Morgunblaðið - 05.10.1971, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1971
27
Vélin kastaðist 29 metra frá bílnum, sem á Ijósastaurnum lenti, og þar lenti annar bíU á henni.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
Vélin kastaðist fram
úr bílnum
— og annar ók á hana
ÁTJAiV ÁRA piltur meiddist ilia
I baki, þegrar hann ók á ljósa-
staur við Hringrbraut, rétt aust-
an Gamla Garðs í fyrrakvöld.
Við ákeyrsluna hentist vélin
fntm úr bílnrnn og: rann 29 m
vestur götuna, en þar ók svo
annar bíU á hana. Grunur leikur
á, að pUturinn liafi verið undir
áhrifum áfengis.
Við yfirheyrslur í gær kvaðst
pilturinn litið muna frá ákeyrsl-
unni. Hann var á leið vestur
Hringbraut, þegar hann lenti á
ljósastaurnum.
Skömmu síðar kom annar bíll
Framkvæmdaráð
Norræna félagsins
SAMBANDSÞING Norræna fé-
lagsins var haldið í Norræna hús-
inu 24. sept. Þingið sátu 30 full-
trúar frá 8 félagsdeildum. Þing-
forseti var Vilhjáimur Þ. Gísla-
son f.v. útvarpsstjóri.
Formaður sambandsins, Gumn-
ar Thoroddsen gaf skýrslu um
störf Norræna félagsins á lið'nu
áiri, reikningar voru lesnir og
samþykktÍT. Helrtu umræðuefnd
voru: Störf félagsdeildannia, verlk-
efnii Norræna félagsins á næstu
árum og lagabreytingar. Tölu-
verðar breytingar voru géxðar á
lögum félagsim, en þær voru
undirbúnar af miilliþinganefnd,
sem kosin var á síðasta sam-
bandsþingi. M. a. var sú breyting
gerð á starfsskipulagi félagsins,
að stjómin skal kjósa úr sínum
hópi þriggja manna framkvæmda
ráð, sem vinnur með fram-
— Varðberg
Framhald af bls. 28.
til Atlantshafsbandalagsins. Hins
vegar hefði verið gefin út sér-
stök yfirlýsing úm uppsögn varn
arsamningsins, sem hefði vakið
mikla athygli, ekki fyrir það,
hversu skýr hún væri, heldur fyr
ir það, hversu loðin hún er.
Rakti ræðumaður síðan mis-
munandi yfirlýsingar ráðherr-
amna um inntak stefnuskrárinn-
ar í vamarmálum og misræm-
ið þeirra á milli. Sagði hann, að
óhjákvæmilegt væri að gera kröf
ur til þess, að almenningur vissi,
að hverju væri stefnt í öryggis-
málum þjóðarinnar.
Sigurður Guðmundsson sagði
það stefnu Alþýðuflokksins, að
Islendingar væru áfram innan
NATO og styddi hann áfram-
haldandi dvöl varnarliðsins hér á
landi.
Ráðstefnan hélt áfram á laug-
ardag og sunnudag og skiptust
menn þá áskoðunum um hina
ýmsu þætti varnar- og utanríkis-
mála. Það kom m.a. fram hjá
Jóni E. Ragnarssyni, formanni
Varðbergs, að þörf væri á meiri
skoðanaskiptum milli lýðræðis-
flökkanna um varnar- og örygg-
ismál en verið hefðu um siinn.
kvæimdastjóra í samíbasndi við
daglegan rekstur félagsins.
Kjörnir voru í stjórn Norræna
félagsina til næstu tveggja ára:
Gunmar Thoroddsen, prófessor,
Reykjavík, formaður, Guðimiund-
ur Björmsson, kennari, Aikranesi,
Helgi Bergs, bankastjóii, Reýkja-
vík, Hjálmar Ólafsson, mernnta-
skólakennari, Kópavogi, Kolbeinn
Þorleifsson, prestur Eskifkði,
Sverrir Pálsson, skólastjóri, Akur
eyri og Þóroddur Guðmundsson,
rithöfundur, Hafnarfirði.
(Frá Norræna félaginu).
Slys í Flóa
UMFERÐARSLYS varð á Flóa-
vegi, skammt austan Sel foss á
laugardagskvöld. Tveir jéppar
rákuist á. Fimm manns voru
flutt i sjúkrahúsið á Selfossi og
í gærkvöldi lá ökumaður annars
jeppans þar enn, en meiðsli hans
voru þó ekki lífshættuleg.
Kveðja frá for-
seta Mauritaníu
FORSÆTISRÁÐHERRA barst í
dag svohljóðandi simskeyti frá
forseta Mauritaníu:
„Við brottför frá Reykjavík er
mér sérstök ánægja að færa yð-
ur og hinni hugrökku og gest-
risnu íslenzku þjóð einlægar
þakkir fyrir hinar hlýju mórtitök-
ur, sem sendinefnd mín fékk á
íslandi.
Ég vil nota tækifærið til þess
að taka enn á ný fram, hversu
mikils ég met hinar jákvæðu nið
urstöður af viðræðum okkar,
sem miða að auknum vinsamleg-
um samskiptum milli Islands og
ríkja Afríku í þágu gagn-
kvæmra hagsmuna þjóða okkar
og fyrir auknu réttlæti og friði
í heiminum.
