Morgunblaðið - 03.09.1971, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1971
Akranes:
5 skip keypt, 4 seld
og eitt í smíðum
Akranesi 2. september.
AKURNESINGAR hafa nú ný-
lega keypt 5 fiskiskip, selt 4 og
eiga eitt í smíðum og stækkar
fiskiskipafloti bæjarins um 780
rúmlestir með þessum kaupum
og sölum.
Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjan h.f. á Akranesi hefur nú
nýlega keypt tvö skip, Gróttu
RE 128, sem er 184 rúmlestir að
stærð og Njörva frá Reyðarfirði,
sem áður hét Magnús Ólafsson
GK 494 og er 256 tonn. Vélskip-
ið Ásmundur, sem er 58 lestir,
var selt í sambandi við kaupin
á Njörva.
Þórður Óskarsson h.f. hefur
keyþt vélskipið Helga Flóvents-
son frá Húsavík, sem er 183 rúm-
lestir að stærð. f>á hefuí Haf-
aldur Böðvarsson h.f. keypt tvö
skip, örfiriisey RE 14 og Akurey
RE 6, sem eru 108 og 281 rúm-
Fót-
brotnaði
er bíll ók á hest
Akureyiri, 2. september.
FIMMTÁN ára piltur á hestbaki
varð fyrir bíl og féil til jarðar við
Þverárbrú um klulkkan 11.30 í
gærkvöldi. Hann vaæ ásamt öðr-
um piliti að koma úr útreiðartúr
og var í þann vegiinn að komast
suður yfir brúna á Þverá, þegar
bíll kom á móti homum og ók á
hestinn. Ökumaður segist ekki
hafa orðið pilfbsiins var, fyrr en
um seinan, enda var rigning og
vegurinn blautur og dökkleitur.
Talið er að hesturinn hafi lemt á
hægra afturbretti bílsins, sem
vár dældað og pilturinn hafi fall-
ið af hestimum við höggið.
Pilturinn, sem heitir Sverrir
Hjaltason, Melabraut 44, Seltjarn
airnesi, og er kaupamaður á
Syðra-Laugalandi í sumar, er tal
inn hafa fótbrotnað, en hestur-
inn meiddist ekki. — Sv. P.
lest að stærð. Skipin voru keypt
af Hraðfrystistöðinni h.f. í
Reykjavík og komu til Ak-raness
í dag. Haraldur Böðvansson h.f.
hefur selt tvö skip, Höfrung II,
AK 150 sem er 208 brúttólestir
og Keili, AK 92, sem er 55
brúttólestir.
Sigurfari AK 95, sem er 11
brúttólestir, hefur ve-rið seldur
en eigandi hans var Berþór Guð-
jónsson. Þá á Þórður Guðjóns-
son skipstjóri skip í smíðum í
Dráttarbraut Þorgeirs og Ellerts
h.f.
Síldarverksmiðjan og Heima-
skagi h.f. eru nú að byggja fisk-
verkunarhús á Heimaskagalóð,
þar sem áður stóð m. a. gamla
íshúsið. Það var upphaflega
kælt með ís og salti, en árið 1928
voru settar í . það frystivélar.
Þórður Ásmundsson og Loftur
Loftsson útgerðarmaður létu
byggja það rétt efti.r síðustu
aldamót. — hjþ.
Aukinn vígbúnaður í austri
London, 1. sept., AP, NTB.
ALÞJÓÐA rannsóknanefnd, skíp-
uð hemaðarsérfræðingnm frá 46
ríkjum, birti í dag ársskýrslu
sina í London. Kemur þar meðal
annars í Ijós, að Sovétríkin eiga
nú um 50% fleiri langdrægar
kjamorkueldflaugar en Banda-
ríkin, og að Sovétríkin eru að
efla her sinn meðan Bandarikin
em að draga úr herafla sínum.
Þá segir í skýrslunni, að fjöldi
sovézkra eldflauga i Egyptalandi
hafi þrefaldazt frá í fyrrá, að
Kínverjar séu orðnir þátttakend-
ur í eldflaugakapphlaupinu, og
að Rhodesíu-stjórn hafi tekizt
að fjölga í flugher sínum um sjö
herflugvélar þrátt fyrir vopna-
sölubann þangað.
Skýrsla nefndarinnar er hin
ítarlegasta. Segir þar til dæmis,
að Sovétríkin hafi nú þrisvar
■sinnum fleiri skriðdreka í Evr-
ópu en Vesturveldin, og 2.500
flugvéluim fleiira í flugher sínum
en Vesturveldin.
Nefnd þesisi tók fyrst til starfa
árið 1958, og hefur árlega hirt
yfirlit yfir vígbúnað í heimmum.
