
Bugðulæk 2,
andaðist 30. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Foss-
vogskirkju 3. september kl.
1.30 e.h.
Þeir, sem vildu minnast hinn-
ar látnu, láti líknarstofnanir
njóta þess.
Börn, tengdabörn
og barnabörn.
EBE stuðningur,
London, 1. september — NTB
CAMKVÆMT skoðanakönnun,
sem Louis Harris-stofnunin
gekkst fyrir, fer þeim enn fjölg-
andi í Bretlandi, sem eru fylgj-
andi aðild Breta að Efnahags-
bandalagi Evrópu. Voru nú 36%
aðspurðra með aðild, en í júni
si. voru 20% hlynntir henni sam-
kvæmt niðurstöðum sömu skoð-
anakönnunarstofnunar. Nú voru
39% á móti, en voru 47% í júni.
I þessari skoðanakönnun kem-
ur fram, að vinsældir ríkisstjóm-
ar Edwards Heaths hafa vaxið,
en Verkamannaflokkurinn hefur
þó enn vinninginn frEun yfir
ihaldsmenn.
Hjartans þakkir færi ég
mínum elskulegu börnum og
fjölskyldum þeirra, einnig
öðrum ættingjum og vinum
fyrir heimsóknir, gjafir og
góðar óskir í tilefni 75 ára
afmælis míns þann 12. ágúst
sl. Guð blessi ykkur öll og
launi ríkulega.
Valgerður Bjarnadóttír,
Keflavík.
Ég þakka innilega öllum
þeim, er sendu mér gjafir og
góðar óskir á áttræðisafmæli
mínu 21. ágúst síðastl.
Guð blessi ykkur öll.
Salóme Sigurðardóttir,
Víðimel 69.
&wv7X /fÞ wterr/f
Höfum opnað aftur að .. I B