Moktar ould Daddah,
forseti Mauritaníu og for-
maður Einingarsamitaka
Afríkuríkja.“
(Frá forsætisráðuneytinu).
vestur Hringbrautina. Ökumaður
hans uggði ekki að sér fyrr en
bíllinn staðnæmdist á vélinni úr
I hinum bílnum.
frÉttir
í stuttu máli
Pakistanar safna liði
NYJU DELHI: — Indversk I
blöð herma, að Pakistansher |
i hafi sent liðsauka að landa- ,
mærum Vestur-Pakistans og;
Indlands og reist ný varnar-
virki. Blaðið „Indian Ex-1
press“ hermir, að Pakistanar (
hafi nú yfir að ráða 10 fót-
, gönguliðsherfylkjum, tveimur \
brynvæddum herfylkjum og |
30 hjálparstórsveitum í (
Kasmir. Óbreyttir borgarar'
munu ennfremur hafa ver-
ið fluttir frá 500 kílómetra I
löngu svæði meðfram landa-
mærunum gagnvart fylklnu,
Rajasthan.
(P Fangauppreisn
PONTIAC, Illinois: — Tveir
fangar voru skotnir í upp-
reisn I rikisfangelsinu í
Illinois um helgina og fimm
fangar og sex verðir særðust.
Lögreglan umkringdi fangels-
ið og þjóðvarðliðið var kallað
út þegar 350 fangar gerðu
uppreisn. Fangaverðir náðu
tökum á ástandinu hjálpar-
laust. Fangarnir tóku ekki
gísla og kvörtuðu ekki um
aðbúnað.
£ Gullforði Breta eykst
LONDON: — Gull- og gjald-
eyrisforði Breta jókst í sept-
ember um 86 milljónir punda
í 2,089 milljarða punda. Vara-
forðinn hefur aukizt jafnt og
þétt á síðustu 11 mánuðum
og hefur aldrei verið meiri
síðan siðari heimsstyrjöldinni
lauk.
0 Luna á braut
MOSKVU: — Síðasta tungl-
flaug Rússa, Luna 19, er kom
in á braut umhverfis tunglið,
en opinberiega hefur ekkert
ákveðið verið sagt um
tilgang tilraunarinnar. Þrjár
síðustu geimvisindatilraunir
Rússa hafa farið út um
þúfur.
William Rogers;
Hættulegt f ordæmi að
vísa Formósu úr S.Þ.
New York, 4. olktóber. NTB.
á BANDARÍSKI utanríkisráð-
herrann, William Rogers, hélt
ræðu á Allsherjarþingí Samein-
nðu þjóðanna í dag, þar sem
hann varaði aðildarríkin við því,
að vísa Formósu úr samtökunum
ug sagði, að það gæti orðSff
hættulegt fordæmi fyrir fleiri
slíkum aðgerðum.
Á Rogers hélt uppi rækilegri
vörn fyrir afstöffu Bandaríkja-
stjórnar í Kínamálinu og mælti
eindregið meff samþykkt banda-
rísku tillagnanna, sem gera ráff
fyrir affild beggja ríkjanna og
setu Pekingstjómarinnar í Ör-
yggisráffinu.
Sagði Rogera, að tillögur Banda
rikjastjórnar væru þær raunsæj-
Nýja
sálmabók-
in næsta ár
„ÉG geri mér vonir um, að
sálmabókin nýja geti komið út
snemma á næsta ári,“ sagði bisk-
up fslands, herra Sigurbjörn
Einarsson, við Morgunblaðið í
gær.
Sagði biskup að handrit bók-
arinnar væri nú að mestu tilbú-
ið, en töiuvert verður hún frá-
brugðin fyrri útgáfu. Nýja sálma
bókin verður ívið minni en sú,
sem nú er notuð, þar sem færri
nýir sálmar eru teknir inn en
eldri felldir út.
ustu sem fyrir lægju, með hiið-
sjón af öllum aðstæð’ - Með því
að samþykkja þær hægt
að tryggja, að öi iiverska
þjóðin ætti sína fúlitrúa hjá
Sameinuðu þjóðunum. Memn
ættu ekki að gleyma því að á
Formósu byggju 14 milljónir
manna eða fleiri en íbúar
tveggja þriðju hluta aðildarríkja
Sameinuðu þjóðanina.
NTB hefur eftir bandarískum
talsmönnum í aðalstöðvum S. Þ.
að úrslit í atkvæðagreiðslu um
Kína-málið geti orðið mjög tví-
sýn. Megi búast við svipuðu
fylgi við tiUögur Bandaríkja-
mamna og Albaníu.
— ísafjördur
Framhald af bls. 28.
manna hlutu 343 atkv. og tvo
menn kjöma.
Alþýðubandalagið hlaut 147 at
kv. (154) og eirm mann kjörfnn!
Hafði eiinn.
Á kjörskrá voru 1763, þar ai
218 í Eyrarhreppi. Atkvæði
greiddu 1490 eða 85%. Auðir
seðlar voru 25 og ógildir 2.