Segir í skýrslunni, að nefndin
sé algerlega óháð öllum r£kið-
•stjórnum og hagsmunasamtök-
um. Helztu liðir skýrslunnar eiru
þessir:
1. Langdrægar eldflaugair í
skotstöðvum á landi eru í Sovét-
rfejunum alls 1.510, í Bandaríkj-
unum 1.054,
2. Bandaríkin hafa fækkað í
her sínum úr 3,5 milljónum í 2,7
milljónir. Sovétríkin hafa fjölgað
í her sínum úr 3.150.000 í 3.375.
000.
3. Bandaríkin hafa enn yfir-
burði að því er varðar langdræg-
air eldflaugar um borð í kafbát-
um, eða alls 656 á mióti 350 í
sovézkum kafbátum. Sovétríkin
eru hina vegar að aukia kafbáta-
Lætur smlða þrjá
báta á Akureyri
flota sinn, og ná væntanlega
BandarJkjunum á því sviði iinnan
tiðar.
4. í Evrópu hefur Atlantshafs
bandalagið á sínum vegum 7.750
skriðdretea, Varsjárbandalagið 21.
700. NATO hefur þar 2.850 flug-
vélar, Varsjárbandalagið 5.360.
5. Veisturveldin hafa enn yfir-
burði á höfunum, en sovézki
flotinn er í örum vexti.
6. SoVétríkin hafa auíkið her
sinn verulega á kínversku landa-
mærunum án þess að draga
nokkuð af því autealiði frá Evr-
ópu.
7. Um 15—20 þúsund sovézk-
ir sérfræðíngar eru í Egypta-
landi til að aðstoða egypzka her-
inn. Sovézkiir flugmienn fljúga
um 150 egypzkum MIG-þotum.
Egyptar hafa nú 523 herflugvél-
ar, Israelar 375. Egyptar hafa
1.650 skriðdreka, ísraelar 1.075.
Þetta eru helztu tölurnar, en
skýrslan í heild verður birt í
Londan síðar.
Rætt við Einar
sölu og smíði á
MORGUNBLAÐIÐ hafði í
gær samband við Einar Sig-
urðsson, útgerðarmann, vegna
fréttar um, að hann hefði selt
tvo báta sína, örfirisey og
Akurey, Haraldi Böðvarssyni
& Co. á Akranesi.
Hvað kemur til að þú ferð
allt í einu að selja báta i stað
þess að kaupa þá?
— Ég held, að ég sé ennþá
við það heygarðshomið að
kaupa báta, því að ég er að
láta smíða þrjá á Akureyah
hjá Slippstöðinni.
— Hvers vegna selur þú
tiltölulega ný skip og lætur
smíða önnur I staðinn?
— Örfirisey og Akurey eru
bæði um 300 tonn og hafa
eingöngu stundað snurpu-
veiðar, verið í Norðursjó á
sumrin, á síldveiðum hér á
haustin og fyrstu mánuði árs-
ins og loks á loðnuveiðum á
vertíðinni. Þannig hafa þau
ekki komið með neitt hráefni
fyrir frystihús mín. Að visu
hafa þau veitt loðnu fyrir
verksmiðjuna, en af loðnunni
hefur borizt nóg. Þess vegna
hef ég ekki þurft að gera út
til að fá það h>ráefni.
Sigurðsson um
bátum
— Bátarnir, sem eru í
smíðum á Akureyri, verða
105—150 tonn, byggðir sem
þorskveiðiskip, fyrst og
fremst til línu- og netaveiða
og einnig til togveiða.
— Hefur þú frekari fréttir
af skipasölum?'
— Já. Vélbáturinn Örn,
sem Hið almenna fiskveiði-
hlutafélag á og ég e.r viðrið-
inn ásamt 30—40 hluthöfum,
hefur verið seldur Nöf h.f. á
Hofsósi. Munu þeir þar ætla
að nota bátinn sérstaklega til
togveiða fyrir Norðurlandi
allt árið um kring, nema ef
vera skyldi að hann skr^ppi
suður fyrir land til að veiða
loðnu á meðan hún er.
— Ætlar þú að selja fleiri
skip?
— Það getur verið að ég
selji tvo 65 tonna báta, sem
ég á og sem erfitt er orðið
að gera út fyrir aðra en þá
sem eiga bátana sjálfir og
vinna á þeim.
— Ætlar þú að láta smíða
fleiri báta, eða ætlar þú að
fara yfir í toga-rana eins og
nú er í tízku?