Kosrringu hlutu
Fyrir A-listann:
Sigurður Jóhannsson
Fyrir B-listann:
Theodór Nordquist.
Fyrir D-listann:
Högni Þórðarson
Kristján J. Jónsson
Garðar S. Einarsson
Ásgeir Ásgeirsson.
Fyrir F-Ustann:
Sverrir Hestnes
Jón Baldvin Hannibalsson.
Fyrir G-listann:
Aage Steinsson.
- EBE-aöild
Framhald af bls. 1.
aðild Bretlands að Efnahags-
bandalagi Evrópu, með þeim 9kil
málum sem stjóm Heaths hefur
samið um. Atkvæðagreiðslan á
þingi er fyrirhuguð 28. október
næstkomamdi.
ÁRANGURSLAUSAR
SÁTTATILRAUNIR
Mikið hafði verið reynt til þess,
áður en landsfundur Verkamanna
flokksins hófst, að sætta hina
stríðandi arma flokksins í EBE-
málinu, en allar slíkar tilraunir
urðu árangurglausar. Einn af for
ystumönnum stuðningsmanna
EBE-aðíIdar, með fengnum skil-
málum, er Roy Jenkins, fyrrum
fjármálaráðherra í stjóm Harolds
Wilsons. Hann hetfur til þes»a
verið einn nánasti samherji
Wilsons, en búizt er við, að hann
missi þá aðstöðu á þessum fundi,
— eða láti af henni sjálfviljug-
ur, — tíl þess að forðast að for
ysta Verkamannaflokksins mæti
klofin til atkvæðagreiðslunnar
28. október nk. Hins vegar 9egir
NTB ekki ósennilegt, að hann
reyni, að atkvæðagreiðslunni lok
inni, að endurheimta sína fyrri
aðstöðu.
ÓAÐGENGILEG
SKILYRÐI
Gert er ráð fyrir, að James
Gallaghan, innanrikisráðherra
„skuggaráðuneytisins“, þ. e.
forystuliðs stjórnarandstöðunnar,
hafi orð fyrir andstæðingum EBE
aðildar í umræðunum í neðri mál
stofunni. f ræðu, sem hann hélt
á fundinum í dag, gerði hann
ljóst, að Verkamannaflokksistjóm
mundi ekki telja sig bundna af
samningum stjórnar Heaths við
Efnahagsbandalagið. Ekki sagði
hann beinum orðum, að Verka-
mannaflokksstj órn mundi láta
Breta ganga úr bandalaginu en
í ræðu sinni tilgreindi hann ýmis
skilyrði, er hann taldi nauðsyn
legt að uppfylla til þess að staða
Bretlands innan bandalagsins
gæti orðið viðunandi — og segja
sérfræðingar, að óhugsandi sé fyr
ir núverandi aðildarríki bamda-
lagsins að ganga að þesaum skil
yrðum.
Gallaghan lagði á það áberzlu,
að þetta mál yrði ekki útkljáð
fyrr en ný stjóm hefði tekið við
völdum í Bretlandi, því hefði at
kvæðagreiðslan 28. okt. enga raun
verulega þýðingu.
VARÐI AFSTÖÐC SÍNA
TIL EBE
Roy Jenkins hélt einnig ræðu
á fundinum í dag og hvatti sér-
staklega til þess að Verkamanna
flokkurinn efldi tengsl við aðra
vestur-evrópska jafnaðarmanna-
flokka, ef Bretland yrði aðili að
Efnahagsbandalagi Evrópu. _____.
Kvaðst hann sannfærður um að
Bretar yrðu orðnir aðilar að
bandalaginu árið 1973 og þá
bæri brezka Verkamannaflokkn-
um umfram allt að efla forystu-
möguleika vinstri manna í banda
lagsrikjunum.
Hann varði mjög afstöðu sína
til Efnahagsbandalagsins og
kvaðst ekki mega tii þess hugsa,
að hugmyndin um einingu Evr
ópu dæi út i brezka Verkamanna
flokknum. Yrðu Bretar ekki að
ilar að EBE, mundi flokkurina
missa tækifæri til þess að hafa
áhrif á eflingu einingar evr-
ópskra vinstrimanna. Kvaðst
hann sannfærður um, að andstæð
ingum EBE-aðildar innam flokks
ina mundi fækka með hverju ári,
eftir að Bretar hefðu gengið í
bandalagið.
Meðal annarra, sem ræðu
fluttu, var Denis Healey, utan-
ríkisráðherraefni flokksins. __
Hann beindi skeytum sínum fyrst
og fremst að George Pompidou,
forseta Frakklands, — og sagði
að stefna Frakka í landbúnaðar-
málunum innan EBE væri fyrst
og fremst við það miðuð, að
Pompidou gæti aukið áhrif sín
meðal franskra bænda. Fyrir
þetta ættu Bretar að borga. Sagði
Denis Healey, að bros Pompidous
væri síður en svo „Monu Lisu-
bros“ eins og oft hefði verið hald
ið fram, það væri „bros tígris-
dýrsins“.