— Ég á nú togarann Sig-
Einar Sigurðsson
urð og útgerð hans hefur
gengið ágætlega, sem ekki er
furða, þar sem hann er og
hefur verið aflahæsta skipið
í flotanum. En hvort ég bæti
við togurum get ég ekki sagt
um enn sem komið er. Það
er ekkort smámál fyrir ein-
stakling að ráðast í kaup
skuttogara, sem kosta frá
100—150 milljónvr króna.
Laxárdalur:
Grafnar
dauðar
úr fönn
BÆNDUR á N-Auisturlandá ótt-
ast nu, að stórfelldiir fjiárskaðar
hafi orðið í ofviðri þv4 sem gekk
yfir fyrir síðustu helgi. Kom
þetta fram þegar Mbl. leitaði
fregna um veiði í Laxá hjá Her-
móði Guðmundssyni, bónda í Ár-
neisi, í gær. Kvaðst hainn vita um
eimn bónda í Laxárdal, sem dreg
ið hefði 4 kindur dauðar úr fönn,
og eins hefði ain og ein kind
verið dregiin dauð úr fönn á Hóls
fjölliuim og í Vopnafirði.
Ennlremiur sagði Hermóður,
að mörgum kindum hefði veriið
bjargað lifandi úr fönin, þ. á m,
14—15 kindum á Laxárdalsheið-
umum. Mývetningar hefðu einn-
ig grafið eitthvað úr fönn, en
þeir smöluðu um 800 fjár heim
í girðingar úr vestanverðri Mý-
vatnssveit.
— ÁkaÆlega erfiitit er að kanma
þetta að gagni fyrr em snjóinn tek
uir upp, en hitastig heCur verið
um frositmark á fj'öllunum þar
til í gær, og vonumist við til að
eitthvað tatei að hliýna á næst-
unni. Annars eru þessi snjóa-
löig á svo stóru svæði, þ.e. á af-
réttarlömdum Þingeyinga og af-
réttarlöndum Múlasýstoa, að
bíða verður með að athuiga þau
til hlltar flyrr en i göngunuim
í haust, sagði Hermóður að lok-
um.
Fyrsta
einkasýmng
Hallsteins
HALLSTEINN Sigurðsson
myndhöggvari opnar í dag
sýningu á verkum sínum í
Asmundarsal á Skólavörðu-
holti. Hallsteinn hefur sýnt á
samsýningum áður, en þessi
sýning er fyrsta einkasýning '
hans. Öli verkin, 26 talsins,
erti gerð síðan 1968 og erti
þau öll unnin erlendis, en Hall
steinn hefur stundað iistnám
í Bretiandi síðustu 5 vetur í
og verður þar einn vetur í
viðbót. Vrerkiii eru unnin úr
gifsi, járni, steypu og trefja-
plasti. Sýningin verður opin
daglega frá kl. 2—10 til 19.
september. Á myndinni er
Hallsteinn Sigurðssoli við tvö
vt-rka sinna.
(Ljóstm. Mbl. Kr. Ben.).
Kærði nauðgun
RCrMLEGA þrítug kona kærði
í fyrrakvöid nauðgun til lög-
reglunnar á Keflavíkurflugvelii,
eftir að hafa verið handtekin við
að hrjóta rúðnr í einni blokk-
inni með grjótkasti. Var hún bú-
in að brjóta tvær rúður er húm
var handtekin,
Þegar farið var að yfirheyra
konuna hjá lögreglunni, sagði
hún að sér hefði verið nauðgað
í þessu húsi skömmu áður, en
vegna ölvunar var framburður
hennar mjög ónákvæmur. Við
yfirheyrslur í gær kom fram að
konan hafði verið ölvuð frá því
á þriðjudagskvöld, en verið að
flækjast um í fyrmefndri blokk
allan miðvikudaginn, en í blokk-
inni eru eins til þriggja manna
herbergi. Ber hún að þrír menn
hafi nauðgáð henni í tilteknu
he.rbergi, en veit ekki nöfn
þeirra og segist ekki geta þekkt.
þá í sjón. Aftur á móti hefur
hún þekkt aftur í sjón nokkra
menn, úr hópi þeirra sem yfir-
heyrðir hafa verið, en setur þá
ekki í samband við nauðgunina.
Kannast þó margi.r úr húsinu
við að hafa séð konuna þar í
fyrradag.
Strax og konan kom til lög-
reglunnar var farið með hana á
sjúkrahúa tll læknisrannsóka-
ar, en áverkar voru ekki sjáan-
legir á henni. Slorifleg skýrsla
um niðurstöður læknisrann-
sóknar var ekki komin tii lög-
reglunnar í gærkvöldi. Unnið
var að lögreglurannsókn í gær-
dag og verður haldið áfram.